Tíminn - 27.10.1968, Qupperneq 1
UERK
RÐ
UIHRH
Byggjum
geðdeildir.
Menntum
starfsfólk.
STEFNUMÚT í GEIMNUM?
NTB-Moskvu, laugardag.
Sovézkir geimvísindamenn
skutu í morgun kl. 8,34 að ísl.
tíma mönnuðu geimfari á braut
umhverfis jörðu. Geimfarinu —
Sojus 3. — stjórnar Georgij
Beregovi, ofursti gamalreynd
ur reynsluflugmaður, og ber
heiðurstitilinn Hetja Sovétrikj
anna.
Þetta er fyrsta mannaða
geimför Sovétmanna síðan 23.
apríl 1967, þegar Vladimir
Komarov var skotið upp í
Sojus 2. í lok hinnar 25 tíma
Framhald á bls. 14
!'XW}R{WSW.S,S5í
: • ..
.•:• •: :'•:•:•:•.•
KJ-Reykjavík, laugardag
Fyrir nokkru síðan hófu ís-
lenzkir aðalverktakar, fram-
kvæmdir við fyrstahluta hins
fyrirhugaða Vesturlandsveg-
ar. Er hér um að ræða 900
metra spotta, frá vegamótum
Rofabæjar og Vesturlandsveg
ar, að Höfðabakka.
Vegurinn verður fj’órar akrein-
ar, alls fjórtán metra breiður,
og er áætlað að malbika þennan
spotta i byrjun næsta sumars.
Þangað til verða vegfarendur lík-
lega að fara bráðabirgðaveg, sem
gerður hefur verið norðan við
yegarstæði nýja vegarins. Nýi
vegurinn liggur í beina stefnu, og
verður sprengdur niður allt að
þrjá metra í hæðardragið, sem
þarna er.
Þessi vegarspotti hefur oft ver-
ið mjög slæmur yfirferðar og
erfitt að halda honum við, og
núna eítir að umferð jókst þarna
mikið með tilkomu Árbæjarhverf-
isins, hefur vegagerðin orðið enn
brýnni.
Enn versnar „flöskuhálsinn“
Þetta er, eins og áður er sagt,
byrjunin á nýja Vesturlandsveg-
inum, en lega han,s upp að Korpu
hefur verið ákveðin. Fer nýi veg-
urinn ekki minna en níu sinnum
yfir þann gamla á þeim stutta
kafla, og verður því að sjálfsögðu
bæði beinn og breiður. Með til-
komu þessa nýja vegar, má búast
við að Elliðaárbrýrnar verði enn
meiri ..flöskuháls", en þær eru
núna. en engar loka ákvarðanir
munu enn hafa verið teknar um
byggingu nýrrar brúar.
Myndin var tekin á dögunum af framkvæmdum við 900 metra vegarspott-ann á milli Rofabæjar og Höfðabakka. Myndin er tekin efst í Ártúns-
brekkunni og er bráðabirgðavegurinn til vinstri, en til Hægri sézt hvar verið e að gafa veginn niður í hæðardraglð. (Ljósmynd—GE)
Brunar verða stærri og
tíðari með hverju árinu
FB-Reykjavík, laugardag
Tryggingafélögin hafa nú mikl-
ar áhyggjur af hinum tíðu brun-
um, sem orðið hafa að undanförnu
en segja má ,að síðustu vikurnar
hafi borizt fréttir af bruna á
hverjum degi.Áliyggjurnar eru
sízt minni, þar sem oft kcmur í
ljós, að brunarnir stafa af trassa-
skap og vanrækslu. Einn trygg-
ingamaðurinn sagði í viðtali við
blaðið: — Þrátt fyrir gott slökkvi-
HEIMSSYNINGIN I JAPAN 1970 Birt hafa verið úrslit samkeppni um frágnng á hinni
someiginlegu sýningu Norðurlandanna á heimssýningunni í Japan 1970. Fyrir valinu urðu Jesper Tögern,
arkitekt, Danmörku og fylgir hér mynd af lausn hans.
lið virðast brunar verða stærri og
stærri, eftir því sem árin líða, og
gleypa meira upp af iðgjaldatekj-
um tryggingafélaganna, sem fást
við þessar tryggingar.
Ásgeir Ólafsson hjó Brunabóta-
félaginu sagði okkur, að mikið af
hiinum tíðu brunum undanfarið
hefðu lent á félagi hans. Hann
sagðist ekki hafa endanlegar tölur
um brunatjón á árinu, en þó væri
vitað nú þegar, að brunnið hefur
fyrir 22 til 23 milljónir króna.
Þetta er 2—3 milljónum meira
en allt árið í fyrra, en þá eru u-nd
anskildir brunar í Reykjavík, en
þeir gerðu 20 milljónir í viðbót.
Er þar aðallega um að ræða
Borgarskálabrunann og Iðnaðar-
bankabrunann, sem félagið var
með í endurtryggingu. Þessir tveir
bruuar á síðasta ári, au-k brunans
í Aðalstræti 9, voru mestu brun-
ar síðustu árin, og því er þetta ár
cbentugt til samanburðar.
Þá sagði Ásgeir: — Við, sem er-
um í tryggingum, höfum áhyggjur
af því, hvað brunar eru tíðir, og
ekki sízt af því að við vitum, að
l>etta er mikið fyrir trassaskap og
vanrækslu, svo maður nefni nú
ekki hitt. sem er fyrir beinar or-
sakir manna. Tryggingarfélögin
öll hafa áhuga á að skerpa eftirlit
með ýmsum þessum hlutum, sem
þau telja aðal orsökina t. d. rnf-
Framhald á bls i4.
Ingstad
og fleiri
hingað
OO-Reykjavík, laugardag.
Helge Ingstad og eiginkona
hans Anne Stine koma til Is-
lands í byrjun næsta mánaðar
og heldur Helge Ingstad tvo
fyrirlestra í Norræna húsinu um
búsetu norrænna manna í Am-
eríku á fyrri öldum. Um miðj
an næsta mánuð verður opnuð
í Norræna húsinu sýning á bók
um sem gefnar hafa verið út
á Norðurlöndum á þessu ári. í
sambandi við sýninguna munu
þekktir norrænir höfundar
halda fyrirlestra.
Helge Ingstad og frú eru ný
komin frá Nýfundalandi, en
þar unnu þau að uppgreftri
húsa við L'Anse Aux Meadows
en það er kunnara en frá þurfi
að segja að hjónin hafa mörg
undanfarin ár unnið að forn-
Framhald á bls. 14.