Vísir - 06.06.1977, Page 11

Vísir - 06.06.1977, Page 11
VISIR Mánudagur 6. júni 1977. af þessum sökum sé að minnsta kosti 500—1000 milljónir króna á ári á núgildandi verðlagi, en dýr- ari er þó rafhitunarreikningurinn allur og er vafasamt að hann verði nokkurntima gerður upp i krónum og aurum. Framleiðslan settá 1/5 af kostnaðarverði Þetta húshitunar — disilraf- magn er að sjálfsögðu selt langt undir k o s t n a ð a r v e r ð i (frarhleiðsla -(- dreifing), á 1/5 eða minna að þvi er sumir telja. Þetta verður til þess að framleiðsla raforku til húshitunar tekur á sig hinar fáránlegustu myndir þar sem ástandið er eins og hér hefur verið lýst. Það liggur til dæmis i augum uppi að það borgar sig fyrir raforku- framleiðandann að gefa húseigendum oliu til hitunar endurgjaldslaust fremur en kaupa þrefalt magn til að keyra disilraforku inná þilofna þeirra, en liklega þykir ekki viðeigandi að Rafmagnsveitur rikisins reki slika oliutombólu, svo hin leiðin er semsagt farin. Reikninginn fær svo Alþingi einu sinni á ári. Hitun með afgangsorku önnur aðferð til að hita upp með rafmagni er sú, að gera ráð fyrir að hitunin geti farið fram með þeirri afgangsorku sem hverju sinni er til á rafkerfinu og afhendingin sé möguleg án sér- stakra styrkinga á dreifikerfinu. Hér þarf þó að fara að með mikilli gát, þvi að þegar búið er að byggja hús án miðstöðvarketils þarf húsið að fá sina hitun hvort sem afgangsorka er til eða ekki og ef siðar kemur i ljós að dreifi- kerfið þarf styrkingar við samt sem áður, þá verður að framkvæma hana. Samt sem áður er það á þessum velli sem rafhitunarsérfræðingar leiða fram hesta sina þegar sanna á hvað rafhitun er ódýr. R-Ohitaveitur Langmerkasta framlagið af þvi tagi er vafalaust hugmyndin um hinar svokölluðu R-0 hitaveitur (rafmagns-oliu), en um rekstur þeirra hefur Jóhannes Zoega, hitaveitustjóri i Reykjavik ritað merka grein i Timarit Verk- fræðingafélags íslands (nr. 1 1976). Slikar hitaveitur komast hj'á allri forgangsorkunotkun ein- faldlega með þvi að eiga tiltæka svartoliukatla sem varaafl. Samkvæmt áætlun hans þarf oliu- notkunin i slikum hitaveitum ekki að vera nema um 10% að meðal- tali, sem er töluverð framför frá 300% i disilrafmagninu. Raforku- dreifingin verður lika miklu minna vandamál með þessu lagi, en auðvitað þarf þar á móti að leggja hitaveitukerfi, svo að þessi lausn passar ekki nema fyrir þéttbýlisstaði. En það er mikil spurning hvort ekki borgar sig að Jónas Elíassonskrifar um húshitun með raforku og segir að aukning hennar eigi rœtur að rekja til þeirra pólitísku ótaka sem staðið hafa um orkusölu til stóriðju leggja slikt kerfi bara til að komast frá gasoliuhitun yfir á svartoliuhitun, að minnsta kosti hefur það viða verið gert i ná- grannalöndunum. Oliukosthaður til húsnitunar hér á landi yrði ekki nema brot af þvi sem hann nú er ef þessháttar hitaveitukerfi yrði lögð i þéttbýlisstaðina. En ef til vill er hið athyglisverðasta við þennan möguleika það, að þar sem hann reynist hagkvæmur verða algjör endaskipti á hita- veitumálunum. Þar borgar sig að byrja á fjarhitakerfinu og leggja ekki út i jarðhitaleit með borun- um fyrr en kerfið er komið i rekstur, i stað þess að byrja á á- hættusömum borunum og leggja ekki fjarhitakerfi nema þær beri árangur. Hitt borgar sig vegna þess að tilvera hitaveitukerfis i rekstri gerir jarðhitafund marg- falt verðmætari. Hvers vegna? Hversvegna hefur rafhitunar- málið snúist svona i höndum okk- ar? Orsakirnar eru væntanlega margar og rafhitun sem slik er ekkert ný af nálinni. Hún hefur hinsvegar verið fremur litil hér á landi þar til á seinni árum. Aukn- inguna má svo rekja til þeirra pólitisku átaka sem á sinum tima áttu sér stað um orkusölu til stóriðju, þar sem andstæðingar stóriðjunnar tefldu húshituninni fram sem mótvægi stóriðjunnar i orkunýtingarlegu tilliti. En eins og allir vita þá er nýting innlendra orkulinda búin að vera á stefnuskrám samanlagðra stjórnmálaflokka frá vinstri til hægri um alllangt skeið. Það er hinsvegar álitamál hvort stjórnmálamennirnir hafa nokkurntima gert sér grein fyrir þeim háa dreifingarkostnaði sem fylgir þvi að leggja rafhitun i hvert hús, en hann er fyllilega sambærilegur við hitaveitulögn. Þvi var byrjað á rafhituninni án þess að dæmið væri gert upp, tæknilega eða fjárhagslega og án þess að hagkvæmni hinna ýmsu valkosta væri að fullu könnuð. Ekki langttil jafnað á Kröflutimum Það sem fyrst og fremst ýtti á eftir þessari þróun var svo oliu- kreppan og verðhækkanir oliu i kjölfar hennar. Auðvitað hefur það verið meiningin að fylgja raf- hituninni eftir með aukinni raf- orkuöflun frá vatnsorkuverum, en þegar til átti að taka höfðu raf- orkuverin hækkað næstum þvi meira en olian vegna vaxtahækk- unarinnar á hinum erlenda lána- markaði sem lika fylgdi i kjölfar oliukreppunnar. Þvi virðast menn hafa heykst á virkjanabyggingunni og af- leiðingin er svo sú sem að framan var lýst, rafhitunin er orðin ein mesta handvömm islenskra orku- mála og er þá ekki langt til jafnað á vorum Kröflutimum. Þetta er eitt skýrasta dæmið um það hvernig stjórnmálamenn villast i frumskógi tækninnar, óafvitandi og i bestu meiningu. Væntanlega verður þessu öllu kippt i lag þótt enginn viti hvenær eða hvernig. Byggðalinan mun væntanlega laga ástandið tölu- vert þó að áhöld séu um að hve miklu leyti dreifikerfin á Norður- og Austurlandi þola þann flutn- ing. En sjálfskáparvitin eru erfið viðureignar eins og best sást fyrir nokkru þegar nýskipaður for- stjóri Rafmagnsveitna rikisins ætlaði að stöðva frekari rafhitun en fékk samstundis skipun frá Iðnaðarráðuneytinu um að halda henni áfram, skipun sem i raun og veru þýðir: Fleiri disilvélar, meiri oliu. Að minnsta kosti meðan málin standa eins og nú. SAGA NORRÆNNA MANNA mynd, sem hún hefur tekið á sig á undanförnum áratugum, skortir tilfinnanlega kjölfestu, sem skólar og aðrar ámóta stofnanir gætu veitt henni smám saman. Er þá einkum höfð i huga kennsla i hinni sameiginlegu sögu nor- rænna manna, sem er mikil að vöxtum, en hefur ekki verið tekin saman i þeirri veru, að hún geti þjónað sem samnefnari fyrir Norðurlönd. Hvert land fyrir sig á aðsjálfsögðu sina eigin sögu. Þar mætast ekki veg- ir, enda er tiltölulega skammt siðan hinar einstöku Norður- landaþjóðir stóðu I sjálfstæðis- baráttu sin i milli. En það má geta nærri hvort mikið af sögu þessara þjóða er ekki sameigin- leg, þar sem um langvinn yfirráð hefur verið að ræða. ÞEGARTIL GILDVERK tslendingar hafa margt til sögu norrænna manna að leggja, eink- um i upphafi, eða frá vikinga- timanum og fram til 1262. Ritun Sögu Islands, sem nú stendur yfir og ætlað er að komi öll út innan fárra ára, er í raun fyrsta átakið i gerð heillegrar sögu landsins frá upphafi byggðar. Ákveðin timabil i þeirri sögu hafa ekki áður verið tekin til meðferðar á borð við það, sem nú er gert. Að ritun Islands- sögunnar lokinni stöndum við betur að vigi en áður við að meta hlutdeild okkar i hinni samnor- rænu sögu. En auðvitað eru þegar til gild verk, skrifuð af Islending- um, sem verða vart talin annað en hluti af norrænu sögunni. SAGANÞARF AÐ NOTASTSEMAL- MENNT LESTRAREFNI Norðmenn, danir og sviar hafa gefið út sinar sögur, þótt með mismunandi hætti sé. Yfirleitt takmarkast þessi sagnagerð öll að mestu við land og þjóð, en læt- ur hina sameiginlegu sögu liggja milli hluta, eða kannski varla hægt að ætlast til þess að t.d. við eða aðrar norðurlandaþjóðir för- um að blanda öðrum aðilum en þeim, sem koma beint við málið, i sögu sina. Þannig er engin von til þess að saga norrænna manna verði rituð nema til þess verði sérstaklega stofnað. Saga norrænna manna þarf ekki að verða margra binda verk, og raunar er hægt að hugsa sér hana ritaða á ýmsum stigum og til margvislegra nota. Auðvelt ætti að vera að gera útdrátt úr henni til kennslu i skólum á Norðurlöndum til að efla þá til- finningu, að um nokkra heild sé að ræða þar sem Norðurlöndin eru, og jafnframt og kannski fyrst og fremst ber að gera söguna þannig úr garði að hún geti notast sem almennt lestrarefni. Með þvi móti mundi fólk kynnast þvi sem sameinar Norðurlönd og hafa á hraðbergi svör við spurningum um ástæður fyrir þeirri nánu samvinnu, sem nú hefur verið tekin upp. FRÁ SLÉSVIK TILTHULE Auðvitað eru ekki allar norður- landaþjóðir skyldar. Finnar eru sér á parti, svo og grænlending- ar. En saga norrænna manna hlýtur einnig að ná til þeirra, vegna þess að hér er ekki einung- is um sameiginlega sögu þjóða að ræða heldur einnig hina landa- fræðilegu sögu og þar hljóta mörkin að liggja. Við teljum okk- ur hafa margt fengið frá irum og gott ef helstu einkenni okkar eru ekki irsk frekar en norsk. Þá er uppi sögn um að við séum flökkuþjóð og gamlir málaliðar, sem ekki stönsuðu i Noregi degi lengur en nauðsyn krafði eftir að Haraldur hárfagri hafði lagt landið undir sig. Allt getur þetta verið satt og rétt. En frá Slésvik i suðri til Thule i norðri teljast nor- rænir menn búa, og saga þeirra byggist á slikum mörkum en ekki á kenningum um kynblöndun, eða kjarna þeirra, sem fæðast 'ljós- hærðir. BREYTINGAR IVÆNDUM Norræn samvinna hefur legið undir ámæli fyrir veislur og varaþjónustu. Ekki er þetta ámæli alls kostar rétt. Norræn samvinna hefur margt gott látið af sér leiða og við megum vera sérlega minnugir þess hvernig norðurlandaþjóðir brugðust við áfallinu i Vestmannaeyjum. En nú virðist sem þessi samvinna eigi nokkrar breytingar i vænd- um. Vegalengdir hafa minnkað vegna bættra samgangna og auk- in kynni hafa fært menn nær hverju öðrum. Norðurlandaráð er enn ungt á mælikvarða rikjasam- vinnu. Það er þvi vel við hæfi að hefja undirbúning ritunar sögu norrænna manna áður en lengra ■ er haldið. IÞG Þá er uppi sögn um að við séum flökkuþjóð og gamlir málaliðar, sem ekki stönsuðu i Noregi degi lengur en nauðsyn krafði eftir að Haraldur hárfagri hafði lagt land undir sig.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.