Tíminn - 27.10.1968, Page 5

Tíminn - 27.10.1968, Page 5
SUNNUDAGUR 27. október 1968. SAVANNA TRÍÓIÐ SLÆR ENN í GEGN Út er komin á vegum SG- hljómplatna L.P. plata með Savanna tríóinu, hér er um að ræða 12 lög, hljóðrituð í Ster- eo í London. Það er orðið alllangt siðan Savanna tríóið hætti að koma fram í sviðsljósið, en nafnið verður ávallt geymt í hugum ifólksiins, tengt góðum minn- ingum, enda er ferill þeirra einstaklega glæsilegur, þeir voru ávallt fulltrúar þess bezta, sem völ var á í íslenzku skemmtanalífi, hvort sem sviðs ljósið beindist að þeim hér heima eða erlendis. I Fyrstu tvær plöturnar, sem þeir sungu inn á, voru gefnar út af „íslenzkum tónum“ og fengu frábærar móttökur, enda þótti flutningur þeirra nýstár- legur og um þei'ð þjóðlegur. En nú gerðust þremenning- arnir stórtækir og sungu inn á sína fyrstu LP plötu, útgef- andinn var Svavar Gests, sem þá var nýbúinn að stofnsetja isína eigin ihljómplötuútgáfu, SG-hljómplötur. Áfram hélt samvinna þeirra Svavars og Savanna, og nú eru LP plöturnar orðnar fjórar og verða því miður ekki fleiri Á þrem fyrstu LP plötunum voru svo til eingöngu þjóðlög, en á þessari nýútkomnu plötu eru aðeins þrjú slík. Textarnir eru svo fnábær- lega vel gerðir, að þeir eru hafnir yfir alla gagnrýni, enda er hrein unun á að hlýða. Meðal höfundanna eru líka skáld, sem öll þjóðin þekkir, en þar á ég við Davíð Stef- ánsson, Stein Steinarr og Grím Thomsen. Þá er hlutur Sigurðar Þór- arinssonar og Jóns Arnar Mar- ; inóssonar með afbrigðum góð- ur, en þeir hafa ýmist frum- samið textana eða snúið þeim yfir á íslenzku. Textar Hin- riks Bjarnasonar eru efnismikl ir, vel oitir og á góðu máli. Ekki má gleyma gamanvísun- um tveim eftir Ingimund, þær eru að vísu komnar til ára sinna, en standa svo sannar- lega ennþá fyrir sínu. Flutningur Savanna tríósins á þessum tólf lögum er í einu orði sagt frábær. Þeir gæta. þess í hvívetna, að beita rödd- inni af innlifun í samræmi við innihald textans, hvort sem hann er dapurlegur eða fullur af kátínu. í heild einkennist túlkun þeirra af vandvirkni ogöryggi. í fimm iaganna syngur Þór- ir Baldursson einsöng, og ger- ir það með afbrigðum vel, og sem einstaklingur er hann auð heyrilega bezti söngmaðurinn af þeim þremenningunum, bezt tekst honum upp í lögunum „Gestur" og „Á dökkumiðum“, en þau eru reyndar bæði eftir hann. „Eitt sinn var ég ógiftur", nefnist upþhafslag plötunnar, það er leikandi létt, höfundur- inn er Þórir Baldursson, Sig- urður Þórarinsson samdi text- ann, sem er bráðsmellinn. Þar segir frá þvi, er piltur einn hleypir háskalega þunhklæddu fljóði inn til sín í versta kulda og hrið. Meyjarkroppurinn var kaldur, en ofnin sagði stopp, afleiðingin var hjónaband og organdi tvíburar. „Barn“, þetta undurfallega lag er eftir Ragnar Bjarnason, ljóðið eir eftir Stein Steinarr, og_ fellur einkar vel við lagið. í fyrsta laginu skipti tríóið söngnum á milli sín, en hér er Þórir Baldursson í eldlín- unni. „Eirfkur formaður" er hress andi lag í þjóðlagastil eftir Þóri, og aftur hvílir söngurinn mest á honum. Þetta kvæði TÍMÍNN Grims Thomsen fjallar um gamlan sjóara, sem er orðinn grettinn og gnár af ylgdu sjáv- arróti. „Suliram" er virkilega fal- legt lag frá Indónesíu. Troels Bentsen syngur, fyrst á frum- málinu, síðan kemur ísl. þýð- ing Jóns Arnar Marinóssonar, og loks er endað á frummál- inu, vögguljóðinu er lokið og barnið vonandi sofnað. „Gestur“, hér syngur Þórir einsöng, en auðvitað aðstoða hinir tveir hann eins og í öll- um öðrum einsöngslögum Þór- is, lagið er hans smíði og er einkar fallegt. Lagið hefur hann samið við ljóð eftir Davíð Stefánsson og fjallar um brostnar vonir og horfna æsku drauma. „Sumir eru friðlausir fæddir og flýja sín óskalönd“. Næst hlýðum við á bráðfjör- ugt, írskt þjóðlag, hér skiptast þeir á að flytja smellinn texta Jóns Arnar Marinóssonar. „Teitur tinari" kom á bæinn og við „ketil Kötu í koti gerði sitt á hvað“, en þegar til kom, varð lítið úr viðgerðinni á katl inum, og hann lak sem fyrr, er Teitur hélt af stað seint og síðar meir, en þar með er ekki sagt, að hann hafi verið að- gerðai-laus. „Ein ég fer um auða slóð“ er erlent, lítið lag, textinn er eftir Hinrik Bjarnason, og fjall ar um l£f flakkarans, sem spyr sjáflan sig: „Ég ráfa um, en hvert liggur leið“, Þórir syng- ur. Hinrik Bjarnason hefur einnig samið næsta texta, „Vindur blés“. Elskendur verða að skilja, því hann verð- ur að sækja fanga á fjarlæg mið. í þessu fallega lagi mæð- ir mest á Bimi Björnssyni. Næsti texti er heldur betur fjörugri, þar segir frá átján ára yngismær, er „Nikkólína“ heitir, hún kemur til borgar- innar ofan úr Mosfellssveit. Saklaus sveitarmær, sem aldrei fer seinna að sofa en níu og hálf. Brátt tóku biðlarnir áð streyma til hennar, og af ein- tómri góðmennsku fengu þeir allir koss og ósköp lítið meira, og brátt tók mærin að þykkna undir belti. Þetta er bráðfjör- ugt, erlent alþýðulag, og ekki er textinn síðri, en hann er eftir Ingimund. Savanna tríó- ið flytur þennan gamanbrag eins vel og á verður kosið. Á dökkumiðum er að finna fallegt lag, eftir Þóri Baldurs- son, sem hann syngur sjálfur. Á dökkumiðum er áð inna í fyrstu ljóðabók Davíðs Stef- ánssonar, Svörtum fjöðrum. Það fjallar um fiskimann, sem alltaf kemur heim með full- fermi, hvernig sem viðrar, „Dimmt er á dökkumiðum, djúpur og úfinn sær“. „Yfir græði og grundu“ er einkar fallegt, franskt þjóðlag, textann gerði Sigurður Þórar- insson, en hann fjallar um ör- vinglan ástarsorgarinnar. „Bílavísur" er kveðjulag Sav anna tríósins á þessari plötu, á sínum tíma -var þetta lag landsfrægt í flutningi Bjarna Björnssonar, svo og „Nikkó- lína“. Lag og texti gneistar af kátínu og fjöri, hér er um er- lent alþýðulag, en Kristján Linnet orti braginn undir höf- undarnafninu „Ingimundur“. Vigga stelst í ökuferð með kær ástanum, en gamla múitter „gengur" þau uppi, og það fer ónotahrollur um skötuhjúin. f þessum tveim síðustu lögum er ekki um neinn sólósöng að ræða. f Bilavísunum fær hver sitt hlutverk, og piltarnir kunna svo sannarlega að bregða á leik. Plötuumslagið er frumlegt og um leið litríkt og skemmti- legt. Eins og komið hefur fram, voru lögin hljóðrituð í Stereo í London. Allar útsetn- ingar annaðist Þórir Baldurs- son, þær eru ekki miklar í vöfum, en vel unnar. Benedikt Viggósson. III IIÍI 1« iiÉS ÍÉÍÍÍiÍÍ ÍÍIÍll fSÍSiíiíSiií . VU*ME* iillliil IÍÍ|i: ' m&m ULLARVERKSMIÐJAN GEFJUN I

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.