Vísir - 31.03.1977, Síða 20
VlSIR
Fimmtudagur 31. mars 1977.
Þingfundir
hef jast ó ný
13. apríl
Fundir alþingis hefjast aö
nýju miövikudaginn 13. april
næstkomandi, en þingmenn
fóru i páskaleyfi i gær.
Páskaleyfi þingmenna er
óvenju snemma á ferðinni aö
þessu sinni, og mun ástæðan
m.a. vera sú, aö nokkrir þing-
menn sitja fund Norðurlanda-
ráð.s, sem hófst i Helsingfors i
morgun.
— ESJ
Slasaðist í
órekstri á
Akureyri
Arekstur varð á Akureyri i
gærdag rétt eftir klukkan eitt.
Slasaðist farþegi i öðrum
bilnum og var hann fluttur á
sjúkrahúsið. bað var fólksbill
og vörubill sem lentu saman á
mótum Hörgárbrautar og
Undirhliðar. Bilarnir munu
ekki vera mjög mikið
skemmdir eftir.
— EA
Fyrsti sóttafundurinn:
Rœddu vinnu-
brögð í kjara-
viðrœðunum
Fyrsti reglulegi samninga-
fundurinn i kjaradeilu Alþýöu-
sambands islands og vinnu-
veitenda var haldinn i gær á
vegum sáttasemjara aö Hótel
Loftleiöum, og veröur næsti
fundur á morgun.
A fyrsta fundinum var rætt
um vi.'inubrögö f sambandi viö
samn.ngaviöræöurnar, en
ekki efnisatriöi framkominna
krafna.
— ESJ
Guðmundarmálið:
Einn hinna
ákœrðu
dregur
játningu sína
til baka
Akæra rikissaksóknara á
hendur þeim aöilum, sem
játaö hafa á sig aðild aö
moröi Guömundar Einars-
sonar og Geirfinns Einars-
sonar er nú til meöferöar hjá
Sakadómi Reykjavikur og
stendur dómsrannsókn enn
yfir. Einn þeirra, sem hlut
eiga aö máli, hefur fyrir
réttinum eins og sakir
standa dregiö til baka fyrri
játningu sina um aö hann
hafi veriö viöstaddur, þegar
Guömundur Einarsson var
myrtur og tekiö þátt I þeim
verknaöi. Ekki er talið aö
þessi nýi framburöur breyti
framgangi málsins, enda
hefur framburöur annarra
aöila ekki breyst.
— SG
-
f
Eddofilm hyggst reisa
kvikmyndaver í Reykiavík
Edda film hefur sent borgar-
stjórn umsókn um lóö til aö
reisa sér kvikmyndavcr og sýn-
ingarhús og ætlar á næstu árum
aö gera alvarlegt átak í kvik-
myndamálum. 1 því sambandi
er nú t.d. Hrafn Gunnlaugsson,
aö semja handritaö nýrri kvik-
mynd.
Forstööumenn Edda film,
leggja á þaö áherslu að þetta sé
áfangamál og uppbygging muni
taka mörg ár, en hinsvegar sé
mikill áhugi á að koma þvi á
rekspöl, og aö félagið veröi
virkur aöili i kvikmyndagerö.
„Stjórn félagsins er nýbúin aö
halda fund og þaö er mikill á-
hugi á aö vekja það af löngum
þyrnirósarsvefni”, sagði Aibert
Guðmundsson i viötali viö Visi.
„Við höfum fullan hug á þvi
að kvikmyndagerð hljóti sinn
rétta sess hér á landi og þaö
virðist heldur vera að vakna
skilningur á þvi að kvikmynda-
gerö er nauðsynlegur liður i
menningariifi þjóða. Edda film
er gamalt og gott fyrirtæki sem
hefur unniö brautryöjenda
starf, og við væntum góðs af
framhaldinu”.
Indriði G. Þorsteinsson,
formaður stjórnar Edda-film,
sagöi að bjartara væri nú yfir
kvikmyndagerö en oft áöur.
Ungir menn heföu lært til þess-
ara hluta og margir unnið gott
starf.
Hinsvegar væri ekki hægt að
starfa fyrir alvöru meðan félag-
ið væri nánast I lausu lofti og
ætti sér engan samastað og þvi
heföi nú verið ákveðiö aö hyggja
aö framkvæmdum.
„Þetta er áfangamál og tekur
sjálfsagt langan tlma. En það er
mikið atriöi að komast undir
þak og svona félag þarf að hafa
aðstöðu til kvikmyndunar innan
dyra. Þaö er einnig eölilegt að
það eigi kvikmyndasýninga-
hús”, sagði Indriði.
baö hefur verið langt á milli
kvikmynda hjá Edda-film, en
þær eru þrjár talsins, unnar i
samvinnu við erlenda aðila.
Myndirnar þrjár eru Salka
Valka, 79 af stöðinni og Rauöa
skikkjan.
Indriði sagði að handritiö sem
Hrafnynniað, væri frumsamið.
Stefnt væri að þvi að kvikmynd
upp úr þvi yröi fyrir almennan
markað. —ÓT
I MORGUN
1 I "g w illl
Ji-n • fa r ~Jm
't\ * ■ /.tÉfcígf:’-J* WKm
Einn glæsilegasti veitingasalur borgarinnar veröur opnaöur á niundu hæö
Hótels Esju siðdegis á morgun i þvi húsnæði, sem áöur var nýtt fyrir bar og
kaffiteriu. Þessi salur mun taka hátt i hundrað manns, og eiga gestir þar að
geta notið fyrsta flokks veitinga og útsýnis. Myndin var tekin i nýja veit-
ingasalnum i morgun. Þá var verið að leggja siðustu hönd á undirbúning
fyrir opnun salarins. T.v. er Steindór ólafsson, hótelstjóri, en t.h. Leifur
Gislason, byggingafræðingur. — Ljósmynd Jens
Yfirvofandi
neyðar-
óstandi
oflétt
Hjúkrunarfrœðingar
fresta aðgerðum
„Við erum mjög ánægðir
yfir þvi aö þessi vandi er
leystur. Nú veröa allir aö vona
aö þeir samningar takist sem
allir geta sætt sig viö”, sagöi
Haukur Benediktsson fram-
kvæmdastjóri Borgarspital-
ans i samtali viö Visi i
morgun.
Hjúkrunarfræðingar hafa
frestað framkvæmd uppsagna
fram yfir gildistöku sérkjara-
samnings Hjúkrunarfélags ís-
lands og fjármálaráðu-
neytisins og Reykjavikur-
borgar.
Hjúkrunarfræðingarnir
segjast hafa tekið þessa
ákvöröun þar sem ljóst væri
að stjórnvöld ætli ekki aö taka
tillit til þess neyðarástands
sem fyrirsjáanlegt var á
sjúkrahúsum borgarinnar.
Ætla þær þvi aö biða og sjá
hverjar efndir verði á þeim
loforöum sem þeim bárust
skriflega frá fjármálaráö-
herra og borgarstjóra um að
mál þeirra hljóti sérstaka
meðferð i komandi samning-
um.
— SJ
HÚSVÍKINGUM SEM HORFÐU Á JARÐSKJÁLFTANN BRÁ HELDUR I BRÚN:
Rafmagnslaust varð í mestu hrínunni
Þeim hefur sennilega ekki öll-
um oröið um sel bfógestum á
Húsavfk sem horföu á Jarö-
skjálftann, þegaralltí einu varö
rafmagnslaust fhúsinu. Þaö var
I fyrrakvöld sem kvikmyndin
Earthquake eöa Jaröskjálftinn
var sýnd þar.
Gekk allt vel til aö byrja rrteö,
en rétt i þann mund sem mestu
jaröskjálftahrinunni var aö
ljúka i kvikmyndinni meö til-
heyrandi hávaða og látum, varð
snögglega rafmagnslaust I hús-
inu.
Það er ekki ótrúlegt aö mörg-
um hafi brugðið illilega. Fólk
stóð upp og fór fram úr biósaln-
um, og komst þá aö raun um að
rafmagnslaust var I öllum bæn-
um. Varð einhver bilun og biðu
biógestir bara rólegir eftir þvi
að sýning gæti hafist aftur, sem
og varð og þá án truflana.-EA
SKÝRSLA ÞÖRUNGAVINNSLUNEFNDARINNAR:
125 milljóna tap
Ef rekstri Þörungavinnslunn-
ar verður haldiö áfram, mun
tapiö sennilega nema minnst 125
milljónum króna á þessu ári og
næsta, aö mati þeirrar nefndar,
sem kannaö hefur framtlðar-
möguleika fyrirtækisins.
Eins og Visir skýrði frá i gær,
hefur nefndin fyrir nokkru
skilað áliti, og mælir hún einna
helst með þvi, að starfsemi
verksmiðjunnar verði hætt, en
jafnframt þvi verði kannaðir
möguleikar á að „finna nýja
tækni við þangskurð”, þar sem
vonina um, að hægt veröi aö
endurreisa fyrirtækið, sé helst
hægt að binda við þann mögu-
leika.
Rikisstjórnin hefur þegar
tekið skýrsluna til umræðu, en
ekki afgreiöslu. Þaö er rikis-
stjórnin, sem endanlega mun
ákveða, hvort rekstrinum verði
hætt, eða starfseminni haldið
einhverju formi, þrátt
fyrir það tugmilljóna tap, sem
nefndin bendir á, at hljóti að
verða á slikum rekstri.
— ESJ
Fleiri ferðir
í Breiðholt
Breiöholtsbúar eiga I vændum
aukna þjónustu hjá Strætis-
vögnum Reykjavíkur i sumar.
Er veriö aö ganga frá breyting-
um á feröum vagnanna I Breiö-
holtshverfiö þessa dagana, en
reiknaö er meö aö hiö nýja
leiöarkerfi taki gildi I júni n.k.
Hugmyndin er að fjölga ferð-
um á leið 13—Breiðholt/
Lækjartorg þannig að ferðir
verða á hálftíma fresti allan
daginn. Mun þetta verða eins-
konar hraðferð eins og áður var
hjá SVR.
Þá er fyrirhugaðað samræma
ferðir á leið 12, 14 og 15. Verður
akstursleiðum breitt og ferðir
lagfræðar á þann veg aö þjón-
ustan við Breiöholtsbúa verður
enn betri en áður.
—klp