Tíminn - 19.10.1968, Blaðsíða 4
£etií HiÍ AjéhCarp
mmaamammmmamamaaamaaaam^^mamamamammaaamaimmaammmamammammm
S. 1. laugardagsk'völd var ágæt
daigsikrá í sjónvarpinu. Það kvöld
vaa- annar þátturinn „Á haust-
kivöldi“, og var Jón Múli Árnason
kynnir eins og í fyrri þættinum,
en svo virðist, sem það sé eins
konar trygging þess, að um góðan
Iþátt sé að ræða.
Mairgir skemmtikraftar komu
þarna fram. Sérstaka athygli vakti
Sigurður Rúnar Jónsson, Sigurðs-
sonar hljómsveitarstjóra, sem einn-
ig kom fram í þættinum ásamt
hljómsveit sinni. Þótt Sigurður sé
aðeins 18 ára að aldri, er hann
fjölihæfur } jjómlistarmaður og
sýndi það vel í þættinum, ekki sízt
með fdðluleik sínum. Vafalaust
minnast margir þess, er Sigurður
söng aðalhlutverk í jólaóperunni
Amahl, og næturgestirnir eftir
Menotti, sem sýnd var í Tjarnar-
bæ fyrir nokkrum árum á vegum
IMusica Nova.
Ási í Bæ vair skemmtilegur á
sinn hátt og Ómar RagHársson
sömuleiðis, er hann gerði grín
áð varíhlutaþjónustu fyrir líkama
firamtíðarmannsins.
Helga Badhmann fór með kvæði
Kamibans, Vikivaka, á hrífandi hátt
og sýmir það, að upplestur kvæða á
irétt á sér í sjónvarpimu, ef vel er
farið með.
Eftir Iþáttinn „Á haustkvöldi“
ikom sérlega athyglisverð og lær-
dómsrík mynd um feimni barna
og þá staðreynd, áð það ræður
jniklu um framtíðariieill hvers ein
staklings, hvernig aðbúnað hann
fær á fyrstu æskuárum sínum.
Ættu kennarar sérstaklega að í-
huga það, er fram kom í myndinni,
því að áhrif kennara á hvert það
barn, er hamn fær í hendur, eru
mdkil, bæði til góðs og ills, eftir
því, hvernig á er haldið.
Ný þáttur, Grannarnir, hóf
göngu sína þetta sama kvöld.
Þáttur þessi er brezkur, og
verður væntanlega sýndur á hverj-
um laugardegi á næstunni.
Ekki er hægt að segja að fyrsti
þátturinn hafi gefið góð fyrirheit
um skemmtilegan þátt. Va-r þátt-
urinn ósköp lítilfjörlegur og lítt
skemmtilegur, þótt hægt væri að
hlæja að brösum nágrannanna ein-
staka sinnum. Annars er hugmynd
in um samkeppni nágranna frem-
ur útjöskuð núorðið.
Síðast á dagskránni á laugardag
inn var rússnesk kvikmynd, „Konan
með hundinn", en þessi mynd er
gerð eftir einni af sögum Ohekovs
í tilefní af 100 ára afmæli hans
árdð 1960. Var þessi mynd mjög
góð, eins og reyndar mátti búast
við. Mætti Sjónvarpið oftar sýna
rússneskar myndir af þessu tagi.
Ýmislegt hefur verið gott í dag-
skrá sjónvarpsins þessá vikuna, en
annað lélegt.
Stundin okkar á sunnudaginn
var fremur ednhæf, og vart verð-
ur skilið til hvers verið er að
sýna þar yfirþyrmandi leiðinleg-
ar og lélegar danskar teiknimynd-
ir. Skyldi maður ætla, að betri
teiknimynddr væru á mairkaffiin-
um.
Myndsjá er nú aðeins aðra hvora
wku i Sjórvarpinu Kom Ijóslega
fram í Myndsjá á sunnudaginn, að
með þessu fyrirkomulagi verður
þátturinn mun fjölbreyttari og
skemmtilegri.
Myndin um Michelangelo var
á dagskrá sunnudagsins, og olli
miklum vonbrigðum hvað texta,
gerð og flutning hans, snerti. Text
inn var allur sundurlaus og veitti
mun takmarkaðri upplýsingar en
efni stóðu til. Flutningur textans
var fyrir neðan allar hellur. Ætti
vissulega að vera óþarfi' að bjóða
sjónvarpsáhorfendum og —heyr-
endum upp á slík vinnubrögð.
Nýr þáttur, einkum fyrir ungl-
inga, hóf göngu sína á mánudag-
inn, og mun ætlunin að hafa fleiri
slíka. Nefndist þátturinn „Opið
hús“ og var um margt ágætur.
Þarna kom fram ágæt unglinga-
hljómsveit, Faxar, og ísfirzk
stúlka, Sigríður Anna Gunnars-
dóttir, sýndi góða leikni sína í
akróbatík. Kynnir þáttarins á aft-
ur á móti mikið ólært, honum
tókst ekki einu sinni að halda
hljóðnemanum það nálægt pví
fólki, sem hann rabbaði við, að
í því heyrðist.
Annar þátllur „Sögu Forsyter
ættarinnar" var þetta sama kvöld,
og ber ekki á öðru en þarna sé
ágætt skemmtiefni að ræða.
Ingólfur Jónsson, landbúnaðar-
málaráðherra, deildi við tvo blaða-
menn, Kristján Bersa Ólafsson,
ritstjóra Alþýðublaðsins, og Svav-
ar Gestsson, blaðamann við Þjóð-
viljann, uim_ landbúnaðarmál í
þættinum „Á öndverðum meiði“
á þriðjudagskvöldið. Var sú um-
ræða til lítils fróðleiks, Ingólfur
taldi núverandi landbúnaðarstefnu
rétta; andmælendur hans töldu
hana ranga, og þar við sat.
Sama kvöldið var fimmti þátt-
urinn í þýzka myndaflokknum um
Suður-Ameríkuríki. Fjallaði hánn
um Venezuela og var mjög fróð-
legur og skemmtilegur, eins og
þessi myndaflokkur í heild, en
síðasti þátturinn verður sýndur í
næstu viku, Fjallar hann um Bras-
ilíu, stærsta ríki Suður-Ameríku.
Fyrsta dagskrá Sjónvarpsins hér
um Ólympíuleikánna í Mexikó var
á miðvikudagskvöldið, og var þá
sýnd setningaraifchöfnin. Var gam-
an að fylgjast með þeirri athöfn,
Þáttur um Færeyjar verður á mánudagskvöld.