Tíminn - 27.10.1968, Page 7
StJNNWDAGUR 27. október 1968.
7
TÍMINN
Fram til orrustu á frummál-
inu POPIOLY.
I
Leikstjóri: Andrej Wajda
Handrit: Aleksander Scibor-
Rylski byggð á sögu eftir
Stefan Zeromski.
Kvikmyndari: Jerzy Lipman,
tónlist: Andrej Markowski
Pólsk frá 1964.
Sýningarstaður: Hátskólabíó,
íslenkur texti.
Árið 1794 gerði Thaddeus
Kosciosko herdhöfðingi mis-
heppnaða uppreisn eftir aðra
skiptingu Póllands 1783, sem
þá var skipt milli Rússa og
Prússa. Hann fór seinna til
Ameríku og barðist þar í frcl.s-
Isstríði Bajidarí'k.janna. 1795
var Póllandi skipt á ný í þriðja
skiptið, og nú milli Rússa,
Prússa og Asuturríkismanna og
landið þurrkað gersamlega út
af landabréfinu.
Þetta mikla söguljóð Wadja
fjallar um árin eftir þetta og
skýrir hvers vegna pólskir föð-
urlandsvinir trúðu orðum
Napóleons um frjálsræði Pól-
landi til handa.
Fram til orrustu segir frá
tveimur vinum Rafal (Daniel
Olbryehski) og Christopher
(Boguslaw Kierc) þeir eru
skólabræður og mjög ólíkir að
upplagi. Rafal er ofurhugi, hug-
rafckur og karimannlegur,
stekkur á hest af jafnsléttu,
ást hans er heit og blind.
Christopher er fágáðri maður
og berst jafnan með ugg í
brjósti.
Kvikmyndin byrjar að rekja
sögu Rafals en hann fer til
Warsjár með Gintult prinsi
(Piotr Wysicki). En eftir pró-
gramminu að dæma er klippt
úr stór hluti myndarinnar sem
segir frá atburðum sem gerast
eftir að Rafal berst við úlfana
og þangað til hann reynir að
stela kossi frá Elísabetu syst-
ur Gintults (Beata Tyskiew-r
ic). En þar kemur tæringar-
veikur bróðir Rafals við sögu
og skýrt frá af hverju Gintult
tekur Rafal að sér. Vonandi fá
'kvikmyndahúsgestir Sikýringu
á því hvers vegna myndin er
sýnd hérna svo stórlega skert.
•
Stíll Wadja er mjög persónu
legur, hann er sterkur í mynd-
byggingu og miskunnarlaus og
þó ljóðrænn á stundum. Hon-
um er mjög lagið að gera á-
hrifamikil atriði, sem ekki
gleymast, þrjú eru í þessari
mynd. Fyrsta: þegar Prússarn
ir misþyrma bóndanum og
leiða hann burt í fjötrum, þá
kemur Rafal þeysandi og stenzt
Daniel Olbrychski í hlutverki Rafals Olbrvchskis í Podioly stór-
fenglegri kvikmynd cftir Wadja, sem af óskiljanlegum ástæðum
er sýnd klippt hér.
ekki þögult ásökunar augnaráð
betlarans en æpir „ég gat ekk-
ert gert.“ í kofa ferjumanns-
ins verður konunni skyndilega
Ijóst hvers vegna þessir fínu
herrar bera í hana gull, það
atriði er frábæriega vel unnið.
Á Spáni situr bóndinn þögull
og maular eitraða hafrana en
gætir þess að barnið borði þá
ckki.
„Stríðið gefur , hetjunum
tækifæri til að myrða og
nauðga," segir Wyganowski
(Jan Nowicki) liðsforingi við
Ohristopher á Spáni þegar
hann hefur komit að því að
Korsíkumaðurinn er bara
einn harðstjórinn enn og hef-
ur svikið loforð sín við Pól-
verja sem börðust undir merkj
um hans.
Það eina sem skelfir her-
mennina er að sjá að vitfirr-
ingarnir eru ekki hræddir við
þá, en samlíking Wadja við
brjálæðinga sést þegar orrust-
an við Somosierra er sýnd,
riddarar flengríða í hóp öskr-
andi méð brugðna branda og
cira engu kviku.
Þegar fyrsta stórmynd Wad-
ja var sýnd 1954 „Kynslóð“
sem er fyrsta myndin í þrí-
leiknum Kynslóð—Jarðgöng—
Aska og demantar, sem allar
fjalla um seinni heimsstyrjöld-
ina, varð strax ljóst að hér var
kvikmyndahöfundur .sem
vænta má mikils af. Hann hef
ur ekki brugðizt því áliti enn,
túlkun hans á hetju og hinum
stórkostlega harmleik hennar
lætur honum vel, og hinn frá-
bæri Jerzy Lipman með kvik-
myndavélina á mikinn þátt i
frábærri gerð mynda hans.
Tónlist Markowski er sparlega
notuð og vel gerð, undir-
strikar enn yfirgnæfir ekki.
Atlas Film í Duisburg lánar
úr þær pólsku mypdir sem Há-
skólabíó hefur sýnt undanfar-
ið „Faraó“ eftir Jary Kawa-1
erowic og þessa, þýkur texti
er talaður inn á myndina og
skemmir upprunasvipinn á
herini. Samt megum við vera
þakklát fyrir að fá að sjá smá-
sýnishorn af hinni miklu kvik-
myndalist Pólverja sem borið
hefur hróður þeirra víða um
lönd, ef við fengjum að sjá
myndirnar óskertar.
P.L.
VIKING
SNJÓHJÓLBARÐARNIR
fást hjá okkur.
Allar stærðir með eða án
snjónagla.
Sendum um allt land
gegn póstkröfu.
Hjólbarðavinnustofan
opin alla daga kl. 7.30 tiJ
kl. 22.00.
Gúmmlvinnustofan h/f
Skipholti 35 — Sími 31055 — Reykjavík.
KEA KEA
AKUREYRI
SÆNGURVERAEFNI
damask, hvítt og mislitt
léreft, einlitt, rósótt
LAKAEFNI
hvítt og mislitt
120 — 140 — og 200 cm breitt
DRALON SÆNGUR
3 stærðir
DRALON KODDAR
3 stærðir
HANDKLÆÐI
DISKAÞURRKUDREGILL
Góðar vörur. Sanngjarnt verð
Sendum gegn póstkröfu.
Kaupfélag Eyfirðinga
Vefnaðarvörudeild, Akureyri
Sími: (96) 21400
CORONA
SKÓLARITVÉLIN,
sem endist ydur
tevílangt.
SKRIFSTOFUTÆKNI
Áruuíla 3, sími 38 900.
Sprautun - Lökkun
• Alsprautum og blettum allar gerðir af bflum.
• Sprautum einnig heimilistæki, ísskápa, þvotta-
vélar, frystikistur og fleira í hvaða lit sem er.
VÖNDUÐ OG ODÝR VINNA.
STIRNIR s.f. — Dugguvogi 11.
(Inngangur frá Kænuvogi). — Sími 33895.