Vísir - 20.07.1976, Síða 13

Vísir - 20.07.1976, Síða 13
Útvarp í kvðld kl. 23, Danskt Bonna Sönderberg er óperu- söngkona við sama leikhús og Lone Hertz. Hún hefur sungið ótalmörg óperuhlutverk, m.a. Carmen eftir Bizet. Hún hefur hlotið margs konar styrki og verðlaun fyrir söng sinn. skemmtikvold Frændur okkar danir munu i kvöld skemmta okkur með tali og tónum i þættinum ,,A hljóð- bergi”. Listakonurnar Lone Hertz og Bonna Sönderberg tala saman i Ijóði og lagi um samband sitt við áhorfendur og hlustendur, um lifið og listina og það ,,að vera til”. Undirleik annast Torben Petersen sem er þekktur pianó- leikari og tónskáld og starfar við Konunglega leikhúsið i Kaupmannahöfn. Þáttur þessi sem er i umsjá Björn Th. Björnssonar var áður fluttur á listahátið 1974. —SE Lone Hertz er leikkona við Konunglega leikhúsið i Kaup- mannahöfn. Hún hefur leikið fjölmörg hlutverk, til dæmis Nóru i Brúðuheimili Ibsens. Einnig hefur hún leikið i kvik- myndum og fengið mörg verð- laun fyrir leik sinn Þessi mynd er af leikkonunni með syni sinum. Ný TILGATA um fund Ameríku „Sumarið ’76” nefnist þáttur sem i kvöld hefur göngu sina. Ætlunin er að þáttur þessi verði á dagskrá útvarpsins á hálfs- mánaðar fresti i sumar. 1 þáttum þessum verðbr fjallað um blandað efni i léttum dúr og þá gjarnan reynt að taka til með- ferðar það efni sem er ofarlega i húgum manna hverju sinni. I þessum fyrsta þætti verður, i framhaldi af siglingu skinnbáts- ins Brendans til Reykjavikur og för vikinganna til Ameriku, sagt frá nýrri tilgátu um fund Ameriku. Samkvæmt þessari tilgátu er gert ráð fyrir að sjómenn hafi fundið Ameriku á undan Kolum- busi og ku þessi tilgáta byggjast að einhverju leyti á drykkjusiðum islendinga á fimmtándu öld. Komið er við i stúdiói i London og fylgst með upptöku Islenskrar hljómplötu. Þá er sagt frá manni sem hefur það að atvinnu i fjörutiu stiga hita að selja islenskar lopapeys- ur, sem hlýtur að vera gróðalitill atvinnuvegur. Stjórnandi þáttarins er Jón Björgvinsson og mun hann i framtiðinni reyna að fá aðra menn með sér til að sjá um þátt- inn. —SE islenskar lopapeysur sjást nú æ oftar á erlendum herðum. i þætt- inum „Sumarið ’76” verður meðal annars rætt um vinsældir islensku lopapcysunnar i Eng- landi. Útvarp í kvöld kl. 21, Rœtt um fjármál raforkuiðnaðarins Annar þáttur Páls Heiðars Jónssonar um orkumálin verður á dagskrá útvarpsins i kvöld. Að sögn stjórnanda þáttarins verður fjallað um fjármál raforkuiðnaðarins i heild og fjármál einstakra orkufyrir- tækja. Rætt verður um þau vanda- mál sem við er að striða i orku- iðnaðinum, svo sem um greiðslubyrði, þróun á raforku- verði og fleira. Þá verður i þættinum fjallað um spurninguna, hvort sama raforkuverð eigi að gilda á öllu landinu. Meðal þeirra sem rætt verður við er dr. Gunnar Thoroddsen iðnaðarmálaráðherra og dr. Jóhannes Nordal seðlabanka- stjóri. Þátturinn hefst klukkan niu og stendur i eina klukkustund. —SE Meðal þeirra sem Páll Heiöar ræðir við i kvöld cru dr. Gunnar Thoroddsen iönaöarmálaráð- herra og dr. Jóhannes Nordal seðlabankastjóri. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Veðurfregnir og fréttir. Frá óly mpiuleikunum i Montreal: Jón Ásgeirsson segir frá. Tilkynningar. 13.00 Við vinnuna: Tónleikar. 14.30 Miðdegissagan: „Römm er sú taug” eftir Sterling North Þórir Friðgeirsson þýddi. Knútur R. Magnús- son les (8). 15.00 Miðdegistónleikar Ronald Smith leikur Konsert fyrir einleikspianó eftir Charles? Valentin Alkan. Byron Janis og Sinfóniuhljómsveitin i Chicago leika „Dauða- dans”, tónverk fyrir piano og hljómsveit eftir Liszt, Fritz Reiner stjórnar. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veðurfregnir) 16.20 Popphorn. 17.30 Sagan: „Ljónið nornin og skápurinn” eftir C.S. Lewis Kristin Thorlacius þýddi. Rögnvaldur Finnbogason les (6). 18.00 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. 19.35 Sumarið ’76 Jón Björg- vinsson sér um þáttinn. 20.00 Lög unga fólksins Ásta R. Jóhannesdóttir kynnir. 21.00 Þrjátiu þúsund milljón- ir? Orkumálin — ástandið, skipulagið og framtiðar- steínan. Annar þáttur. Umsjón: Páll Heiðar Jóns- son. 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. Kvöldsag- an: „Litli dýrlingurinn” eft- ir Georges Simenon Asmundur Jónsson þýddi. Kristinn Reyr les (13). 22.40 Harmonikulög Viola Turpeinen og félagár leika. 23.00 A hljóðbergi „Ura ástina og lifið” danskt kvöld á listahátið 1974: Upplestur, söngur og samtöl. Flytjend- ur: Lone Hertz, Bonna Sönderberg og Torben Petersen. 23.40 Fréttir. Dagskrárlok. Lofsverður útvarpsþótlur Sigurður Einarsson skrifar: „Alltof oft hefur dagskrá Rikisútvarpsins verið með þeim hætti að skrifa mætti langa skammapistla þar að lútandi. Hafa raunar margir orðið til þess, og er ekki nema gott eitt um það að segja að hlustendur séu vakandi fyrir svo öflugum fjölmiðli sem Rikisútvarpið er. En ekki má heldur láta undir höfuð leggjast að hrósa Útvarp- inu ef vel er gert, en nú er ein- mitt nýhafinn útvarpsþáttur sem er ákaflega skemmtilegur áheyrnar, auk þess að vera fræðandi. Þarna á ég við þátt Hannesar Gissurarsonar, Orða- belg. Þar er á hispurslausan og opinskáan hátt fjallaö um ýmis mál liðandi stundar. og auk þess að flytja þáttinn þannig að til fyrirmyndar er, þá hefur stjórnandi einnig fengið til liðs við sig menn sem kunna skil á þvi efni sem um er rætt i það það og það skiptið. Þættirnir um rússneska Nóbels-skáldið Alexander Solzhenytsin voru til að mynda hreint frábærir. Vonandi er aö framhald verði á þessum þáttum Hannesar i framtiðinni, enda er rödd hans næstum eins og rödd hrópand- ans i eyðimörkinni. þeirri eyöi- mörk sem slepjulegur vinstri menningar-lýður hefur ráfað um mörg undanfarin ár '. Þú neyðist til að fá þér vinnu. Kalli. Ég er hrædd um að það sé engin framtið i þessu!

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.