Vísir


Vísir - 24.03.1977, Qupperneq 10

Vísir - 24.03.1977, Qupperneq 10
10 VÍSIR Ctgefandi: Keykjaprcnt hf. . i Framkvæmdastjóri:DavfÖ Guðmundsson Hitstjórar:Dorsteinn Pálsson dbm. | ólafur Ragnarsson Uitstjórnarfulltrúi: Bragi GuBmufidsson.f Fréttastjóri erlendra frétta:GuftmundurPétursson. Umsjón meö helgarblaöi: Arni Þórarinsson. Blaöamenn: Edda Andrésdóttir, Einar Guöfinnsson, Elfas Snælantí Jónsson, Finnbogi Hermannsson, Guöjón Amgrfmsson, Kjartan L. Pálsson, öli Tynes, Sigurveig Jónsdóttir, Sæmundur GuÖvinsson, iþróttir: Björn Blöndal, Gylfi Kristjánsson. Akureyrarritstjórn: Anders Hansen. Utlitsteiknun: Jón Oskar Hafsteinsson og Magnúr Olafsson. Ljósmyndir: Jens Alex- andersson, Loftur Asgeirsson, Auglýsingastjóri: Þorsteinn Fr. SigurÖsson. Dreifingarstjóri: Siguröur R. Pétursson. Auglýsingar: Siöumúla 8. Slmar 11660, 86611. Askriftargjald kr. 1100 á mánuöi innanlands. Afgreiösla: liverfisgata 44. Simi 86611 * Verö I lausasölu kr. 60 eintakiö. Ritstjórn: Siöumúla 14. Slmi 86611, 7 ifnur Prentun: Blaöaprent hf. Akureyri. Slmi 96-19806. Mannréttindin kaffœra einrœðisstjórnina Kosningaúrslitin á Indlandi eru merkileg fyrir margra hluta sakirog þau eru fagnaöarefni, sem vert er íhugunar. Þau eru veruleg upplyfting fyrir lýð- ræðisöf lin í heiminum# er óneitanlega hafa átt í vök að verjast. Og þau eru til marks um, að það er engan veg- inn auðvelt að bæla frelsið niður, þar sem mannrétt- indi hafa á annað borð fest rætur. Það var mikið áfall, þegar Indira Gandhi svipti þjóð sína i einni skyndingu lýðræðislegum grundvallarrétt- indum. Valdatakan var ekki aðeins ofríki gagnvart borgurum Indlands og fordæmanleg fyrir þær sakir, hún var ekki síður niðurdrepandi fyrir lýðræðisöf lin í heiminum. Indland er næst f jölmennasta ríki veraldar og það skiptir því máli fyrir aðra, hvernig því er stjórnað. Lýðræði er undantekningarstjórnarfar í okkar heimi. Ríki öðlast sjálfstæði, en frjálsum borgurum f jölgarekki aðsama skapi. Að þessu leyti stóð Indland eins og eitt út af fyrir sig i sínum heimshluta. Það var stór klettur í hinum stóra heimi. Menn undruðust oft, hvernig unnt var að viðhalda frjálsum stjórnarháttum á Indlandi, þar sem alþýðu- menntun er af jafn skornum skammti og raun ber vitni. Kjarni málsins er þó sá, að mannréttindi hafa í gegnum aldirnar verið I hávegum höfð á Indlandi, tjáningarfrelsið hefur verið eitt af eðliseinkennum þjóðfélagsins. - Þegar einræðisstjórn hefur nú verið brotin á bak aftur, kemur í Ijós, að tjáningarfrelsið var of rótgró- inn þáttur í lífi þjóðarinnar til þess að ofríkisstjórn gæti þrifist þar til lengdar. Endurheimt lýðræðis í Ind- landi á þvi ekkert skylt við breska arfleifð í landinu. Því verður ekki haldið fram með rökum, að bretar hafi sáð frækorni sjálfstæðis og borgaralegra mann- réttinda á Indlandi. Þeir eðlisþættir þjóðfélagsins eru miklum mun eldri. Af þessu má draga þann lærdóm, að borgaraleg mannréttindi verða ekki með öllu hunsuð, þar sem þau hafa á annað borð fest rætur. Við höfum að vísu ekki mörg dæmi þess, að borgarar hafi endurheimt sjálf- stæði sitt, eftir að hafa einu sinni misst það. Það átti sér þó stað í Grikklandi og hefur verið að gerast í Portúgal og á Spáni. Stjórnarfarslegt sjálfstæði þjóða með lýðræðisleg- um stjórnarháttum er fallvalt, ef mannréttindin eru ekki grundvallarþáttur i þjóðlífinu. Á sama hátt er lýðræðið sterkt, þar sem tjáningarfrelsið er eðlislægt. Það sýna umskiptin á Indlandi. Á þessum vetri hefur risið upp hreyfing í þágu mannréttinda, sem gengið hefur þvert á öll landa- mæri og á ef til vill fyrst og fremst upptök sín hinum megin járntjaldsins. Augu manna hafa opnast fyrir þeirri staðreynd, að hugmyndir um bætta sambúð ríkja, sem búa við ólíka stjórnarhætti, eru út í bláinn, nema menn taki mannréttindabaráttuna inn í mynd- ina. Það sem máli skiptir er að vinna að framgangi borgaralegra mannréttinda án nokkurs tillits til landamæra. Menn sætta sig ekki lengur við heims- valdapólitík þar sem hagsmunum er skákað fram og til baka í því skyni að tryggja bætta sambúð, ef gleyma á þeim frumrétti borgaranna að fá að tjá hug sinn allan. Kosningaúrsiitin á Indlandi ættu að verða mönnum áminning um að herða mannréttindabaráttuna og ís- lendingar eiga að leggja sittaf mörkum í þeim efnum. Fimmtudagur 24. mars 1977 vism flokksins beriast um flokkinn i islenzkri póli- Kí>cca** - - * >---**' ^ f i j. . • . t «# siiiiMq niTi irra roour t>aö er réft h>* *' rviatthias Johannessen, Styrmir Gunnarsson Ti Eitt sérkenni fslenskra stjórn- mála er, aö allir stjómmála- flokkar hafa starfaO einhvern tfma saman i rikisstjórn. Þrátt fyrir þetta er íslenskum stjórn- málamönnum ekki sama meö hverjum þeir vinna og um langt skeiö hafa þróast i stjórnmála- flokkunum ákveðnar skoðanir um óskasamstarfsaöila. Þessar skoöanir hafa ekki verið byggö- ar á þeim málefnagrundvelli, sem flokkarnir telja sig starfa á, eins og flestir myndu búast viö, heldur mótast þær af mati á þvi hvers konar samstarf sé llk- legt til aö skapa sterka rlkis- stjórn. Rfkjandi mat á þessu er aö sterk rikisstjórn þurfi aö eiga traust Itök annars vegar i rikis- bákninu og fjármálalffi, hins vegar I verkalýöshreyfingunni. t óskasamstarfi þarf þvi aö vera einn borgaralegur flokkur, sem hefur þaö fyrrnefnda, og verka- lýösflokkur. 1 raun hefur Alþýðubandalagiö og Framsókn hyllsttilsamstarfs á annan bóg- inn, en Sjálfstæöisflokkur og Alþýðuflokkur á hinn. Meö þessum hætti hefur myndast óformlegt fyrirkomulag tveggja valkosta um stjórnarmyndanir. Samstarf Sjálfstæöisflokks og Framsóknar I núverandi rlkis- stjórn er aö sönnu undantekning frá þessari reglu, enda er þaö einkennandi, aö frá upphafi þess samstarfs hefur þaö marg- oft verið tekiö skýrt fram af beggja hálfu aö samstarf þeirra sé neyðarúrræði og báöir kysu aöra samstarfsaðila frekar. Störfin i rikisstjórninni hafa og gengiö eftir þessu. [Brestir i bygging- lunni NU upp á siökastið er eins og [ brestir séu aö koma i þessa 'byggingu. Þannig hefur dregiö mjög úr áhuga almennra I flokksmanna I Alþýðubandalag- Gröndal. Nú um skeiö hefur for- maöurinn varla mátt láta svo orö frá sér fara i Alþýðublaöinu, aö Morgunblaöiö sæi ekki ástæöu til aö svara honum og andmæla sérstaklega. Byltingaráform? NU nýlega kastaði tólfunum. Þá var þvf haldiö fram á slðum Morgunblaösins, aö forystu- menn Alþýöuflokksins ynnu nú aö þvi aö koma af staö pólitisk- um verkföllum gegn vilja vinn- andi fólks i þeim illa og eigin- gjarna tilgangi aö velta rfkis- stjórninni Ur veldisstólum og setjast i þá sjálfir. Þennan ljóta leik heföu forystumenn Alþýöu- flokksins einnig leikiö i vinnu- deilunum á siöasta ári, en sem betur fer mistekist aö ná mark- miöum sínum. Þessu var auövitaö harkalega mótmælt i Alþýðublaðinu og hlutust af nokkur óvægin oröaskipti. 1 kjölfar þessa birti Morgunblaöið s.l. sunnudag Reykjavikurbréf, sem aö mestu leyti fjallaöi um formann ( Síðdegisþqnkqr ] n Finnur Torfi Stefánsson skrifar • ■ v sig af þessum illa grun býöur blaðíö honum aö svara tveim spurningum. I fyrsta lagi | „hvort einhverjir jafnaöar- menn vilji byltingu að dómi for-1 manns Alþýöuflokksins?” og i ööru lagi „hvort hann telji að einhverjir jafnaöarmenn séu | ólýöræöislegir?” Ólýðræðislegt framboð Þegar Morgunblaöiö hefurl þannig sýnt Alþýöuflokksmönn-1 um fram á, aö Morgunblaöiö, Sjálfstæöisflokkurinn og fs- lenska rikisvaldiö sé grundvall- aöá jafnaöarstefnu og ennfrem-1 ur aö Benedikt Gröndal sé aö likindum kommúnisti, vikur blaöiö aö innanflokksvandamál- um Alþýöuflokksins. Er sér-l staklega rætt um vandamál ,,i| sambandi við framboö flokksins fyrir vestan”, en eins og menn vita er vesturland kjördæmi | Benedikts Gröndal. Ekki býöur Morgunblaöiö I fram neina aöstoö viö lausn þessara vandamála að sinni, en gefur i skyn aö Benedikt kunni | aö beita einhverjum fanta- brögðum. Lætur Morgunblaöiö i I Ijós þá frómu ósk aö mál þessi veröi „leyst á lýöræðislegan hátt”. Ekki er auövelt aö sjá skýr- j ingar á þvi hvers vegna Morgunblaöið leggur nú fæö á Benedikt Gröndal. Sennilega veröur aö kenna um duttlung- um stjórnmáianna. Augljóster, að blaöiö hyggst grafa undan Gröndal innan eigin flokks, jafnvel aö koma i veg fyrir framboö hans við næstu kosn- ingar. Ekki hefur verið kunnugt um nein vandamál tengd fram- boöi Alþýöuflokksins „fyrir vestan” fyrr, en Morgunblaöiö hyggst augljóslega búa þau til. Ný viðhorf Reykjavikurbréf Morgun-I Mólgagn ríkisvaldsins og Benedikt Grðndal inu á samvinnu viö Framsókn- arflokkinn, einkum eftir aö uppvist varö um þau miklu áhrif, sem fjármálamenn hafa innan flokksins. Þyngra á metunum viröist þó vega þaö uppgjör, sem nú fer fram milli Morgunblaösins, málgagns Sjálfstæöisflokksins og einnig rikisvaldsins á Islandi um nær samfellt 30 ára skeiö og Bene- dikts Gröndal, formanns Alþýðuflokksins. Iönir blaöalesendur munu hafa veitt þvi athygli aö undan- farnar vikur og mánuöi hafa breyst mjög viöhorf Morgunblaösins til Alþýöu- flokksins. Aöur ræddi Morgunblaöið oftast um störf Alþýöuflokksins af tiltölulegri sanngirni. Nú er kominn nýr tónn og mun hryssingslegri. Þaö er ennfremur athyglisvert, aö Morgunblaöið beinir ekki spjót- um sínum beint að Alþýöu- flokknum sjálfum, eins og venjulegast er i stjórnmáladeil- um, heldur hefur langt i einelti formann flokksins, Bened-ikt Alþýðuflokksins, Benedikt Gröndal. Reykjavikurbréfinu var augljóslega ætlaö aö hafa áhrif fyrst og fremst á flokks- bræöur Benedikts f Alþýöu- flokknum og skilmerkilega gefiö i skyn, aö enda þótt Morgunblaöiö aöhylltist frjáls- hyggju og ihaldsstefnu, þá berj- ist þaö fyrir blönduöu hagkerfi og áætlunarbúskap líka. Ennfremur að Morgunblaöiö sé hjartanlega sammála Anthony Crossland, nýlátnum breskum sósialista, um flest grundvallaratriöi stjórnmál- anna. Kommúnistinn Benedikt? Eftir aö hafa sakaö formann- inn um aö fara „óvarlega með orö” og vera meö „órökstuddar fullyröingar” kemst blaöiö aö kjarna málsins. Morgunblaöiö er ekki grunlaust um aö Bene- dikt Gröndal sé kommúnisti. Til þess aö sýna fyllstu sanngirni og gefa Benedikt kost á aö hreinsa blaðsins sýnir vel hve mikið vatn hefur runniö til sjávar siöan Viöreisnarstjórnin sat viö völd. Ekki aöeins hefur j Alþýðuflokkurinn breytt mjög um svip, heldur Sjálfstæðis-1 flokkurinn einnig. Þar halda nú aörir og ööruvisi menn um stjórnvölinn en var á viöreisnarárunum. A þeim tima var greiöur samgangur milli Alþýöuflokks og Sjálfstæöis-1 flokks. Ritstjórar Morgunblaös- ins höföu þá oft rika tilfinningu [ fyrirþvi hvernig menn hugsuðu i Alþýöuflokknum og gátu meö lagni haft ýmis áhrif á gerðir manna þar. Þessi timi er nú liöinn og er Reykjavikurbréf j Morgunblaösins gott dæmi þar um. Þaö ereinkumi tvennu sem Morgunblaöinu skjátlast um Alþýöuflokkinn. í fyrsta lagi aö efast um, að Benedikt Gröndal njóti óskoraös trausts og fylgis. I öðru lagi aö halda, aö enn sé hægt aö hræöa islenska jafn- aöarmenn meö kommagrýl- unni.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.