Vísir - 07.10.1977, Qupperneq 3
VISIR Föstudagur 7. október 1977
3
Stjórnsýslu er œtlað
svœði við Lindargötu
—segir Birgir ísleifur Gunnarsson borgarstjóri
Rafmagnsveita
Akureyrar
vill hœkka
rafmagnsverð
Stjórn R afm agnsv eitu
Akureyrar hefur ákveðió aö
sækja um 7.5% hækkun á raf-
magnstöxtum sinum vegna
hækkunar á rafmagnsverði
frá Laxárvirkjun á heildsölu-
verði.
Þá hefur stjórnin einnig
samþykkt að sækja um 12%
hækkun að auki, til þess að
geta aukið ráðstöfunartekjur
Rafveitunnar um 126 milljónir
króna.
Ennfremur hefur stjórn
Rafveitu Akureyrar ákveðið
að fækka gjaldliðum i gjald
skrá Rafveitunnar. — AH
„tJt af fyrir sig sé ég ekkert
athugavert við það að einhver
ráðuneytanna dreifist eitthvaö
um borgina,” sagði Birgir ís-
leifur Gunnarsson borgarstjóri,
er Visir'spurði hann álits á þvi
aðráðuneyti flytjist úr miðbæn-
um.
Birgir sagði að samkvæmt
aðalskipulagi hefði verið breytt
um notkun svæðisins milli
Skúlagötuog Lindargötu, þann-
ig að þar yrði opinber stjórn-
sýsla I stað iðnaðarhdsnæðis
einsogáðurhafði verið ákveðið.
Þarna ætti rikið allmikið af
lóðum og væri hugsunin sú að i
framtiðinni teygðist hUsnæði
stjórnsýslunnar frá Arnarhvoli
þarna niður eftir.
„Það erhins vegar óvist hvort
þetta svæöi dugarfyrir öll ráðu-
neytin um alla framtiö, auk þess
sem erfitt er að beina þeim öll-
um að þessum litla bletti,”
sagði borgarstjóri. „Þar fyrir
utan er ekki hægt að byggja á
þessum lóðum núna, þar sem
rikið notar þær til annarra hluta
eins og er.”
-SJ
Sjálfstœðismenn í Reykjavík:
Hafa ákveðið
að hafa
prófkjör
Fulltrúaráð sjálfstæðisfélag-
anna í Reykjavik ákvað á fundi
sinum i fyrrakvöld að efna til
prófkjörs við val framboðslista
Sjálfstæðisflokksins við Al-
þingiskosningarnar i vor. Á
sama fundi var einnig ákveöið
að efna til prófkjörs um val
frambjóðenda flokksins viö
borgarstjórnarkosningarnar
sem fram fara i vor.
Prófkjörið fyrir Alþingis-
kosningarnar fer fram dagana
19., 20. og 21. nóvember næst-
komandi en prófkjör vegna
borgarstjórnarkosninganna fer
fram i marsmánuði á næsta ári.
Samþykkt var á fundinum að
kosningarétt i prófkjörinu hafi
allir Reykvikingar sem hafa
kosningarétt við kosningamar i
vor, jafnt flokksbundnir sem
óflokksbundnir, séu þeir yfir-
lýstir stuðingsmenn Sjálfstæðis-
flokksins. Þá hafa allir flokks-
bundnir sjálfstæðismenn I
Reykjavik á aldrinum 18 ára til
tvitugs kosningarétt.
A fundinum kom fram tillaga
frá Kjartani Gunnarssyni for-
manni Heimdallar, þess efnis,
að kosningarétt skyldu allir
flokksbundnir sjálfstæðismenn
hafa. Það hefði þýtt það að
aldurshópurinn 16 til 18 ára
hefði einnig fengið að kjósa.
Þessi tillaga var felld.
Þá kom fram tillaga frá
Baldri Guðlaugssyni, lög-
fræðingi um að gera skyldi
spurningar um stjórnmálaleg
efni sem kosið væri um um leið
og kosið væri í prófkjöri. Hefur
Baldur meðal annars kynnt
þessar hugmyndir sinar I grein I
Visi nú nýlega.
Tillaga Baldurs hlaut góðar
undirtektir og var samþykkt að
visa henni til stjórnar fulltrúa-
ráðsins sem skyldi kynna sér
tillöguna og framkvæmd hennar
og siðan leggja hana fyrir annan
fulltrúaráðsfund.
Itillögu Baldurs var gert ráð
fyrir þvi að unnt sé að bera upp
spurningarmeð þessum hættief
300 flokksbundnir sjálfstæöis-
menn skrifi undir hana enda sé
tryggt aö hún sé hlutlaust orðuð,
og getur kjörnefnd þá lagfært
spurningar ef þurfa þykir.
Kjörgengi hafa allir flokks-
bundnir sjálfstæðismenn sem
kjörnefnd setur inn á lista eða
hafa tilskilinn meðmælenda-
fjölda. Kjósendur eiga að
merkja kross fyrir framan nöfn
þeirra er þeir kjósa en niimera
þá.
—AH
Lömb hrynja
úr garnafóri
Þistilfirði
Garnafár herjar nú á sauðfé
bænda I Þistilfirði, og hafa allt
að tiu lömb drepist á sumum
bæjum úr veikinni. Hefur veik-
innar oröið vart eftir að lömbin
hafa verið settá tún eftiraö þau
koma af fjalli.
1 viðtali við blaðið íslending á
Akureyri segir Jóhannes SigfUs-
son, bóndi og sláturhússtjóri á
Þórshöfn, að garnaeitrun þessi
stafi af sýkli sem sé alltaf til
staðar i meltingavegi lamb-
anna, en hann veldur eitrun við
snögga fóðurbreytingu eins og
þegar fé fer af afrétti á ræktar-
land.
Verkanir veikinnar eru mjög
niður
W
I
fljótar aö koma i ljós, og yfir-
leitt drepast lömbin tveimur til
þremur timum eftir að fyrstu
sjúkdómseinkenni koma í ljós.
Veikinnar varð einnig vart á
þessum slóðum I fyrrahaust, en
var þá ekki eins útbreidd og nú.
Ekki hefur borið árangur að
gefa fénu inn bóluefni viö
garnafri þessu enn sem komið
er að minnsta kosti.
Tjón þeirra bænda sem missa
mörg lömb með þessum hætti er
mjög tilfinnanlegt, en verð til
bænda á hvern dilk sem slátrað
erum það bil 10 þúsund krónur
til jafnaöar. — AH
NESTI , AUSTURVERI SÍMI 33615 OPIÐ KL. 8.00-23.30