Vísir - 16.03.1978, Blaðsíða 2
/3L ----
ÖSIRl
17. MARS:
Þaö hefur veriö mikiö vetrarriki á ólafsfiröi eins og viöast hvar á Noröurlandi. (Vfsism. Jóhann Freyr).
Miklar framkvæmdir eru nú í gangi á ólafsfirði.
Þar er unnið við byggingu heilsugæslustöðvar og verð-
ur unnið fyrir 90 milljónir á þessu ári. Við höfnina er
unnið að endurbótum fyrir tugi milljóna og í sumar
verður unnið áfram að varanlegri gatnagerð/ svo eitt-
hvað sé nefnt.
Fimmtudagur 16. mars 1978
VISIR
Dagur helgaður öryggi ó sjó!
Atvinnuástand á Ólafsfiröi
hefur verið gott undanfarið að
sögn Péturs Más Jónssonar
bæjarstjóra þar. Afli netabáta
hefur verið góður en veiðin
hefur gengið tregar hjá togur-
unum þó hún sé eitthvað að
glæðast. Hins vegar yrði litil at-
vinna á staðnum i eina 10-12
daga i kringum páskana á meö-
an þorskveiðibannið stæöi yfir.
Bæjarsjóður Ólafsfjarðar er
nú að láta byggja 7 leigu- og
söluibúðir i sambýlishúsi og
verða 5 þeirra tilbúnar á þessu
ári. bá er fyrirhuguð bygging
leikskóla og verður byrjað á
þeim framkvæmdum i sumar.
Unnið verður áfram að varan-
legri gatnagerð i Ólafsfirði og
verður veitt til þess 30 milljón-
um að þessu sinni. Ennfremur
er ráðgert að fá nýja aðveitu
fyrir Vatnsveitu Ólafsfjarðar og
með henni yrði bænum tryggt
nægilegt kalt vatn a.m.k. næstu
tiu árin.
Bygging nýju heilsugæslu-
stöðvarinnar er nú i fullum
gangi og verður unnið fyrir 90
en hún hefur verið slæm til
þessa. Til þeirra framkvæmda
hefur verið veitt um 65-70
milljónum og sagði Pétur Már
að það væri að visu ónóg fjár-
veiting en vonast væri til þess að
úr rættist.
Leikfélag er starfandi í ólafs-
firði og hefur það sett á svið eitt
leikrit i vetur, Skjaldhamra eft-
ir Jónas Arnason og var það
sýnt við góðar undirtektir.
Kvenfélagið Æskan á Ólafsfirði
afhenti nú fyrir skömmu Pétri
Má Jónssyni bæjarstjóra á
Ólafsfirði eina milljón króna til
áhaldakaupa i Dvalarheimili
aldraðra sem verið er að byggja
þar.
Fjárhæðina afhenti fráfar-
andi formaður kvenfélagsins
Hugrún Jónsdóttir en núverandi
formaður þess er Kristjana Sig-
urjónsdóttir, Kvenfélagskonur
söfnuðu þessu fé á siðasta ári en
þá átti félagið 60 ára afmæli. Að
sögn Péturs Más verður þessum
peningum ráðstafað i samráði
við kvenfélagið.
Tannlæknaþjónusta er viða
bágborin úti á landi og á Ólafs-
firði hefur enginn tannlæknir
starfað' lengi. Pétur Már sagði
að bæjarfélagið væri með að-
stöðu fyrir tannlækni en þar
væru að visu gömul tæki. bað
hefði staðið til um áramótin að
tannlæknir réðist til Ólafsfjarð-
ar en hann gaf það frá sér eftir
að hann hafði skoðað tækin. bá
hefði verið farið fram á það við
heilbrigöisráðuneytið að það
keypti ný tæki sem yrðu þá not-
uð á tannlæknastofu i nýrri
heilsugæslustöð sem er aö risa
af grunni á Ólafsfiröi. Ráðu-
neytið hefði ekki treyst sér til
þess vegna takmarkaðra fjár-
veitinga og sagði Pétur að nú
hefði komiö til tals að bærinn
festi kaup á nýjum tækjum sem
rikið myndiendurkaupa seinna.
bangað til úr rætist þurfa
Ólafsfirðingar að sækja tann-
læknaþjónustu til Akureyrar
eða Dalvikur en það væri ekki
alltaf heiglum hent að
vetrarlagi og rikti þvi algjört
vandræðaástand á þessum efn-
um. —KS.
Bjarni Bjarnason, nemi: Nei, ég
hef ekki efni á þvi að kaupa
páskaegg. Svo finnst mér súkku-
laði vont.
Björn Guöjónsson, hljómsveitar-
stjóri: Já, það geri ég svo
sannarlega, þetta ár ætla ég aö
kaupa fjölmörg páskaegg. Venju-
lega kaupi ég þau um hvitasunnu,
þá eru þau ódýrari.
Siguröur Björnsson, fram-
kvæmdastjóri Sinfóníunnar: Já,
auðvitað kaupi ég páskaegg fyrir
börnin min og narta kannski i
nokkur sjálfur.
Á þingi Alþjóöasiglingamálastofnunarinnar, IMCO,
sem haldiö var í London í nóvember s.l. var samþykkt
ályktun þess efnis að framvegis skyldi dagurinn 17.
mars ár hvert vera alþjóðlegur siglingamáladagur.
Dagur þessi skyldi framvegis
vera helgaður þeim málum er
varða öryggi á sjó, alþjóðlegum
siglingum, samskiptum þjóða
um flutninga á sjó og varnir
gegn mengun sjávar.
17. mars i ár verður sérstak-
lega helgaður Alþjóðasiglinga-
málastofnuninni, sem er sú
stofnun Sameinuðu þjóðanna
sem fer meö þau mál er varöar
siglingar i heiminum. Einnig er
þessi dagur helgaður öryggi sjó-
farenda um viða veröld.
Dags þessa verður minnst i
öllum aðildarlöndum IMCO en
þau eru hátt á annað hundrað,
að sögn Hjálmars R. Bárðar-
sonar siglingamálastjóra, sem
boðaði blaðamenn á sinn fund i
gær, þar sem hann kynnti þenn-
an dag og sagði litillega frá
starfsemi Alþjóðasiglingamála-
stofnunarinnar.
Sú stofnun hefur á sinum 20
ára starfsferli unnið mikið og
merktstarf á sviði siglingamála
i heiminum. Hefur stofnunin
viða látið til sin taka eins og t.d.
hvað varðar öryggi á sjó og
varnir gegn mengun sjávar svo
eitthvað sé nefnt.
klp—
...17. mars er meðal annars helgaöur öryggi sjófarenda um alian
heim.
milljónir á þessu ári og taldi
Pétur Már að hún yrði komin
undir þak fyrir næsta haust. Við
höfnina er verið að vinna að
bættri aöstööu fyrir skuttogara
Pétur M. Jónsson bæjarstjóri:
„Unniö fyrir 90 milijónir viö
heiisugæslustööina á þessu ári”.
Kaupirðu páskaegg?
Helga Sveinsdóttir, nemi: Já,
það er gömul hefö að kaupa þau á
minu heimili
Indriöi Jónsson, nemi: Llklega,
það fer auðvitað eftir efnahag.
Mamma og pabbi kaupa örugg-
lega handa mér páskaegg.
[ 1 Reykjavik