Tíminn - 07.12.1968, Blaðsíða 4
£etil Oii AjéHOarp
Grannarnir voru ágætir á laug
ardaginn. Þáð eru sérstakiega þau
hjónakornin Harry og Lana, sem'
eru oft óborganlega skemmtileg.
Kvikmyndin Illur fengur var
spennandi en ekkert meira. Það
er orðið nokkuð langt síðan veru
lega góð kvikmynd hefur verið á
laugardagskvöldi, ekki síðan Síð-
asta brúin með Maríu Schell var
sýnd.
Stundin okkar var reglulega
skemmtileg á sunnudaginn. Telpna
kór Öldutúnsskóla söng frábær-
lega vel og virðist alltaf vera að
taka framförum, enda er stjórn
andinn þeirra, Egill Friðleifsson,
söngkennari, einstaklega áhuga-
samnr um tónlistarmennt nem-
enda sinna.
Gunnar M. Magnúss las skemmti
legan kafla úr sögu sinni og
enu myndirnar hennar Þórdísar
svo góðar og virðast nú vera fleiri
en í fyrstu lestrum sögunnar. Það
var líka gaman að vefaradansin
uim í lok tímans, sem félagar úr
Þjóðdansafélagi Reykjavíkur
sýndu.
Fullveldisdagskráin um kvöldið,
sem byggð var á sögulegum heim
iWum um þjóðlíf og atburði á
fullveldisárinu 1918 var vel tek-
in saman og var fróðlegt að fylgj
ast með henni.
Skemmtiþátturinn Evrópa
skemmtir sér var nokkuð misjafn
fyrri hlutinn einstaklega skemmti
legur, en það var eins og skemmti
kraftarnir yrðu lélegri er á leið.
En í heild má hrósa þættinum, það
var létt yfir honum og margir
frábærir skemmtikraftar komu
fram.
Dagskrá mán-udagsins var ágæt.
Þátturinn Svipmyndir virtist mér
að vísu nokkuð misheppnaður,
spurningar og svör nokkuð óeðli
legar og ákaflega ósmekklegt að
hafa sjónvarpsviðtal yfir kaffi-
borði, að minnsta kosti ef viðtöl
um sykur og mjólk í kaffið bland
ast saman við umræðurnar um
listina. Það minnir of mikið á
sum blaðaviðtöl, þar sem spyrj-
andi segir fyrst frá rjúkandi kaffi
sopanum og öllu meðlætinu, sem
á borðum sé, áður ensamtalið
hefst.
Nú eru að koma mikil þáttaskil
hjá Forsytunum. Gömlu mennirn
ir flestir ho-rfnir til feðra sinna
og ný kynslóð komin á legg. Síð-
asti þáttur var mun viðburðarík
ari en næstu þættir á undan, sem
voru hver öðrum líkir. Og alltaf
er nýrra viðburða að vænta hjá
fjölskyldunni.
Það var fróðlegt að kynnast fjöl „
skyldulífinu í Indlandi, Frakklandi,
Japan og Kanada í myndinni
Fjölskyldulíf, sem var síðust á
dagskrá á mánudaginn. Alls sttað
ar var hugsað vel um litlu börn
in, enda hefur náttúran búið svo
um hnútana, en ósköp var franska
móðirin kuldaleg við eldri börn
in sín og það var reyndar faðir
inn líka-
Ekki verður neitt minnzt á
Iþriðjudagsdagskrána í þessu
spjalli, þar sem undirrituð horfði
ekki á neitt af efni þriðjudagsins.
Og um efni miðvikudagsins er
ekki neitt sérstakt áð segja.
í dagskránni í næstu viku eru
nokkrir þættir, sem virðast for
vitriilegir, þó varla nógu margir.
Það er þá fyrst að nefna að á
mánudagskvöldið er þáttur, sem
heitir í bókaflóðinu, og í honum
hittir Markús Örn Antonsson að
máli nokkra bóksala í Reykjavík
og spjallar við pá um nýju bæk
urnar eða jólabækurnar eins og
flestum er tamast að segja um
nýútkomnar bækur í desember
mánuði. Það hlýtur að verða gam
an að þeim þætti. Það kemur
manni alltaf í jólaskap að heyra
lesið úr og rætt um jólabækurn
ar.
Á þriðjudaginn verður þáttur
inn Á öndverðum meiði, þó að
þeir þættir séu eins misjafnir og
mennirnir sem þar koma fram,
eru þeir alltaf forvitnilegir.
Það kvöld er svo einnig venju
lega Grín úr gömlum myndum,
framhaldskvikmyndin Engum að
treystta og síðast ádagskránni er
mynd um þýzka málarann Fritz
Winter. Winter var fæddur árið
1905 og meðal kennara hans voru
þeir Kandinsky og Klee. í mynd
inni segir Winter sjálfur frá ýms
um atavikum úr ævi sinni, en óint
er hlaut ekki náð fyrrr augum
Hitlers á sínum tíma.
Á miðvikudagskvöldið verður
kvikmyndin Phfft og er nafnið
nokknð skrýtið og myndin senni
Miðvikudaginn 11. des. kl. 20,40, verður sýnd bandarísk kvikmynd, sem ber
nafnið „PHFFFT“. Með aðalhlutverk fara hinir frábæru gamanleikarar
Jack Lemmon og Judy Holliday. f aukahlutverkum eru Kim Novak og Jack
Carsíon.