Vísir - 16.03.1978, Síða 5
VI3IR Fimmtudagur 16. mars 1978
5
HAUKURí
FARBANNI
Um leið og gæslu-
varðhald Hauks
Heiðars rann út i gær
og honum sleppt var
hann úrskurðaður i far-
bann fram til 1. júni.
Nær bannið til ferða-
laga út fyrir Reykja-
vik, Kópavog og Sel-
tjarnarnes.
Eins og Visir hefur áður skýrt
frá hefur Haukur sett trygging-
ar að upphæð um 90 milljónir
króna til Landsbankans vegna
fjárdráttarins sem nemur
liðlega 50 milljónum króna.
Eftir þvi sem Visir kemst næst
hefur ekki verið gengið form-
lega frá endurgreiðslu á þessari
upphæð. Hins vegar mun dr.
Gaukur Jörundsson vera
bankanum til aðstoðar varðandi
þá hlið málsins.
Rannsóknarlögreglustjóri
hefur boðað að hann muni skýra
frá niðurstöðum rannsóknar
Landsbankamálsins áður en
langt um liður.
—SG
„Stefnan að láta
íslendinga fljúga"
„Það er i raun og veru ekkert
i veginum fyrir þvi að flug fyrir
Air Bahama verði i höndum ts-
iendinga, og það er reyndar
stefna stjórnar Flugleiða” sagði
örn O Johnson forstjóri Flug-
leiða I samtali við Visi i morgun,
,,en það þarf að undirbúa slika
breytingu vel og kanna hvað
hún hefur i för með sér.”
Flugmenn telja sem kunnugt
er að búið hafi verið að semja
um að þeir tækju við flugi á veg-
um Air Bahama, en örn sagði
það ekki rétt. „Það sem búið
var að semja um voru dag-
peningagreiðslur, ef til sliks
flugs kæmi.”
örn sagði að sú ákvörðun
flugmanna að draga til baka
undanþágu um leiguflug mundi
ekki hafa afgerandi áhrif. „Við
verðum náttúrulega að semja
við flugmennina i hvert sinn,”
sagði örn. ,,En við ættum að
geta staðið við þær áætlanir sem
gerðar hafa verið með vissum
aukakostnaði. "
„En við vonumst til að þetta
mál verði til lykta leitt i kjara-
samningum þeim sem fram-
undan eru,” sagði örn. —GA
Loftleiðaflugmenn:
Viljo bœta á sig vinnu
— án þess að fá meira kaup!
Flugmenn Loftleiða, 57 að tolu, hafa boðist tii að taka að sér
það flug hjá Air Bahama, sem hingað til hefur verið i höndum
Bandarikjamanna, og það án þess að til nokkurra aukagreiðslna
komi. Vegna þess að stjórn Flugieiða hefur ekki orðið við þessu
boði hafa flugmennirnir dregið tii baka allar undanþágur um
leiguflug er kveða á um hærri vinnu- og vaktatíma en um getur i
aðalsamningi.
Vegna þess hvernig vinnu-
álagi og fridagakerfi flugmann-
anna er háttað hefur hver flug-
maður Flugleiða ekki unnið
nema u.þ.b. 65 vinnustundir á
mánuði að undanförnu, en þeir
fá borgaðar 85 stundir i fasta-
kaup.
Flugmennirnir telja sig með
hægu móti geta bætt á sig þvi
sem flogið er ávegum Air Ba-
hama, án þess að fara yfir 85
stunda mörkin og þannig án
þess að til aukagreiðslna komi.
Þetta vilja þeir gera, að eigin
sögn, til að auka atvinnuöryggi
sitt.
Á fundinum kom fram aö
flugvél Air Bahama er skráð á
íslandi, og þvi telja flugmenn-
irnir að tslendingar eigi að hafa
forgangsrétt að vinnu á henni.
Þeir benda einnig á að banda-
risku flugmennirnir fá mun
hærra kaup en islenskir.
Það var þvi kannski að vonum
að reyndir blaðamenn höfðu á
orði að fundi loknum að þetta
væri fyrsti blaðamannafundur-
inn sem þeir hefðu setið þar sem
verið væri að leggja áherslu á
kröfur um að fá að vinna meira
án kaups. Og að yfirmennirnir
tækju það ekki i mál! — GA
BÍLAVARAHLUTIR
FÍAT 128 71
FÍAT 850 SPORT 71
VOLVO AMASON '64
LAND-ROVER '67
BILAPARTASALAN
Hofðatuni 10, simi 11397.
Opið fra kl. 9-6.30, laugardaqa
kl. 9 3 oy sunnudaqa k I 13
Gestir ffrá Mön i hcimsókn
Fulltrúarnir frá Mön. Frá v. R.B.M. QuayAe, E. Lowey, frú B.Q. Hanson og H.C. Kerruish.
Visismynd —JA
Þar er „Alþingi" enn
undir berum himni
A eynni Mön, sem er miðja
vegu milli Englands og trlands
verður þess minnst i ár að liðin
eru að minnsta kosti þúsund ár
frá þvi að þing þeirra var sett i
fyrsta skipti.
Það verður auðvitað tilefni
mikilla hátiðahalda og þar sem
ekki er langt siðan Island hélt
upp á mikið afmæli eru komnir
hingað til lands fjórir fulltrúar
til þess meðal annars að kynna
sér hvernig staðið var að þeirri
hátið.
Vikingar sóttu Mön heim á
sinum tima og skildu eftir sig
djúp spor. Sögðu fulltrúarnir að
Manarbúar að þeir litu til
norðurs eftir sinum „andlega
uppruna.”
Marga lika þætti má finna á
tslandi og Mön. Þing þeirra
„Tynwald” er sambærilegt við
Þingvelli en munurinn er sá að
þeir halda enn þig undir beru
lofti á sinum upprunalegu Þing-
völlum.
Mörg nöfn eru svipuð bæði
manna og staða og má þar
nefna ,,Langnes” og Snaefell”.
Manarbúar leita enda i Islands-
söguna til að læra um fortið
sina, þvi að skráðar heimildir
þeirra sjálfra eru fáar.
Guðir þeir sem tslendingar
blótuðu til forna voru einnig i
hávegum hafðir á Mön og þar
hefur til dæmis verið grafið upp
hof sem var reist Þór til dýrðar.
Sendimennirnir fjórir sögðu
að þeir heíðu verið djúpt snortn-
ir i heimsókn til Þingvalla og af
ýmsu öðru sem þeir hefðu hér
heyrt og séð. Töldu þeir að ts-
lendingum yrði svipað farið ef
þeir heimsækt Mön.
Ibúar á Mön eru 60 þúsund
talsins. Eyjan er sjálfstæð i öll-
um aöalatriöum en tengd Eng-
landi sterkum böndum.
—ÓT