Tíminn - 29.11.1968, Síða 5
•’ÖSTUDAGUR 29. nóvember 1968.
TIMINN
Bandariska söngtríóið „The
Supremes" nýtur um þessar
mundir mikilla vinsælda. Tríó-
ið er eingöngu skipað stúlk-
um. Þær hafa nú að undan-
förnu verið á ferðalagi um Ev
rópu, og komu meðal annars
fram í Danmörku, og munu
Danir hafa heillast mjög af
söng þeirra. Lesendur banda-
ríska mánaðarritsins Playboy
kusu tríóið nýlega bezta djass-
söngtríó Bandaríkjanna, en
Playboy gengst árlega fyrir
slíkri atkvæðagreiðslu, og þyk
ir það mikil upplhefð fyrir tón
listamenn að verða framarlega
í þeirri atkvæðagreiðslu.
Frægust af stúlkunum í „Su
premes er sennilega Diana
Boss, en hún er negri og með-
limur í samtökum bandarískra
negra „Svart vald“. Hún kem-
ur fram fyrir samtöikin á tón-
leikum tríósins með því að
framfylgja stefnu þeirra um
framkomu negra. Diana hefur
sítt slétt hár, en á tónleikum
kemur hún fram með hárkollu
sem er gerð úr stuttklipptu og
mjög hrokknu negrahóri. Með
þessu leggur hún áherzlu á
það, að hún sé negri, og vilji
vera það, en slík framkoma er
alveg í anda samtakanna.
Mynd þessi var tekin ein-
hivers staðar í Egyptalandi.
Nasser forseti (sá í miðjunni)
er að fylgjast með heræfingum
í eyðimörkinni. Nasser og
æðstu yfirmenn herafla Egypta
aka um I svona flutningavagni
og athuga hvort allt sé ekki
eins og það á að vera. Myndin
mun hafa verið tekin þann tí-
unda nóvember.
ANS
Nýlega hafa verið grafnar
upp rústir forns rómverks
Herkúlesar-ihofs við Sulmona
á Ítalíu. Hofið er ekki mikið
skemmt að sögn, en noútkuð
mun steinninn þó láta á sjá.
Það merkasta við þennan forn
leyfafund, er talið vera það,
að við uppgröftinn fundust
handrit að ljóði eftir Ovidius.
Ljóð þetta hefur verið þekkt
áður, en einungis verið til af-
rit. Handritið er mjög skemmt
eins og búast mátti við, en
ekki mun vera hægt að lesa
mikið af hinum fimmtán ljóð
línum ljóðsins. Samt sem áður
geta sérfræðingar lesið það
mikið, að ekki fer á milli mála
hver kveðskapurinn er, og eft
ir hvern. Nafn fylgir ljóðinu.
Neðan við Ijóðið stendur nokk
uð skýrum stöfum: Nasonis,
en það útleggst „eftir Naso“.
Ovidius hét nefnilega fullu
nafni Publius Ovidius Naso.
Franska lögreglan kaupir að
staðaldri sextíu seffers-hunda
á ári og þjálfar þá í sérstök-
um hundaskóla til ýmissa
hjálparstarfa. í hundaskólan-
um eru gæzlumenn hundanna
einnig þjálfaðir og leitazt er
við að hver hundur fái ein-
mitt þann tilsjónarmann sem
honum líkar bezt við. Stund-
um verða hundarnir að skipta
um gæzlumenn, því ekki tak-
ast alltaf sálræn tengzl milli
hunds og manns. Venjulega
eru um það bil tvö hundruð og
tuttugu hundar í ýmiss konar
þjónustu um allt Frakkland.
Þeir eru látnir leita að tínd-
um mönnum ,og hafa fundið eitt
þús. og áttatíu menn síðan
þjálfunarskólinn tók til starfa,
en það var í seinni heimstyrj-
öldinni, og mun skólinn vera
ein af mjög fáum stofnunum
sem Þjóðverjar stofnuðu á dög
um hernámsins og enn er við
líði. Þá eru hundarnir þjálfað-
ir til þess að aðstoða lögregl-
una við ýmiss störf t.d. gæta
bandingja, eða hafa uppi á inn
brotsþjófum. Einnig eru þeir
látnir „skyggja“ grunaða
menn sem ganga lausir. Sam-
band hundsins við húsbónd-
ann verður oft á tíðum mjög
náið, enda verður að myndast
fullbomið trúnaðartraust á
milli þeirra. Gamlir hundar,
sem eru hættir störfum fyrir
aldurssakir lifa síðan oft góðu
l£fi á heimili gæzlumanns síns,
en mjög oft kemur og fyrir
að fjölskyldur taka þá að sér,
einkum ef viðkomandi hundur
hefur fundið eimhvern tíndan
fjölskyldumeðlim. Hundar
þessir hafa verið mjög dugleg-
ir að hafa upp á tíndum börn-
um í stórborginni og enda eru
það oft fjölskyldur þessara
barna sem taka hundinn að
sér, þegar hann hefur hætt
starfi hjá hinu opinbera.
★
Ratna Sari Dewi, nefnist
þessi föngulega stúlka sem ljós
mynduð var, í París nýlega er
hún sté út úr bifreið sinni
ásamt fylgdarmanni. Stúlkan
þessi er tuttugu og átta ára að
aldri, og hyggst nú taka til
við kvikmyndaleik eða að
minnsta kosti freista gæfunn-
ar á þeim vettvangi, hvernig
sem henni mun nú takast til.
Dewi er reyndar ebki með öllu
óþe'kkt nafn úr heimsfréttun-
um, en hún hefur nefnilega til
skamms tíma verið gift Su-
Hubert Horatíus Hump-
hrey, varaforseti Bandaríkj-
anna, og frambjóðandi demó-
krataflokiksins í nýafstöðnum
forsetakosningum kvartaði und
an því, eftir kosningabaráttuna
að hann hefði reynt svo á sig,
bæði andlega og líkamlega, að
hann 'hafi létzt um ellefu kíló.
Á meðfylgjandi mynd sjáum
við hvar kempan hefur af-
klæðzt sokkum og skóm, og er
farinn að sikvampa í New Jer-
sey fljótinu. Humiphrey mun
hafa verið á hressingargöngu,
skömmu eftir að úrslit í kosn-
ingunum voru kunn orðin.
^.\\\\\v>>>>>>>>»»
karno, fyrrverandi Indiónesíu
forseta. Stúlíkan virðist líta
framtíðina björtum augum, að
minnsta kosti nefnist kvik-
myndin, sem hún byrjar feril
sinn með, „Framtíðin“.
5
A VlÐAVANGI
„Heiidarendurskoð-
un" húsnæðismála-
löggjafar
Einar Agústsson bar fram
fyrirspurn í sameinuðu þingi í
fyrradag og spurði hvað liði
þeirri heildarendurskoðun hús
næðismálalöggjafar, sem hús-
næðismálastjórn hefði verið
falin í framhaldi af yfirlýsingu
ríkisstjórnarinnar í júlí 1965.
Eggert G. Þorsteinsson, fé-
lagsmálaráðherra, svaraði
þannig að ekki fór á milli
mála, að engin raunveruleg
endurskoðun löggjafarinnar
hefði farið fram, en hins vegar
taldi ráðherrann að húsnæðis-
málastjórn myndi í næsta mán
uði einhvern tíma gera tillög-
ur- um það, hvernig ætti að
afla fjár í hina tómu sjóði,
Byggingasjóð ríkisins og Bygg
ingasjóð verkamanna. Sem
sagt ekkert gert enn varðandi
knýjandi nauðsyn til breyting
ar á húsnæðismálalöggjöfinni,
en húsnæðismálastjórn gert að
leggja ríkisstjórninni til ráð,
hvernig hún eigi að sinua
skyldu sinni að framkvæma
þau lagafyrirmæli, sem í gildi
eru.
Einar Ágústsson benti á, að
það væri margt sem þyrfti að
endurskoða í löggjöfinni, en
mjög væri þó á dagskrá fram-
hald þeirra byggingafram-
kvæmda, sem farið hefðu fram
á vegum ríkisins í Breiðholti
og sérstaklega þá, hvort fram-
hald yrði á þeim byggingum.
Hvernig hugsað sé að afla fjár
magns til þeirra bygginga,
hvort ætlað sé að koma upp
slíkum byggingum annars
staðar en í Reykjavík og svo
framv. Afgreiðslufrestur væri
orðinn óhæfilega langur á hús
næðislánum.
Þegar stjórnarandstæðing
ar hefðu flutt frumvörp um
breytingar á lögum um hús-
næðismál hefðu slík frumvöi-p
verið afgreidd með því að þau
mál öll væru í sérstakri heild-
arathugun og því ekki unnt að
gera breytingar á einstökum
lögum um þau mál og sú hefði
verið afgreiðsla á frumvarpi
í fyrra uin breytingar á lög-
um um byggingasamvinnufé-
lög. Þessi heildarathugun hef-
ur nú staðið yfir í þrjú ár.
Auðvitað þarf ekki allan þann
tíma til að gera tillögur um
það, hvernig afla beri fjár-
magns til þessara sjóða, sem
ríkisstjórnin lofaði að útvega
alveg á næstunni í yfirlýsing-
unni hátíðlegu frá 1965. Sú
viðbára að ekki megi sam-
þykkja umbætur á húsnæðis-
málalöggjöfinni vegna þess að
heildarendurskoðun hennar
fari fram fær ekki lengur stað
izt, og því mun vera Iátið
reyna á það, hvort stjórnar-
stuðningsmenn vilja slíkar um
bætur eða ekki, sagði Einar
Ágústsson.
„Atvinnustjórnmála-
menn"
Bjarni Benediktsson segist
á móti því, að með þjóðinni
starfi atvinnustjórnmálamenn.
Ilann sjálfur er einmitt eitt
skýrasta dæmið um slíka
menn. Hann er sjálfur dæmi-
gerður atvinnustjórnmálamað-
ur. Hann telur það muni verða
þjóðinni til tjóns taki þeir
völdin á Alþingi. Og hvað um
hina ráðherra sjálfstæðis-
flokksins? Jóhann Hafstein,
Framhald á 15. síðu.