Vísir - 12.05.1978, Page 3

Vísir - 12.05.1978, Page 3
m __ VISIR Föstudagur 12. mal 1978. Hver verður Skókmeistari islands 1978: Þegar dregið var um lit var Haukur hinn heppni og hefur hvítt í fyrstu skákinni. Haukur og Helgi heyja skákeinvígi Einvigi þeirra Hauks Angantýssonar og Helga Ólafssonar um Islandsmeistaratitilinn i skák hefst á morgun klukkan 14 i húsakynn- um Skáksambandsins að Laugavegi 71. Þeir Haukur og Helgi ski:ldu jafnir i landsliðsflokki á Skák- þingi Islands meö 8 vinninga hvor af 11 mögulegum. Munu þeir heyja 4 skáka einvígi um heitíð Skákmeistari Islands 1978 og réttínn til að taka þátt i svæðamóti heimsmeistara- keppninnar i haust. Fyrsta skákin verður tefld klukkan 14 á morgun, önnur á mánudag á sama tima. Siðan verður sú þriðja tefld á þriðju- dag klukkan 19 og fjórða á fimmtudag á sama tima. Samtimis munu þeir Agúst Karlsson 14 ára og Þröstur Þórisson 12 ára berjast um ís- landsmeistaratitilinn i drengja- flokki. Aðstaða er fyrir um 100 áhorfendur og vægt verð að- göngumiða. - .4. * Alþjóðadagur hjúkrun- arfrœðinga er í dag Fæðingardagur Flor- ence Nightingale, 12. mai hefur verið valinn sem alþj óðadagur hjúkrunarf ræðinga. Alþjóðasamband hjúkrunar- fræðinga, ICN, fyrsta alþjóða stéttarsamband kvenna, var stofnað 1899. Hjúkrunarfélög 87 landa, með yfir 1 milljón hjúkr- unarfræðinga eru innan vébanda þess. Hjúkrunarfélag Islands geröist aðiliað sambandinu 1933. Alþjóðasamband hjúkrunar- fræðinga telur: að hjúkrunarfræöingar séu mikilsverðir þátttakendur i mót- un heilbrigöisþjónustu hvers lands, að öllum hjúkrunarfélögum beri skylda til að stuðla að bættri heilbrigðisþjónustu, i samvinnu við aðrar heilbrigðisstéttir,að félagsleg og fjárhagsleg staða hjúkrunarfræðinga verði að vera i samræmi við nám þeirra, ábyrgð og vinnuálag. að það sé til almenningsheilla að laða sem flesta hjúkrunar- fræðinga til starfa. Islenskir vegir eiga oðeins hliðstœður hjó vanþróuðustu þjóðum Nýlega hélt Félag is- lenskra bifreiðaeigenda almennan fund á Dalvik og sendi fundurinn frá sér eftirfarandi ályktun til hlutaðeigandi stjórn- valda. 1. Fundurinn telur að ástand vega sé nú þannig að óhjákvæmi- legtséaðgerastórátak til úrbóta. Bendir fundurinn á, að leita verð- ur hliðstæðna hjá vanþróuðustu þjóðum veraldar til þess aö fá samjöfnuð við íslenska vegi. Fundinum er ljóst að nauðsynleg- ar úrbætur eru stórátak fyrir svo fámenna þjóö sem tslendinga, telur aö það sé þó ekki stærra né fjárfrekara átak en unniö hefur verið á ýmsum sviðum islensks þjóðlifs á liönum árum, svo sem raforkumálum svo eitthvað sé nefnt. 2. Fundurinn telur að beina verði stórauknu fjármagni til vegamála og setja verði það markmiö að allir helstu þjóövegir landsins verði lagöir bundnu slit- lagi á næsta áratug. Fundurinn telur að mögulegt, sé að ná þessu markmiði með þvi að verja sér- sköttun á bifreiðar og rekstrar- vörur til þeirra umfram almenna skattlagningu á neyslu þjóö- félagsþegnanna til vegamála og telur að bifreiðaeigendur eigi skýlausa kröfu til stjórnvalda, aö svo verði gert. Arnbjörn Kristinsson formaður Félags bóka útgefenda Félag islenskra bóka- útgefenda hélt aðalfund sinn miðvikudaginn 10. mai sl. Formaður félagsins, Orlygur Hálfdánarson, flutti skýrslu um starfsemi félagsins á liðnu ári. I lokræðu sinnar gat hann þess, að hann gæfi ekki kost á sér til endurkjörs i formannssæti, en hann hefur gegnt formennsku i félaginu í sex ár. I stað örlygs var kjörinn formaður Arnbjörn Kristinsson. Þrír menn gengu úr stjórninni og voru þeir allir endurkjörnir. Stjórnin er þannig skipuð: Arn- björn Kristinsson formaður, Böðvar Pétursson varaformaður, Brynjólfur Bjarnason gjaldkeri, Ragnar Gunnarsson ritari, og meðstjórnendur örlygur Hálf- dánarson, Valdimar Jóhannsson og Hjörtur Þórðarson. íslenskur lögregluþjónn gœsluliði í Jerúsalem islenskur lögregluþjónn úr Kópavogi, isleifur Pétursson, er nú kominn til Jerúsalem, þar sem hann mun starfa sem gæsluliði á vegum Sameinuðu Þjóðanna. isleifur héit utan i lok april og mun væntanlega dvelj- ast um eins árs skeið i Jerúsalem. EA Póll Sigurjónsson kjörinn formaður VSI Á fyrsta fundi nýkjörinnar sambandsstjórnar Vinnuveit- endasambands Islands i gær var Páll Sigurjónsson, verk- fræðingur, framkvæmdastjóri Istaks — íslensks verktaks, hf., einróma kjörinn formaöur Vinnuveitendasambandsins, og Hjalti Einarsson, formaður Sambands fiskvinnslustööv- anna, einróma kjörinn varafor- maður. Jón H. Bergs, fráfar- andi formaður Vinnuveitenda- sambandsins, og Gunnar Guð- jónsson, fráfarandi vara- formaður sambandsins, gáfu hvorugur kost á sér til endur- kjörs. A aðalfundi VSÍ, sem lauk sið- degis i gær voru samþykktar ályklanir m.a um efnahagsmál og visitölumál. Auk þess voru gerðar nokkrar breytingar á lögum sambandsins.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.