Tíminn - 30.11.1968, Síða 5

Tíminn - 30.11.1968, Síða 5
Bandaríska sjónvarpskvikmyndin Úr öskunni í eldinn verður á dagskrá miðvikudaginn 4. des. kl. 21.50. Með aðalhlutverkin fara Jíames Franciscus, Jocelyn Lane og Leif Erickson. ekkert hefur sést frá þeim f frétta myndum hingað til. Þiað hefur undanfarið einhvern veg inn hitzt þannig á, hvort sem það er viljandi eða óviljandi, að dagskrár þriðjudaganna hafa verið skemmti- legastar. Kvkimyndin á miðvikudag var frem ur léleg, þó að góðir leikarar væru í henni, þau Rita Hayworth og Glenn F'ord. í næstu viku er ýmislegt góðra þátta og vinsælla. Mun það vafa- laust verða sumum fagnaðarefni að Dýrlingurinn lætur aftur sjá sig næsta föstudag. A sunnudaginn 1. desember. minn ist sjónvarpið 50 ára fullveldis ís- lands með dagskrá, sem þeir Berg steinn Jónsson, sagnfræðingur og Þorsteinn Thorarensen, rithöfundur hafa tekið saman. Byggist hún á isögulegum heimildum um þjóð- líf og atburði árið 1918. A eftir þessari dagskrá er svo skemmtiþátturinn Evróptl skemmtir sér, en í honum eru söngvar og diansar frá mörgum löndum í Evr- ópu. Síðast á dagskránni þetta kvöld er svo annar þáttur Afglapans eftir Dostoévský, og heitir þessi þáttur Uppboðið. A mánudagskvöldið heimsækir iSteinunn Briem Viigdísi Kristjáns- dóttur, listvefnaðarkonu og Guð- mundu Elíasdóttur söngkonu í þætt inum Svipmyndir. Á eftir Sögu Forsyteættarinnar það kvöld er svo mynd, er heitir Fjöl- skyldulíf og er þar sagt frá og sýnt fjölskyldulíf og barnauppeldi í fjórum löndum, Indlandi Frakklandi, Japan og Kanada. Verður vafalaust gaman að þeirri mynd, að minnsta kosti ef hún er eitthvað svipuð myndinn' um bónorð in, sem var s. 1. laugardag. Á þriðjudag er á eftir fréttum þátturinn Setið fyrir svörum og á eft ir honum eru sýnd atriði úr ýmsum kvikmyndum Bings Crosbys í þættin- um Hollywood og stjörnurnar. Síð- ast á dagskrá það kvöld er svo þátt ur um brezka stjórnmálamanninn George Brown, sem er einn af leið togum verkamannaflokksins og róð- herra í stjórn Harold Wilsons um skeið, en hætti í þeirri ríkisstjórn vegna skoðanamismunar hans og Wil sons. George Brown er mjög þekkt- ur, ekki sizt fyrir það hversu sér- stæður hann er. Hefur honum t. d. verið mjög uppsigað við fréttamenn, a.m.k. um tíma. Gerði hann ýmsar „bommertuF“ á almannafæri, sem vöktu mikla athygli í fjölmiðlunar- tækjum. Er þess að vænta, að þessi þáttur verði fjörlegur. Á miðvikudagskvöld er ýmislegt fyr ir börnin eins og venjulega og Grall araspóarnir eru klukkan 20.30. Síðar um kvöldið syngur svo brezka söng konan Julie Driseoll og þá banda- rísk kvikmynd, gerð fyrir sjónvarp, Úr öskunni í eldinn, kallast hún, og er ekki ætluð börnum Á föstudag birtist svo Dýrlingur- inn á skerminum aftur eins og fyrr var sagt frá og ýmsir hafa víst sakn að hans. Það er ágætt að sjá Dýrling inn öðru hvoru bregða sér á kreik, en ekki í viku hverri eins og áður var, ævintýrin hans eru nefnilega mauðalík hvert öðru. Þegar við höfum horft á Símon Templar, koma tveir grfskir söngv arar fram á sjónarsviðið og syngja grísk lög eftir Þeodorakis, þann er samdi hið vinsæla lag „Zorba“. Á laugardag verður sjónvarpaði að nokkru helgað Akureyri, enda eiga Akureyringar þá að vera búnir að fá sjónvarp alla leið til sín Fyrst eftir fréttir er kvikmynd, sem sjónvarpið hefur gert um Akur eyri og heftir hún Akureyri í sept- embersól. Því næst er skemmtiþátt- ur Hljómsveitar Ingimars Eydals og kallast Vor Akureyri. Á eftir Akureyrardagskránni er brezk kvikmynd Ævintýri í eyði- mörkinni og síðast á dagskránni svip myndir frá Austurríki frá slóðum tónskáldanna Haydns, Moeaxts, Beet hovens og Sehuberts. ★

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.