Vísir - 16.04.1977, Side 10

Vísir - 16.04.1977, Side 10
10 VISIR VÍSIR C'tgefundi:KeykJaprent hf Framkvsemdastjóri: DavIÓ Guómundsson Ritstjórar:Þorsteinn Pálsson ábm. ólafur Ragnarsson Ritstjórnarfulltrúi: Bragi Gubmundsson. Fréttastjóri erlendra frétta: Guömundar Pétursson. Um- sjón með helgarblaói: Arni Þórarinsson. Blaðamenn: Edda Andrésdóttir, Einar K. Guðfinnsson, Ellas Snæland Jónsson, Finnbogi Hermannsson, Guöjón Arngrimsson, Kjartan L. Pálsson, öli Tynes, Sigurveig Jónsdóttir, Sæmundur Guövinsson. lþróttir: Björn Biöndal, Gylfi Kristjánsson. Akureyrarritstjórn: Anders Hansen. Ctlitsteiknun: Jón óskar Hafsteinsson og Magnús Olafsson. Ljósmyndir: Jens Alexandersson, Loftur Asgeirsson. Sölustjóri: Páll Stefánsson. Auglýsingastjóri: Þorsteinn Fr. Sigurösson. Dreifingarstjóri: Siguröur R. Pétursson. Auglýsingar: Siöumúla 8. Slmar 11660. 86611. Askriítargjald kr. 1100 á mánuöi innanlands. Afgreiösla: liverfisgata 44. Simi 86611. Verö I lausasölu kr. 60 eintakiö. Ritstjórn: Siöumúla 14. Sfmi 86611, 7 Ifnur. Prentun: Blaöaprent hf. Þeir fara troðnar slóðir Um þessar mundir beinist athygli manna eðlilega öðru fremur að viðræðum launþega og vinnuveitenda um nýja kjarasamnihga Þau átök hafa þegar fallið í hefðbundinn farveg með dómsdagsspám á annan veg- innog striðsyf irlýsingum á hinn. Og niðurstaðan verð- ur svo væntanlega sú sama og venjulega. i almennum umræðum um þessi efni hlaupa menn gjarnan í kringum aðalatriðin eins og köttur um heit- ann graut. Ástæðan er ugglaust sú/ að stjórnmála- menn nota kjarasamninga í hinni f lokkspólitísku ref- skák. Raunverulegir hagsmunir launþega hafa of oft setið á hakanum í samningaviðræðum fyrir þá sök að stjórnarandstaðan á hverjum tíma lætur sig það mestu skipta/ hvort unnt er að koma skák á þá ríkis- stjórn/ sem með völdin fer hverju sinni. Það hefur komið glöggt fram að undanförnu, að þeir sem á annað borð hafa tekið til máls um þessi efni/ hafa með engu móti fengist til að ræða sömu hlutina. Alþýðusambandið hefur sett fram þá grund- vallarkröfu að lægstu laun verði hækkuð upp T 110 þúsund krónur á mánuði/ en önnur laun hlutfallslega minna. Þessi launajöfnunarstefna er nauðsynleg við rikjandi aðstæður. öllum á að vera Ijóst/ að óhjákvæmilegt er að hækka lægstu laun. Og i sjálfu sér væri full ástæða til að berja bumbur, ef menn væru ekki reiðubúnir til þess. Sannleikurinn er hins vegar sá, að í raun og veru snú- ast samningarnir um allt aðrar kröfur, sem í f lestum tilvikum hljóða upp á meiri almennar kauphækkanir en Alþýðusambandið gerir ráð fyrir og aukin launa- mismun. útreikningar Kjararannsóknarnefndar, sem birtir hafa verið, sýna einkar vel, að launþegafélögin ganga í raun og veru þvert á grundvallarstefnu Alþýðusam- bandsins að því er kröfugerð varðar. Hér eiga fyrst og fremst hlut að máli Verkamannasambandið og ýmis iðnaðarmannafélög. Athyglisvert er, að þau launþegafélög sem nú setja fram kröfur um aukinn launamismun, lúta í flestum tilvikum stjórn manna, sem í öðrum tilvikum eru þekktir fyrir að flytja hjartnæmar ræður um aukinn jöfnuð t þjóðfélaginu. Þannig eru höfð endaskipti á hlutunum, ef það mætti verða til þess að staðan í flokkspólitísku refskákinni styrktist. Hættan sem við stöndum frammi fyrir, er á hinn bóginn sú, að kjarasamningarnir leiði til nýrrar verð- bólguholskeflu eins og gerðist 1974. Þó að allir viti að sú niðurstaða myndi fyrst og fremst koma niður á lág- launafólki og ellilífeyrisþegum er hitt jafn Ijóst, að staða ríkisstjórnarinnar myndi veikjast og stjórnar- andstaðan ef Idist að sama skapi, nákvæmlega eins og átti sér stað i kjölfar febrúarsamninganna fyrir þremur árum. Eini munurinn er sá að þá voru hlut- verkaskipti í pólitikinni nokkuð öðru vísi en nú er. Þannig endurtekur sagan sig aftur og aftur. Borgararnir eru á hinn bóginn orðnir þreyttir á þessu sjónarspili og ekki síst þeir, sem verjast í vök gegn verðbólgunni. Menn hefðu vænst þess, að reynsla undangenginna ára hefði kennt þeim valdaaðilum, sem hér eiga hlut að máli, að fara yrði nýjar leiðir til þess að tryggja raunhæfar lifskjarabætur. Eins og framvinda mála hefur verið er ekki að sjá að samningamennirnir hyggi á aðrar leiðir en þær troðnu. Og gallinn á kerfinu er sá, að þeir, sem raun- verulega taka ákvarðanirnar bera ekki ábyrgð. Hinn almenni borgari veit það eitt, að ný verðbólguhol- skefla útilokar að hér þrífist heilbrigt þjóðlíf. Til fermingarbarnanna Meölagi eftir Sigurð Óskarsson Kristur á þig kallar, „kærleikur og mildi” eru á hans skildi eiliflega skráð Hann tekur að sér týnda tvistraða og smáða, halta, blinda, hrjáða, heitir friði og náð. Góður Guðs vors sonur gefur þér að finna i brjóstum barna sinna birtu ljóss og lifs. Hjá Drottni ljómar ljósið, lifið bjarmann teygar, vist það eru veigar, sem vekja eilift lif. Hann vill þinn anda auðga með eigin kærleiks eldi, svo mildi af varmans veldi vaki i þinni sál. Þorst. L. Jónsson. Þorsteinn L. Jónsson. Þessi Kirkjusiða er i máli og myndum helguð fermingar- börnunum mörgu, sem þessa helgidaga ganga fram fyrir alt- arið i helgidómum borgarinnar og vinna þar sitt fermingarheit. Og i fermingarsálmi æskulýðs- leiðtogansalþekkta, sr. Friðriks Friðrikssonar, stofnanda KFUM og K er ungmennið á- varpað á þennan hátt: Fermingarbarn, til fylgdar þig hann krefui fegurstu kosti eilifs lifs hann gefui sakleysið verndar, sorg i gleði breytir, sigurinn veitir. Anno Guðmundsdóttir leikkona 75 óra: Heldur upp ú ofmœlið í gamolkunnu hlutverki Anna Guðmundsdóttir leik- kona verður í gamalkunnu hlut- verki i Þjóðleikhúsinu þriöju- daginn 19. april. Þann dag á leikkonan 75 ára afmæli og hefur Þjóðleikhúsið af þvi tilefni boöið henni að leika hlutvcrk Vilborgar grasakonu i Gullna hliðinu þá um kvöldiö. Aður hefur Anna leikið þetta hlutverk í þremur fyrri upp- færslum Gullna hliðsins. Fyrst hjá Leikfélagi Reykjavikur 1948 og siðan i báðum sviðsetningum Þjóðleikhússins á verkinu 1951 og 1966, auk aukasýninga og leikferöa til Norðurlanda. Sýningin á þriðjudagskvöldið er 39. sýning Gullna hliösins að þessu sinni og hefur veriö upp- selt á svo til allar sýningarnar. Leikstjóri er Sveinn Einarsson en hlutverk Kerlingar leikur Guðrún Stephensen og Jón bónda leikur Helgi Skúlason. —SJ Anna Guömundsdóttir. Þessa árnaðarósk fengu fermingarbörnin i Vestmanna- eyjum frá kirkjunni sinni og prestinum. Myndin minnir á út- legöina eftir gosið og messað var yfir eyjafólkinu i kirkju Óháða safnaðarins i Reykjavik og hin mikla ferming fór fram i Skálholtskirkju. Halldór Laxness veröur 75 ára, næstkomandi laugardag, 23. april. 1 tilefni af þvi gefur danska forlagiö Gyldendal út bók Halldórs 1 túninu heima i danskri þýðingu. Kemur bókin út i Danmörku daginn fyrir af- mælið. Þess má geta, að næsta Helgarblað Visis verður helg- að Halldóri á afmæiisdegin- um. —AÞ

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.