Vísir - 19.12.1977, Síða 5
2] BJARGAÐ UR
SÓKKVANDI ÞOTU
Brotlenti á sjónum og hélst á floti í 2
stundir. 13 fórust og 23 saknað
21 maður komst af og
bjargaðist um borð i
smábátaflota, þegar
svissnesk leiguflugvél
með 57 manns innan-
borðs á leið i jóialeyfi
til portúgölsku eyj-
arinnar Madeira
hrapaði i Atlantshafið
þegar hún átti eftir
ófarnar 5 milur tii
Funchal-flugvallar.
Vélin var af gerðinni Spure
Caravelle, tveggja hreyfla og
hélst hún á floti i sjónum I nær
tvær stundir. Áhöfn annarrar
flugvélar sem leið átti yfir slys-
staðinn kom auga á hana, þar
sem hún maraði i kafi,og gerði
viðvart.
Flugstjórinn sendi út neyðar-
kall til allra fiskibáta á þessum
sldðum sem hröðuðu sér á vett-
vang.
Veöur var stillt og sjólitið.
Þegar siöast fréttist haföi 21
verið bjargað 13 lík höfðu
fundist, en 23 er enn saknað.
Læknar við sjúkrahúsið i
Funchal sögðu að flestir þeir
sem bjargast höföu af— þar af
annar flugmaðurinn — væru lítt
meiddir en lerkaðir eftir langa
veru i sjónum.
Þetta er annaö meiriháttar
flugslys á Madeira á mánaöar-
tima. 19. nóvember fórst port-
úgölsk Boeing 727 og með henni
129 manns (af 164).
Caravelle-þotan var á leið frá
Genf og flestir um borð Sviss-
lendingar áhöfn og farþegar
sem ætluðu að dvelja jólin á
þessari vinsælu feröamanna-
eyju.
Flugumferöarstjórar i flug-
tuminum á Funchal sögöust
hafa tekið eftir þvl aö aðflug
vélarinnar var i minni hæð en
venjulegt þykir. — Flugvöllur-
inn er á landspildu sem er um-
lukt sjó. Þykir hann með
erfiöustu flugvöllum að lenda á
og minna um margt á lendingu
á fhigmóðuskipi.
Talstöövarsamband náöist
ekki viö flugstjórann, og ekkert
var vitaö i fyrstu um slysiö
nema að illan grun setti aö
mönnum, þegar dróst aö vélin
kæmi fram.
Um ástæðurnar fyrir slysinu
er ekkert vitað.
Menachem Begin, forsætisráðherra tsraels (t.h.), og kona hans, f
heimsókn þeirra tii Bandarikjanna, þar sem Begin gerði Carter for-
seta grein fyrir nýjum tillögum sinum til friðar i Austurlöndum nær.
Carter
hlynntur
tillögum
Begins
Menachem Begin forsætisráð-
herra tsraels hélt I gær frá
Washington til aðalstöðva Sam-
einuðu þjóðanna i New York til
viðræðna við Kurt Waldheim
framkvæmdastjóra, áður en hann
fer heim til tsraels.
1 Washington vann hann
stuðning Carters Bandarikjafor-
seta við tillögur sinar um lausn á
deilu Austurlanda nær.
Nýmæli þeirra fólst helst I hug-
mynd um stofnun sjálfstæðs rikis
Palestlnuaraba á Gazasvæðinu
og á vesturbakka árinnar Jórdan.
En auk þess lét Begin i ljós vilja
fyrir þvi að Palestinuarabar
fengju að setjast að I Israel og
Gyðingar á vesturbakkanum.
Á Kairófundinum voru fulltrúar
Egypta spurðir álits á þessum
hugmyndum Begins en þeir vörð-
ust allr afrétta meðan Begin hefði
ekki kynnt Kairóstjórninni þessar
nýju tillögur i einstökum atriöum.
Fyrirhugað er að Begin heim-
sæki Sadat Egyptalandsforseta
og geri honum grein fyrir þessum
nýju hugmyndum sinum.
Winther
vinsælustu og beztu þrfhjólin
Verð frá kr. 7.000
Varahlutaþ jónusta.
Ilækka má sætin,
ekkert bak,
komast sjálf
af og á
Verð frá kr. 7.000,-
Spitalastig 8, simi 14661, pósthólf 671.
Akkilles
sleppt heil-
um á húfi
Syni Spyros Kyprianou Kýpur-
forseta var fagnað sem þjóðhetju,
þegar hann kom heim til Nicosfu f
gær, eftir að ræningjar hans létu
hann lausan.
Hinn 21 árs gamli liðsforingi,
Akkilles, kvað föður sinn hafa
breytt rétt, þegar hann setti vel-
ferð þjóðarinnar ofar fjölskyldu-
böndunum, en Kýpurstjórn hafði
neitað að verða við kröfum ræn-
ingjanna.
Ræningjarnir létu þó ekki
veröa af hótun sinni um aö taka
Akkilles af lifi, en létu sér nægja
loforð um, að þeir, sem að ráninu
stóðu, yrðu ekki sóttir til saka.
Akkilles hafði ekki orðið meint
af þessa þrjá daga, sem hann var
á valdi EOKA-b hreyfingarinnar.
Hann var fölur að sjá og þreytu-
legur, en annars við góða liðan,
þegar hann kom til heimilis for-
eldra sinna I Nicosiu. Um 3.000
manns höfðu safnast i götuna og
voru vitni að endurfundunum.
Hann var spurður, hvort hann
hefði kviðið þvi, að ræningjum
hans væri alvara meö hótuninni
um að taka hann af lifi.
„1 fyrstu var ég handviss um,
Lögreglan i Bilbao á
Spáni leitar i dag ung-
menna, sem vörpuðu
handsprengjum og
skutu af vélbyssu á lög-
regluvörð við orkuver i
Lemoniz, en það er i
byggingu skammt frá
þessu höfuðvigi Baska á
Spáni.
Einn árásarmanna særðist og
náðist, en þrir eða fjórir sluppu.
að þeir ætluðu að taka mig af lffi,
og ég bað um að aftakan yröi með
þeim hætti, sem liösforingjatign
minni sæmdi,” sagði Akkilles.
Hann var látinn hírast I neðan-
jarðarbyrgi, þar sem var svo lágt
til lofts, að hann gat ekki einu
sinni setið uppréttur. Hendur
hans voru bundnar og bindi haft
fyrir augunum.
Lögreglan setti upp vegatálma
um allt hérað og leitar þeirra
ákaft.
Bifreið með sprengiefni, vél-
byssu og skotfærum fannst yfir-
gefin skammt frá orkuverinu.
Ýmsir telja, að þarna hafi þjóð-
emissamtök Baska, ETA, verið
að verki, en þau hafa svarið þess
eið, að ráðast að öryggissveitum
Madrid-stjórnarinnar, hvar sem
þær finnast i Baskahe'ruðunum.
ETA, sem vill, aö Baskahéruðin
(4 á Spáni og 3 i Frakklandi)
myndisjálfstættrlki,lýstuf gær á
hendur sér morðinu á bæjarfull-
trúanum i Irun á laugardaginn.
Baskar aðsópsmiklir
3 góðar
í jólapakkann
„News og the World"
er 6. platan með Queen
Hér sannast að þeir eru fremsta rokk grúppa
heimsins i dag.
Rokk eins og það best gerist.
„Bright Lights
and Back Alleys" M
heitir nýjasta platan með Smokie
Hér eru bæði ný lög og eldri lög eins og t.d.
„Needles and pins”. Þessi plata gefur þeim fyrri
ekkert eftir.
„Out of the Blue"
með E.L.0.
Ekki bregðast Jeff Lynne og félagar fremur en
endranær. Hlustið á þetta frábæra nýja tveggja
plötu albúm.
FALKINN
Suðurlandsbraut 8 — Laugaveg 24
— Vesturver.