Tíminn - 20.09.1968, Síða 12
\
201. tb!. — Föstudagur 20. sept. 1968. — 52. árg.
BÓFAFLOKKUR A FERÐ I BORGINNI?
BRJOTAST INN
Séð yfir fundarsalinn. Baldur Óskarsson í ræðustól.
(Tímamynd—Gunnar).
UNGA KYNSL0Ð1N HEFUR
NÝJA FRAMFARASÓKN
í kvöld hélt Verzlunarmannafélag Reykjávíkur al-
mennan fund á Hótel Sögu um „Unga fólkið í atvinnu-
lífinu og stjórnmálin“, en ræðumenn voru Baldur Ósk-
arsson, formaður SUF, Kristján Þorgeirsson, formaður
FXJJ í Reykjavík, Magnús Gunnarsson, viðskiptafræði
nemi, og Sigurður Magnússon, formaður Iðnnema-
sambands íslands. í ræðu sinni kom Baldur Óskarsson
víða við og sagði meðal annars, að unga kynslóðin á ís-
landi myndi á næstu misserum skipa sér í fylkingu, sem
á kreddulausan en markvissan hátt muni hefja nýja
framfarasókn í þjóðfélaginu, og muni ungir Framsóknar
menn áfram verða merkisberar í þessari fylkingu unga
fól'ksins á fslandi.
Baldur Óskarsson var fyrsti
frummælandi, og gerði hann
í upphafi grein fyrir þeirri þró
un, sem orðið hefur í íslenzkum
Fundurinn hófst kl. 20.30 í
kvöld, og var Guðmundur H.
Garðarson, formaður VR, fund
arstjóri.
stjórnmálum, og íslenzku þjóð
félagi, á fimmtíu ára sögu nú
verandi flokkaskipunar, og taldi
að valdhafarnir hefðu vanrækt
að laga sig að breyttum aðstæð
um og leggja þær meginstoðir
undir efnahagslíf, atvinnuvegi
og þjóðfélagið í heild, sem það
gæti staðið á um alla framtíð.
Deildi hann á þá kynslóð og
þá valdamenn, sem tóku við af
aldamótakynslóðinni, og sem
í róti og peningaflóði töpuðu
áttunum. Ilafi valdhafarnir ver
ið stöðugt að glíma við sömu
erfiðleikana, verðbólgu og dýr-
tíð, en hafi skort heildar-stefnu.
Skýrði hann nokkuð ástandið í
þjóðfélaginu í dag, stjórnarað
ferðir valdhafanna, sem grund
Framihald á bls. 10.
UM Þ0KIN
OÓ-Rcykjavik, fimmtudag.
Þeir eru ekki lofUiræddir mnbrotsþjófarnir sem nótfct eftrr
nótt brjótast inn í byggingar í Reykjavik og nota ávallt sömu
aðferðina til að komast inn. Þeir klifra upp eftir bygging-
unum að utanverðu og komast inn um glugga eða önnur
op á þaki eða efstu hæðum húsanna.
Ran nsóknarlögreglan veit ekki
hvort hér er ávallt um sömu menn
ina að ræða eða ekki. Hitt er vist
að fleiri eu einn þjófur er yfir-
leitt á ferðinni. Bn fengur þess-
ara innbrotsiþjóifa hefur til þessa
ekki verið í réttu hlutfalli við á-
ræði þeirra. Um síðustu helgi var
klifrað upp eftir vinnupöllum bygg
ingarinnar að Ármúla 11 og farið
inn um bráðbirgðadyr á efstu hæð
hússins. Þarna stálu þjófarnir
peningaskáp, eimts og kunnugt er
af fréttum og voru í honum verð-
bréf og víxlar að verðmæti fjórar
til fimm milljónir króna. Peninga
skápurinn fannst nökkru síðar ó-
opnaður og er ekki hægt að sjá
að tilraun hafi verið gerð til að
opna hann.
Tveim sólarhringum síðar var
brotizt inn í húsið nr. If78 ivið
Laugaveg og var enn klifrað upp
á efstu hæð og komizt þar inn um
glugga. f byggingunni var síðan
brotizt inn hjá fimm fyrirtækjum
sem þar eru til húsa, en hvergi
lágu peningar eða verðmæti á
lausu og var litlu sem engu stolið
í nótt var brotizt inn í timibur-
verzlun Árna Jónssonar. Var kldfr
að upp á þak hússins og brotnar
þrjár rúður í þakgluiggum. Engu
var stolið.
f nótt var einnig brotizt inn í
skartgripaverzlun að Amtmanns-
stíg 2. Var brotin rúða í sýningar
glugga og lét þjófurinn greipar
sópa um þá gripi sem í gluggan
um voru. Verzlunin er í kjallara
Borgaríbúðirnar eru
skammt á veg komnar
AK-Rvík, fimmtudag. — Á fundi borgarstjórnar í gær svaraði borgarstjóri nokkrum spurn
ingum Einars Ágústssonar, borgarfulltrúa Framsóknarflokksins, um byggingu íbúða
þeirra, sem borgin er að byggja í Breiðholti í samvinnu við Framkvæmdanefnd bygg-
ingaáætlunar, og kom í ljós, að mikill seinagangur er á því að ljúka þessum íbúðum,
sem áttu upphaflega að vera tilbúnar á árinu 1967, og borgaríbúðirnar eru skemmra á
veg komnar en flestar aðrar íbúðir í fyrsta áfanga byggingaráætlunarinnar. Er þessi
dráttur mjög bagalegur, því að fullkomin þörf er fyrir þetta húsnæði.
hássins, og virðist vera vœnlegra
til fanga að brjótast inm á neðstu
hæðir en ofar. Hins vegar var
þjófurinn handtekhm af lögreglu
mön-num skömmu eftir að hann
hljóp á brott með þýfið. Komst
hann ekki lengra en upp í Ingólfs
stræti. Þar var hann handsamað-
ur og játaði að sjláifsögðu brot
sitt. enda tjáði efcki fyrir hann að
deila við löggæzlumen®. því að
Ihann var með guH og sálfurmun-
ina úr glugganum iinnan klæða.
Auðséð er að þjófarnir sem
brjótast inn á efstu hæðir húsa
eða inn um þakglugga eru full-
hraustir menn og að minnsita kosti
tveir saman, jafnvel fleki. Það
sýnir inmihnotið í Hallanmúla 11,
er níðþuogtir og tiltðhiiiega fyjjH?-
Eracmh ald á Bfe. ÍL
Fyrsta spurning Einars var um
það, hvað liði framkvœmdum við
fjölbýlishús borgarinnar í Breið-
holtshverfi, írabakka 2—16.
Borgarstjóri sagði, að búið væri
að steypa alla veggi, og fyrir lok
þessa mánaðar yrði lokið við loft
Einar Ágústsson sagði, að segja
mætti, að þetta hefði gengi'ð vel
síðustu vikur, því að ekki hefði
verið búið nema grunnur í júlí.
Hins vegar væri drátturinn orðinn
alknikill. Þetta eru 52 fbúðir, sem
borgin byggir í samvinnu við
Framkvæmdanefnd byggingaáætl-
uíiar, og eiga þessar Lbúðabygg-
ingar að koma í stað þeirra íbúða,
sem borgin hefur áður byggt að
eigin frumkvæði. Nú hefur borg-
in ekki byggt neinar íbúðir síðan
fbúðunum í Kleppsholti var lok-
ið fyrir tveimur árum, en. ráð
hafði verið fyrir gert, að Breið
holtsíbúðirnar kæmu i gagnið fyr-
ir árslok 1567.
Önnur spurningin var um það,
hvenær ráðgert væri núna, að
þessar íbúðir verði tilbúnar. Borg
arstjóri kvað áætlunina núna vera
31. jan. til 21. febr. 1969.
Einar Ágústsson sagði, ‘að þetta
mætti kalla • raunhæfa áætlun.
: Fyrst var gert ráð fyrir að þær
| yrðu tilbúnar fyrir árslok 1967.
! Næsta tímaákvörðun hefði verið
[ des. 1968, tn nu væri talað um
febrúar 1989. Óeðlilegur dráttur
væri orðinn á framkvæmdinni og
samkvæmt fréttatilkynningu Fram
kvæmdanefndar væru allar aðrar
(búðir í fyrsta áfanga áætlunar-
innar komnar lengra. Mikil þörf
væri fyrir þessar íbúðir, sem
borgin væri þarna að láta reisa
sem aðili ?.ð einum fimmta hluta
á móti ríkinu. Væri vonandi, að
framkvæmdunum yrði nú hraðað
svo sem kostur er.
Þriðja spurningin var um það,
hvort borgin ætlaði að selja fólki
eða leigja þessar íbúðir. Borgar-
stjóri svaraði því til, að ákvörð-
un um það hefði ekki verið tekin
enn, en líklegra væri að þær yrðu
leigðar efnalitlum fjölskyldum.
Einar Ágústsson þakkaði svörin
og rifjaði upp, að samkvæmt fjár-
hagsááetlun byggingasjóðs borgar
innar væru ráðstöfunartekjur
hans 54,3 millj. kr. og skyldi var-
ið sem hér segir: Afborganir 800
þús. kn., háhýsi við Austurbrún
2,5 millj. kr., en það er loka-
greiðsla og lóðalögun. 3 millj. kr.
skyldi fara til sömu þarfa við
fjölbýlishús við Kleppsveg. Til
lána handa húsbyggjendum skv.
ákvörðun borgarráðs skyldu fara
10 millj og í nýjar byggingafram
kvæmdir 38 millj. kr. I-Iefði því
fjiárskortur ekki átt að tefja 'oygg
ingu íbúðanna í Breiðholti.
kýs atvinm-
málanefnd
AK-Rvík, fimmtudag. — Á fundí
borgai’stjórnar í dag var samþykkt
samhljóða tillaga borgarfulltrúa
Alþýðubandalagsins um að kjósa
7 manna atvinnumálanefnd er
fylgjast skal með atvinnumálum
og gera tillögur um ráðstafanir til
þess að tryggja fulla' atvinnu
borgarbúa. f sambandi við þessa
tillögu urðu nokkrar umræður um
atvinnuhorfur á komandi vetri.
Kristján Benediktsson, borgar-
fulltr. Framsóknarflokksins benti
á, að ailar athuganir bentu nú
til þess, að verri horfur væru nú
um atvinnuástandið en lengi áð-
ur, og væri það raunar ekki að
furða, þegar saman færi minnk-
Framhala á bls. 11.
BANASLYS
ÁM!
SJ-Reykjavik, fimmtudag.
Snemma í morgun varð sá
sorgiegi atburður út af Aust-
fijiörðum, að Víðir Sveinsson,
skipstjóri á síldarskipinu Jóni
Garðari, lézt um borð í skipi
sínu. Fréttir um þennan at-
burð bárust útgerð skipsins í
skeyti frá skipherranum á varð
skipinu Óðni, en læknir síld-
veiðiflotans, sem dvelur um
borð í Óðni, mun hafa verið
kvaddur á vettvang. Bendir
allt til þess að Víðir Sveins-
son hafi látizt af slysförum, en
Pramhalo a bls 11.