Vísir - 11.12.1976, Side 10
10
Laugardagur 11. desember 1976 VTSIR
VISIR
Ctgefandi: Keykjaprent hf.
Franikvæmdastjóri: DavIOGuOmi ndsson.
Hitstjórar : Þorsteinn Paisson. ábm.
ólafur Ragnarsson
Kitstjórnarfulltriii: Bragi Guöjpiundsson.'Fréttastjórl erlendra frétta: GuBmundur Pétursson. Um-
sjón meB helgarblaBi: Arni Þórarinsson. BlaBamenn: Edda Andrésdóttir, Einar K. GuBfinnsson,
GuBjón Arngrlmsson, Kjartan L. Pálsson, óli Tynes, Rafn Jónsson, Sigurveig Jónsdóttir. Akur-
eyrarritstjórn: Anders Hansen. Iþróttir: Björn Blöndal, Gylfi Kristjánsson. Ctlitsteiknun: Jón ósk-
ar Hafsteinsson, Þórarinn J. Magnússon. Ljótmyndir: Jens Alexandersson, Loftur Asgeirsson.
Auglýsingastjóri: Þorsteinn Fr. SigurBsson. Dreifingarstjóri: SigurBur R. Pétursson.
Auglýsingar: Hverfisgata 44.SImar 11660,86611
AfgreiBtla: Hverfltgata 44. Slml 86611
Ritstjóm: SIBumúla 14.SImi86611, 7llnur
Akureyri. Slmi 96-19806
Askriftargjald kr. 1100 á mánuBi innaniands.
VerB I lausasölu kr. 60 eintakiB.
Prentun: BlaBaprent hf.
Gríman breytir engu
Samningar við norska stórfyrirtækið Eikem um
járnblendiverksmiðju í Hvaifirði virðast nú vera
komnir á lokastig. Menn eru að sjálfsögðu ekki á eitt
sáttir við stóriðjusamstarf af þessu tagi við útlend-
inga. En flestir gera sér þó Ijóst, að það hefur opnað
möguleika á stórvirkjunum og um leið tryggt lægra
raforkuverð til almennings en ella hefði orðið.
Stóriðjusamstarf við útlendinga hófst i tíð viðreisn-
arstjórnarinnar og markaði þáttaskil I atvinnusögu
landsmanna. Vinstri stjórnin hélt áfram á þessari
braut með samningaviðræðum við bandaríska risa-
fyrirtækið Union Carbide. Ástæðan var enn sem fyrr
orkusöluhagsmunir okkar.
Til þess að réttlæta samstarf af þessu tagi setti
vinstri stjórnin fram þá kenningu, að það væri I alla
staði eðlilegt, ef íslendingar væru sjálfir meirihluta-
aðilar að slíkum fyrirtækjum. Orkuyfirvöld í núver-
andi ríkisstjórn gleyptu við þessari hugmynd. Hún er
talin vera þjóðernislegri.
Vitaskuld er mikils um það vert, að stjórnvöld séu á
öllum tímum á verði um fjárhagslegt sjálfstæði
þjóðarinnar. En f þessu tilviki gildir einu, hvort við
höfum meirihluta eða ekki. Raunveruleg yfirráð eru
ávallt i höndum erlenda samstarfsaðilans.
Það eru erlendu samstarfsaðilarnir, sem ráða yfir
allri tæknilegri þekkingu, sem til þarf í hverju tilviki.
Þeir ráða einnig sölukerfinu. Sá aðili, sem ekki hefur
itök á þessum sviðum, hefur eðlilega lítil áhrif, hvort
sem hann á meirihluta í fyrirtækinu eða ekki.
Skýrt dæmi hér að lútandi er atriði í væntanlegum
orkusölusamningi Járnblendifélagsins og Landsvirkj-
unar, sem Vísir upplýsti fyrir tveimur dögum. Á
síðasta stigi samningaviðræðnanna um endurreisn
fyrirtækisins fékk norski samstarfsaðilinn því fram-
gengt, að í orkusölusamninginn yrði sett ákvæði, er
kvæði á um neitunarvald minnihlutans varðandi
breytingar á samningunum.
Slíkt ákvæði var ekki I samningnum við Union Car-
bide. En ef til vill breytir þetta ekki miklu því að við
hefðum sjálfsagt aldrei komið slíkum breytingum
fram í krafti meirihlutavalds, þar sem samstarfsaðil-
inn hefur bæði tögl og hagldir að því er varðar grund-
vallaratriði I rekstri fyrirtækisins eins og t.a.m. þekk-
inguna og sölukerfið.
Þetta dæmi sýnir Ijóslega, hversu barnaleg meiri-
hlutastefnan er í raun og veru. Hún er einhvers konar
gríma fyrir þá stjórnmálamenn, sem skilja nauðsyn
þessa samstarfs, en þora ekki að horfast í augu við
raunveruleikann.
Union Carbide ævintýrið, sem byrjaði I tíð fyrri
rikisstjórnar, sýnir á hinn bóginn að við verðum að
fara variega I þessum efnum. Með samningunum við
norska fyrirtækið hefur Járnblendifélagið í raun
réttri verið endurreist. Það er merkilegt afrek. En
auðvitað var það álitamál, hvort hætta átti við verk-
smiðjuna, þegar Union Carbide dró sig út úr fyrir-
tækinu.
Ljóst er að frestun framkvæmda hefur það í för
með sér, að Sigölduvirkjun nýtist ekki nema að hálfu
næstu þrjú ár. Af leiðingin hlýtur að verða hærra orku-
verð til almennings en ella hefði orðið. Við það er að
sjálfsögðu ekki unnt að ráða eins og málum er komið.
Og bótagreiðslurnar frá Union Carbide jafna vissu-
lega metin að nokkru leyti.
Mestu máli skiptir, að stjórnmálamenn átti sig á því
i eitt skipti fyrir öll, að samstarf af þessu tagi snýst
ekki um meirihlutaaðild heldur orkusölu.
íslendingum gefin brjóstmynd
eftir Sigurjón Ólafsson
Listasafni tslands var i gær
afhent brjóstmynd eftir
Sigurjón Ólafsson af islands-
vininum og prestinum Finni
Tulinius. Forseti tslands dr.
Kristján Eldjárn, afhenti mynd-
ina, fyrir hönd gefandans, sem
er sr. Finnur sjálfur.
Kristján Eldjárn sagöi viö þaB
tækifæri aö gefandinn heföi taliö
aö vel færi á þvi aö myndin yröi
á Þjóöminjasafninu eöa annars
staöar i byggingunni. Gjöf þessi
væri merkileg fyrir tveggja
hluta sakir. Gefandinn væri aö
hálfu leyti islendingur og aö
hálfu leyti dani og þó hann heföi
starfaö i Danmörku heföi hann
alltaf sýnt mikla ræktarsemi i
garð tslands. Hann heföi áöur
gefiö hingað gjafir og eins heföi
hann ætið veriö reiöubúinn aö
taka málstað islendinga þegar á
þurfti að halda.
1 annan stað væri myndin
merkileg vegna listamannsins
sem gerði hana, Sigurjóns
Ólafssonar myndhöggvara.
Forstöðumaður Listasafns-
ins, dr. Selma Jónsdóttir veitti þakkaöi forseta milligönguna i
siöan myndinni. viötöku og þessú máli. —sj
Sigurbjörn Einarsson, biskup, Sigurjón ólafsson, myndhöggv-
ari, Vilhjálmur Hjálmarsson, menntamálaráöherra, Selma
Jónsdóttir og Kristján Eldjárn viö mynd Sigurjóns af Finni
Tuiinius. Ljósm. LA
Gagnrýnendur sýna Val '76
„Það eru mörg sjónarmið á
feröinni i samtiöinni og þessi
sýning teljum viö aö þeki flest
þau viöhorf sem fram hafa
komiö á árinu, allt frá
Jóhannesi Geir tii Magnúsar
Pálssonar,” sögöu myndlistar-
gagnrýnendur dagblaöanna
pegar þeir sýndu biaðamanni
Visis sýningu þá sem þeir efna
til og opnuö veröur i dag,
iaugardag, kl. 3, aö Kjarvals-
stööum.
Myndlistargagnrýnendur
völdu i sameiningu verk 16 lista-
manna á þessa sýningu, sem
gefið hefur verið nafnið Val ’76,
Þessir listamenn hafa allir sýnt
á árinu, annaö hvort á samsýn-
ingum eða einkasýningum.
Aðeins yfirlitssýningar voru
teknar út úr valinu.
Verkin á sýningunni eru um 70
og er elsti listamaðurinn sem
þarna kemur við sögu um
sjötugt, Sigurjón Ólafsson, en sá
yngsti rúmlega tvitugur. Gagn-
rýnendurnir eru 5 og völdu þeir
verkin þannig aö þeir greiddu
atkvæðium listamennina og eru
aðeins þeir meö sem hlutu 4
atkvæði eða fleiri. Aöeins einn
listamannanna sem leitaö var
til sá sér ekki fært að taka þátt i
sýningunni.
Eitt verkanna komst ekki
fyrir i sýningarsalnum og er þvi
á ganginum viö dyrnar. Fer
ekki illa á þvi, þar sem verkiö
höfðar beint til þeirra sem aö
sýningunni standa. Þaö er eftir
Kristján Daviðsson og heitir:
Gagnrýnandinn hefur fjögur
augu og sex putta.
Sýningin veröur opin til 21.
desember. —SJ
Þessir völdu myndirnar: ólafur Kvaran, Jónas Guömundsson,
Aöalsteinn Ingóifsson og Valtýr Pétursson. A myndina vantar
Braga Asgeirsson. Ljósm.JA
íslenskir listamenn samfagna
Ólafi Jóhanni og Atla Heimi
Bandalag islenskra lista-
manna hefur gefiö út mynt-
sláttu úr gulli, silfri og bronsi i
tilefni af bókmennta- og tónlist-
arverölaunum Noröurlandaráös
til ólafs Jóhanns Sigurössonar
rithöfundar og Atla Heimis
Sveinssonar tónskálds.
Formaöur bandalagsins, Thor
Vilhjálmsson, afhenti I gær
listamönnunum eintök af mynt-
inni og sagði við það tækifæri aö
meö þessu vildu félagar þeirra
sýna i verki aö þeir samfögnuðu
þeim i sigri þeirra um leiö og
þeir fögnuöu þvi aö Islendingar
heföu i fyrsta skipti hlotiö þessa
viöurkenningu.
Jafnframt sagöi hann aö
bandalagið vildi með þessari út-
gáfu reyna aö renna stoöum
undir fjárhag bandalagsins, en
hann er mjög bágborinn.
„Vegna þess. að peningarnir
eru of litlir til þess að rúma
svona stór andlit valdi hönnuö-
urinn, Snorri Sveinn Friöriks-
son, aö hafa á þeim eins konar
alfa og omega sem tákn listar
þeirra ólafs Jóhanns og Atla
Heimis. Þaö eru tónkvisl og
bókarkjölur. Einnig eru á pen-
ingunum eiginhandaráritanir
þeirra,” sagöi Thor.
Peningarnir eru gefnir út i
litlu upplagi, og er útgáfan tölu-
sett, 40 gullpeningar, 300 silf-
urpeningar og 400 bronspening-
ar. Gullpeningarnir kosta 50
þúsund krónur stykkið, silfur-
peningarnir 12 þúsund krónur
og bronspeningarnir 5 þúsund
krónur.
Allur ágóði af sölu pening-
anna rennur til bandalagsins, en
stærsta verkefni þess nú er út-
vegun húsnæöis fyrir starfsem-
ina og aö koma upp listdreifing-
armiöstöð.
Þess má geta aö flautukonsert
Atla Heimis, sem hann hlaut
verðlaunin fyrir, kemur út á
hljómplötu á næstunni. — SJ
Thor Vilhjálmsson afhendir Atia Heimi minnispeningasett nr.
21, en það er afmælisdagur tónskáidsins. Ljósm.AA