Tíminn - 23.11.1968, Síða 5
FÖSTUDAGUR 22. nóvember 1968.
ÍÞRÓTTIR
TÍMINN
ÍÞRÓTTIR
5
í sunnudagsblaöinu
í þættinum „Á vítateigi" í sunnudagsblaðinu verður m.a. rætt um þau mál, sem
verða ofarlega á baugi á KSÍ-þinginu um helgina. — Þá verður rætt um mistök
mótanefndar í handknattleik og 1. deildarkeppnina, sem verður haldið áfram um
helgina.
Bjarni Björnsson viS „stjórnvölinn".
(Tínramynd Gunnar)
HANN BJARNI
ER ÓMISSANDI
Einn er sá maður, sem er
ómissandi, þegar leikir í hand
knattleik og knattspyrnu innan
húss fara fram. Það er hann
Bjarni Björnsson, eða Bjarni
tímavörður, eins og sumir kalla
hann. Hann stjóraar stóru raf-
magnstöflunni í Laugardalshöll
inni og hefur tímavörzluna í sín
um höudum.
Þannig hefur þetta gengið í
ein 8 ár. Bjami byrjaði sem
tímavörður að Hálogalandi, þeg
ar allir meiriháttar leikir fóru
þar fram. en eftir að handknatt
leikurinn flutti í Laugardalshöll
ina hefur Bjarni haft umsjón
með rafmagnstöflunni þar. Ná-
kvæmari og samvizkusamari
mann er vart hægt að hugsa
sér, enda ber handknattleiks-
fólk mikið traust til hans.
Það var einhvern tíma fyrr
í haust, að Bjarni tafðist smá
vegis á leiðinni frá Hafnarfirði,
en þar er hann búsettur. og
þurfti þá að byrja leik, án
þess, að rafmagnstaflan væri í
gangi. Þá var mikið kvartað á
áiborfendapöllunum og spurt
hvar Bjarni væri. Það er nefni
lega ekki á allra færi að stjórna
rafmagnstöflunni og kunna fáir
á hana fyrir utan Bjarna.
Þess má að lokum geta, að
Bjarni hefur alla tíð haft mik
inn áhuga á handknattleik og
átti í mörg ár sæti í landsliðs
nefnd. —alf.
Handknattleikur á sunnudaginn:
Nú mæta ÍR-ingar
íslandsmeisturunum
Áhætta í sambandi
viö iökun íþrötta
— a.m.k. fyrir atvinnuíþróttamenn.
f september-hefti mánaðarrits
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunar-
innar, World Health“, er frá ýms-
um sjónarhólum rætt um íþróttir
og áhrif þeirra á heUsufar manns'
ins, bæði líkamlegt og sálrænt.
í einni grein segir, að íþróttir,
sem almennt séu taldar heilnæm
bg æsicileg tómstundaiðjia, veki
ýmsar spurningar varðandi heilsu
far manna, sem kalli á svör, og
eigi það fyrst og fremst við um
langþjálfaða atvinnumenn í íþrótt-
um. Hvernig getur til dæmis stað
ið á því, að úrvalsiíþróttamenn hafa
hærri dánartölu í tilteknum aldurs
flokki en jafnaldrar þeirra, sem
lifa kyrrlátara lífi?
Skref í áttina til betri skilnings
á þessu vandamáli og öðrum á-
þekkum hefur verið stigið með
því samstarfi sem komizt hefur
á milli Alþjóðaólympíunefndarinn
ar, „The International Federation
of Sport Medicine“ og ALþjóðaheil
brigðismálastofnunarinnar (WHO).
Niðurstöðurnar hafa verið sendar
Ólympíulæknisfræðiskjalasafninu,
sem sett var á stofn í sambandi
við Ólympíuleikana í Tókíó 1964.
Árið 1988 mun þetta skjalasafn
'hafa að geyma heilbrigðisskýrslur
um rúmlega 20.000 íþróttamenn
og koma læknavisindunum að
miklu gagni.
í viðtali við dr. Jean Mabileau.
Ársþing FRÍ
háð um helgina
Ársþing Frjálsíþróttasambands
fslands verður háð um helgina.
Verður þirgið sett í Alþýðuhús
inu við Hverfisgötu kl. 4 í dag,
en á morgun, sunnudag, verður
þinginu haldið áfram í Sambands
húsinu við Sölvhólsgötu kl. 2.
franskan fulltrúa í eiturlyfjanefnd
inni, er rætt um neyzlu eiturlyfja
meðal íþróttamanna. Dr. Mabileau
er þeirrar skoðunar, að neyzla örv
andi lyfja til að seinka þreytu feli
ekki einungis í sér svik hlutaðeig
andi einstaklings við hugsjón
íþróttanna, heldur geti haft í för
með sér alvarleg áföll fyrir tauga
kerfið og sálarlífið.
1 onnin
sat eftir
í gólfinu
Það fór illa fyrir Geir
Hallsteinssyni í leiknum á
móti Fram s.l. miðvikudag.
f leiknum varð hann fyrir
því óhappi að skella með
andlitið í gólfið og við það
festist önnur framtönnin í
salargólfinu og sat þar eftir
þegar Geir spratt eldsuöggt
upp.
Er þetta næsta óvenju-
legt atvik, því að tönnin
brotnaði ekki, heldui' sat
eftir í heilu lagi. Var engu
líkara en tannlæknir hefði
dregið tönnina úr. Eftir
leikinn fannst tönnin svo,
þar sem hún sat föst í gólf-
inu!
Þess má geta, að Geir lét
þetta ekki á sig fá og lék
áfram eins og ckkert hefði
í skorizt, eftir að læknir
hafði stöðvað blóðrennslið.
—alf.
Ekki fjölgað að sinni?
Körfubolti um helgina:
Erfiöur leik-
ur fyrir hönd-
urn hjá KR?
Reykjavífcurmótinu í körfu-
knattleik verður haldið áfram um
lielgina í Laugardalshöllinni og
Mkið foæði í kvöld og annað kvöld
Eeppnin í kvöld hefst kl, 19.30
með leík í 2. flokki á milli Ár-
manns og KFR. Þá leifca í 1. flokki
ER-stódentar og ÍR-Ármann. Loks
leika í meistaraflokki KFR og
stódentar.
Annað kvöld hefst keppnin með
leik ÍR og KR í 2. flokki og
síðan leika stódentar og Ármann
í 1. flokki. Lofcs tveir leikir í
meistaraflokkd._ Fyrst leika KR og
KFR og loks ÍR og Ármann.
Sérstök ástæða er til að vekja
athygM ó leikjunum á sunnudags-
kvöld, en foúast má við hörku-
spennandi keppni milU KR og
KFR, foótt KR-ingar séu siigur-
stranglegri. ÍR-ingar eru sigur-
stranglegii í síðasta leik kvölds-
ins, en þó má geta þess, að Ár-
inenningar hafa oft verið ÍR-ing-
um erfiður ljár í þúfu.
Kastæfing-
ar á sunnu-
dagsmorgun
Kastæfingar stangaveiðimanna
eru í fiullum gangi í íþróttahöll-
inni í Laugardal alla sunnudags-
morgna kl. 10.20 til 12.00. Stanga-
veiðifélögin í Reykjavík og Hafn
arfirði standa saman að þessum
kastæfingum, en auk kastæfinga
og kastleið'beininga kynnast menn
þar veiðiflugum, nöfnum þeirra og
stærðarnúmerum. Þátttaka í æf-
ingunum er öllum heimil, eftir því
sem húsrými Leyfir en nánani upp-
Lýsingar og áskriftir era hjá kast-
nefndarmönnum stangaveiðifélag-
anna og á æfingunum.
Badminton-
menn KR æfa
á Baugardögum
Starfsemi Badmintondeildar KR
er í fullum gangi. Samæfingar
deiidarinnar eru á laugardögum
eins og hér segir:
K. 3—5 1. fLok’kur og meistarafi.
Ki. 5—6 fyrir 11—14 ára.
Kl. 6—7 fyrir 14—18 áxa.
Þjálfari er Reynir Þorsteinsson.
Keppninni í 1. deild í handknatt
Leik verður haldið áfram á sunnu
daginn og fara þá fram tveir Leik
ir. f fynri leiknum mætast KR og
Haulkar, en í þeim síðari ÍR og
Fram. Augun munu einkum bein-
ast að síðari leiknum. ÍR-ingar
sigruðu Reykjavífcurmeistara Vals
í fyrstu umferð keppninnar, en nú
fá þeir að glirna við fsLandsmeist
arana. Hvernig sú viðureign fer,
er erfitt að spá, en víst er um það
að allt getur skeð í handknattleik.
Auk þessara tveggja leikja í 1.
deild fara fram tveir Leikir í 2.
deild. f fyrri Leiknum mætast
KeflavÆk og Þróttur, en í síðari
Leiknum Viíkingur og Ármann.
Verða þetta fyrstu Leikirnir í 2.
deild á þessu keppnistímabili.
Hefst Leikur Keflavíkur og Þrótt
ar 'ki. 2, ieikur Víkings og Áir-
manns strax á eftir og loks 1.
deildar leikirnir.
Þar sem um fjóra meistara
flotóksleiki er að ræða sama dag-
inn verður þetta nokkurs konar
maraþonkeppni, en leikið verður
stanzlaust frá kl. 2 til kl. 7..
Er ráðlegt að fjölga liðum frek
ar í 1. deild í knattspyrnu? Ekki
er ólíklegt, að þessari spurningu
verði varpað fram á ársþingi KSÍ
núna um helgina. Jafnvel er hugs
anlegt, að aðilar úr Reykjavík og
utan af landi sameinist um tillögu,
sem kveður á um, að frekari
fjölgun fari ekki fram að sinni.
Á síðasta ársþingi KSÍ var
samþykkt tillaga um að fjölga 1.
deildarliðunum úr 6 í 8 á tveim
ur árum. Leika 7 lið í deiidinni á
næsta ári, en 1969 er ráðgert, að
liðin verði orðin 8.
Vegna hinnar slæmu fjárhagsút
komu af 1. deildar keppninni í ár,
sjá menn fram á, að hagnaðurinn
af deildinni muni enn minnka,
verði liðum fjölgað. Nánar e_r
rætt um þetta mál í þættinum „Á
vítateigi", sem mun birtast í blað
inu á morgun.
liil
Þelr áhuga-
sömustu
Þessa sérkennilegu mynd hér
til hliðar tók Ijósmyndari Tím
ans, Gunnar, á fyrsta leikkvöldi
íslandsmótsins í handknattleik.
Einn maður, og margir auðir
stólar. Þeir áliugasömustu mæta
ávallt fyrst, gæti myndin heitið.
Til gamans má geta þess, að
maðurinn er Þorkell Þorkelsson,
framkvæmdastjóri Bæjarleiða.
cn hann er kunnur áhugamaður
um íþróttir.