Tíminn - 23.11.1968, Page 1
Gerizt áskrifendur að
Tímanum.
Hringið í síma 12323
" 1
WWW
256. tbl. — Laugardagur 23. nóv. 1968. — 52. árg.
Auglýsing í Tímanum
kemur daglega fyrir augu
80—100 þúsund lesenda.
r
FELLUR FRANKINN
NTB - París og Bonn, föstudag.
Það er nú fullljóst orðið að gengi frankans verður lækkað á morgun. Franska stjórnin mun aö öllum líkindum taka
ákvörðun um hve gengisfellingin verður mikil á fundi sem boðaður hefur verið á morgun. Tilkynningarinnar um
gengisbreytinguna, sem birt verður í lok fundarins, er beðið með mikilli eftirvæntingu. Talið er að hún verði ein-
hversstaðar á milli sjö til tuttugu af hundraði, en efnahagssérfræðingar eru þeirrar skoðunar, að verði gengið fellt
um minna en 7% komi hún ekki að gagni, en nemi hún 15% eða meira, neyðist nágrannalönd Frakklands til
þess að lækka gengi síns gjaldmiðils.
Á fundinum í Bonn, þar sem
efnahagsráðiherrar og seðla-
bankastj'órar tíu níkustu iðnað
arþjóða heims og Svisslands
hafa þingað að undanförnu hafa
mikilsverðar ákvarðanir verið
teknar og fara þær hér á eftir
í aðalatriðum:
Ákveðið hefur verið að lönd
in tíu og Svissland veiti Frakk
landi aðstoð sem nemur 2 mill
jörðum dollara eða 176 mill-
jörðum íslenzkra króna til þess
að treysta gengi franska frank
ans.
Frans'ka stjórnin hefur fallizt
á að fella gengi franska frank-
ans, en ákvörðunin um það
hve gengisfellingin eigi að vera
mikil verður tekin á ríkisráðs-
fundi í París á morgun.
Strauss, fjármálaráðh,erra V-
Þýzkalands, sagði í dag að
gengi frankans yrði fellt
DAG?
en það væri frönsku stjórnar-
innar að ákveða hve mikil gieng
isfellingin yrði.
Elkkert hefur verið gefið
upp um væntanlega gengisfell
ingu af opinberri hiálfu í Frakk
landi en frönsk blöð telja full
víst að af henni verði. Það er
hald manna í Frakklandi að
gengisfellingin geti orðið frá
7 til 20%. Efnahagsmólasér-
fræðingar þar í landi segja, að
nemi gengisfellingin minna en
sjö af hundraði komi hún ekki
að gagni, en verði hún meiri
en 15 af bundraði neyðist ná-
Framhald á bls. 1-1.
J
KAUPFÉLAGSSTJÓRAR ÞINGA
KJ-Reykjavík, föstudag
f dag hófst árlegur kaupfélags-
stjórafundur Sambands ísl. sam-
vinnufélaga, og tók G.E. myndina
hér að ofan á fundinum í dag í
sambandshúsinu. Erlendur Einars
son forstjóri flutti yfirlitserindi
um ástand og horfur hjá Samband
inu og félögunum. Helgi Bergs
framkvæmdastjóri talaði um
stækkun kaupfélaga, Agnar
Tryggvason framkvæmdastjóri
um afurðasöluna á árinu. Þá töl-
uðu Ingólfur Ólafsson kaupfélags-
stjóri og Jón Þór Jóhannsson að-
stoðarframkvæmdarstjóri um
markaðsráð, sem sett var á stofn
af samvinnufélögunuin í fyrra.
Fundarstjórar á fundinum eru þeir‘
Ólafur Sverrisson kaupfélagsstjóri
í Borgarnesi og Steinþór Þor-
steinsson kaupfélagsstjóri í Búð-
ardal og fundarritari Gunnar
Grímsson fulltúi.
Stórtap ÁburSarverksmiðjunnar og Áburðarsölunnar vegna gengisfellingarinnar:
NEMSJR SAMTALS U
72 MILUÓNUM KRÓNA
KJ-Reykjavík. fimmtudag.
Eitt af þeim fyrirtækjum sem
orðið hafa fyrir miklu gengistapi
vegna gengisfellingarinnar á dögun
um, er Áburðarsala ríkisins og
sömuleiðis Áburðarverksmiðjan
h. f., en gengistap verksmiðjunn
ar er þó með nokkrum öðrum
hætti en Áburðarsölunnar. Sam
kvæmt upplýsingum Hjálmars
Finnssonar framkvæmdastjóra
verksmiðjunnar nemur gengistap
Ábiirðarsölunnar einnar 48.6 millj
ónum króna, og gengistap Áburð
arverksmiðjunnar 23.3 milljónum.
Framkvæmdastjórinn kvaðst
vilja taka það fram í sambandi
við gengistap Áburðarsölunnar, að
hér væri um að ræða gengistap
vegna lána sem tekin voru vegna
áburðarkaupa í vor. Áburðurinn
sem seldur var í vor, átti ekki að I ái-a væri ekki fyrr en í nóvember. I Þessar fyrrnefndu skuldir hefðu
greiðast að verulegum hluta fyrr Þá sagði Hjálmar Finnsson fram ! allar verið á gjalddaga síðast í
en síðast í nóvembcr, og hefði þá | kvæmdastjóri, að í haust hefðu j nóvember, og því ekki hægt að
verið miðað við að gjaldfrestur I verið settar hömlur á það, hvenær j greiða þær, þótt peningar hefðu
væri þar til afurðalán landbúnaðar ! greiða mætti erlendar skuldir.; verið til áður. Allar greiðslur sem
ins kæmu til afreiknings, sem j og mætti nú orðið ekki greiða þær j fallnar voru j gjalddaga var búið
samkvæmt venju og reynslu fyrri1 fyrr en komið væri á gjalddaga.5 Framhald á bls. 11.
Dómarafuíl-
trúar ræða
embætta-
veitingar
EJ-Reykjavík, föstudag.
Blaðið frétti í dag, að Dóm
arafuiitrúafélag íslands
hafi bocað til framhaldsað-
alfundar 28. nóvember nk.
Einn dagskrárliðurinn er,
samkvæmt fundarboði,
„Veiting embættis sýslu-
manns Barðastrandarsýslu
og bæjarfógetaembættis-
ins í Neskaupstað“.
Nánar tiltekið er dagskrá
fundarins, sem haldinn verður
eftir tæpa viku, svohljóðandi:
„1. Ályktun um kjaramál. 2.
Veiting embættis sýslumanns
Barðastrandarsýslu og bæjarfó
getaemtoættisins í Neskaupstað.
3. Lagabreytingar“.
Bæði þessi emtoætti, sem um
ræðir í dagskránni, voru veitt
í haust. Sýslumannsembættið í
Barðastrandai-sýslu hlaut Jó-
hannes Árnason, áður sveitar-
stjóri á Patreksfirði. Annar um
sækjandi var um embættið,
Haraldur Henrysson, bæjarfó-
getafiulltrúi.
Embættið á Neskaupstað var
veitt fyrr í haust, og hlaut það
Sigurður Egilsson, áður starfs-
Framhald á bls. 1L
oðar nýjan þingflokk
TK-Reykjavík, föstudag.
Við atkvæðagrciðslu á Alþingi í
gærkvöldi um tillöguna um vair
traust á ríkisstjórnina sem felld
var með 32 atkvæðum gegn 28,
gerði Björn Jónsson grein fyrir at-
kvæði sínu og boðaði stofnun nýs
þingflokks og mátti á lionum skilja
að í framhaldi af því myndi verða
stofnaður stjórnmálaflokkur.
Björn réðst alla harkalega á þing
flokk Alþýðubandalagsins og sagði
að þremur þingmönnum, sem til-
heyrt hefðu þeim flokki, hefði
verið varnað máls á Alþingi í út-
varpsumræðum undanfarið ár.
Þeir Haraldur Henrýsson, sem nú
situr á þingi sem varamaður
Hannibals Valdimarssonar, og
Hjalti Haraldsson, varamaður Jón
asar Árnsonar. gerðu og grein fyr
ir atkvæðum sínum og vitnuðu til
yfirlýsingar Björns Jónssonar.
Framhald S bls. 11. i