Vísir - 07.10.1977, Page 13

Vísir - 07.10.1977, Page 13
Föstudagur 7. október 1977 VISIR VÍSIR Föstudagur 7. oktöber 1977 Ipróttir i- 13 ) Við eigum oð vinna í þessum leik — segir Örn Hallsteinsson þjálfari FH í hand- knattleik sem leikur í Hafnarfirði á morgun gegn finnska liðinu Kiffen „Við eigum að vinna þennan ieik, og að minu mati er þetta einungis spurning um hvort okkur tekst að sigra það stórt á laugardaginn að það nægi okkur i leiknum i Finnlandi og til þess að kom- ast áfram i 2. umferð”, sagði örn Hall- steinsson, þjálfari handknattleiksiiðs FH sem Icikur gegn finnska liðinu Kiff- en i iþróttahúsinu i Hafnarfirði á morg- un kl. 15 fyrri leik liðanna i Evrópu- keppni bikarmeistara. „Við teflum nú fram okkar sterkasta liði ifyrsta skipti á keppnistimabilinu”, sagði örn. „Það hafa ávallt verið ein- hverjir meiddir, en nú eru allir heilir og það eykur að sjálfsögðu á bjartsýnina.” Vissulega ættu FH-ingar að eiga góð- an möguleika á sigri i leiknum á morg- un, ekki síst ef áhorfendur verða margir og láta vel í sér heyra. Slikt er á við nokkur mörk í handboltanum. En i liði FH i leiknum á morgun verða þessir leikmenn: Birgir Finnbogason Magnús Ólafsson Geir Hallsteinsson Auðunn Óskarsson Sæmundur Stefánsson Vignir Þorláksson Guðmundur Magnússon Guðmundur Stefánsson Þórarinn Ragnarsson örn Sigurðsson Valgarð Valgarðsson Janus Guðlaugsson Að einu leyti standa Finnar þó betur að vigi. Þeir eru með 10 landsliðsmenn á móti 5landsliðsmönnum FH, en ætli það komi ekki þar upp á móti að landslið okkar hefur verið til muna sterkara en það finnska fram að þessu. Þeir FH-ingar voru mjög óhressir með aðsókn Hafnfirðinga á Evrópuleiki sina i fyrra, þeir fengu ekki fullt hús i „handknattleiksbænum” mikla, en þeir reyna aftur i trausti þess að vel verði stutt við bakið á þeim af áhorfendum. Um finnska liðið er litið vitað nema að það hefur verið i fremstu röð i Finnlandi undanfarin ár, og nokkrir leikmanna liðsins verða með hér á Norðurlanda- mótinu i næsta mánuði. En takist Geir Hallsteinssyni og félög- um hans vel upp á morgun þá ætti FH að vinna sigur, en það er eins og örn þjálf- ari sagði, aðeins spurning um hvort sig- urinn verði nægilega mikill til aö kom- ast áfram i keppninni. gk—• Geir Hallsteinsson á fullri ferð. í dag fær Geir það verkefni að leiða FH-liðiö til sigurs gegn finnsku bikarmeisturunum Kiffen þegar liðin mætast I Evrópu- keppni bikarhafa I Hafnarfirði. — Ljósm. Einar. Missið ekki af Heigarblaðinu ó morgun Helgarbiaðið fyigir iaugardagsbiaði Vísis Tveir leikir voru háðir i Reykjavikurmótinu i körfuknatt- leik i gærkvöldi. Valur sigraði ÍR með 87 stigum gegn 73. KR-ingar hafa nú tekið forustuna i mótinu, eru með fjögur stig eftir tvo leiki, en Valsmenn hafa einnig fjögur stig — en að ioknum þremur leikj- um. Valsmenn höfðu yfirburði i leik sinum við 1R. Þeir komust i 38:15 og skiptu siðan öllum varnar- mönnum inná og við það jafnaðist leikurinn og staðan i hálfleik var 45:35. 1 siðari hálfleiknum byrjaði aðalliðið aftur hjá Val og staðan breyttist i 79:53, en IR-ingar náðu siðan að laga stöðuna aðeins gegn varamönnum Vals siðustu minút- urnar og lokatölurnar urðu 87:67. Rick Hockenos var stighæstur Valsmanna með 20 stig, og það sem meira var. Hann hitti 10 af 11 skotum sinum, og stjórnaði öllu spili liðsins af festu. Hjá 1R var Erlendur Markús- son stighæstur með 24 stig. KR-Ármann 92:73 KR-ingar höfðu ávallt yfirhönd- ina gegn Ármanni, sem léku nú með Bandarikjamanninum Mich- ael Wood i fyrsta skipti. Ármenn- ingarnir léku nú til muna betur en gegn Fram á dögunum. Staðan i hálfleik var 47:32 fyrir KR-inga oglokatölurnarur u sem fyrr sagði 92:73, en leikur- inn i heild var ekki skemmtilegur á að horfa, ekki spennandi og á köflum ekki vel leikinn. Andrew Piazza var stighæstur • KR-inga með 27 stig þótt skota- nýtingin væri ekki góð, en hjá Toppliðin berjast Fjórir leikir verða leiknir I 1. deild tslandsmótsins um helgina, og mun athyglin aðallega beinast að einum þeirra, leik Vals og Vik- ings, þótt hinir ieikirnir séu að sjálfsögðu áhugaveröir. A morgun leika i Laugardals- höllinni Vikingar og nýliðar Ar- manns, og verður fróðlegt að sjá hvað Ármenningar gera á móti silfurliðinu frá i fyrra. Strax á eftir leika svo hinir nýliðarnir i deildinni við tslandsmeistarana, en það eru semsagt KR og Valur sem þá leika. Verður ekki siður fróðlegt að sjá hvað KR-ingar gera nú i sinum fyrsta leik eftir langa fjarveru, en þeir hafa búið sig mjög vel undir hina hörðu keppni i 1. deildinni, m.a. farið i keppnis- og æfingaferð til V- Þýskalands. Á sunnudagskvöldið verður keppninni haldið áfram og þá leiknir tveir aðrir leikir. Fyrri leikurinn er á milli Fram og Hauka, leikur sem ætti að geta orðið afar spennandi eftur fyrsta leik liðanna i mótinu að dæma, en að honum loknum kemur svo leik- urinn sem beðið er eftir, leikur tveggja efstu liðanna frá fslands- mótinu siðasta, Vals og Vikings. Vikingar eru fyrir þennan leik stóra spurningarmerkið i sam- bandi við leikinn. Þeir hafa ekki leikið opinberlega fyrr á keppnis- timabilinu, en hafa að sögn hafið æfingar fyrir nokkru siðan af full- um krafti. Valsmenn hafa einnig æft vel og hafa leikið einn leik, við FH i meistarakeppninni, leik sem þeir unnu örugglega. Leikirnir á morgun hefjast kl. 17, en á sunnudag byrjar slagur- 'inn kl. 20.15. Aðalskoðun bifreiða í Reykjavík í októbermánuði Fimmtudagur 6. okt. R-47801 til R-48100 Föstudagur 7. okt. R-48101 til R-58400 Mánudagur 10. okt. R-48401 til R-48700 Þriðjudagur 11. okt. R-48701 til R-49000 Miðvikudagur 12. okt. R-49001 til R-49300 Fimmtudagur 13. okt. R-49301 til R-49600 Föstudagur 14. okt.R-49601 til R-49900 Mánudagur 17. okt. R-49901 til R-50200 Þriðjudagur 18. okt. R-50201 til R-50500 Miðvikudagur 19. okt. R-50501 til R-50800 Fimmtudagur 20. okt. R-50801 til R-51100 Föstudagur 21. okt. R-51101 til R-51400 Mánudagur 24. okt. R-51401 til R-51700 Þriðjudagur 25. okt. R-51701 til R-52000 Bifreiðaeigendum ber að koma með bif- reiðar sinar til bifreiðaeftirlitsins, Bilds- höfða 8, og verður skoðun framkvæmd þar alla virka daga kl. 08:00 til 16:00. Bifreiðaeftirlitið er lokað á laugardög- um. Festivagnar, tengivagnar og far- þegabyrgi skulu fylgja bifreiðum til skoð- unar. Við skoðun skulu ökumenn bifreiðanna leggja fram fullgild ökuskirteini. Sýna ber skilriki fyrir þvi, að bifreiðaskattur og vá- trygging fyrir hverja bifreið sé i gildi. Athygli skal vakin á þvi, að skráningar- númer skulu vera læsileg. Vanræki einhver að koma bifreið sinni til skoðunar á auglýstum tima verður hann látinn sæta sektum samkvæmt um- ferðarlögum og bifreiðin tekin úr umferð hvar sem til hennar næst. Þetta tilkynnist öllum, sem hlut eiga að máli. Lögreglustjórinn i Reykjavik, 5. október 1977 Sigurjón Sigurðsson. m ■ Egill var fyrsta atómskóldið n — segir Helgi Sæmundsson, ritstjóri m.a. í sam- tali við Elías Snæland Jónsson, blaðamann, þar sem rætt er um stjórnmála- og menningarþróun á is- landi. — HVER ERU UPPÁHALDSFÖT TISKU- LEIÐTOGANNA— Sigurveig Jónsdóttir, blaða- maður ræðir við eigendur f jögurra tískuverslana um uppáhaldsklæðnað þeirra sjálfra. — GAMLI MELAVÖLLURINN — Gylfi Kristjánsson, blaðamaður kannar sögu Mela- vallarins, sem lengi hefur sett svip á borgarlifið í Reykjavík, en framtíð vallarins hefur verið í brennidepli að undanförnu. — Þá skrifar Davíð Oddsson þátt sinn Af fólki og heitir hann að þessu sinni „FÆSTIR ERU EINSOG FÓLK ERFLEST". Þátturerum Líf og heilsu og fleira. Auðvelt hjá KR og Val Ármanni var Wood stighæstur með 22 stig. gk-. Sending að sunnan 1. deildarliði Þórs i körfuknatt- leik bættist óvæntur liðsauki nú i vikunni, en þá tóku þeir sig upp Jón Indriðason ÍS og Jóhannes Magnússon, Val og fluttu norður á Akureyri þar sem þeir ætla að dvelja I vetur og leika með Þórs- urunum. Þeir hafa báðir leikið i meistarafiokki i mörg ár og Jó- hannes hefur leikið nokkra lands- leiki. Þeir ættu þvi að geta orðið Þórsliðinu talsverður styrkur ef allt fer að óskum. Jón mun vera búinn að fá at- vinnu fyrir norðan en Jóhannes ætiar aðeins að sjá til, hversu landið liggur. gk—• Tíu mðrk í röð of mikið fyrir Hauka — og Kínverjarnir sigruðu örugglega 32:25 Kinverska landsliðið i hand- knattleik sigraði 1. deildarlið Hauka örugglega i iþróttahúsinu i Hafnarfirði i gærkvöldi. Lokatöi- urnar urðu 32:25 fyrir kinverska liðið og var sá munur sist of mik- ill, miðað við gang leiksins. Það sem gerði fyrst og fremst útaf við Hauka i þessum leik var afleitur leikkafli i fyrri hálfleik þegar þeir fengu á sig tiu mörk i röð án þess að þeim tækist að svara fyrir sig. Til að byrja með var leikurinn nokkuð jafn, en þegar tiu minútur -<-------------------m. Ingimar Haraldsson i dauðafæri á linunni og boltinn hafnaði i kin- verska markinu stuttu siðar. — Ljósm. Einar. voru liðnar og staðan 5:6 fyrir kinverska liðið fór allt i baklás hjá Haukunum — Kinverjarnir skoruðu þá tiu mörk i röð, og breyttu stöðunni I 5:16 — og gerðu þar með endanlega út um leikinn. I hálfleik var staðan 17:10, og i lokin var munurinn lika sjö mörk 25:32, en þó náðu þeir kinversku tvivegis tiu marka forskoti 15:25 og 22:32. Þetta var fyrsti sigur kinverska liðsins hér á landi, en liðið hafði áður tapað tvisvar fyrir landslið- inu. Leikurinn i gærkvöldi var vel leikinn af hálfu kinverska liðsins sem sýndi stórgóða leikkafla. Leikur þess er afar hraður, alltaf eru reynd skyndiupphlaup, sókn- irnar mjög stuttar, en samt er leikur liðsins ákaflega vélrænn. Það vinnur nánast eins og vel smurð vél — og vart er hægt að merkja svipbrigði á leikmönnum þess á hverju sem gengur. Haukaliðið átti afleitan leik að þessu sinni og munaði mestu um að sóknarleikurinn var gjörsam- lega i molum i fyrri hálfleik. Liðið náði sér þó nokkuð á strik i siðari hálfleik, en datt svo niður á milli. Kinverska liðið er skipað mjög jöfnum leikmönnum, en þó skera tveir sig greinilega úr, mark- vörðurinn og leikmaður númer sjö sem er vinstri handar skytta. —BB Allir þeir sem birta smáauglýsingu í VÍSI á tímabilinu 15-9 til 15-10 -77 veróa sjálfkrafa þátttakendurí smáauglýsingahappdrætti VÍSIS Smáauglýsing í VÍSI erengin auglýsing

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.