Tíminn - 27.10.1968, Qupperneq 9

Tíminn - 27.10.1968, Qupperneq 9
ÍSUNNUDAGUR 27. október 1968. TÍMINN 9 Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN. Framkvæmdastjóri: Kristján Benediktsson. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (áb), Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og Indriði G. Þorsteinsson. Fulltrúi ritstjórnar: Tómas Karlsson. Auglýs- ingastjóri: Steingrímur Gíslason. Ritstjórnarskrifstofur 1 Eddu- húsinu, símar 18300—18305. Skrifstofur: Bankastrætl 7. Af- greiðslusimi: 12323. Auglýsingasími: 19523. Aðrar skrifstofur, simi 18300. Áskriftargjald kr. 130,00 á mán. innanlands. — f lausasölu kr. 8.00 eint. — Prentsmiðjan Edda h. f. Ríkisafmæli Tékka Á morgun 28. okt. á tékkneska þjóðin 50 ára ríkis- afmæli. Tékkar eiga litríkari sögu sjálfstæðisbaráttu en flestar aðrar Evrópuþjóðir, og þeir hafa reynt tímana tvenna. Sjálfstæðismeðvitund þjóðarinnar er mjög sterk og hefur þolað hverja raun. Hvað eftir annað hefur sjálfstæði hennar verið lagt undir hæl og á þessu afmæli er svo enn. Það er haldið í skugga erlends kúgunar- valds. Samt halda Tékkar nú frelsiskyndlinum hærra á loft en aðrir og hljóta virðingu og aðdáun frjálshuga manna. Fiskeldi Síðan tilraunastöð ríkisins í Kollafirði tók til starfa hefur áhuginn fyrir fiskeldi og fiskirækt vaxið stórlega hér á landi. Að vísu hefur laxeldi verið sinnt í lengri tíma, en þá starfsemi hafa annazt áhugasamir einstakl- ingar og félög fyrir eigin reikning. Tilraunastöðin 1 Kollafirði gegnir annars konar hlutverki. Starfsemin þar hlýtur öðrum þræði að leggja grundvöllinn að fiskeldi sem búgrein, og efla laxgengd í ám landsins með rækt- un og sölu á gönguseiðum. Mikið fé hefur farið til tilraunastöðvarinnar í Kolla- firði, og hefur eðlilega vaknað sú spurning, hvenær stöðin fari að skila arði, en um stöðina hlýtur að gilda hið sama og aðrar tilraunastöðvar, að þær eru fyrst og fremst settar á fót til að leggja undirstöður að ákveðinni atvinnugrein og finna betri og nýrri leiðir innan hennar. Tilraunastöðin í Kollafirði hefur fyrst og fremst þessu hlutverki að gegna, en er ekki framleiðslustf' og slátur- hús fyrir lax, sem gengur til stöðvarinnar á hverju ári. Tilraunir þær sem staðið hafa yfir í tilraunastöðinni, með ræktun vatnafisks eiga á sínum tíma að leiða í Ijós hvaða aðferðum er heppilegt að beita við slíka ræktun í sveitum landsins, þar sem aðstæður eru fyrir hendi. Yrði með því stofnað til nýrrar búgreinar. Hins vegar veltur á miklu að ekki sé lagt út í slíkar framkvæmdir fyrr en vitað er með vissu hvað ber að varast, og einnig fengin reynsla fyrir því hvað er hentugast fyrirkomu- lag, ódýrast og gefur mestan arð. Með tilkomu slíkrar búgreinar, sem vel hefur verið undirbúin í tilrauna- stöð eins og þeirri sem er í Kollafirði, yrði náð nýjum og góðum áfanga, sem seint yrði metinn til fjár. En einmitt þannig greiða tilraunastöðvar kostnað sinn. Tíminn birti nýlega frétt, þar sem skýrt var frá, að 203 laxar hefðu gengið í tilraunastöðina í ár. Er þetta töluvert minna en í fyrra. Vatn hefur löngum verið talið lítið og ónógt í Kollafirði til að taka við miklum laxa- göngum. Þó hefur það sýnt sig á undanförnum árum, að ekkert er því til fyrirstöðu að lax gangi þar upp. Það sem skiptir höfuðmáli varðandi laxgöngur í Kollafjörð er, að hverju sinni gangi þangað nægur lax til kreist- ingar, svo að tilraunastöðin verði ætíð sjálfri sér nóg um seiðaframleiðslu. Stöðin varð á fyrstu árum sínum að fá hrogn að láni. Hún varð að greiða þau lán með seiðum# og gerði það eðlilega nokkurt strik í reikninginn. Nú er þetta lánatímibil liðið. Tilraunastöðin í Kollafirði hefur miklu hlutverki að gegna í framtíðinni. Okkar bíður að stórauka laxagengd- ina í ánum og hefja stórfellda fiskirækt sem búgrein. Þá er landið auðugt af vötnum, þar sem silungur er að vísu fyrir hendi, en sú vitneskja sem fæst í tilrauna- stöðinni á eftir að auðvelda mjög alla aukningu fiski- sældar 1 þeim. ERLENT YFIRLIT Vaxandi óvissa um úrslit for- setakjörsins í Bandaríkjunum Enn bendir þó fleira til þess, að Nixon muni sigra. ÞÓTT skoðanakannanir gangi Nixon enn í vil, virðist gæta orðið talsverðrar óvissu í Bandaríkjunum um úrslit for- setakosninganna, sem fara fram annan þriðjudag. Það er staðreynd, sem allir viður- kenna, að Humphrey hefur heldur unnið á seinustu vik- urnar, og því er almennt spáð, að það muni haldast áfram. Spurningin er hins vegar, hvort það reynist nægilegt til að tryggja honum sigur. Enn virðast flestir telja líklegt, að | Nixon sigri, en fáir fullyrða það hins vegar eins ákveðið og gert var fyrir mánuði síðan. Þær ástæður, sem ýta undir óvissuna, eru m.a. þessar: Það er erfitt að átta sig á því, hvað mikið fylgi Wallace fær, og frá hvorum þeim Nixons eða Humphreys hann tekur meira. Sumir telja líklegt að Wallace tapi heldur fylgi, þegar kemur að kjördeginum, og sennilega verði það til hags fyrir Humphrey í norðurríkj- unum, en til hags fyrir Nixon í suðurríkjunum og miðríkjun um. Margir kjósendur eru áhuga litlir og geðjast ekki að neinu forsetaefnanna. Það er því búizt við heldur lítilli kosn- ingaþátttöku, en erfitt er að dæma um hvert forsetaefn- anna tapar mest á því. Kosningaúrslitin 1948, þeg- ar Truman vann andstætt úr- slitum allra skoðanakannanna, eru mönnum enn í fersku minni og þess vegna trúa menn þeim varlega. ÚRSLITUM helztu skoðana- kannana ber heldur ekki sam p an. Gallupstofnunin birti síð- ustu niðurstöður sínar á þriðju daginn var. Þær byggja á könnun, sem fór fram 3.—12. október. Samkvæmt þeim fékk Nixon 43%, Humphrey 31%, Wallace 20%, en 6% voru óá- kveðin. Harrisstofnunin birti skömmu áður niðurstöður, sem voru byggðar á könnun, sem fór fram 8.—10. október. Sam kvæmt þeim fékk Nixon 40%, Humphrey 35%, Wallace 18% og 7% voru óákveðin. Þótt þannig beri mikið á milli, var það þó sameiginleg niðurstaða hjá báðum, að Humphrey væri að vinna á. ÝMSAR ástæður valda því, að Humphrey hefur unnið á. Ein veigamesta ástæðan er sú, að Nixon hefur verið óhepp- inn með val á varaforseta sín- um. Agnew hefur talað af sér hvað eftir annað. Þetta hafa Demókratar notað sér óspart og lagt þá spurningu fyrir kjós endur, hvort þeir vilji eiga á hættu, að jafn óreyndur og þekkingarlítill maður og Agn- ew augljóslega er. verði vara- forseti Bandaríkjanua. Þeirri spurningu er erfitt að svara oema á eina leið. LÞá hefur það styrkt Hump- . .. - nHitiiwgm. mmmmmjmmmm í sjónvarpsauglýsingum varpa demókratar oft fram þeirri spurn- ingu, hvort kjósendur óski eftir Agnew sem varaforseta. hrey mikið, að verkalýðsfélög in hafa skipulagt sókn til stuðn ings honum. Meðal óbreyttra verkamanna, sem eru mest í nábýli við svertingja, hefur Wallace átt ótrúlega mikið fylgi. Verkalýðsfélögin reyna nú eftir megni að fá þá, sem hafa lýst stuðningi við Wall- ace, til þess að breyta þeirri ákvörðun og kjósa heldur Humphrey. Líklegt þykir, að þeim verði nokkuð ágengt í þeim efnum. Þá hefur það styrkt Hump- hrey, að flestir fyrri fylgis- menn Roberts Kennedys og Stevensons veita honum mjög ákveðið brautargengi. Hins veg ar er unga fólkið, sem fylkti sér um McCarthy tregt til að veita Humphrey stuðning. McCarthy hefur heldur ekki viljað gera það. Það gæti mun að Humphrey verulegu að fá stuðning McCarthys, en þann stuðning fær hann ekki, nema hann lýsi sig fylgjandi því, að hætt verði loftárásum á Norð- ur-Vietnam, og komið upp sam bræðslustjórn í Suður-Vietnam. MJÖG er rætt um, hvaða áhrif það geti haft á úrslitin, ef Johnson hættir við loftárás- irnar á Norður-Vietnam. Sum- ir telja, að það geti orðið nei- kvætt fyrir Humphrey, ef það verður gert skilmálalaust, því að menn líti á það sem kosn- ingabrellu. Hins vegar myndi það reynast ótvíræður stuðn ingur við Humphrey, ef Norð ur-Vietnam gerði eitthvað á móti. Nixon gerir sér þetta ijóst, og því hefur hann gefið til kynna, að hann geti vel fallizt á, að loftárásunum á Norður-Vietnam verði hætt, ef það skerði ekki öryggi ame ríska hersins í Suður-Vietnam. NIXON gerir sér það tví- mælalaust vel ljóst, að Hump- hrey er heldur að vinna á. Hann lætur þó ekki neitt beint á því bera, heldur þyk- ist jafn sigurviss og áður. Ég leik á píanó,, og því verður bráðlega aftur leikið á píanó í Hvíta húsinu eftir 20 ára hlé, sagði hann nýlega á kosn ingafundi, en hér átti hann við, að Truman var píanóleik- ari. En jafnframt því, sem hann þykist vera sigurviss, beinir hann skeytum að Hump- hrey í sívaxandi mæli. Eink- um gefur hann til kynna, að sigri Humphrey, muni fylga hækkun skatta og aukin af- skipti sambandsstjórnarinnar í Washington. Ég vil láta ykkur fá meiri peninga í vasann, en Humphrey verður með fingurn ar i vösum ykkar. Yfirleitt eru kosningafundir Nixons mun betur sóttir en fundir Humphreys. en hvergi gætir hins vegar svipaðrar hrifningar og þeir Eisenhower, Stevenson og John F. Kennedy mættu á sinni tíð. Þá verður og Nixon fyrir vaxandi mót- gangi, einkum af hendi ungs fólks. Honum er ekki ósjaldan mætt. með spjöldum, þar sem er á letrað: Fyrir átta árum var Nixon slæmur, en nú er hann bæði gamall og slæmur. Fyrir Humphrey er það verulegur styrkur, að fram- bjóðendur flokksins í þing- kosningunum hafa yfirleitt mun meiri byr en hann. Ekki er talið ólíklegt, að hann njóti góðs af þessu. Um Nixon gegn ir þetta öðru máli. Aðrir fram bjóðendur Republikana hafa yfirleitt minni byr en hann og eru honum þvi heldur til þyngsla. Sú óvissa, sem er að skapast um úrslit, virðast ætla að gera þau heldur meira spennandi en búizt var við, að þau myndu verða. Þ.Þ. J I

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.