Vísir - 03.11.1976, Blaðsíða 1
Miðvikudagur 3. nóvember
Sjálfstætt vandaó
og hressilegx
ÆkMmA /
##
EG SE
EG BIÐ
TRAUSTSINS VERÐUR"
— sagði Jimmy Carter í morgun
Fró Ólafi Haukssyni
blaðamanni Vísis
í Bandaríkjunum
„Fagnaða rlátunum ætlaði
aldrei að linna, þegar Jimmy
Carter, ásamt fjölskyldu sinni,
gekk át af hóteii sinu i Atianta og
yfir götuna i aðalskrifstofur
demókrata i Georgiu,” sagði
Ólafur Hauksson, fréttamaður
Visis i Bandarikjunum, i simtali
i morgun.
,,Ég bið til Guðs, að ég megi
reynast trausts ykkar veröur,”
sagði Jimmy Carter, þegar hann
loks fékk hljóð flokksbræöra
sinna, sem voru hálfærir af sigur-
gleði.
,,Þessi hópur hér fyrir framan
mig er fulltrúi þeirra tug-milljóna
bandarikjamanna, sem beðið
hafa þess að sjá þjóð sina samein-
ast. — Nú er timi runninn upp til
þess að sameina hana og gera
hana aftur að stórveldi,” hélt sig-
urvegari forsetakosninganna á-
fram.
Carter gaf hinum sigraða
keppinaut sinum, Gerald Ford,
gott orð og kvað hann vera mik-
inn ágætismann og strangheiöar-
legan.
Svo tvisýnar höföu kosningarn-
ar verið, að það var ekki fyrr en
undir klukkan niu i morgun, að
fjölmiðlar I Bandarikjunum töldu
sig geta spáð af kosningatölum
fyrir um úrslitin. Þá var Carter
spáð þvi að hijóta atkvæði 272
kjörmanna, eða tveim meir en
hann i rauninni þurfti. — I
talningunni hefði lengst af munað
svolitlu, að i sumum stærstu rikj-
unum höfðu þeir skipst á um for-
ystuna. Þegar helmingur at-
kvæða i Ohio, einu fjölmennasta
riki Bandarikjanna (með á aðra
milljón kjósendur), hafði verið
talinn munaði aðeins 197 atkvæð-
um.
„Hér i Oregon var gifurlegur
kosningaáhugi,” sagði ólafur
Hauksson. „Kjörsókn hér sló
fyrri met og komst upp i 80%, sem
ermeð þvi allra mesta, er gerist i
Bandarikjunum.”
Eftir þvi sem siðast fréttist veit
Ford forseti ekki enn fréttirnar,
þvi að hann lagðist til svefns um
klukkan átta i morgun, eða
klukkustundu áður en kosninga-
tölur fóru að skýrast. — Hann var
sagður enn i fastasvefni þegar
siðast fréttist og ekki til viötals
fyrir fréttamenn. — Haft var eftir
honum, áður en hann gekk til
náða, að hann væri sannfærður
um sigur.
— ÓH/GP
Jimmy Carter brosti sfnu breiðasta I morgun, er ljóst var að hverju stefndi varðandi kosningaúrslitin. Þessi sfmamynd var tekin af
honum, ásamt konu hans Rosalynn og Amy dóttur þeirra hjóna, i aðalbækistöðvum Demókratafiokksins I Atianta. Simamynd NTB
Verðlagsstjóri:
Ber saman vöruverð í
Reykjavík og London
Tveir starfsmenn verölags-
stjóraembættisins I Reykjavfk
eru nýkontnir heim frá Lundún-
um, þar sem þeir gerðu könnun
á verði á ýmsum neysluvörum.
Var þessi könnun verö til þess
að fá samanburö við verð sömu
vara hér á landi.
Georg ólafsson, verðlags-
stjóri, sagði I samtali við Visi i
morgun, að niðurstöður þessar-
ar könnunar lægju ekki fyrir
fyrren eftir tvær til þrjár vikur,
og of snemmt væri aö spá um
hverjar þær yrðu. Hann kvað
náið samstarf vera milli verð-
lagsyfirvalda hér og á hinum
Nbrðurlöndunum og hefði verið
aflað hliðstæðra upplýsinga um
vöruverð þaðan. Aftur á móti
heföi reynst nauðsynlegt að
senda menn til Englands til þess
að gera úttekt á vöruverðinu
þar, enda hefðu margir bent á,
að mikill verömunur væri á
neysluvörum hér og þar i landi.
„Við erum ekki að ásaka einn
eða neinn i þessu máli”, sagöi
verðlagsstjóri „það geta veriö
ýmsar skýringar á verðmis-
muninum. Við eigum eftir að
taka tolla og eðlilega álagningu
inn i dæmiö, en talið var rétt að
kanna þessi mál gaumgæfi-
lega”.
Verðlagsstjóri sagði i morg-
un, að nú yrði farið að vinna úr
þeim gögnum sem aflað heföi
verið og þegar þeirri úrvinnslu
yrði lokið seint i þessum mánuði
yrðu niöurstöður birtar.
—ÓR
gm
Hvernig er
dómstóla-
kerfið
byggt upp?
— sjó bls. 14
Rólegt
við
KrSflu
„Stöðvarhúsið hefur eitt-
hvað haidið áfram að siga en
ég er ekki búinn að sjá niður-
stöðurnarfrá þvii gær, þannig
að ég veit ekki hvað það er
mikið.” sagði Þorkell Erlings-
son, verkfræðingur hjá
Kröfluvirkjun, viö VIsi í morg-
un.
„Hins vegar áttum við mjög
rólega nótt I nótt. Það getur
verið aö einhverjir kippir hafi
mælst, en þeir hafa þá verið
svo vægir aö ekki fannst fyrir
þeim.”
— ÓT
Þjóðarsólir
Islands og
r
Israels
eru líkar
— sjó bls. 11
Miklu meiri
síldarsðltun
en í fyrra
Samkvæmt söltunarskýrsl-
um Sildarútvegsnefndar var
búið að saita aðfararnótt
sunnudags samtais 75.576
tunnur, en á sama tima i fyrra
49.912 tunnur.
Mest hefur borist til Horna-
fjarðar og Vestmannaeyja.
Langmesti hluti sildaraflans
hefur veiðst i hringnót, eöa
tæpar 60 þúsund tunnur. Eins
og kunnugt er var 51 hring-
nótabáti úthlutað leyfum á
vertiðina i ár. Samkvæmt
upplýsingum sem Visir fékk i
sjávarútvegsráðuneytinu i
morgun, voru 36 bátanna bún-
iraðfylla kvóta sinn i gær. Niu
bátar eru nú á veiðum og hafa
fengið einhverja sild, en sex
bátanna hafa ekki enn hafið
veiðar.
—EKG