Vísir - 17.03.1978, Page 2
14
Föstudagur 17. mars 1978 vism
Nú vill Marla Johansson ekkert með Skottu
hafa. Hér er hún i hlutverki sinu i leikriti
Brecht.
Tvöandlitsem flest börn á Norðurlöndunum þekkja, hundurinn Batsiman og Skotta.
Þá fer þeim að fækka, þáttun-
um um krakkana á Saltkráku.
Fyrir nokkrum vikum birtum við
myndi.r og greinar um þessa
krakka og sögðum frá þvi hvað
þau gerðu nú 15 árum eftir upp-
tökurnar. Siðan þá hefur okkur
tekist að ná I myndir af þrem
leikurunum eins og þau lita út nú.
Já, það hefur orðið breyting,
fæst myndum við þekkja þau aft-
ur og það sem meira er fæst
þckkja þau hvort annað nú leng-
ur. Til gamans má geta þess að
Melin þekkti næstum ekki hann
Palla litla bróður sinn þegar hún
hitti hann úti a götu fyrir stuttu.
Nú er hún gift (ekki samt jöla-
sveininum úr siðasta þætti) og
tveggja barna móðir.
En hvað skyldi hafa orðið af
Skottu? Jú hún lét sig hverfa,
vildi hvorki heyra né sjá blaða-
menn eða ljósmyndara. Það tók
nefnilega tima sinn fyrir Mariu
Johansson að losna við Skottu-
nafnið, en hún hafði ekki nokkra
löngun til þess að vera kölluð
Skottaframeftiröllum aldri. Hún
fékk oft að heyra hina frægu setn-
ingu sina „Farbror Melker,
veetduuuvaaa?? ?”.
I dag lifa þessi „börn” i sætum
minningum um' þá daga þegár
þau voru miðdepill Sviþjóðar.
Hvar sem þau gengu um götu
snéri fólk sér við og benti. Salt-
krákukrakkarnir höfðu gaman af
þessu i ákveðinn tima en að lok-
um urðu þau þreytt og vildu fá
frið. Hann hafa þau fengið þar til
nú að Saltkráka er endursýnd um
öll Norðurlönd. Þá fóru
blaðamenn aftur á stjá og vildu
vitahvernig Saltkrákuleikararnir
litu út nú. En þeim varð ekki káp-
an úr þvi klæðinu. Fæst vildu
leikararnir tala við blaðamenn.
Arin á Saltkráku voru liðin —■
minningarnar voru einar eftir.
—JEG.
Pelle— þ.e.a.s. Stephen Lindholm— er nú
sölumaður i Stokkholmi..
Saltkrákukrakkarnir:
Þekkti ekki „bróður" sinn
aftur eftir 15 ár
AEC - TELEFVHKEH
LITSJÓNVARPS-
TÆKI 26
Fyrir rúmlcga 10 árum settu AEG TELEFUNKEN verk-
siniðjurnar á markaðinn fyrstu PAL litsjónvarpstækin en þá
liófust litsendingar eftir þvi kerfi i Vestur Þýskalandi. Sfðan
hafa yfir 40 lönd með yfir 700 milljón ibúa tekið TELEFUN-
KEN PAL KEBFIÐ i iiotkun. íslensk yfirvöld tóku einnig þá
skvnsamlegu ákvöröun að velja PAL KERFIÐ FRÁ
TÉLEFUNKEN fyrir islendinga.
Allir framleiðendur PAL LITSJÓNVARPSTÆKJA framleiða
ta’ki sin undir einkaleyfi TELEFUNKEN og greiða þeim
einkaleyfisgjöld.
er vmningurinn
að verðmœti
kr. 485.000.-
+
TELEFUNKEN er eina fyrirtækið sem framleiðir litsjón-
varpstæki sin með 100% einingarkerfi, sem einfaldar og flýtir
viðgerðu m.
BRÆÐURNIR ORMSSON %
LÁGMÚLA 9 SÍMI 38820
.\\V
Sími 86611
Opið virka daga til kl. 22.00
Laugardaga kl. 10-15
Sunnudaga kl. 18-22.
VÍSIR
... og Marlin stórasystir — Louise Friberg —
er nú gift og tveggja barna móðir.
Palli, Malin og Melker frændi eins og þau litu
út 1963, þegar fyrstu þættirnir voru teknir
upp.
15
vism
Föstudagur
17. mars 1978
UR „ÞROUNARSÖGU
##
KAMELÍUFRUARINNAR
Að kveldi sunnudags sýnir
sjónvarpið siöari hluta bresku
sjónvarpsmyndarinnar um
Kameliufrúna. Fyrir viku slðan
kynntum við þessa vinsælu sögu
Dumas yngra. Þá sögðum við
frá þvi að saga þessi hefði verið
Kameliufrúin 1921 þá með Alla
Nazimov og Rudolph Valentino i
aðalhlutverkum.
fádæma vinsæl meðal kvik-
mvndaframleiöenda. A árunum
milli 1912 og 1936 var hver
Kameliufruarmyndin á eftir
annarri send á markaðinn.
Framleiðendur völdu valin-
kunna leikara i hlutverk frú
Gauder og Duval, þar ekkert
til sparað. 1920 fóru þau Alle
Nozimova og Rudolph Valentino
með hlutverk elskendanna. 16
árúm siðar stóðu Greta Garbo
og Robert Taylor i sömu spor-
um. Og nú 66 árum eftir að
fyrsta kvikmyndin um frúna
var gerð, fara þau Kate Nelligan
og Peter Firth með aðalhlut-
verkin.
Timarnir breytast og menn-
irnir með, en Kameliufrúin.?
Sagan er söm en túlkunin og
ieikararnir breytast.
Við birtum hér til gamans
þrjár myndir úr „þróunarsögu”
Kameliufrúarinnar innan kvik-
myndanna.
—JEG.
Kameliufrúin 1936 nú með Greta
Garbo og Robert Taylor I aðal-
hlutverkum.
150 ára minning Ibsens
Um þessar mundir eru liðin 150
ár frá fæðingu Henrik Ibsen.
Rikisútvarpið heiðrar minningu
þessa stórskálds með flutningi
leikritsins „Konungsefni” og i
kvöld mun Þorsteinn ö. Stephen-
sen flytja erindi um skáldið.
„t svo stuttu erindi verður
aðeinsdrepiðáfáatriði, en þaðer
af miklu að taka sagði Þorsteinn
ö. Stephensen i samtali við Visi.
„Égmun fjalla um æsku og upp-
vöxt Ibsens. Verk hans báru
merki þessara ára. Þá ætla ég að
ræða um fyrstu fimmtán — tutt-
ugu árin, en það voru mikil erfið-
leikaár i lifilbsens. Á þeim árum
var hann m.a. leikhússtjóri i
Bergen. Erindinu lýk ég svo með
að þvi að fjalla um „Konungs-
efni”.”
Bókmenntafræðingar telja að i
þessuverki sé að finna tvær, jafn-
vel þr jár persónur sem uppi voru
á þeim tima sem sagan er skrif-
uð.
Þessar piersónur eiga að vera
höfundurinn sjálfur og Björn-
stjerne Björnsen.
„A þessum tima var gott sam-
band milli þessara tveggja
skálda”, sagði Þorsteinn. „Þeir
áttu hvor öðrum mikið að þakka.
Björnson skrifaði leikrit sem Ib-
sen þá leikhússtjóri i Kristjaniu,
setti á svið. Björnson mæltist til
vináttuvið Ibsen og las yfir þeim
sem reyndu að koma á óvináttu
milli þeirra.
Ástæða þess að Ibsen hvarf frá
Noregi 1864 var eflaust sú að hann
hafði fengið nóg af öllu mótlætinu
og erfiðleikunum. Honum haföi
reynst erfitt að koma verkum sin-
um á framfæri. En þegar hann
yfirgaf landið hafði hann áunniö
sér nafn sem skáld,” sagði Þor-
steinn að lokum.
—JEG.
Þorsteinn ö. Stephensen fyrrver-
andi leiklistarstjdri mun flytja
erindi um Ibsen á laugardaginn.
Hádegiserindið á sunnudaginn:
KENNSLA VANGEFINNA GLEYMD?
,,Ég byrja erindið með þvi að
rekja sögulega þróun I kennslu
vangefinna,” sagði Sigurjón Ingi
Hilariusson. Á sunnudaginn sér
hann um hádegiserindið en þaö er
fjórði erindið um málefni vangef-
inna.
„Ég mun einnig fjalla um það
hvernig kennslu vangefinna er
háttað i öðrum löndum. Þá segi
ég frá þvi hvernig hefur tekist að
þjálfa vangefna einstaklinga
þannig að þeir öðlist, það sem ég
kalla, bærilegt h'f.
I þættinum mun ég ræða um
hjálparkennslu hér, kennslu i
bekkjum ogkennslu einstaklinga.
Við erum áratugum á eftir hér i
þessum málum. Þrátt fyrir að
gert hafi verð ráð fyrir kennslu
þroskaheftra allt frá þvi I
fræðslulögunum 1946 hefur alltaf
vantað fjármagn.
Þetta fólk fer ekki i kröfugöng-
ur eða stendur i löngum biðröðum
til þess að fá fjármagn en þaö
minnir á sig með sinni prúðmann-
legu framkomu, sagði Sigurjón
Ingi að lokum.
—JEG.
Léttar-
meöfærilegar -
viðhaldslitlar
DÆLUR
Ávallt fyrirliggjandi. Góö varahlutaþjónusta.
fcfc Þ. ÞORGRÍMSSON & CO
wW ’Armúla 16 ■ Reykjavík • sími 38640
■<i
Þjöppur
slipivéiar
# j/ 1
vibratorar sagarbloð steypusagir Þjöppur
it
bindivirsrúllur
LAUST EMBÆTTI ER FORSETI ÍSLANDS
VEITIR
Prófessorsembætti i dönsku i heimspekideild Háskóla
tslands er laust til umsóknar.
Umsóknarfrestur er til 1. mai 1978.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rikisisn.
Umsækjendur um embættið skulu láta fylgja umsókn
sinni itarlega skýrslu um visindastörf er þeir hafa unnið,
ritsmiðar og rannsóknir svo og námsferil og störf.
Menntamálaráðuneytið, 9. mars 1978.
LAUSAR STÖÐUR
Hlutastaða lektors í almennri handlæknisfræði og
hlutastaða lektors i lyflæknisfræöi við tannlæknadeild
Háskóla islands eru lausar til umsóknar.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rikisins.
Umsóknum skulu fylgja itarlegar upplýsingar um rit-
smiðar og rannsóknir svo og námsferil og störf. Umsóknir
skulu sendar menntamálaráðuneytinu fyrir 1. april n.k.
Menntamálaráðuneytið, 7. mars 1978.
LAUSSTAÐA
Staða lektors i félagsfræði við félagsvisindadeild
Háskóla tslands er laus til umsóknar. Aðalkennslugreinar
aðferðafræði og/eða félagslegar kenningar.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rikisins.
Umsóknum skulu fylgja itarlegar upplýsingar um rit-
smiðar og rannsóknir svo og námsferil og störf. Umsóknir
skulu sendar menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6,
Reykjavik fyrir 1. april n.k.
Menntamálaráðuneytinu, 7. mars 1978.
KÖKUBASAR
Hvöt félag sjálfstæöiskvenna veröur með
kökubasar í ValhölL Háleitisbraut 1 kl. 2. e.h.
laugardag. urval af allskonar kökum á boð-
stólum. Síðast varð fjöldi frá að hverfa.
Stjórnin.
Askrífendagetraun