Vísir - 30.10.1976, Síða 7
-*>r fl >in—r -DDmj'n_______-JGi! DZP tnmnpz> jcrroji, <mii-a tj—33________2>nu>h
VISIR Laugardagur
30. október 1976
Spáin gildir fyrir sunnu-
daginn.
Hrúturinn
21. mars— 20. apríl :
Óvissa og misskilningur setja
mörk sin á þennan dag. Þú ættir
að fresta mikilvægum ákvörðun-
um og mikilvægri vinnu. Láttu
samt ekki allt sitja á hakanum.
m
Nautiö
21. apríl—21. mai:
Illskeytt slúður svifur um.
Reyndu að halda þig utan við slik
eyðileggingar öfl. Sannleikurinn
er nógu slæmur, þótt ekki sé verið
að finna upp á meiru.
Tviburarnir
22. mal—21. júni:
Samkoma fer vel af stað, en siðan
kemur bitur gagnrýni inn i mynd-
ina. Þaðan i frá eru hlutirnir
heldur svartir. Hlauptu ekki á
þig-
Krabbinn
21. júni—23. júli:
Þú verður miðdepill einhverra
fjölskyldudeilna. Þú ert ekki öf-
undsverður af þeim stað, vegna
þeirra bitru athugasemda sem
eiga eftir að fjúka.
Nt
Ljónift
24. júlí—23. ágúst:
Einhver gæti reynt að koma á þig
verkefni, sem i rauninni er ekki
þitt. Taktu það ekki að þér. Þá
verður þú bara að taka við fleir-
um.
Meyjan
24. ágúst—23. sept.:
Þú neyðist til að taka mikilvæga
ákörðun i dag, hvort sem þér lik-
ar betur eöa verr. Þar sem hún
mun hafa mikil áhrif á framtið
þina, ætturðu að biðja um aðstoð
reyndari manna.
Vogin
24. sept.—23. okt.:
Einhver smá atvik á vinnustað
fyrir stuttu eiga eftir að verða
stærri, og að lokum höfuðatriði.
Reyndu að skipta þér sem minnst
af þessu.
Drekinn
21. okt.—22. nóv.
Ósköp vanabundinn dagur fyrir
þig, og þér gæti leiðst litillega.
Reyndu samt að taka upp hansk-
ann fyrirþá sem minna mega sin.
Uogmaóurinn
2.1. nov.—21. des.
Samskipti við aðra ganga mis-
jafnlega. Vertu þolinmóð(ur) og
réttsýnn. Þegar hlutirnir fara að
ganga illa, skaltu nota imyndun-
araflið til að bæta úr.
Steingeitin
22. des.—20. jan.:
Nú reynir á dómgreindina. Láttu
ekki óvænta aðstöðu rugla þig, og
láttu ekki ýta þér út á hálan is.
Vatnsberinn
21. jan.—10. febi.:
Vinur þinn kemur sennilega til
þin með ástarvandamál, og biður
um ráðleggingar. Ef þú gefur
þær, verða þær frekar til ills en
góðs.
Fiskarnir
20. febr.—20. mars.
Þetta er sérstaklega helgur dagur
fyrir mörg ykkar og þið ættuð að
fara til kirkju. Seinnihluta dags-
ins muntu taka þátt i fjölskyldu-
samkvæmi.