Vísir - 14.12.1977, Blaðsíða 1
Miðvikudagur 14. desember 1977 — 311. tbl. 67. árg.
ÓVÍST UM AFDRIF FLUGMANNSINS:
NAUDLENTI í ROKI OG STÓR-
SJÓ ER BENSÍNIÐ ÞRAUT
Skip eru í námunda við
litlu flugvélina sem nauð-
lenti á hafinu út frá Kefla-
vík í nótt. Ekkert hefur
heyrst frá flugmanninum
eftir að vélin lenti í sjón-
um, en ógerlegt er að kom-
ast að henni fyrr en eftir
að birtir, vegna veðurs og
sjógangs. Tómur gúmbát-
ur f annst á þessum slóðum
en ekki vitað hvort hann er
úr flugvélinni.
Flugvélin var á leið frá Gander
á Nýfundnalandi til Reykjavikur
og þaðan var ferðinni heitiö á-
fram, til Evrópu. Vélin er eins
hreyfils af gerðinni PA 28 Chereo-
kee og flugmaðurinn bandarisk-
ur.
Hann hreppti mikinn mótvind
og ísingu á leiðinni til landsins og
lét vita aö bensin myndi ef til vill
þrjóta áður en hann kæmist inn
yfir land. Flugvél frá varnarlið-
inu á Keflavlkurflugvelli fór á
móti vélinni og fylgdi henni áleiö-
is til lands. Þegar flugvélarnar
voru 19,5 milur frá Keflavik var
litla vélin orðin bensinlaus.
Klukkan var þá 2,55 og þremur
minútum siöan lenti flugvélin á
sjónum. Þarna var mjög hvasst,
sjö vindstig og éljagangur. Þyrla
var send frá Keflavik til aöstoðar,
en varð frá að hverfa vegna
myrkurs og veöurs.
Skip á nálægum slóðum sigldu i
átt til vélarinnar og hafa haldið
sig i námunda við hana. Samband
rofnaði við flugmanninn þegar
eftir að hann lenti og ógerlegt að
komast að flugvélinni vegna öldu-
hæðar. Þegar flugvélin lenti, átti
hún undir eðlilegum kringum-
stæðum eftir aðeins 10 minútna
flug til Keflavikur.
Strax og birti átti aö senda
þyrlu frá varnarliðinu á vettvang
og freista þess að kanna hvort
fiugmaðurinn hefur haldið sig um
borð.
—SG
Flugvél af gerðinni PA 28 Cherokee, sömu tegundar og nauðlenti I nótt.
Sjó smá-
auglýsingar
21, 22, 23
og 24
lslenskur tekjuskattur á eitt
hundrað ára afmæli i dag. Það
var fyrir nákvæmlega húiidr-
að árum, þann 14. desember
1877, að fyrstu tekjuskattslög-
in voru sett i Amalienborg.
Visir óskar tekjuskattinum
hjartanlega til hamingju á
þessum merku timamótum og
veit að skattgreiðendur um
allt land hugsa hlýtt til skatts-
ins sins f dag. — GA
Hjálparaðgerðum er stjórnað frá flugturninum f Reykjavík, þar sem Ijósmyndari Vfsis tók þessa mynd f morgun.
Þar eru Hjálmar Diego, Þorbjörn Daníelsson, Jón Árni Þórisson og Magnús Pétursson við störf. (Mynd: JA)
Þrír bátar upp í fjöru —
kjallarar fullir af s/o
- í MESTU FLÓÐUM 0G BRIMI Á STOKKSEYRI í HÁLFA ÖLD
Þrir bátar voru komnir
upp i f jöru á Stokkseyri í
morgun i einhverri mestu
flóðahæð og brimi sem
þar hefur komið í hálfa
öld. Margir kjallarar
voru orðnir fullir af
vatni, þang var um allar
göturog ökkladjúpur sjór
við barnaskólann.
Fjórði báturinn var að
berjast við bryggjuna í
morgun og var ýmist uppi
á henni eða í sjónum, var
vonlaust að komast að til
að reyna að bjarga hon-
um. Þá urðu skemmdir á
veginum vestanvið þorp-
ið, útvið Hraunsá.
Á Eyrarbakka var eng-
inn bátur við bryggju, en
þar voru margir kjallarar
fullir af vatni.
—ÓT