Tíminn - 30.11.1968, Blaðsíða 4

Tíminn - 30.11.1968, Blaðsíða 4
£etii iii AjCHÚM-p Bókasfcápurinn var í annað sinn á föstudaginn í síðustu viku, og var þá sagt frá Poul Gaimard og íslands- ferðum hans árin 1835 og 1836, en ■mesta efni þáttarins var þó sýning á myndum Gaimards úr þessu'm ferð um, sem löngu eru frægar orðnar og !hin merkilegasta heimild. Var mjög fróðlegt að sjá þessar myndir í sjón- varpinu, þótt reyndar muni allmarg- Ir hafa séð þær áður, enda á þeim verið sýning hérlendis. Á laugardaginn var að mörgu leyti góð dagskrá. Það kvöld var sýnd ein staklega skemmtileg mynd um „Kvon bænir“ í ýmsum löndum Var gaman að sjá þá ýmsu máta, sem menn hafa é því að biðja sér konu, og voru þó aðeins fjórir siðir sýndir í mynd inni af ótalmörgum, því að í raun ihefur hver þjóð sinn sið. Síðar á laugardagskvöldið var kvik myndin ,,Valsaárin“, sem var allgamal dags, en vafalaust hafa þó margir haft gaman af henni. Á sunnudagskvöldið var hinn skemmtilegi þáttur þeirra Asfcenazys og Barenboim, en síðan var fluttur fyrsti þátturinn af fimm um Afglap- ann eftir Dostójevský. Uppfyllti hann flestar vonir manna, og má sennilega treysta því að þeir fjórir þættir, sem eftir eru, verði jafnir að gæðum. Skemmtiþáttur hljómsveitarinnar „Hljómar", sem var sýndur á mánu- dagskvöldið, var ákaflega dauflegur, lögin öll svipuð og Hljómar mun lélegri en þeir hafa áður verið í sjónvarpinu. Þetta sama kvöld var svo kvikmynd um innrásardaginn í Tékkóslóvakíu og var sú mynd góð. Sýndi hún sér- staklega vel viðbrögð almennings við innrásinni, og ástandið, eins og það var í flestum eða öllum borgum lands ins þennan smánardag. Dagskráin á þriðjudagskvöld var sérlega sfcemmtileg. í þættinum í brennidepli var rætt um fangelsis- mál. Eru þau mál svo sannarlega í brennidepli og hafa verið lengi, þar sem afbrotamenn bíða mánuðum sam an eftir fangelsisvi'st eftir að hafa hlotið dóm og fremja á meðan enn þá fleiri af'brot Og afbrotum er stöðugt að fjölga. Það hlýtur að vera öllum ljóst, að eitthvað verður að gera til úrlausnar þessu vandamáli sem fyrst. Á eftir framhaldsmynda- flokknum þetta kvöld var svo fróð leg mynd um geimferðir Rússa. Það var athyglisvert að kynnast geim- rannsóknum Rússa, þar sem lítið sem Tveir dagskrárliðir helgaðir Akureyri eru í dagskrá sjónvarpsins laugardaginn 7. desember: Strax að loknum frétt- ; um er þáttur, er Magnús Bjarnfreðsson hefur gert og nefnir „Akureyri í septembersól“. f þættinum er brugðið upp svipmyndum af höfuðstað Noruðrlands, en kvikmyndatöku annaðist Þórarinn Guðnason. Að þessum þætti loknum skemmtir hljómsveit Ingimars Eydal í þætti, sem nefnist „Vor Akureyri". Þátturinn er tekinn upp á ýmsum stöðum í bænum. Hljómsveitin flytur vinsæl lög, gömul og ný, af alkunnu fjöri með söngvar- ana Helcnu Eyjólfsdóttur og Þorvald Halldórsson í broddi fylkingar. Hljómsveit Ingimars Eydal hefur um langt ára- bil leikið i Sjálfstæðishúsinu á Akureyri og í augum ferðamanna vcrið óaðsfciljanlegur liluti af bæjarlífinu. Rúnar Gunnarsson kvihrjryndaði þáttinn, en stjórnandi upptökunnar var Andrés Indriðason. Á myndinni sést Helcna.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.