Tíminn - 27.10.1968, Page 2

Tíminn - 27.10.1968, Page 2
2 TIMiNN SUNNUDAGUR 27. október 1968. SKAGFIRÐINGAR SAUÐÁRKRÓKSBÚAR FYRIRLIGGJANDI: BLAUPUNKT OG PHILIPS SJÓNVARPSTÆKI MARGAR GERÐIR BLAUPUNKT PHILIPS Veitum staðgreiðsluafslátt Einnig góða afborgunarskilmála KAUPFÉLAG SKAGFIRÐINGA Byggingavörudeild — Sauðárkróki Hagstæðustu verð. Greiðsluskilmálar. Verndið verkefni íslenzkra handa. FJÖLIÐJAN HF. Sími 21195 21915 Ægisgötu 7 Rvk. Erlingur Bertelsson héraSsdómslögmaður. Kirkjutorgi 6, sími 1-55-45. TRÚLOFUNARHRINGAR Fljót afgreiðsla Sendum gegn póstkröfu. GUÐM. ÞORSTEINSSON gullsmiður Bankastræti 12. Hemlaviðgerðir Rennum bremsuskálar. — slipum bremsudælur. Mrrmm á bremsubnrða og aðrar almennar viðeerðÍT HEMLASTILLING H.F. Súðarvogi 14 Sími 30135 HARÐVIÐAR ÚTIHURÐIR TRÉSMIÐJA Þ. SKÚLASONAR Nýbýlavegi 6 Kópavogi sími 4 01 75 ÞÁTTUR klRKJUNNAR ■í. f MYNDIN Stundum predikar þögnin betur en presturinn í kirkj- unni. Það eru stundum myndir og búnaður helgidómsins, sem grípa hug og hjarta sterkari tökum en orð. Einkum eru það altaristöfl- ur hinna fornu kirkna, sem gagntaka hugann. Þar eru dæmisögur Krists og frásagnir guðspjallanna sagðar á máli listamannsins, svo að þær verða næstum þættir úr lífi dagsins í dag, verða algildar lífsmyndir kynslóð fram af kynslóð. Þanmig er t.d. sagan um „glataða soninn.“ Hún er al- geng í svo mörgum framsetn- ingum, þar sem hver listamað- ur leggur megináherzlu á það, sem honum verður hjarta næst. Ferðalangur, sem víða hafði komið segir frá því, að í lít- illi kirkju á vesturströnd Sví- þjóðar hafi hann séð eina slíka mynd, sem orðið hafi dýrmæt- asta minning sumarsins. Hann var þar við guðsþjón- ustu í sumarleyfi sínu á fögr- um sunnudagsmorgni. Myndin sem varð svona. minnistæð gat heitið: „Týndi sonurinn kemur heim.“ Hann er aumlegur útlits þessi ungi maður eftir langa og erfiða ferð. Klæðnaður hans tötrar ‘Y,mum bakfoka hefur haan v.<'rað frá se. Hjá hon- um liggur gönga-.tafurinn, sem hann hafði stuðzt við á langri göngu. Og á stafinn var skorið eitt orð: Pabbi. Á listilegan hátt hafði mál- aranum tekizt að gera mynd föðurins sem föður og frels- ara í senn. Þessi vera beygir sig yfir soninn og tekur hann í faðm sér. En það, sem hreif ferða- manninn mest var sá þáttur myndarinnar, sem mótaður var í miðdepil hennar. En þar var stigi frá himni til jarðar, Jak obsstiginn frægi úr draumi út lagans. Það mátti hugsa sér, að sjálfur Guð hefði gengið niður þennan stiga til að taka á móti unga manninum. Messan sjálf var mjög falleg en myndin varð samt mesta predikunin á sinn sérstæða hátt. Þessi stigi flutti þann boð skap, að enginn hefur sokkið svo djúpt eða villzt svo langt, að Guð geti ekki fundið hann. Frá himni sínum stígur hann táknlega talað, niður öll þrep- in og bíður síns barns, ef það snýr við heim. Einu sinni bjó þessi sonur, sem barn við föðurkné, með bróður sínum heima. En hann þoldi ekki eftirlætið. Hann óx að hroka og sjálfsbirgingsskap. Gerði sífellt meiri og meiri kröfur til allra nema sjálfs sín, og þó heimtaði hann mest af foreldrum sínum. Og að síð- ustu fannst honum svo leiðin- legt heima. Hann vildi burt — burt til brosandi óskalanda, þar sem hægt var að lifa í öllum vellystingum og prakt heimslífsins, öllu því sem auð- ur og æska geta veitt „Maður verður svo sannarlega ekki alltaf einhver pabbadreng ur og mömmubarn," hugsaði hann. „Maður verður að sjá sig um í veröldinni. komast burt af heimahaug." Kannski hefur barnatrúin sína þýðingu, í hana getur full orðinn maður með viðhorf heimsmannsins ekki alltaf haldið. Lífið gerir sínar kröf- ur. Ekki g etur maður alltaf verið barn og gert eins og heimskir foreldrar ætlast til. Bezt að vera sjálfstæður mað- ur, án þess að pabbi og mamma séu að skipta sér af öllu.“ Þannig hugsaði hann oft og talaði, meðan hann var heima og fyrst eftir að hann fór. — En nú stendur hann þarna aumur og niðurlútur, allslaus og titrandi í tuskunum sínum og biður fyrirgefningar á allri frekjunni og ásökunum þeim sem hann hafði látið yfir foreldrana dynja. Og sannarlega getur faðir- inn gleymt því öllu í gleðinni yfir drengnum, sem hann hef- ur úr helju heimt.----- Þessi mynd þarpa í litlu kirkjunni varð þannig dýrmæt asta minning frá liðnu sumri. Kannske átti hún eitthvert sér stakt bergmál í hjarta hans og hug, einhverja snertingu við hans eigin örlög og lífsreynslu. Hver er sá, sem ekki þekk- ir eitthvað til sögu týnda son- arins af eigin raun? Og er ekki öll hin ráðvillta, uppreisnargjarna æska heims- ins í dag einhvep hluti af mynd hans, þar sem þráin eft ir Guði, þráin eftir fegri og fullkomnari veröld kemur fram í öskrum og hópgöngum óttaslegins æskulýðs, sem á hrylling atóms- og vetnis- sprengna yfir höfði sér, af því að Guð gleymdist á hrokaöfr mannsins til að ná óræðum öflum í hendur óvita. Hálfmeðvituð skelfing tryll- ir æskuna til átaka, sem verða lítt til gagns og lítið annað en fálm drukknandi og hjálp- arvana vesalinga, sem hafa farið í hafið af brotnum far- kosti prjáls og nautna. Og æskunnar eina von er hinn frelsandi máttur kærleik ans, sterkari öllum atómöflum. sá kraftur. sem táknaður er á myndunum af föðurnum góða, sem sagt var um: „Sá leitar til þín, sem finnur og týnir engri sál.“ „Enginn kraftur er kærleik- anum æðri“. Það er í raun- iani kjarni kristinnar trúar. Allt annað eru misjafnlega fal legar umbúðir. Á þennan mik- ilsverða sannleika getur hin hljóða predikan altaristöflunn ar í litlu kirkjunni minnt. En hún ætti líka að minna foreldra nútímans á að gefa framtíðinni fegri og friðvæn- legri heim þar sem kynþátta- misrétti og kúgun væri úr sög- unni og feðurnir ættu hinu frelsandi mátt góðleikans til að veita sonum og dætrum ör- yggi og frið án innibyrgðs ótta við helsprengjur haturs og hefnda. Gefa æskunni heim bræðra- lags og frelsis, þar sem Guð mætti sem góður faðir stíga niður af .himni sínum í draum sýn unga fólksins og ganga um í kvöldbænum eins og hann gerði í skáldlegri sýn hins fyrsta manns, sem orti um hann óð sinn, barnslegt og eilíft ljóð sígildrar sköpun- arsögu hins góða föður. Árelíus Nielsson. i

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.