Vísir - 13.08.1977, Blaðsíða 3

Vísir - 13.08.1977, Blaðsíða 3
VISIR Laugardagur 13. ágúst 1977 3 Mun meirí þorskofli en í fyrra v ' Islendingar veiddu meira en 180 tonn fyrstu fimm mónuði órsins islendingar veiddu alls rúm- lega átta hundruð tonn af fiski á tiinabilinu frá janúar til mai á þessu ári. Þar af var þorskaflinn 1X0.476 tonn, og loðna tæplega 550 þúsund tonn. Togarar veiddu alls á þessum tima rúmlega hundrað og ellefu þúsund tonn. Til samanburðar veiddu Is- lendingar rúmlega 556 þúsund tonn á sama tima árið 1976, og þS var þorskaflinn ekki „nema” 156.991 tonn. Þá var loðnuaflinn rúmlega 338 þúsund tonn, og tog- ararnir veiddu rúmlega 81 þúsund tonn. Af öðrum fisktegundum veiddum á þessu timabili á yfir- standandi ári, má nefna að átta þúsund tonn veiddust af sild, rúm 18 þúsund af ufsa, rúm 15 þúsund af ýsu og tæp 10 þúsund tonn af karfa. Minna veiddist af öðrum tegundum, samkvæmt upplýs- ingum frá Hagstofu Islands. —AH Landsmótið í golfi: Björgvin og Ragnar berjast um titilinn Munar aðeins einu höggi ó þeim eftir 54 holur og r kl. 14,30 hefst lokaslagurinn um Islandsmeistaratitilinn Það verður barátta til siðustu holu þegar þeir leika til úrslita á Landsmótinu i golfi i dag, Björg- vin Þorsteinsson, Islandsmeist- arinn frá Akureyri og Ragnar Ölafsson úr Golfklúbbi Reykja- vikur. Þeir tveir hafa nú „stungið aðra keppendur gjörsamlega af”, og mótinu lýkur i dag með einvigi þessara tveggja bestu golfleikara okkar. 1 gær léku meistaraflokks- mennirnir 18 holur, og hafa nú lagt að baki alls 54 holur. Fyrir keppnina i gær hafði Björgvin tveggja högga forskot á Ragnar, og þvi hélt hann fram á 14. holu er Ragnar vann eitt högg. Þannig hélst munurinn til loka, Ragnar kom inn á 76 höggum en Björgvin 77 og er staða efstu manna nú þessi: Björgvin Þorsteins. GA 227 Ragnar Ólafsson GR 228 AtliArasonNK 237 Sveinn Sigurbergs. GK» 238 Sigurður Thorarens. GK 239 Ekki kuðungur Haft var samband við blaðið norðan úr Eyjafirði, vegna greinar i blaðinu þar sem meðal annars var talað um fé- lagsheimilið „Kuðung” i Glæsibæjarhreppi. Félagsheimilið heitir hins vegar ekki Kuðungur, heldur Hliðarbær, og er rétt norðan Akureyrar. Ekki eittbíó heldur þrjúbíó Þau mistök uröu viö frásögn af Visisbióinu, sem verður i dag, i blaðinu i gær, að þar var sagt að myndin American Graffiti yrði sýnd klukkan eitt i dag I Laugarásbió fyrir sölu- börn Visis. Þetta er ekki rétt. Hún verður sýnd klukkan þrjú, eins og venja hefur verið á sýningum Visis á laugardög- um undanfarið. Sigurður Hafsteins. GR 240 Óttar Ingvason GR 240 Jón H. Guðlaugs NK 240 Það verður þvi algjört uppgjör hjá þeim Ragnari og Björgvin i dag, og fróðlegt að sjá hvort Ragnari tekst að stöðva sigur- göngu Björgvins á landsrhótum sem staðið hefur yfir i fjögur ár samfleytt. Þeir kappar munu hefja keppni kl. 14,30 i dag, og eru allir velkomnir i Grafarholtið til að fylgjast með þessari spenn- andi keppni. Þá verður greinilega einnig hörkukeppni um 3 sætið og marg- ir eiga þar möguleika. Aðstæður til að fylgjast með keppninni i Grafarholtinu eru mjög góðar og menn geta valið um það að vera inni i skálanum eða fylgja golf- mönnunum eftir úti á vellinum. En það verður örugglega enginn svikinn sem leggur leið sina i Grafarholtið kl. 14,30 i dag. gk- Tvð hundruð konur í óbyrgð- arslððum þinga Tvö hundruð Zonta-konur sitja þessa dagana á svæðismóti á Loftleiöahótelinu í Reykjavik. Eru þær frá öllum Noröurlönd- unum, en aðalstöðvar Zonta- hreyfingarinnar i heiminum eru i Chicago i Bandarikjunum. Zonta er alþjóðlegun félags- skapur kvenna er gegna ábyrgð- arstöðum i þjóðfélaginu, en hér á landi starfa þrir klúbbar. Starfa islenskar Zontakonur að ýmis- konar menningarmálum og mannúðarmálum, og má þvi i sambandi nefna starfrækslu Nonnahússins á Akureyri, mál- efni sjúkrahússins á Selfossi og málefni heyrnarskertra. Á þinginu i Reykjavík verða fluttir allmargir fyrirlestrar, og farið verður i skoðunarferðir um Reykjavik og nágrenni. Sjónvarpsmenn leggja leið sina gjarnan til fornfrægra sfldarplássa til þess að nota svið þeirra fyrir leiknar kvikmyndir. Sólarlagið fræga var kvikmyndaö á Iljúpuvík en nú bregða menn sér til sildar- bæjarins Siglufjarðar til myndatöku. Visismynd: JG. Nýtt sjónvarpsleikrit myndað ó Siglufirði Sjónvarpsmenn hafa verið iðnir i júlf, þótt enginn þeirra hafi ‘birst á skjánum. Unnið hefur verið að nýjum leikritum og myndum, og núna eftir helg- ina fer einmitt flokkur nianna norður á Siglufjörö til að taka upp leikrit efitir Gfsla J. Ást- þórsson. „Þetta leikrit á að gerast um 1940”, sagði Tage Ammendrup i samtali við Visi, en hann stjórnar upptökunni. „Það fjallar um ungan pilt sem kemur i kaupstaðinn til að fá lán fyrir vörubil sem hann hyggst kaupa. Það verður fylgst með þvi hvernig gengur”. „Nei, myndin á ekkert frekar að gerast á Siglufirði en ein- hvers staðar annars staðar úti á landi, en við völdum þann stað vegna þess að þar eru enn bæjarhlutar sem haldist hafa svotil óbreyttir frá þessum tima”. „Þetta verður sennilega nokkuð löng mynd já”, sagði Tage ,,en ekki hef ég samt endanlegan tima á henni núna. Hún verður filmuð i litum og leikararnir verða frá Reykjavik og einnig frá Sauðárkróki og Siglufirði. Við fáum að sjá mörg ný andlit”, sagði Tage Ammen- drup að lokum. —GA Björn Birnir. Björn Birnir sýnir í Nor- rœna húsinu Björn Birnir opnar listaverka- sýningu i Norræna húsinu i dag. Sýnir hann þar svartkritarmynd- ir og vatnslitamyndir einnig oliu- málverk og myndir málaðar með acryllitum. Björn stundaði nám við mynd- listadeild Handiða- og Myndlista- skólans og siðar við Teikni- kennaradeild sama skóla og lauk þaðan teiknikennaraprófi 1952. Arið 1955 lauk hann svo prófi sem skiltamálari og Dekoratör við Bergenholts Dekorations fag- skole i Kaupmannahöfn. Þá hefur Björn stundaö nám i innanhúss arkitektur. Hann er nú á förum til framhaldsnáms f list sinni við Indiana State University, Indiana i Bandarikjunum. stórkostlega haust mánudaginn afsláttur af öllum vörum Póstsendum Bergstaðastræti 4a Simi 14350 —AH

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.