Vísir - 31.03.1977, Síða 5

Vísir - 31.03.1977, Síða 5
visnt c A* ■v i 5 D Mörkín urðu fímm gegn Luxemborg! — Ensko liðið byrjoði illa en bjargaði andfitinu með fjórum mörkum ó 20 mínútum í siðari hálfleik „Ég hef ekki verið ánægður með þrjá siðustu leiki okkar hér á Wembley, en i kvöld hef ég yfir engu aö kvarta” sagði Don Revie, einvaldur enska landsliðsins i knattspyrnu, eftir að liö hans hafði sigrað Luxemborg 5:0 i öðrum riðli undankeppni heims- meistarakeppninnar á Wembley leikvanginum i Lundúnum i gær- kvöldi. „Með smáheppni hefðum við getað skorað helmingi fleiri mörk” sagði Revie. Enska liðið byrjaði vel og eftir aðeins niu minútna leik hafði Kevin Keegan náö forystunni með fallegu skallamarki. En eftir það gekk hvorki né rak og i hálfleik ákvað Revie að setja Paul Mar- iner inná fyrir Joe Royle 1 von um betri árangur. Við þessa breytingu lifnaði heldur betur yfir enska liðinu sem skoraði fjögur mörk á 20 min- útum i siðari hálfleik. Fyrst skoraði Trevor Francic á 58. minútu, sjö minútum seinna bætti Ray Kennedy þriðja markinu við — og þrem minútum siöar skoraði Mick Channon fjórða markið með frar unnu frakka með marki Brady! Staðan i 5. evrópuriðli for- keppni HM I knattspyrnu er nú galopin eftir að trland sigraði Frakkland með einu marki gegn engu I Dublin í gærkvöldi. Frakk- ar eru með forustuna í riðlinum, en búlgarir hafa tapað fæstum stigum. Það var Arsenal-leikmaöurinn Liam Brady sem skoraði eina mark leiksins i gærkvöldi. Hann fékk boltann eftir aukaspyrnu Johnny Giles sem lék sinn 48. landsleik fyrir trland (nýtt met) átti mjög góðan leik á miðjunni, og var auk þess nærri þvi að skora sjálfur. Þrumuskot hans af 35 metra færi small i þverslánni, og Don Givens sem náði „frákast- inu” skallaði.hárfint yfir. Frakkarnir þyngdu sókn sina er á siðari hálfleikinn leið, en þeir komust litt áleiöis gegn sterkri vörn Iranna. Þó fengu þeir gott tækifæri á 70. minútu eftir slæm varnarmistök Mick Mulligan, en David Leary tókst þá aö afstýra hættunni á siðustu stundu. Siðustu minútur leiksins press- uðu frakkarnir mjög stift og reyndu allt sem þeir gátu til að jafna metin — án árangurs. Nokkur harka hljóp þá f leikinn og voru tveir leikmenn bókaöir, franski varnarmaðurinn Patrick Rio fyrir gróft brot á Don Givens og irinn Gerry Daly fyrir mót- mæli við dómarann. Staðan i riðlinum er nú þessi: Frakkland 3 1 1 1 4:3 3 Irland 2 1 0 1 1:2 2 Búlgaria 1 0 1 0 2:2 1 Valsmenn meistarar Valsmenn hafa tryggt sér sig- urinn f meistarakeppni knatt- spyrnusambandsins, en þeir sigr- uöu Fram I gærkvöldi á Melavell- inum með tveimur mörkum gegn einu. Valur á eftir að leika einn leik i keppninni, en má tapa hon- um. Valsmenn eru öruggir I efsta sætinu. Aðstæður til að leika I gær- kvöldi voru afar slæmar, rok og kuldi, og voru leikmenn dúðaðir I siðbuxur, vettlinga og húfur. Val- ur lék undan vindinum i fyrri hálfleik og skoraði þá eitt mark. Hermann Gunnarsson afgreiddi boltann I netið á 20. minútu eftir að hann barst til hans af varnar- mönnum Fram. Strax á 3. minútu slðari hálf- leiksins bætti Ingi Björn ööru marki við fyrir Val. Hann átti skalla á mark Fram sem Arni Stefánsson varði en hélt ekki bolt- anum og Ingi Björn afgreiddi hann i markið. Mark Fram skoraði Sumarliði Guðbjartsson. Arni Stefánsson sparkaði langt út, boltinn barst yfir varnarmenn Vals og Sumar- liöi geystist að markinu og skor- aði. skalla eftir hornspyrnu. Vitaspyrna var svo dæmd á Luxemborg þegar Channon var hindraður innan vitateigs þegar tiu minútur voru til leiksloka og hann skoraði sjálfur örugglega úr vitaspyrnunni. Einum leikmanni úr liði Luxemborg — Gilbert Dresch var visað af leikvelli þegar nokkrar minútur voru eftir af leiknum fyrir siendurtekin brot á Channon. „Ég var ekki allskostar ánægður með fyrri hálfleikinn, en við héldum okkar striki I siðari hálfleik og luxemborgararnir voru heppnir að fá ekki á sig fleiri mörk” sagöi Revie ennfremur. „1 heild er ég ánægður meö þenn- an leik og nú geta úrslit riðilsins ráðist að miklu leyti eftir þvi hvernig Itölum gengur gegn finnum.” Staðan i öðrum riðlinum er nú þessi: England 4 3 0 1 11:4 6 Italia 2 2 0 0 6:1 4 Finnland 3 0 0 3 2:16 0 Derby-leikmaöurinn Leighton James átti stórleik með Wales gegn evrópumeisturum tékka I gærkvöldi. Hann var upphaflega ekki valinn I liðið, en kom inni það á slöustu stundu og skoraöi tvö mörk i leiknum. Evrópumeistararnir töpuðu í Wrexham! Walesbúar unnu óvæntan sigur gegn evrópumeisturum tékka i . sjöunda riðli heimsmeistara- keppninnar i knattspyrnu I Wrexham i gærkvöidi. Fæstir áttu von á að Wales ætti nokkra möguleika i leiknum, og ekki slst þar sem besti sóknarmaður þeirra, John Toshack, var meidd- ur og gat ekki leikiö með. En welska liöið lét það ekki á sig fá og sigraði verðskuldað 3:0. Þar með er staöan I riðlinum orðin „galopin” þvl að nú hafa öll liðin tapað leik. Það var Derby. leikmaðurinn Leighton James sem var maður- inn á bak viö sigur Wales. Hann var i fyrstu ekki einu sinni valinn I liðið, en var settur inn á siðustu stundu vegna meiðsla annars leikmanns. James skoraði fyrsta markið á 27. minútu eftir auka- spyrnu með þvi aö skjóta skáskoti á tékkneska markiö sem sigldi yf- ir markvörðinn i hornið fjær. Tékkarnir áttu nokkur skyndi- upphlaup I leiknum sem sköpuðu oft hættu, en Dai Davis I markinu átti skinandi leik og varði nokkr- um sinnum mjög vel. Welska liðið jók svo forystuna á 65. minútu þegar tékkunum mis- tókst hrapallega i rangstöðu „taktik” sinni og nýliðinn Nick Deacy bætti öðru markinu við. Tiu mínútum siðar skoraði James svo þriðja markiö eftir aö hann hafði fengið stungubolta innfyrir vörn tékkanna. Staðan i sjöunda riölinum er nú Wales 2 10 13/12 Tékkóslóvakia 2 1 0 1 2:3 2 Skotland 2 1 0 1 1:2 2 RANGERS I URSLIT Glasgow Rangers tryggði sér rétt til aö ieika til úrslita I skosku bikarkeppninni i gærkvöldi þegar liðið sigraði Hearts á Hampden Park með 2:0. Liðiö á að mæta annaðhvort Ceitic eða Dundee i úrslitaleiknum sem fram fer 21. mai i vor. Tveir leikir voru háðir i skosku úrvalsdeildinni I gærkvöldi, Hibernian og Celtic gerðu jafn- tefli 1:1, og jafntefli varð einnig hjá Partick Thisle og Motherwell 0:0. Einn leikur var háður I ensku deildarkeppninni, Chesterfield sigraöi Port Vale með 4 mörkum gegn engu. KR-ingar eru reiðir! „Þaö má alveg hafa það eftir mér, að ég ætia ekki að koma nálægt neinu starfi fyrir þessa menn” sagði Kristinn Stefáns- son i KR þegar við ræddum viö hann I gær. Astæðan er sú að Kristinn er mjög óánægður með þá ákvörðun stjórnar KKt að veita njarövikingum silfurverð- launin 11. deildinni, en þar urðu KR og UMFN jöfn að stigum. Engar reglur eru til um það hvaö gera á I þessu tilfelli. Sú staða hefur komið upp séu tvö liö efst og jöfn þá skal fara fram úrslitaleikur. Alita KR-ingar að sú regla hljóti að gilda einnig þegar tvö liö verða jöfn i 2.-3. sæti. Eftir leik UMFN og KR i Njarövlk kom Bogi Þorsteins- son sem er formaður UMFN og stjórnarmaður hjá Körfuknatt- leikssambandinu, til KR-inga og spurði þá hvenær væri hægt að leika aukaleikinn, hvort það væri ekki hægt sem allra fyrst. KR-ingar vissu því ekki annaö en að það ætti að fara fram aukaleikur, fyrren njarðviking- arnir voru kallaðir upp til að veita verðlaunum sinum við- töku á lokahófi KKl á laugar- dagskvöldiö. Tóku KR-ingar þessu mjög illa, og munaði litlu að þeir yfir- gæfu samkomuna. Kristinn Ste- fánsson hefur i kjölfar þessa til- kynnt aö hann dragi sig til baka úr öllum störfum á vegum KKt. Hann ætli að visu aö vera áfram með unglingalandsiiöiö fram yf- ir leikina við englendinga hér I næsta mánuði, en sfðan geri hann ekki meira fyrir þessa stjórnarmenn KKt. Kristinn hefur setiö I landsliðsnefnd og i dómstól K.K.t. einnig. Steinn Sveinsson fram- kv.stjóri KKl, sagði að þaö hefði veriö ákveðið á föstudagskvöld að hafa þetta svona. Farið hefði veriö I rcglur FIBA um þetta mál, en þar stendur aö inn- byrðis leikir ráöi, veröi tvö liö jöfn I mótum. Eftir þessum reglum hefur hinsvegar aldrei verið fariö varðandi verölauna- sæti hérlendis áöur. gk. HljSBYGGEJNDUR-Einangrunarplast Afgreiðum einangrunarplast á Stór-Reykjavíkursvæðið frá mánudegi-föstudags. Afhendum vöruna á byggingar- staö, viðskiptamönnum að kostnaðarlausu. Hagkvæmt verö og greiðsluskilmálar viö flestra hæfi BoraarpEastll t ■«rqar«e»I [ftÍmi 93-7370 kvUd •« betgcrslail »3-7355

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.