Vísir - 07.10.1977, Blaðsíða 24
VÍSIR
SMAAUGLYSINGAHAPPDRÆTTI VISISI
15. okt. verða dregin út ® KENWOOO hljómflutningstœki
fré FÁLKANUM
Ærn Athugið! Eingöngu verður dregið úr númerum greiddra auglýsinga.
atmmmmmmmmammm
■■■■■■■
sími
86611
Opið virka daga til kl. 22.00
Laugardaga kl. 10-12
Sunnudaga kl. 18-22
Tölvurannsókn á framburðum ákœrðu:
Engin sjálfstœð frásðgn
í framburði Sœvars
Tveir á
sjúkrahús
eftir
árekstur
Samkvæmt tölvurann-
sókn á framburðum sak-
borninga i Guðmundar-
og Geirfinnsmálum er
ekki til sjálfstæð frásögn
i framburði Sævars Ci-
esielski. Þar virðist svo
til allt vera komið frá
öðrum og ekki er um
beina frásögn Sævars að
ræða, sagði Jón Oddsson
hæstaréttarlögmaður,
verjandi Sævars i varn-
arræðu sinni i gær.
Gagnrýni verjenda hinna á-
kærðu á rannsókn þessara mála
hefur verið mjög hörð. t ræðu
Hilmars Ingimundarsonar hæsta-
réttarlögmanns, verjanda
Tryggva Rúnars Leifssonar, kom
fram að Tryggvi Rúnar var tek-
inn til yfirheyrslu 68 sinnum án
þess að verjandi væri viðstaddur
og litið sem ekkert fært i skýrslur
um þessar yfirheyrslur. Þá hefðu
mikilvæg gögn týnst i höndum
rannsóknarlögreglu og játningar
þvingaðar fram með hótunum.
Greinilegt væri að sakborningar
hefðu verið leiddir við yfirheyrsl-
ur. Krafðist Hilmar þess að skjól-
stæðingur sinn yrði sýknaður af
ákæru i Guðmundarmálinu.
Jón Oddsson flutti vörn i ákæru
á hendur Sævari varðandi Guð-
mundarmálið i gær, svo og önnur
meint afbrot Sævars sem ákært
er i um leið. í morgun hélt Jón
siðan áfram og ræddi þá Geir-
finnsmálið.
Minnk-
andi
atvinnu-
leysi
Atvinnuleysi var
talsvert minna í lok
séptember en það var
mánuði áður. í
septemberlok voru alls
184 atvinnulausir á
landinu, en voru mán-
uði áður 231 talsins.
Flestir voru án atvinnu i
Reykjavik, eða 50 manns, en
voru 53 i mánuðinum áður. t
Keflavik voru 12 manns á at-
vinnuleysisskrá, og 10 i
Hafnarfirði, og 11 á Vopna-
firði, en mun færri annars
staðar á landinu, nema i
Ólafsvik, en þar voru 26
manns atvinnulausir og á
Eyrarbakka, en þar var
hvorki meira né minna en 31
maður atvinnulaus en 39,
mánuði áður.
Atvinnuleysisdagar i
septembermánuði voru hins
vegar fleiri en i mánuðinum
á undan, eða 3.807 á móti
2.532.
—AH
ó Akureyri
Harður árekst-
ur í nótt
Harður árekstur varð á mótum
Miklubrautar og Grensásvegar i
nótt. Kona var flutt á slysadeild
eftir áreksturinn og hafði hún
fengið höfuðhögg.
Það voru tveir fóiksbilar sem
þarna lentu saman og mun hafa
orðið mikið tjón á bilunum. Talið
er að annar þeirra hafi farið yfir á
rauðu Ijósi.
—EA
Strákur eða stelpa? Við getum vist ekki upplýst lesendur um það. En alla vega virðist blessuðu
barninu hafa brugðið, þegar Jens ljósmyndari stillti sér upp og setti upp undarlegt andlit fyrir
framan þar sem barnið sat i kerrunni sinni i mestu makindum og átti sér einskis ills von.
Skemmdar-
verk á
mannlausu
húsi
Tilkynnt var um skemmdar-
verk á mannlausu húsi i eigu
borgarinnar til lögreglunnar i
gær Höfðu flestar rúður I húsinu
verið brotnar og útihurð hafði
verið brotin upp. Húsið sem er
gamalt, stendur við Arhæjarblett
7 og hefur það ekki verið i notkun
all-lengi. — EA
Verjfendur benda á, er þeir
gagnrýna frumrannsókn málsins,
að eftir að rikissaksóknari gaf út
ákæru i málunum hafi dómurinn
orðið að láta fara fram umfangs-
mikla dóms-og lögreglurannsókn
þar sem fyrri rannsókn hafi verið
svo mjög áfátt. Þá hefur komið
fram að bæði Erlu Bolladóttur og
Albert Klahn var sleppt úr gæslu-
varðhaldi án vitundar dómara.
Verjandi Sævars krafðist sýkn-
unar varðandi Guðmundar- og
Geirfinnsmálið og vægustu refs-
ingu til vara. Hann gagnrýni
mjög aðbúnað Sævars i Siðu-
múlafangelsinu þar sem Sævar
hefurnúdvaliðifastað 700 sólar-
hringum. Væri honum bannað að
fá bækur til lesturs og hann fengi
aðeins Morgunblaðið eitt blaða.
Sævar neitaði nú aðild að Geir-
finnsmálinu og einnig Guðmund-
armálinu og segir fyrri játningar
fengnar með þvingunum og hót-
unum.
Við málflutning i gærmorgun
vorumættir þrir menn frá ákæru-
valdinu, Þórður Björnsson rikis-
saksóknari, Bragi Steinarsson,
vararikissaksóknari og Jónatan
Sveinsson, fulltrúi. Gæslufang-
arnir Sævar, Kristján og Tryggvi
fylgjast með málflutningi á degi
hverjum. Þegar Jón Oddsson hef-
ur lokið máli sinu i dag flytur
verjandi Guðjóns. Skarphéðins-
sonar, Benedikt Blöndal hæsta-
réttarlögmaður sina ræðu.
— SG
Sjá nánar á
bls. 10-11
Harður árekstur
varð á Akureyri í gær-
dag. Hann varð á
Skipagötu þar sem
lentu saman fram-
byggður jeppi og fólks-
bíll. Þrír voru f luttir á
sjúkrahús eftir árekst-
urinn, en einn þeirra
fékk að fara fljótlega.
Talsverðar skemmdir
urðu á bílunum.
—EA
„VERKFALLSRÉTTUR OPINBÍRRA
STARFSMANNA Á FKKI RÉTT Á SÉR"
segir Albert Guðmundsson alþingismaður
,,Ég tel að það sé orðið
augljóst að lítið þjóðfelag
og okkar þolir ekki verk-
fall opinberra starfs-
manna og þau lög sem
eru slæm f yrir okkur þarf
að afnema," sagði Albert
Guðmundsson alþingis-
maðurá fundi með Lions-
klúbbnum Baldri í gær.
Albert sagði ennfremur á
fundinum að alþingismenn
kepptust sifellt við að bera fram
ný lög. Þvi væri orðið mikið af
lögum sem þyrfti að endur-
skoða, samræma og afnema.
Meðal þessara laga væru lög um
verkfallsrétt opinberra starfs-
manna.
Hann sagðist hafa staðið að
þessum lögum, en nú liti hann
sjálfur að hann hefði gert rangt
'og að verkfallsréttur opinberra
starfsmanna i þjóðfelagi eins og
okkar eigi ekki rétt á sér.
Visir bar þessi ummæli undir
Albert Guðmundsson i morgun
og staðfesti hann þau, en að-
spurður kvaðst hann ekki hafa
tekið ákvörðun um það hvort
hann myndi beita sér fyrir þvi á
Alþingi að lögin yrðu afnumin.
—SJ
m-----------------►
Albert Guðmundsson hef-
ur enn ekki ákveðið hvort
hann ætlar að beita sér
fyrir því að lögin verði
afnumin.