Vísir - 07.10.1977, Page 17

Vísir - 07.10.1977, Page 17
VISIR Föstudagur 7. október 1977 17 Þrótt fyrir hœkkað gengi minnkar útflutn ingur Japana ekki V* V GENGIOG GJALDMIÐLAR Enn versnaöi gengi dollarans á gjaldeyrismörkuðu I gær. Var það helst fyrir tilstilli japanska yensins. Þó keypti japanski seðlabankinn um 400 milljónir doliara, en það dugði ekki til og fór gengi dollars niður fyrir mörkin sem sett voru við 260 yen fyrir hvern dollar. Japanski aðstoðarráðherr- ann, Toshinobu Wada, sagði i gær að hækkun yensins lýsti raunverulegum styrk japanskra efnahagsmáls. NU væri um að gera að aðlaga japanskt sam- félag þessu háa verði Yensins. Yfirlýsingar ráðherrans eru óvenjulegar, en innihald þeirra er i samræmi við niðurstöður athugunar sem birt var nýlega á samkeppnisaöstöðu japanskra útflytjenda. Athugunin sýndi að útflytjendur myndu ekki missa pantanir þó yenið hækkaði. Sérfræðingar ósammála Sérfræðingar i gjaldeyrisvið- skiptum i Japan skiptist i tvo hópa þessa dagana og hefur hvor hópur sitt álit á framtið Yensins. Annar hópurinn telur að yenið muni halda áfram að hækka, þar sem Bandarikin vilji þrýsta Japönum til að láta yenið fljóta upp á við. Það getur hjálpað til við að minnka halla ameriska greiðslujafnaðarins og minnka afgang Japana. Þessi hópur tel- ur að eina leiðin til aö skapa jafnvægi sé sterkara Yen. Hinn hópurinn telur að þetta hafi gengið of hratt fyrir sig og að dollarinn jafni sig bráðlega. Þrýstingur viða að Það var ekki aðeins þrýsting- ur á dollarann i Japan, heldur einnig i Stóra-Bretlandi og i öðr- um gjaldeyrisrikum löndum i Evrópu urðu Seðlabankarnir að kaupa dollar honum til stuðn- ings. í Bretlandi varð gengi punds gagnvart dollar nærri 1.76. Svissneski frankinn var kominn niöur i 2,32 fyrir hvern dollar og þýska markið komst niður i 2.2902 gagnvart dollar. 1 gjaldeyrissnáknum sendi danska krónan belgiska frank- ann niður á botn og liklega hafa farið fram viss stuðningskaup til að halda bilinu milli krónunn- ar og belgiska frankans innan leyfðra marka. Nýjar tölur frá Vestur-Þýska- landi sýna að framleiðslan inn- an iðnaðarins stendur i stað. Pantanir jukust nokkuð I ágúst, en eftir minnkunina i júli, sem var mikil, eru pantanir enn mun minni en áður var. Nýju tölurn- ar staðfesta ört vaxandi efa- semdir gagnvart efnahagsþró- uninni i Vestur-Þýskalandi. Peter Brixtofte Sj þýddi. GENGISSKRANING Gengið nr. 189 Gengi Nr. 190 5. okt. kl. 12. 6. október kr. 12 1 Bandarikjadollar ... 208.40 208.90 208.40 208.90 1 Sterlingspund 367.10 366.85 367.75 1 Kanadadollar ... 193.10 193.60 191.50 192.00 lOODanskar krónur ... 3391.85 3399.95 3404.25 3412.25 100 Norskar krónur ... 3785.65 3794.75 3798.10 3807.20 100 Sænskar krónur ... 4322.00 4332.40 4336.70 4347.10 100 Finnsk mörk ... 5016.85 5028.95 5035.05 5047.05 100 Franskir frankar .... ... 4255.70 4265.90 4276.15 4286.45 100 Belg. frankar 585.65 586.40 587.80 100 Svissn. frankar ... 8909.40 8930.80 8968.25 8989.75 lOOGyllini 8523.25 8552.75 8573.25 100 V-þýsk mörk ... 9141.20 9062.90 9093.70 9115.50 lOOLirur 23.69 23.66 23.72 100 Austurr. Sch ... 1266.85 1269.95 1273.45 1276.45 100 Escudos ... 512.65 513.85 513.25 514.45 lOOPesetar 247.15 246.80 247.70 100 Yen 80.03 80.45 80.64 Skáld vikunnar Hjálmarsson SAMTÖK ÁHUGAFÓLKS UM ÁFENGISVANOAMÁLIÐ Góð ryðvörn tryggir endingu og endursölu BILARYÐVORNhf Skeifunni 17 a 81390 þilíuríjúöuf Brautarholti 6, III h. Simi 76811 Móttaka á gömlum munum: Fimmtudaga kl. 5-7 Föstudaga kl. 5-7 e. VIÐ ÞORNAÐAN FARVEG Lækjarins bylgjubragur við bakkann ei heyrist meir. í sæ hinnar sömu þagnar minn söngur deyr. Lyngið man ekki lengur þá lind, sem er framhjá streymd. Eins verður yður bráðum min ævi gleymd. Flóð mun að nýju fylla hvern farveg i leit að sæ. Samt verður aldrei sungið með sama blæ. Úr bókinni Við brunninn (1960) I Smurbrauðstofan BJORIMirSJN Njálsgötu 49 - Simi 15105 BLAÐAMENN OSKAST Vegna fjölgunar á ritstjórn óskar Vísir eftir að ráða blaðamenn til starfa. Um- sóknir er tilgreini aldur, menntun og fyrri 'störf sendist ritstjórn Vísis, merkt blaða- mannsstarf, fyrir 15. október n.k. VÍSIR UMBOÐSMENN ÓSKAST í STYKKISHÓLMI 0G HÚSAVÍK V SIMI 86611

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.