Tíminn - 15.11.1968, Síða 2

Tíminn - 15.11.1968, Síða 2
TIMINN Myndin sýnir líkan að safnhúsinu, eins og því er ætlað að verða. BYGGING SAFNHÚSS ER HAF- IN í GÖRÐUM Á AKRANFSI FÖSTUDAGUR 15. nóvember 1968. Staðir og stefmmói ný bók eftir GuSmuncS Daníelsson Laugardaginn 2. nóvember fór fram stutt athöfn í Görðum á Akranesi í tilefni þess, að þá var hafin bygging safnahúss þar á staðnum. — Byggingin verður fimm samstæð hús, tvö tveggja hæða og þrjú á einni hæð, eða 3889 m3. Teikningu að byggingunni og alla uppdrætti gerðu arkitcktarnir Orm Ármann Kr. Einarsson Oli og IVIaggi finna gull- skipið FB Reykjavík, laugardag. ÓIi og Maggi finna gullskipið heitir ný bók eftir Ármann Kr. Einarsson. Útgefandi er Bóka forlag Odds Björnssonar á Ak- ureyri. Þetta er 23. barna- og unglingabók Ármanns, en auk þess hefur hann gefið út fjór ar aðrar bækur. Bækur Ármanns Kr. Einars sonar hafa náð meiri og al- mennari vinsældum en dæmi eru til hérlendis, að því er seg ir á bókarkápu, — enda marg ar hverjar verið metsölubækur og eru sumar þeirra löngu upp seldar. En auk þess hafa bækur Framhald á 15. síðu. ar Þór Guðmundsson (sem er Akur nesingur) og Örnólfur Hall. Byggingin verður reist í áföng um. I fyrsta áfanga verður byggð samstæða tveggja hæða húsanna. Verkið var boðið út síðla sumars. Lægsta tilboð, af fimm, var frá Dráttarbraut Akraness h. f. en fram kvæmdastjóri hennar er Þorgeir Jósefsson. Var því tilboði tekið. í þessari safnahúsabyggingu í Görðum er Byggðasafni Akraness og nærsveita ætlaður staður í fram tíð, svo og listasafni. — Garðar á A'kranesi er forn sögustaður, kirkjustaður og prestssetur um aldir. Byggðasafn Akraness og nærsveita var opnað almenningi til sýnis í desember 1959 og bomið fyr ir í gamla prestseturshúsinu í Görðum, er safnið fékk að gjöf, og hefur verið þar til húsa síð an. Garðahúsið er fyrsta húsið í landinu, sem gjört er úr stein- steypu, byggt á árunum 1876 til 1882 af þáverandi sóknarpresti í Görðum, séra Jóni Benediktssyni. Var húsið lagfært hið innra fyrir safnið en rúmar nú hvergi þá muni og minjar, sem byggðasafninu hafa áskotnazt á undanförnum árum. Byggðasafn Akraness og nær- sveita er sjálfseignarstofnun og nær til Ákraneskaupstaðar og hreppanna fjögurra sunnan Skarðs heiðar. Telst það sameign fólksins sem byggir þessar stöðvar á hverjum tíma. Stjórn safnsins skipa 9 menn, 5 úr Akraneskaupstað og einn úr hverjum hreppi. Innan stjórnarinnar er Þri'ggja manna framkvænidancfnd. Skipa þá nefnd nú Guðmundur Sveinbjörns son, Akranesi, Jón Sigmundsson, Akranesi, og Guðmundur Jónsson bóndi og oddviti á Inm-a-Hólmi. Forstöðumaður safnsins hefur ver ið frá upphafi séra Jón M. Guðjónsson. Fjárhagslega hefur byggðasafnið notið árlegs styrks Akranesbæjar og sveitar félaganna sunnan Skarðsheiðar, svo og rausnarlegs framlags úr Menningrsjóði Akraness á þessu ári, og nokkurs styrks úr sýslu sjóði Mýra- og Borgarfjarðarsýslu árlega. Skilningur fólks á gildi byggðasafnsins hefur farið vax andi með árunum. — Hið nýja safnahús í Görðum er staðsett nokkurn spöl fram af gamla Garða húsinu. Athöfnin heima í Görðum hófst með því a, Guðmundur Sveinbjörns son, formaður byggðasafnsstjórnar, flutti ræðu. Rakti hann sögu byggðasafnsins í stórum dráttum og lýsti aðdraganda að fyrirhug aðri safnabyggingu og framtíðar vonum í sambandi við hana. Þakk aði hann öllum, sem stutt höfðu að giftusamlegri lausn þess, að framkvæmd merks áfanga mætti hefjast innan stundar. Bað hann Jón Sigmundsson að stinga fyrstu skóflustunguna. Jón er fæddur í Görðum og fóstraður þar — og átti 75 ára aímæli 1. nóvember. Hann hefur verið í stjórn byggðasafns ins frá stofnun þess og fyrsti formaður og samfleytt um árabil og jafnan gjaldkeri safnsins. Því næst talaði sóknarpresturinn, séra Jón M. Guðjónsson. Lýsti hann blessun yfir framkvæmd verksins. Stundin væri helg á helgum stað, sem vonandi mætti enn og um alla framtíð minna á dýran arf í munum og minjum feðra og mæðra og veita ljósi menningar xnn í líf kynslóðanna. — Meðal við- staddra við athöfnina var bæjar stjórinn á Akranesi, Björgvin Sæ mundsson og fulltrúar sveitanna sunnan Skarðsheiðar. Að lokinni athöfn gengu viðstaddir inn í byggðasafnið og þágu góðgerðir. — Safnvörður byggðasafnsins er Magnús Jónsson, kennari. EKH-Reykjavík. Sjö nýjar bækur og ein mál- verkaprentuii eftir Jóhannes Kjar val koma út hjá Helgafelli um þessar mundir. Bókaútgáfan mun fyrir jólin og í kringum fullveld isafmælið gefa út margt góðra bóka og má þar tilgreina ljóðabók eftir Ilannes Pétursson, skáldsögu eftir Jón Óskai', Njálssaga á ensku í lúxusútgáfu, nýtt skáldverk Thors Vilhjálmssonar, ljóðabók eftir Ein ar Ólaf Sveinsson, Kjarvalskver, heildarsafn Hannesar Hafstein og fleira. Bækurnar sem nú koma út eru þessar: Smásagnasafn, Blábrá, eftir Kristmann Guðmundsson, 11 smásögur, er ekki hafa birzt áð- ur. Þá kemur ný útgáfa ætluð ung um lesendum af skáldsögum Jóns FB-Reykjavík, þriðjudag. Staðir og stefnumót heitir ný- útkomin bók eftir Guðmund Dan íelsson. Útgefandi er Prentsmiðja Suðurlands h. f. Bókin er tvískipt og eru í henni viðtöl og ferðaþætt ir. Ferðaþættirnir eru tíu, en all ir úr sömu ferðinni. Hinn hluti bókarinnar er miklu umfangsmeiri og hefst með minningum Guð- mundar austan úr Holtum. Samtölin eru við þessa menn: Kristinn Vigfússon, trésmíða- meistara á Selfossi, Ásgeir Páls son, bónda og formann að Framnesi í Mýrdal, Gunnar hreppstjóra Runólfsson á Syðri- Rauðalæk, Kjartan frá Stóra- Núpi, söngstjóra, Vigfús oddvita á Eyrarbakka, Ólaf Björnsson, héraðslækni á Hellu, Ásgeir Ei- ríksson, sýslunefndarmann á Stokkseyri, Magnús Guðjónsson, sóknarprest á Eyrarbakka, Jón bónda í Garðsauka, Friðrik kaup mann í Miðkoti í Þykkvabæ, Jón bónda í Neðradal, Þórunni Gestsdóttur á Eyrarbakka, Ólöfu í Túni, Hildiþór kaupmann á Selífiossi, Valdimar Örnólfsson, stjórnanda skíðaskólans í Kerl- Fjórar bækur frá Skjaldborg . á Akureyri Skjaldborg sf-, sem er nýstofnað útgáfufyrirtæki á Akureyri gefur út á þessu ári eftirtaldar bækur. „Leyniskjalið" heitir ný barna- bók eftir Indriða Úlfsson, skóla stjóra á Akureyri. Þetta er fyrsta bók höfundar, en hann hefur áður samið mörg leikrit fyrir börn, sem flutt hafa verið víða á skóla skemmtunum, og nokkur birzt í barnablaðinu „Vorið." „Bundið mál“, heitir ný ljóða bók eftir Jón Benediktsson, yfir lögregluþjón á Akureyri. Þetta er önnur ljóðabók höfundar, sem kunnur er fyrir sönglög sín og ljóð víða um land. Fyrri ljóða bók hans, „Sólbros“, kom út 1959 og var vel tekið. „Eltingarleikur á Atlantshafi" (The Enemy Below) eftir D. A. Rayner í þýðingu Baldurs Hólm geirssonar segir frá einvígi milli tundurspillis og kafbáts í heims Framhald á bls. 15. Thoroddsen, Manni og konu og Pilti og stúlku. Báðar eru þessar bækur myndskreyttar, önnur af Halldóri Péturssyni en hin af Gunnlaugi Scheving. Ný ljóðabók eftir Vilborgu Dag bjartsdóttur, sem skáldkonan nefn ir Dvergliljur. Ennfremur kemur safn smásagna eftir Jón frá Pálmholti. Bókina kallar höfundur, Tilgangur í líf inu, sögurnar eru 12 og hefur ein þeirra birzt áður. Þá kemur út nýstárleg bók og sérstæð, þó hún hafi reyndar komið tvisvar út áður, í fyrsta sinn fyrir rétt tæpum hundrað árum. Þetta er Varabálkur Sigurðar Guð mundssonar á Heiði í Gönguskörð um, en hann þótti á sinni tíð eitt bezta ljóðskáld okkar úr alþýðu stétt. í Varabálki eru yfir 400 ingarfjöllum, Þorgeir _ Gestsson frá Hæli, Málfríði Árnadóttur og Ingvar Árnason, Grím bónda Ögmundsson á Syðri-Reykjum, Guðmund í Steinskoti, Markús Þórðarson í Grímsfjósum og Þor stein bókfærslukennara Bjarna- son við Verzlunarskólann. Bókin er 314 bls., Prentsmiðja Suðurlands gefur út og Halldór Pétursson hefur teiknað kápu og skreytingar. Sálmar Kvæði Söngvar eftir sr. Friðrik Friðriksson FB-Reykjavík, þriðjudag. Komin er út bókin Sálmar — Kvæði — Söngvar eftir séra Frið rik Friðriksson. Útgefandi er KFUM í Reykjavík. Sigurjón Guð jónsson skrifar um séra Friðrik Friðriksson — Skáldið og rithöf undurinn. Bókin skiptist í 10 kafla Fyrst er: Frumsamdir sálmar og andleg ljóð, þá Sálmar og and legir söngvar — Þýðingar, Æsku lýðsljóð — frumort og þýdd, Frum ort kvæði, Útilegumenn — Ljóða flokkur, Úti og inni — Ljóðaflokk ur um útilff í KFUM og Ljóða þýðingar. Bókin er 255 bls. Bók in er prentuð hjá Leiftri h. f- Á bókarkápu segir m. a. Séra Friðrik Friðriksson hefir sung ið sig inn í hjörtu tugþúsunda ís lendinga með söngvum sínum og sálmum. Hann er fyrst og fremst skáld æskunnar. Sálmaskáldið sr. Friðri'k Friðriksson hefir aflað sér æ fleiri vina með sálmum þeim, sem teknir voru í síðustu útgáfu „Sálmabókarinnar“ og vinna á við not’kun í söfnuðum lands ins. Kvæðaskáldið Friðrik Frið- riksson er minnst þekkt af almenn ingi, enda hefir aldrei verið gefin út kvæðaþók eftir hann. Hér birt ast flest ljóð hans og sálmar og eru fjölmörg þeirra prentuð hér í fyrsta sinn- Bókin er gefin út í tilefni aldar I afmælis hans 25. maí 1968. erindi, dýrt kveðin og þrungin andagift og lífsvizku. Sigurður Bjarnason ritstjóri skrifar formála að Varabálkinum. Loks kemur á morgun lítil mál verkabók með fjölda mynda eftir Svavar Guðnason, en inngang, yf ir þrjátíu síður, skrifar Halldór Laxness. í bókinni eru 23 mynd ir og tvær í litum, þar á meðal hinn margumtalaða mynd Svav ars er Studenternes Hus í Aarhus á en, hún er að stærð hvorki meira né minna en 240x400 cm. Bók þessi er gefin út af Gyldendal, en afgreidd hjá Helgafelli. Loks kemur á morgun ný mál verkaprentun eftir mynd Kjar vals, Hraundrangar í Öxnadal, endui'minning málarans um Jónas Hallgrímsson, prentuð í Litho- prenti. Framhald á 15. síðu. 7 NÝJAR BÆKUR OG EFTIRPRENT- UN KOMA ÚT HJÁ HELGAFELLI

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.