Vísir


Vísir - 22.09.1977, Qupperneq 11

Vísir - 22.09.1977, Qupperneq 11
11: m VISIR Fimmtudagur 22. september 1977 Myndir: Einar Gunnar Einarsson Texti: Sœmundur Guðvinsson — segir Jón L. Arnason nýbakaður heimsmeistari í samtali við Vísi ,,Ég ákvaö strax aö gera mitt besta”. „Ég ákvað strax að veita öðrum þátttakend- um mótsins harða keppni og gera mitt besta/ en átti ekki von á að sigra i mót- inu"/ sagði Jón L. Arna- son, heimsmeistari ung- linga í skák þegar Vísis- menn sóttu hann heim í gærdag. Heimili Jóns og foreldrar hans, Arna Björnssonar endur- skoöanda og Ingibjargar Jóns- dóttur, var þakið blómum og anganin fyllti loftið. Heims- meistarinn var jafn hógvær og áöur, flaggaði ekkiafrekum sin- um við skákborðið að fyrra- bragöi og tók þessu öllu með jafnaðargeði. „Fyrsta skákin var viö Soppe frá Argentinu og henni lauk með jafntefli. Siðan vann ég sex skákir I röð. 1 áttundu umferð mætti ég Kasparov sem er ung- lingameistari Sovétrikjanna undir 20 ára og ég tapaöi þeirri skák. Tvær næstu skákir vann þá hvern á fætur öörum mætti hann Rússanum Kasparov, sem af flestum var talinn öruggur sigurvegari mótsins i byrjun. Jón tapar þeirri skák, hefur ef til vill ofmetið Rússann. ,,Þó tefldi hann ekki jafn sannfær- andi og ég bjóst við”, segir Jón og brosir afsakandi yfir þessari einu tapskák sinni. Nú voru bara þrjár umferöir eftir og öll þjóðin beið nú I of- væni eftir fréttum að mótinu. Enn haföi Jón forskot, en Kasparov og Whitehead höfðu einnig möguleika á sigri. 1 níundu umferðinni fór Jón hamförum á móti Pajak frá Kanada sem gafst upp eftir 10 leiki. Spennan var i algleymingi i \0. umferð og þá teflir Jón við Roman frá Frakklandi, sýnir sama öryggið og áður og sigrar þann franska i 40 leikjum. Nú var okkar maöur með einn vinn- ing yfir aðra og þegar Morovic frá Chile bauö jafntefli eftir átt- unda leik fannst Jóni óþarfi að leggja út I tvisýnu og þáði jafn- teflið. Þar með var hann orðinn heimsmeistari meö 9 vinninga af 11 mögulegum. Glæsilegur árangur það. Frækileg sigurganga Ferill Jóns L. Arnasonar við skákborðið er stórglæsilegur. Fyrir tæpu ári sigraði hann á Haustmóti Taflfélags Reykja- vikur og átti 16 ára afmæli dag- inn eftir. í janúar á þessu ári varð hann i öðru sæti á Skák- þingi Reykjavikur og sigraöi siðan á Islandsmótinu um páska. Fyrr i sumar brá hann sér vestur um haf og tók þar þátt i World open skákmóti og fékk þar sex og hálfan vinning af niu mögulegum. Siðan sótti hann Norðurlandamótið I Finn- landi og kom heim sem Norður- landameistari unglinga með sjö og hálfan vinning af 11 mögu- legum. Svo lá leiðin til Frakk- lands og þaðan kom hann sem heimsmeistari unglinga undir 17 ára aldri. Skólinn tekur viö Hvað er næst á dagskrá hjá heimsmeistaranum? „Ætli ég byrji ekki i skólan- um á morgun, en ég er á Öðru ári i Menntaskólanum við Hamrahlið og þarf að vinna upp þessar tvær siðustu vikur. Svo er ég lika i Tónlistarskólanum, að læra á pianó og þetta er fjórða áriö mitt þar. Það er enn óákveðið i hvaöa skákmóti ég tek þátt i næst.” Hver er eftirminnilegasta skákin, Jón? „Ætli þaö sé ekki úrslitaskák- in á tslandsmótinu við Helga Ólafsson, en henni lauk meö jafntefli.” Að lokum: Hefurðu hug á að snúa þér alveg að skákinni i framtiðinni? Heimsmeistarinn brosti við og dró við sig svarið. „Ja, þaö væri óneitanlega dá- litið freistandi, ef ég er nógu góður. Framtiðin verður að skera úr um það”, sagði Jón og bað um leið aö koma á framfæri þökkum til allra er sendu hon- um blóm og heillaóskir. —SG Keppt á Skeiðvelli Heimsmeistaramót unglinga fór fram i bænum Cagnes Sur Mare i Frakklandi og er bærinn á stærö við Reykjavik, stutt frá Nissa. Keppnin fór fram á skeiðvelli bæjarins, innanhúss þó, og sagöi Jón aö slangur af áhorfendum hefði jafnan fylgst með mótinu og nokkuð skrifað um það i blöö bæjarins. Hann kvað aðbúnað á keppnisstað hafa verið góðan og lét i heild vel af dvölinni. Bæjaryfirvöld önnuöust fram- kvæmd keppninnar sem haldin er á vegum Alþjóðaskáksam- bandsins FIDE og er ætlunin að heimsmeistaramót unglinga verði haldið i Frakklandi næstu fimm árin. Eftir að keppninni lauk var haldin heljarmikil veisla þar sem Jóni var afhentur veglegur bikar og heiðursmerki eitt mik- ið sem venjulega er aöeins veitt stjórnmálamönnum. En þaö er vafasamt að nokkur dimplómat hafi unnið Islandi meira gagn á árinu heldur en Jón gerði meö frammistöðu sinni og fram- göngu allri á mótinu og þvi vel að orðunni kominn. ^ Jón hampar heimsmeistarabikarnum innan um hluta af blómunum. ég og þeirri siðustu lauk með jafntefli”, sagði Jón þegar ég spurði hvernig mótið hefði gengið. Fannst honum nánast óþarfi að hafa um þetta fleiri orð, svona gekk þetta og litil ástæða til að fjölyrða um mótið. Mótið sjálft var erfiðast um miðbikið. Þá tefldi ég biðskákir fjóra morgna i röð og þær byrj- uðu klukkan átta en eftir hádeg- iö var svo næsta umferð tefld. Ég var þvi að tefla mestan hluta dagsins og svo þurftum við Margeir Pétursson, sem var að- stoðarmaður minn, að liggja yf- irbiðskákunum á kvöldin. Þetta var þvi ansi langur vinnudagur og þreytandi til lengdar”, sagöi Jón L. Arnason. Sem fyrr segir gerði Jón jafn- tefli I fyrstu umferð við Soppe frá Argentinu. Siöan vann hann Delaney frá Irlandi, Leski frá Frakklandi, Zuger frá Sviss, Whitehead frá Bandarikjunum, Kappe frá V-Þýskalandi og Negleschu frá Rúmeniu. Þegar hann hafði þannig lagt

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.