Tíminn - 28.08.1968, Qupperneq 16
181. tW. — MiSvHcudagur 38. ágúst 1968. — 52. árg.
GAF ÆSKULYÐSRAÐI RVÍKUR
FIMM ÞÚSUND SILUNGSSEIÐI
KJ-Reykjavík, þriðjudag.
f dag fékk ÆskulýðsráS Reykja
víkur höfðinglega og sérstæða
gjöf. Skúli Pálsson á Laxalóni gaf
ráðinu fimm þúsund silungaseiði,
sem sett voru í Haíravatn og
Rauðavatn.
Svo sem kunnugt er, þá rekur
Skúli eldisstöð að LaxaLóni fyrir
ofan Reykjavík, og hefur gert um
árabil. Selur hann seiði, misjafn-
lega gömul, út um allt land. Hann
hefur komið sér upp mjög full-
komnum útbúnaði í þessu sam-
bandi, eldishúsi og sjálfvirkum
fóðrurum. Skúli fær hrogn úr
beztu laxastofnum landsins, og er
mikiL eftirspurn eftir seiðum frá
Laxalóni.
Skúli sagði í dag, að hann vildi
með þessari gjöf sinni glæða á-
huga unglinganna í Æskulýðsi'áði
á ræktun fisksins, jafnframt því
sem hann vildi stuðla að aukinni
starfsemi stangveiðiklúbbsins sem
starfandi er innan ráðsins. Auk
nokkurra ungiinga úr stangveiði-
klúbbnum tóku á móti gjöfinni í
dag, þeir Reynir Karlsson fram-
kvæmdastjóri Æskulýðsráðs, og
tveir starfsmenn þess, Jón Páls-
son og Haukur Sigtryggsson. Var
farið með seiðin frá Laxaióni upp
í Iíafravatn og Rauðavatn. Æsku-
lýðsráð mun fá veiðiréttindi í
Hafravatni með því að leggja til
þessi seiði, en hvað snertir Rauða
vatn, má segja að frekar sé um
tilraunastarfsemi að ræða. Fiskur
hefur fengizt úr vatninu í sumar,
og telja sérfræðingar að þrátt
fyrir að það sé mjög grunnt, þá sé
möguleiki að rækta fisk í því.
Landsbóka-
safniö er
150 ára
Landsbókasafn íslands er 150
ára í dag. Verður afmælisins
minnzt með samkomu í Þjóð-
leikhúsinu kl. 16.30 og sýningu
í Safnahúsinu, þar sem rifjaðir
verða upp nokkrir þættir í
sögu safnsins.
Sú sýning mun standa í and-
dyri Safnahússiits næstu
urnar.
vik-
LandsbókasafnshúsiS viS Hverfisgötu.
HITAMÆLINGAR Á JARÐ-
HITASVÆÐUM ÚR FLUGVÉL
SeiSin flutt úr eldiskörum frá Laxalóni.
SJ;Reykjavík, þriðjudag.
f dag var til sýnis á Reykjavík-
urflugvelli flugvél, sem rannsókna
stofnun bandaríska flughersins á
og notuð hefur verið undanfarin
þrjú sumur hér á laiuli við liita-
mælingar úr lofti einkum á jarð
liitasvæðum.
Margt manna skoðaði flugvél
þessa, sem búin er mjög fullkomn
uin útbúnaði, m. a. margir íslenzk
ir vísindamenn og bandaríski pró-
fessoi'inn Rauer, er styrkt hefur
Surtseyjarrannsóknir með mikl-
um fjárhæðum undanfarin ár.
Sumaxið 1966 hófust hitamæling
ar á eldfjalla- og jarðhitasvæðum
hér á landi úr lofti í tengslum við
jarðfræðirannsóknir á jöi'ðu niðri.
Rannsóknir þessar eru framkvæmd
ar af þremur amerískum rann-
sóknarstofnunum í samvinnu við
íalenzka vísindamenn, einkum Guð
mund Pálmason og aðra sérfræð
inga Jarðhitadeildar Orkustofnun
ar. Rannsóknarráð ríkisins hafði
milligöngu um samstarf þetta.
Hinir þrír amerísku aðilar eru:
Rannsóknarstofnun flughersins,
Jarðfræðistofnun Bandaríkjanna
og Tækni- og vísindastofnun Mich
igan háskóla.
Dr. Richard S. Williams, jr., sem
er jarðfræðingur við Rannsókna
stofnun flughersins, stjórnar þessu
| starfi. Dr. Jules D. Friedman, jarð
(Timamynd Gunnar) | fræðingur, sér um þátt Jarðfræði
Héraðsmót að
Bifröst í
Borgarfirði
Ólafur
DaviS
Héraðsmót Framsóknarmanna
í Mýrasýslu, verður haldið að Bif
röst í Borgarfirði sunnudaginn 1.
September og hefst kl. 9 síðdegis.
Ræðu og ávarp flytja Ólafur Jó-
hannesson, formaður Framsóknar
flokksins, og Davíð Aða-lsteinsson
Arnbjarnarlæk.
Skemmtiatriði annast Sigurveig
Hjaltested og Guðm. Guðjónsson
sem syngja einsöng og tvísöng við
undirleik Skúla Halldórssonar,
tónskálds. Hilmir Jóhannesson
fer með gamanþátt. Hljómsveit
Magnúsar Ingimarssonar leikur
og syngur milli dagskráratriða og
fyrir dansi.
FramsóknaríéiL Mýrasýslu.
Slasaðist mikið í um-
ferðarslysi við Osló
KJ-Reykjavík, þriðjudag. ] rétt utan við Osló, og slasaðist
Á sunnudagskvöldið varð Óðinu hann mikið. Er hanu m. a. lærbrot
Rögnvaldsson prentari fyrir bíl' Framhald á bls 14
stofnunarinnar og Dana C. Pai'ker,
jarðfræðiverkfræðingur, við Mich
igan háskóla, er til aðstoðar.
Dr. Brian B. Turner, sem er
jarðfræðingur við Rannsókna-
stofnun flughersins, stjórnar vís-
indastöi'fum úr flugvélinni. Flug
vélin er fjögurra hreyfla skrúfu
þota af gerðinni C-130 Hercules.
Þetta eru vöruflutningavélar, en
þessari hefur verið breytt mjög
Framhald á bls 14
Hitamælingaflugvélin á Reykjavíkurflugvelli. (Tímamynd Sólveig)
MARGIR VIUA
SJÁ MARCEAU
KJ-Reykjavík, þriðjudag.
í dag var byrjað að selja miða
í Þjóðleikhúsinu að sýningum Mar
cel Marceau, látbragðsleikarans
heimsfræga. • Myndaðist mikil bið
röð við miðasöluna þegar, og
munu flestallir miðarnir hafa
selzt á skömmum tíma.
Marcel Mareeau mun hafa tvær
sýningar hér og er sú fyrri á föstu
daginn, en hann hafði þrjár sýning
ar hér síðast, við fádæma hrifn-
ingu, og mun óhætt að fullyrða að
fáir erlendir listmenn hafi gakið
eins mikla hrifningu og hann gerði,
að því er segir í frétt frá Þjóð-
leikhúsinu.
Á undanförnum árum hefur lista
maðurinn verið mest á sýningar-
ferðum bæði í Evrópu og einnig í
Ameríku.
Marceau, er fæddur í Strass-
bourg árið 1923, en flutti ungur á-
samt foreldrum sínum til Limoges.
Árið 1943 kom hann fyrst til París-
ar þar var hann fyrst kennari á,
heimili flóttabarna og kenndi
þeim m. a. málaralist og leiklist.
Ári síðar innritaðist hann í leik-,
listarskóla og lagði aðallega stund
á nám í látbragðsleik. Meðal kenn'
ax’a hans voru: Jean Louis Barr-'
ault og Jean Vilar. byrjun deildi,
Framhald á bls 14
Biðröð við Þjóðleikhúsið í gær.
(Tímamynd