Tíminn - 24.12.1968, Blaðsíða 9

Tíminn - 24.12.1968, Blaðsíða 9
ÞRIÐJTJDAGTTR 24. desember 1968. Samskipti, sem byggð eru á jafnrétti og gagnkvæmum hags munum, leiða til trausts og skapa samvinnu, vináttu og ör- uggan frið, Dyggðan á réttlæti. ‘ Annar aðalræðumaður í þessu máli var eins og fyrr var getið Lady Jackson. Sag'ði hún, að enfiðleikinn í þessum efn- um væri einkum sá, að efna- hagskerfin væru uppbyggð á viðskipta- og efnalhagsgrunni einum, en hinn siðferðislega þátt vantaði. Hún rakti, að á árunum 1948—‘64 hefðu runnið til þró unarlandanna 15 billjónir doll ara árlega sem efnahagshjálp. l>ó er þess að geta, að nokkur hluti þess eru framkvæmdalán, sem ekki koma að fullum not- um fyrr en þau hafa verið greidd. Nokkur hluti þess eru hergögn, sem aldrei koma að notum, en verulegur hluti er óafturkræft og kvaðalaust. Frá 1964 hefir þessi hjálp farið stöðugt minnkandi og er nú ekki nema 10 billjónir. Orsak- f ir þess eru þær, að gefendum hefur ekki þótt nógu vel fyrir því séð, að fénu sé hagkvæm- lega varið. Frúin taidi, að þessi tortryggni væri ekki með öllu réttmæt. Dýrmæt reynsla hefði fengizt_ við þessa hjálparstarf- semi. í fyrsta lagi hefði þessi hjálp stórbætt framleiðsluhætti þessara, þjóða og að í öðru lagi hefðu komið fram nýjar ræktunaraðferðir, sem gæfu allt að fimmfalda uppskeru. Von væri um meira af því tagi og gæti það farið svo, að mat- vælaframleiðslan yrði á undan í kapphlaupinu við fólksfjölg- unina. Þrátt fyrir þetta taldi hún, að með núverandi fyrir- komulagi mundu þróunarlönd- in aldrei ná hinum þróuðu, af því að uppbygging þeirra með þessu fyrirkomulagi mundi auka svo mjög á auðsöfnun þróuðu þjóðanna, að bilið hlyti að fara síbreikkandi. Samt áleit hún, að ekki væri ástæða til að örvænta. í því efni sagði hún, að læra mætti af sögu þróuðu landanna. Sem dæmi nefndi hún, að í byrjun iðnvæðingarinnar hafí konur og börn verið látin vinna sér um megn fyrir sáralítið kaup. Og fyrir hundrað árum hafði hertoginn af Westihinster fjór TIMINN 9 ar milljónir punda í laun og skattfrelsi að auki. Á sama tíma hafði hafnarverkamaður fimmtíu pund, ef hann var heppinn. Þetta hvorutveggja er vottur um ótrúlegt misræmi í augum nútíma manna á Vest- urlöndum. Misræmi þetta hef- ur verið að verulegu leyti læk.i að. Nú trúir enginn því, að við- skiptakerfi færi okkur nægtir og farsæld af sjálfum sér. Til þess þarf ábyrgar og sameig inlegar aðgerðir. Lækningin er orðin vegna þriggja mikilvægra breytinga i efnahagsmálum. Breytinga, sem nálgast það að vera bylt- ingar. Fyrsta breytingin er al- þekkt og misjafnlega þokkuð, það er skattlagning. Ein af á- stæðunum fyrir því að Amer- íka tók hinum öru framförum, var sú, að hún var fyrsta land- ið, sem í byrjun nítjándu ald- ar varði almanna fé til skóla- halds. Menntun er undirstaða starfskunnáttu og starfskunn- áttan skilyrði fyrir öllum fram förum. Mál þetta var leyst með skattlagningu og síðan liefur sama ráð verið notað í ein- hverju formi til allra fram- fara. Annað afriðið leiðir beint af hinu fyrsta, að aukin menntun skapar efnahagsþró- un. Þriðja breytingin er enn á byrjunarstigi. Hún er sú við- leitni að tryggja atvinnu. Þessi viðleitni er viðurkenning þess, að stjórnarvöldunum sé skylt að sjá um, að auðlindir þjóð- arinnar séu nýttar til hagsbóta fyrir borgarana. Þessar þrjár róttæku breyt- ingar hafa ekki skaðað markað- inn. Þvert á móti dreifing fjár magnsins kallar á meiri fram- leiðslu. Þegar menn tala um tækni- og iðnaðarframfarir vestrænna þjóða, ættu þeir ekki að gleyma því, að þess- ar framfarir hefðu aldrei orð- i'ð án þeirra siðferðilegu og fé- lagslegu afla, sem knúðu þess- ar breytingar fram. Þessar breytingar gerast ekki af sjálfu sér eins og þegar regn fellur til jarðar. Þær gerðust aðeins fyrir siðferðilega ábyrga hugs un, sem vildi ekki láta það við- gangast, að böm væru látin deyja af þrældómi í verksmiðj- um, af því að eigendurnir töldu sig ekki geta selt vör- una ef þeir ættu að grei'ða full vinnulaun. Hví skyldum við, sem ráðum yfir 80% af fjár- magni heimsins, ekki nota þá sömu aðfferð til að bæta úr nauðsyn þróunarlandanna? Skattlagning hefur alltaf mætt mótspyrnu, en samt orð- ið til góðs þegar siðferðileg markmið hafa legið til grund- vallar. Nú segja menn, að þró- uðu löndin hafi ekki efni á að skattleggja sig vegna þróunar- landanna. Eignaaukning þró- uðu landanna nemur 13% á ári. Ef þessi lönd legðu á sig eitt prósent tekjuskatt, sam- svaraði það því, að þær gæfu gróða sinn milli jóla og páska, en það mundi samtímis stór- auka sölumöguleika þeirra til þróunarlandanna. Eða, mundi það gera út af við okkur, að borga 88 aurum (ísl.) meira fyrir hvern bolla af kaffibaun- um? Það mundi nægja til að bjarga fjárhag Afríku og Suð- ur-Ameríku. Minna má á það, að þróunarlöndin verja 150 billjónum dollai-a í herkostn- að á ári og ensku- og frönsku- mælandi þjóðir eyða 50 þús- und milljónum í tóbak og vín árlega. Ég er ekki að fást um það, en þetta sýnir ótvírætt, að þróúðu löndin hafa efna- hagslegt svigrúm til að leggja fram verulegar upphæðir til viðreisnar hinna fátæku þjóða. Hér er ekki spurningin um getu eða getuleysi. Spurning- in er um það, hve langt nær siðferðisleg ábyrgð hinna þró- uðu landa. Áður fyrr náði sið- ferðileg ábyrgð ekki út fyrir eigið fyrirtæki. í skjóli þess gátu þeir misþyrmt starfsfólki sínu. Nú nær hún að landa- mærum ríkisins og er það skatt lagningúnni að þakka og þeim sjónarmiðum, sem hún hefur skapað. En það er ekki minni fjarstæða nú a'ð láta siðferði- lega ábyrgð takmarkast af landamærum ríkisins, en það var áður að láta hana takmark ast við hagsmuni eigin fyrir- tækis. Hvort tveggja er mis- skilningur. Þessi hugsun geng- ur ekki lengur af því að heim- urinn er ekki orðinn stærri en svo, að íbúar hans verða að vera samábyrgir um velferð mannkynsins. Síðan síðasta kirkjuþing var UM KIRKJUR Hoftelgur. Áttatíu og fimm ára afmælis- Hofteigskirkju á Jökuldal var minnzt með hátíðarguðsþjónustu hinn 3. nóv. s. 1. Allt um vont færi og mikið hríðarveður á Dal var messan vel sótt, einkum létu hús freyjur ekki sinn hlut eftir liggja. Séra Einar Þorsteinsson á Eið- um flutti predikun vetrarkomunn ar á Dalnum, en sóknarpresturinn rakti sögu Hofteigskirkju. Séra Stefán Halldórsson frá Hallfreðar stöðum fékk Hofteig 1880. Hann var maður vaskur og framkvæmda samur og hófst brátt handa um endurreisn staðarkirkjunnar. Hin nýja kirkja var síðan fullbúin og tekin til allrar helgrar notkunar 1883. Prófastur séra Jón Jónsson á Hofi kom á næsta sumri og tók kirkjuna út. Taldi hana söfnuði og presti til sóma, enda sannmæli, því að Hofteigskirkja er hið prýði legasta hús að fyrstu gerð, smekk lega þiljuð með litlum palli yfir framkirkju, en rúmgóðum kór án skilrúms. Tveir 6 rúðu gluggar eru á hvorri hlið. 1931 var reistur við hana turn á stöpli. Kirkjusmiður inn var Jón Magnússon, frá Eydöl um, d. 1886. f gripum á kirkjan hina mestu gersemi þar sem er Guðbrandar biblían forna, pápiska altaristöflu auk nýrri (Effata, opnist þú eftir Lund), kaleik og stjaka gamla, 3 hökla og eru 2 þeirra mjög ó- venjulegir, gamlir gripir. Stórt og vandað orgel var keypt til kirkjunnar s. 1. vor, en fyrir 2 árum gaf Lilja Magnúsdóttir á Hvanná kirkjunni vönduð hitunar tæki. Sóknarnefndin hefur ákv. að láta fara fram viðgerð á kirkjuhús inu hið fyrsta en í Hofteigi er lénskirkja. í sóknarnefnd eru Munu ástsældir hans seint fyrnast á Dal. -=1=0 Eiríksstaðir. Kirkja á Eiríksstöðum er 55 ára, vígð 1913. Þar var að fornu bænhús, þjónað frá Mððrudal. Eiríksstaðakirkja er lítið steinhús ekki einangraðir veggir né gólf og því nokkuð erfitt að halda í góðu horfi. Var kirkjan máluð innan á s. 1. ári, en utan nú í sumar og unnu það verk 4 ungir sjálfboða liðar frá Vaðbrekku, Klausturseli og Aðalbóli. Hitunartæki hafa aldrei verið í kirkjunni fyrr en nú, er hjónin á Brú, Eiríksstöðum fram og Grund hafa gefið til henn ar vönduð kosangas-tæki. Ingi- björg JónSdóttir húsfreyja á Vað lyekku hefur saumað altarisdúk og gefið til minningar um móður sína, Jóhönnu Stefánsdóttur á Strönd. Altariskla?ði gáfu hjónin á Vaðbrekku II., en Snorri Gunn arsson saumaði. Og vandaðan hökul gáfu hjónin á Eiríksstöðum út, Hákönarstöðum báðum og Klausturseli. háð, hefur það gerzt, að menn i Karl Gunnarsson bóndi í Hofteigi, hafa komizt út í geiminn. jSem jafnframt er meðhjálpari, Jörðin hefur verið ljósmynduð Kristjana Guðmundsdóttir, Hvanná úr fjögur þúsund mílna fjar- lægð og við getum séð hana eins og litinn bolta, svipaðan veðrum gufuhvolfsins eins og hluti. Það sem Guð krefst af okkur að við fylgjumst af sið- ferðislegri ábyrgðartilfinningu með því nýja, sem er að ger- ast kringum okkur i sköpun hans. Ræður og röksemdir þessara Dómkirkjan í Uppsölum og Lilja Magnúsdóttir, en Jón Þórarinsson, Smáragrund, er safn aðarfulltrúi. Organisti kirkjunnar hefur verið um fjölda ára Þórður þunnum hjúp. Þessi hjúpur er Sigvaldason á Hákonarstöðum — öllum mönnum lífsnauðsyn og og er óhætt að fullyrða að fáar honum hefur ekki verið mis- kirkjut í landinu eigi svo bráð skipt. Við ættum alltaf að hafa færan hljómlistarmann og for- þessa mynd fyrir augum. söngvara. Einnig hefur það skeð, að vís-| indin hafa sannað, að hægt er| Síra Stefán Halldórsson naut að láta fimm öx vaxa þar sem e:gi lengi hinnar nýju kirkju, en áður óx eitt. Séu þessir nýju i honum var rutt ur embætti í möguleikar nýttir, gefa þeir | Hofteigi 1890. Krafa sóknarbarn nýja möguleika fyrir friði. —! anna um að fá að hafa hann áfram Við erum ekki að gera nýja kom til einskis. Ári síðar var sonarsyni séra Einars Hjörleifsson ar í Vallanesi, séra Einari Þórðar syni, Veittur Hofteigur. Sat hann | staðinn í 13 ár, fór þá að Mýrar stað, en dó úr berkum 1909, aö- eins 42 ára. Varð þá prestslaust í i Hofteigi um 4 ár, séra Einar Jóns ! ræðumanna áttu óskiptan hug | son í Kirkjubæ þjonaði staðnurn 1 þingsins. Það skorar þvi á allajmeðan svo var statt. 1908 kom kristna menn, að vinna gegn! séra Haraldur Þórarinsson að Hof allri útkjálkahyggju og einangr1 teigi og hélt 16 ár, síðan síra Þor i unarviðhorfum og að rekja Varður G Þormar, 4 ár Fór hann ! menn til vitundar um sameig-!að Laufásj i mlega abyrgð allra a velferð; . . . i mannkynsins Ætlazt er til að e^' setið prestur í Hofteigi síð- kirkjan beiti áhrifum sínum til an. Undanfarin 12 ár hafa 4 prest þessa á öllum sviðum þjóðlífs- ar, allir austur á Héraði þjónað kirkjunni, en 1928—-1956 hafði ; séra Sigurjón Jónsson i Kirkju I bæ allan Jökuldal í aukaþjónustu-' íns. t -=a=o Vallanes. Kirkjunni í Vallanesi hafa bor izt góðar gjafir á þessu ári. Frú Björg Jónsdóttir gaf nýja biblíu í vönduðu bandi með silfurkrossi og plötu, þar sem letrað er: Helgað minaingu séra Sigurðar Þórðarsonar prests í Vallanesi 1925-35. Var hans minnzt við há-. tíðamessu á páskum, er þessi fagra gjöf ekkju hans var þökkuð Séra Sigurður var f í Selárda) 1899. Hann vígðist aðst.prestur séra Magnúsar Blöndals í Valla- nesi 1924, fékk kallið ári síðar -»g þjónaði til æfiloka vorið 1935. Frú Björg var forsöngvari í Vallanesi og Þingmúla um 40 ára skeið. Hún býr enn í Vallanesi (Jaðri). Seinni maður hennar er Magnús Jónsson meðhjálpari Vallaneskirkju. Séra Pétur Magnússon frá Valla nesi hefur gefið kirkjunni góða gjöf, þar sem er steint gler í kór glugga í minningu móður sinn ar frú Ingibjargar Pétursdóttur Eggerz. Frú Ingibjörg var mild kona og vildi úr öllu bæta. Hún dó í Vallanesi aðeins 31 árs frá mörgum börnum. Kvenfélag Vallahrepps, undir forustu Arnþrúðar Gunnlaugsdótt ur stöðvarstjóra á HallormsstaÖ, hefur gefið kirkjunni hökul, sem Þórunn Þórhallsdóttir frá Ljósa- vatni saumaði. Er það hinn bezti gripur og bætir úr brýnni þörf, enda gamli hökullinn orðinn ófær vegna elli. Þá hefur kirkjunni enn gefizt altarisklæði, sem prestskonan saumaði. Er það í sama lit og hökullin, og til hinnar mestu prýði. Prestur og sóknarnefndir þakka allar framanskráðar gjafir. Á.J. Sigurður Pálsson.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.