Vísir - 24.03.1977, Qupperneq 5
5
vísm
Fimmtudagur 24. mars 1977
Jón Hálfdónarson skrifar frá skákmótinu í Þýskalandi:
Þaö kemur kynlega fyrir
sjónir, að annar fridagurinn
fellur á laugardag þegar al-
menningur á fri og að mótiö
byrjará sunnud. en ekkilaugar-
degi. Um helgar var múg-
ur og margmenni á mótinu, en
dags daglega voru áhorfendur
um-100 talsins. Það voru þvi
greinilega margir sem vildu Uta
meistarana augum og ýmsir úr
þeim hópi hefðu án efa komið
aftur ef aðbúnaður heföi verið
betri.
Litill fréttaflutningur
1 þýskum f jölmiðlum var litill
sem enginn fréttaflutningur frá
mótinu, enda var enginn frétta-
stjóri á mótinu og þeim frétta-
mönnum sem fylgdust með þvi
litið hjálpað og frekar gert lifið
leitt. Nú stendur skáklif með
miklum blóma vlöa i Þýska-
landi og framkvæmd olympiu-
mótsins i Siegen 1970 var mjög
vel af hendi leyst og lofuð af
keppendum. Þess vegna er það
undarlegt hvað illa var staðiö að
mótinu i Bad Lauterberg.
Ég tel ástæðuna vera þá, að
þeir menn sem hafa komist til
valda I þýska skáksambandínu
séu ekki stórhuga og ekki
vandanum vaxnir. Eins verður
að hafa það i huga, að Bad
Lauterberg er litill bær og þvi
fáir skákmenn á staðnum til að
taka þátt i framkvæmd mótsins.
Eftir að hafa kynnst formanni
skákfélagsins i Bad Lauterberg
er mér til efs að hann kunni
mannganginn.
Þó má segja forystumönnum
staðarins þaö til hróss, aö þeir
fengu héraðsstjórn og bæjar-
stjórn i Bad Lauterberg til að
leggja fram 70 þúsund mörk eða
um sex milljónir islenskra
króna til mótsins. Þaö er lika
noj. Karpov er litill vexti og
ljúfmannlegur i framkomu. Það
vekur athygli áhorfenda hve oft
hann horfir á andstæöing sinn
yfir skákborðinu. Hann fylgist
gaumgæfilega með svipbrigð-
um andstæðingsins og les ef-
laust úr þeim hvort hann er
taugaóstyrkur eða hvernig hon-
um list á stöðuna og dregur af
þvi sinar ályktanir.
Meðalaldur kandidat-
anna um fertugt
Meöalaldur kandidatanna
átta sem nú heyja keppni er um
fertugt og þó lengi lifi I gömlum
glæðum er ekki sennilegt að þar
næsti áskorandi komi úr þeim
hópi. Ef litiö er til þeirra stór-
meistara sem eru á aldur við
heimsmeistarann og náð hafa
athyglisverðum árangri koma
upp nöfnin Ulf Anderson frá Svi-
þjóð, Jan Timman frá Hollandi,
Eugene Torre frá Filipseyjum,
Tony Miles frá Englandi, Oleg
Romanishin frá Sovétrikjunum
og svo náttúrulega Mecking.
Fjórir þeirra ofantöldu tóku
þátt I mótinu i Bad Lauterberg.
Robert Hubner veröur lika að
teljai þessum hópþóég efist um
að hann sæki svo langt fram, en
um það hef ég fjallað áður.
Hubner tefldi fyrstu umferöirn-
ar i mótinu af leikgleði, en
veiktist siðan af inflúensu og
gerði þá mörg skyndijafntefli.
Siðan tapaði hann tveimur
skákum i siöari hlutanum.
Ulf Andersson býr sennilega
yfir of litilli sköpunargáfu eða
gleði til að ná upp á hæstu tinda.
Skákstillhans er þurr og þungur
og likist ekki fléttutafli hálf-
nafna hans Anderssen. Anders-
son virtist ekki haldinn mikilli
keppnisgleði i Bad Lauterberg
og samdi oft um jafntefli i
ótefldum stöðum. Hann varö
jafntefliskóngur mótsins, gerði
14 jafntefli.
Torre er mjög mistækur og
sannreyndist það hér nú sem
fýrr. Tony Miles er yngstur
ofangreindra skákmanna, • aö-
eins 21 árs að aldri og hann varð
fyrsti stórmeistari Englands.
Miles varð um miöju er mótinu
var lokið, en ég hef þá trú aö
hann nái langt þegar hann öðl-
ast meiri reynslu. Jan Timman
varð i ööru sæti I mótinu og er i
svipinn greinilega sterkastur
þeirra ungu manna sem hér
tefldu. Hann vann fimm skákir i
röö og tryggði sér annaö sætið
með jafntefli i tveimur siðustu
umferðunum. Timman teflir
alltaf ótrauður til sigurs og ef
hann leggur af óþarfa bjartsýni,
mér er næst að kalla þaö kæru-
leysi, verður hann heimsmeist-
araefni.
Friðrik féll fyrir Geru-
sel
Friðrik Ólafsson tefldi marg-
ar góðar og skemmtilegar skák-
ir á mótinu og átti góöa mögu-
leika á efstu sætunum þar til
hann féll fyrir Gerusel 113. um-
ferð. Það er eins og létt og lipur
taflmennska Friðriks biti ekki á
minni spámenn. Þetta tap batt
enda á vonir Friðriks og þaö var
aðdáunarvert hvað hann tók þvi
með miklu jafnaðargeði.
Englendingurinn Keene tók
ágætansprettum mittmótið, en
tapaði siðan fyrir Gerusel og
fékk það svo mikið á hann aö
hann náði sér ekki i þeim um-
ferðum sem eftir voru. Ég hef
það eftir Friðrik, aö amerikan-
ar kalli menn eins og Gerusel
„spoiler” þvi þeir snú-við rétt-
látum úrslitum móta.
Csom, Sosonko, Liberzon og
Gligoric náðu þeim árangri sem
viö var að búast eftir skákstig-
um þeirra. Aðdáunarverð var
hin ágæta frammistaða Fur-
mans.hinsaldna þjálfara Karp-
ovs. Heimamennirnir Wocken-
fuss og Gerusel sóttu mjög i sig
veörið þegar á mótiö leiö, en
Herman brotnaði niður. Hann
byrjaði vel og állt leit út fyrir aö
hann næði alþjóðlegum
meistaratitili, en tapaöi mörg-
um siðustu skákunum.
Lýkur hér með frásögnum af
mönnum og málefnum i Bad
Lauterberg og séu þeir ekki
dánir þá lifa þeir enn.
JónHálfdánarson hefurskrifaðskemmtilegar fréttir af
skákmótinv i Bad Lauterberg fyrir VIsi. Jón er búsettur
I Göttingen þar sem hann er prófessor við háskólann.
Þessi mynd var tekin af Joni og einu barna hans I siðustu
heimsókn fjölskyldunnar hingað tii iands.
ástæðan fyrir þvi að þetta af-
mælsimót er haldið i Bad
Lauterberg en ekki i einhverri
stórborganna, þar sem fram-
kvæmdin heföi vissulega farið
betur fram.
Ég átti tal við fyrirmann Ur
héraðsstjórninni um daginn og
hann var dapur yfir þvi hve litið
birtist i f jölmiölum um mótið og
var reiður þeim mótsstjórnend-
um. Ég gat glatt hann með þvi
að segja honum, að itarlega
væri greint frá mótinu I Júgó-
slavlu, Hoilandi og á Islandi.
Um leiö vil ég koma þvi á fram-
færi, að Bad Lauterberg er
fallegur bær og umhverfið fag-
urt eins og allur þjóðgarðurinn
Harzf jöll.
Karpov traustur! sessi
Svo við snúum okkur aftur að
mótinu þá sigraði heimsmeist-
arinn Karpov örugglega og
sýndi jafnbesta taflmennsku
allra keppenda. Hann komst aö-
eins einu sinni i taphættu og það
varskákinvið Csom. Ég held að
það veröi ekki auðvelt neinum
þeirra skákmanna sem nú hey ja
kandidataeinvigin, að velta
honum Ur sessi. Þá þurfa þeir aö
minnsta kosti að fækka
afleikjunum, en heimsmeistar-
inn leikur vart af sér.
Karpov er þrautseigur
varnarskákmaður og lunkinn i
endatöflum. Svo vitnað sé i
Kortsnoj, þá er hann mjög
sterkur skákmaður en ekki
snillingur eins og Fischer.
Kortsnoj taldi sovéska skák-
sambandiö draga mjög taum
Karpovs i lokaeinviginu i sið-
ustu heimsmeistarakeppni,
enda væri hann skapaöur úr
rússneskri moldu og úr öreiga-
stétt, en ekki gyðingur af
menntamönnum eins og Korts-
Alþjóðaskákmótinu i
Bad Lauterberg, sem
haldið er i tilefni
hundrað ára afmælis
þýska skáksambands-
ins, er nú lokið. í júli
1877 komu menn viða
að úr Þýskalandi sam-
an i Leipzig til að fagna
þvi, að 50 ár voru liðin
frá þvi að skákjöfurinn
Adolf Andersen hóf
skákferil sinn.
Setja þarf reglur um
alþjóðamót
Ýmsar deilur voru þá uppi
milli skákfélaga Þýskalands
Til að minnast þessa
merka afmælis á vegleg-
an hátt, fékk þýska skáksam-
bandið marga sterkustu skák-
menn heims til að taka þátt i
hátiðamóti i Bad Lauterberg,en
þvi miður var skipulag mótsins
ekki með glæsibrag og varð
mótið þvi ekki eins litrikt og
annars hefði orðið.
Þaö er sennilegt, að hátiöa-
mótið 1877 hafi verið haldið með
svipuðum hætti og mótið núna i
Bad Lauterberg. Þannig hefur
100 ára reynsla komiö aö litlu
gagni. Eini votturinn um tækni
nútimans á skákstað hér var
sjónvarpsvél sem sýndi stöðu
einnar skákar. Ég veit ekki
hvort sýningarborð voru I notk-
un 1877, en stjórnendur mótsins
núna virtust að minnsta kosti
ekki þekkja til þeirra.
Það er kominn timi til að
alþjóðaskáksam bandið setji
reglur um alþjóöaskákmót og
þær kröfur sem þarf að uppfylla
um aðbúnað og mótshald. Það
ætti að vera sjálfsagður hlutur,
að allar skákir sem tefldar eru
séu sýndar á sýningaborðum og
umhugsunartimi og þeir leikir,
sem hafa verið leiknir, skrifaðir
á þar til gerðar töflur, en fleira
kom til.
1 Bad Lauterberg áttu
keppendur aðeins tvo fridaga
meðan mótið stóð yfir. Það hóst
á sunnudegi, fridagur var á
laugardegi, og siðan voru tefld-
ar átta umferðir i striklotu en
siðari fridagurinn var dagurinn
fyrir siðustu umferð. Þaö þarf
ekki að orðlengja það, að hér
var gengið hart að keppendum
og þvi ekki að undra að margar
skákir úr hverri umferð enduðu
fljótlega i jafntefli.
Ég er þeirrar skoöunar, aö at-
vinnumenn I skák tefli ekki að-
eins fyrir sjálfa sig heldur lika
til aö skemmta áhorfendum
þeim sem tefla upp skákirnar.
Undir ofangreindum kringum-
stæöum er varla hægt að krefj-
ast þess að keppendur sýni lit-
rika taflmennsku.
f .... <
Það verður enginn
leikur að velta
Karpov úr sessi
.........
-þótt hann sé ekki snillingur eins og Fischer