Tíminn - 27.10.1968, Qupperneq 12
SUNNUDAGUR 27. október 1968.
Handknattleiksmaður ársins
verður einnig kjörinn.
Sú nýjung íþróttasíðu TÍM-
ANS að efna til kosningu um
knattspyrnumann ársins hefur
vakið verðskuldaða athygli.
Knattspyrnan er langvinsæl-
asta iþróttagreinin hér og því
ekki óeðlilegt, að slík kosning
fari fram. Að vísu efna Sam-
tök íþrótfefréttamanna til ár-
legrar kosningar um íþrótta-
mann ársins, en reynslan hef-
ur sýnt, að íþróttamenn í hóp-
íþróttum hafa ekki eins mikla
möguleika til að hljóta kosn-
ingu á þeim vettvangi, því að
auðveldara er að mæla afrek
í einstaklingsíþróttum, þar sem
sentimetrar og mínútur ráða.
Á hinn bóginn skal viður-
kennt, að það getur verið hæp-
ið að velja einn mann úr liði
og titla hann sem bezta knatt-
spyrnumanninn. Það eru jú
ellefu menn í liði, og án sam-
vinnu þeirra allra, næst ekki
árangur. En þó er það svo, að
í flestum tilfellum skara nokkr
ir einstaklingar fram úr, leik-
menn, sem veita liðum sínum
aukakraft, ef má orða það svo,
og eiga drýgsta þáttinn í vel-
gengni liðs síns. Það er ekki
síður ástæða til að verðlauna
slíka menn en þá, sem stökkva
hæst og lengst, eða hlaupa
hraðaist. Og þó að einn úr ell-
efu manna liði hljóti slíka við-
urkenningu, þá er það einnig
óbein viðurkenning fyrir allt
liðið.
Og nú hefur TIMINN ákveð-
ið að láta fara fram kosningu
um bezta handknattleiksmann
inn keppnistímabilið 1968—69.
Tilkynnti Kristján Benedikts-
son, framkvæmdastjóri TÍM-
ANS þetta, þegar Her-
manni Gunnarssyni, knatt-
spyrnumanni ársins 1968, var
veitt viðurkenning. Enn er
ekki ákveðið, hvort sami hátt-
ur verður hafður á um þessa
kosningu, en hún verður alla
vega með líku sniði.
Tekur Albert við foiuistunni?
Eftir mánuð verður ársþing
Knattspyrnusambamds íslands
haldið. Beðið er með nokkurri
eftirvæntingu eftir þessu þingi
Til hamingju! Kjartan L. Pálsson (KLP) óskar Hermanni Gunn-
arssyni til hamingju. Kjartan aðstoðaði okkur mikið við undir-
búning og framkvæmd kosningarinnar um knattspyrnumann
ársins. (Tímamynd—GE).
Þegar úrslitin í kosningunni um knattspyrnumann ársins voru kunngjörð, bauð TÍMINN nokkrum
forystumönnum knattspyrnunnar í hóf. Á myndinrii sjást, talið frá vinstri: Björgvin Schram, for-
maður KSÍ, Einar Björnsson, formaður KRR og Ægir Ferdinandsson, formaður Vals.
þar sem vitað er, að Björgvin
Sohram, formaður sambandsins
um mörg undanfarin ár, gefur
ekki kost á sér lengur. Það
verður því kosinn nýr formað-
ur. En hver verður kosinn?
Eins og málin standa,
er erfitt að spá um það. Síð-
ast, þegar vitað var, hafði
stjórn KSÍ ekki komið sér sam
an um mann, sem hún mun
benda á sem eftirmann Björg-
vins. Hvort það verður einhver
úr núverandi stjórn, skal látið
ósagt, en þó er það mjög senni
legt.
Hins vegar er vitað, að ýms-
ir áhrifamiklir aðilar fyrir ut-
an stjórnina hafa fundið for-
mannsefni. Er 'það Albert Guð-
mundsson, frægasti knatt-
spyrnukappi íslands, fyrr og
síðar. Þó að Albert sé umdeild-
ur maður, efast enginn um
hæfileika hans né dugnað. Það
er margt, sem mælir með þvi,
að hann taki við forustuhlut-
verkinu. Þó að stjórn Björg-
vins Schram hafi unnið gott
og merkilegt starf að mörgu
leyti, þá er ljóst, að endurnýj-
unar er þörf. Engum manni er
þetta ljósar en Björgvini
Schram, sem margsinnis hefur
lýst yfir, að þörf sé á að
skipta um menn í forustulið-
inu. En málin hafa atvikazt
þannig, að á hverju ársþingi
undanfarin ár, hafa menn skor-
að á Björgvin að halda áfram
eitt ár til viðbótar. En nú gef-
ur hann ekki kost á sér leng-
ur. Og þá vaknar eðlilega sú
spuming, hvort heppilegt sé
að velja einhvern innan nú-
verandi stjórnar í formanns-
stöðuna eða kjósa mann utan
hennar og veita með því nýju
blóði í starfsemina.
Ég, fyrir mitt leyti, myndi
velja síðari leiðina. Stöðnun
gerir meira en að halda okkur
kyrrum, hún færir okkur skref
aftur á bak. Það er þörf á end-
urnýjun, sífelldri hreyfingu á
hlutunum, og þess vegna væri
það fagnaðarefni, ef Albert
Guðmundsson gæfi kost á sér
til hins vandasama starfs sem
staða formanns KSÍ óneitan-
lega er.
—alf.
| hverfafundir
um
1 borgarmálefni
Geir Hallgrímsson borgarstjóri boðar til fundar um borgarmál með íbúum
Smáíbúða- Bústaða- Háteigs- og Fossvogshverfis í dag 27. okt. kl. 3 e.h., í
danssal Hermanns Ragnars í Miðbæ v/Háaleitisbraut.
Borgarstjóri flytur ræðu á fundinum um borgarmálefni almennt og um mál-
efni hverfisins og svarar munnlegum og skriflegum fyrirspurnum fundargesta.
Fundarstjóri verður Hilmar Guðlaugsson, múrari og fundarritari Arnfinnur
Jónsson, kennari. Fundarhverfið er öll byggð milli Kringlumýrarbrautar og
Elliðaár, sem takmarkast af Suðurlandsbraut í norður og bæjarmörkum Kópa-
vogs og Breiðholti í suður.
Reykvíkingar!
sækjum borgarmálafundina
MILLIVEGGJAPLÖTUR
RÖRSTEYPAN H*F
KÓPAVOGI • SÍMI 40930
n!
FRA B.S.A.B.
Fyrirhuguð eru eigendaskipti að 2ja herbergja
íbúð í fjölbýlishúsinu Fellsmúla 14 - 22.
Félagsmenn, sem vilja neyta forkaupsréttar síns,
hafi samband við skrifstofu félagsins að Fellsmúla
20, fyrir kl. 18, fimmtudaginn 7. nóvember n.k.
Stjórn
Byggingarsamvinnufélags atvinnubifreiðastjóra.
Frostklefahurðir
Kæliklefahurðir
— fyrirliggjandi —
Trésm. Þ. Skúlasonar
Nýbýlavegi 6 — Kópav.
sími 40175.
Modelskartgripur er gjöf sem ekki gleymist. —
- SIGMAR OG PÁLMI -
Hverfisgötu 16 a. Sími 2135S og Laugaveg 70. Sími 24910