Vísir - 29.07.1977, Síða 7
VISIR Föstudagur 29. júli 1977.
Hvítur: Domuls
Svartur: Shtayerman
Tékkóslóvakia 1972.
1. Rc6+! bxc6
2. Hbl + Ka7
3.DÍ2 + Katí
4. Da2+ Da3
5. Dxa3 mát.
Veikar tveggja opnanir eru
nokkuð oft misnotaðar, en stund-
um gefur það góða raun.
Hér er spil frá keppni háskóla i
Bandarikjunum fyrir stuttu.
Staðan var a-v á hættu og austur
gaf.
*
♦
*
* 9-7-3
V A-D-6-5
* A-G-3-2
* A-K
K-G-8-5-4
K-10-4
7-6
D-9-6
*-D
V G-9-8
♦ D-10-8-5
* G-5-4-3-2
A-10-6-2
V 7-3-2
♦ K-9-4
* 10-8-7
Sagnir gengu á þessa leið:
Austur Suður Vestur Norður
pass pass 2S! dobl
pass 2G pass 3G
pass pass pass
Opnun vesturs er ekki alveg
eftir bókinni en hann var með
taugasterkan makker og tók þvi
áhættuna, þótt staðan væri siður
en svo hagstæð.
Ef suður hefði sagt pass við
tveimur spöðum, væri vestur
sennilega ennþá að spila þá.
En eins og oft áður þá slapp hann
með skrekkinn og græddi meira
að segja á vitleysunni.
Vestur spilaði út tigulsjö, lágt
tian og kóngurinn. Otspilið sagði
meira en litið. Það þýddi að eitt-
hvað var athugavert við opnun-
ina, þvi með mannspilin sjöttu i
spaða, hefði vestur áreiðanlega
spilað þar út Spili suður hjarta
svinar drottningu og gefur siðan
hjartaslag, þá er spilið i höfn.
En sagnhafi spilaði strax tigul-
niu til baka, austur drap og spil-
aði spaðadrottningu. Sagnhafi
drap, spilaði meiri spaða, i þeirri
von að fria spaðaslag. Vestur
drap með gosa, spilaði laufi og
sagnhafi tók báða laufslagina,
siðan tigulslagina og spilaði
spaða. Ætlunin var að vestur yrði
siðan að spila frá hjartakóng. En
vestur sá við þessu. Hann gaf ein-
faldlega spaðaniu og sagnhafi
varð að spila frá hjartanu.
Einn niður og vond skipti fyrir
1100 til 1400 i tveimur spöðum
dobluðum.
VtSIR
Umsjón: Anna Heiöur
Oddsdóttir.
Þannig lifa
) pottablómin
Sumarfri og ferðalög eru nú I
algleymingi, eins og alltaf um
þetta leyti árs. Meirihluti
islendinga yfirgefur heimili sin
um lengri eða skemmri tima og
brennir af stað út á land eða til
sólarstranda. Margir hafa þó ef
til vill komist að þvi, að það er
ekki bara að segja það að fara
burt frá heimilinu, þó ekki sé
nema i nokkrar vikur.
Liklega er varla til sú fjöl-
skylda, sem ekki hefur sankað
að sér fleiri eða færri plotta-
blómum i gegnum árin, til þess
að gleyma nú ekki alveg hvern-
ig grænt litur út þegar myrkrið
ætlar alla lifandi að drepa á vet-
urna. Pottablóm eru að sjálf-
sögðu alveg stórágæt, en þó er
einn galli á gjöf Njarðar. Það er
nefnilega ekki nokkur einasti
vegur að rogast með þau með
sér i sólina á Spáni, eins og
börnin. Fólk reynir oft að leysa
þetta vandamál með þvi að
biðja vini og vandamenn auð-
mjúklegast að lita við hjá
blómunum öðru hverju og gefa
þeim örlitinn vatnssopa. En
hvað gerist ef virnimir og
vandamennirnir ætla allir aö
þeysa burt á sama tima?
Ekkert, ef þú fylgir eftirfarandi
ráðleggingum, sem fjalla um
það, hvernig unnt sé að halda
blómunum lifandi á meðan fjöl-
skyldan er fjarverandi.
Fjarlægið lýs og
blómsturhnappa
Hvaða leið sem valin er að
þessu marki, er alltaf nauðsyn-
legt að fylgjast vel með blómun-
um i nokkrar vikur áður en lagt
er af stað. Hafið góðar gætur á
þvi, hvort lýs eða önnur óáran
leggjast á plönturnar og gerið
strax ráðstafanir til að eyða
þeim. Fjarlægið alla blómstur-
hnappa, þvi að viðnámsþróttur
plöntu minnkar ef hún er látin
eyða kröftum iað blómstra. Það
hefur hvort eð er enginn ánægju
af litrikum blómum þegar allir
eru i burtu.
Komið öllum pottablómum
fyrir i gluggum, sem sól skin
ekki mikið á — það ætti reyndar
að vera grátlega auðvelt. Sjáið
um, að hitinn i herberginu, þar
sem plöntunum er komið fyrir,
sé lár, og dragið gluggatjöldin
fyrir. Plönturnar þurfa að fá
of sumarfríið
eins mikið ferskt loft og unnt er,
en að sjálfsögðu verður að vara
sig á þvi að veita innbrotsþjóf-
um greiða leið inn i húsið. Skilj-
ið að minnsta kosti allar dyr
milli herbergja eftir opnar svo
að loftið sé á hreyfingu. Rétt áö-
ur en lagt er af stað verður að
sprauta á plönturnar og vökva
þær vel.
Garðeigendur best
settir
Þeir, sem eiga garða, eru
mjög vel settir þegar ganga
þarf frá pottablómunum. Flest-
ar pottaplöntur þola að vera
hafðarútiigaröiidálitinn tima,
ef veðrið er ekki þvi verra. Tak-
ið plönturnar og grafið þær með
pottum og öllu tilheyrandi
grunnt niður i mold á skuggsæl-
um og rökum stað i garðinum.
Sé ekki hægt að notast við
þessa aðferð er þó engin ástæða
til að örvænta. Til dæmis er þá
hægt að notast við krukkur, sér-
staklega ef um er að ræða litlar
plöntur. Takið stóra krukku,
fyllið hana af vatni, og stingið
gat á lokið. Troðið siðan langri
ræmu af bómullarefni i gegnum
gatið og látið annan enda henn-
arliggja ofan i vatninu. Stingið
siðan hinum endanum djúpt i
moidina i blómsturpottinum.
Vatnið i krukkunni á að ná
hærra en moldin i pottinum til
að byrja með og efnisræman
verður að vera gegnblaut áður
en henni er komið fyrir I vatn-
inu.
Fyrir stórar plöntur er nauö-
syníegt að hafa margar krukk-
ur með bómullarræmum. Reyn-
ið að gera tilraunir með þetta
fyrirfram til að athuga, hvað
vatnið i krukkunum endist lengi
og hversu margar krukkur þarf
að nota yfir tiltekinn tima.
Pottur-í-pott aðferðin
Þessi aðferð er heppileg, þeg-
ar um er að ræða litlar plöntur I
leirpottum. Þær ættu að geta
komist af i þrjár vikur með
þessum hætti. Pottinum er kom-
iö fyrir ofan i stærri potti og
rúmið, sem þá er eftir I stærri
pottinum er fyllt af blautum
mosa. Að þvi loknu takið þið
ykkur skæri i hönd og klippið út
pappahring, sem nær út að brún
stærri pottsins. Klippið gat i
hringinn og þvi næst i gegn um
skífuna. Smeygið loks skifunni
utan um stöngul plöntunnar
undir blöðunum. Stórar plöntur
erhægt að geyma á sama hátt i
gólffötu eða stórum pappa-
kassa.
Plöntur i plastpoka
Ekki er allt búið enn. Þeir
sem vilja geta útvegað sér
stóra, þunna plastpoka og
geymtplönturnar i þeim. Byrjið
á þvi að setja blómapinna, sem
eru dálitið stærri en viðkomandi
planta, i hvort horn plastpok-
ans. Stingið hinum enda pinn-
anna ofan i moldina og dragið
plastpokann yfir plöntuna og
pottinn. Látið undirskál undir
pottinn og lokið pokanum utan
um allt saman.
Ef planta er of stór fyrir
plastpokann verður að láta
nægja að setja poka um neðri
hlutann og lima hann þétt við
stöngulinn. Slikur útbúnaöur
kemur þó aðeins að gagni i um
það bil tiu daga.
Eldhúsvaskar til
margra hluta nýtilegir
Þeir sem aðeins eiga fáar
plöntur geta gert sér litið fyrir
og nýtt eldhúsvaskinn eða bað-
karið til þess að halda i þeim
lifi. Setjið tappann i niðurfallið
og klæðið vaskinn eða baðið að
innan með plasti. Leggið gömul
dagblöð eða skúmmottu í botn-
inn. Stingið gat á plastiö yfir
niðurfallinu og þrengið nokkr-
um eldspýtum niður með
tappanum. Látið drjúpa mjög
hægt úr krananum þannig að
dagblöðin haldist rök án þess þó
að verða rennandi blaut. Vökvið
plönturnar vel og setjið þær án
undirskála á dagblöðin eða
skúmmottuna.
Þessi aðferð hentar einkum
vel við plöntur sem þurfa mik-
inn raka i lofti, en ekki mjög
mikla vökvun.
—AHO
I gœr
PASSAMYNDIR
ieknar i litum
til&súnar strax 1
barna & ffölskyldu
LJOSMYNDIR
AUSTURSTRÆTI 6 S.12644
sögðum við fró fallegum spönskum
postulínsstyttum, 170 tegundum
sem voru að koma
í dag
viljum við vekja athygli ó Bœheims
glervörunum
- FROSTMUNSTRIÐ -
eigum t.d. óvaxtasett, punsbollusett,
vasa, glös, bjórkönnur,
kertastjaka o.m.fl. — verðið
gerist ekki hagstœðara —
niii;-
Kitisnu
1