Vísir - 12.05.1978, Side 5
vism Föstudagur 12. maí 1978.
Alþýðubandalagið leggur ffram tillögu í efnahags- og atvinnumálum:
Bœdi skammtímalausnir
og langtímabreytíngar
Ragnar Arnalds og Lúðvik Jósepsson ræöa tillögur Alþýöubandalagsins I efnahags- og atvinnumálum
«*iK klo na m Ann i ítmk*
v.ib blaöamenn I gær.
„Þetta eru lang itarlegustu
tillögur um aðgerðir i efnahags-
og atvinnumálum, sem ég heid
að nokkur stjórnmálaflokkur
hér hafi lagt fram”, sagði
Ragnar Arnalds, formaður
þingflokks Alþýðubandalagsins,
i gær, er hann og Lúðvik Jósefs-
son, formaður fiokksins kynntu
blaðamönnum tillögur, sem Al-
þýðubandalagið hefurlagt fram
i efnahags- og atvinnumálum.
Tillögur þessar eru byggðar á
umræðum og gögnum frá lands-
fundi flokksins i fyrra og voru
samþykktar einróma á mið-
stjórnarfundi i siðasta mánuði.
Tillögurnar eru i sex megin-
köflum. Fyrsti kaflinn fjallar
um markmið og meginefni til-
lagnanna, annar um vandann,
sem við blasir, þriðjium orsakir
vandans, fjórði um fyrstu að-
geröir, fimmti um nýja efna-
hagsstefnu og sjötti og siðasti
kaflinn um islenska atvinnu-
stefnu.
Þeir Ragnar og Lúðvik sögðu,
að sjálfum tillögunum mætti
skipta i tvo meginflokka. Ann-
ars vegar væru tillögur um taf-
arlausar aðgerðir í efnahags-
málum, sem koma þyrftu til
framkvæmda á næstu séx mán-
uðum og hefðu það meginmark-
mið að draga úr áhrifum verð-
bólgu. Hins vegar voru tillögur
um nýja stefnu i efnahags- og
atvinnumálum, sem fram-
kvæmdyrði á næstu árum fengi
Alþýðubandalagið að ráða.
10 helstu orsakir vand-
ans
Eftir að hafa lýst nokkuð þeim
vanda, sem nú er við að etja í
efnahags- og atvinnumálum, er
fjallað um orsakir vandans.
,,Að nokkru leyti felast þær i
hagkerfinu og mótsögnum þess
en ljóster, að ihaldsstjórn und-
anfarinna ára hefur magnað
vanda kerfisins með ýmsum
hætti”, segir þar.
Fullyrter, að siöustu árin hafi
verðbólgan fyrst og fremst ver-
ið heimatilbúin.
Raktar eru eftirfarandi 10
helstu orsakir vandans
Látlaus viðleitni til að breyta
tekjuskiptingunni, nú siðast
með ómerkingu kjarasamning-
anna. Skipulagslaus fjárfesting.
Taka erlendra eyðslulána.
Stjórnleysi i fjármálum rikis-
ins. Ranjglátt skattakerfi. Mis-
heppnuð stjórn peningamála.
Haldlitið verðlagsef tirlit.
Gagnslitill verðjöfnunarsjóður
m.a. vegna rangrar stefnu i
efnahagsmálum. Dýr yfirbygg-
ing. Misnotkun viðskiptafrelsis.
Fyrstu aðgerðir
Þær aðgerðir, sem Alþýðu-
bandalagið vill, að gerðar verði
nú þegar, byggja að verulegu
leyti á sama grunni og tillögur
minnihlutans i verðbólgunefnd-
inni i vetur. Gert er ráð fyrir, að
felld verði niður sjö söluskatts-
stig og almennt verðlag lækkað
að sama skapi. Niðurgreiðslum
á landbúnaðarafurðum verði
breytt með þeim afleiðingum að
vöruverð lækki. Verslunará-
lagning verði lækkuð. Þjónustu-
gjöld opinberra stofnana, sem
greiða söluskatt, lækki um 5%
samfara hliðstæðum niður-
skurði útgjalda þeirra. Vextir af
afurða- og rekstrarlánum til út-
flutningsatvinnuveganna lækki
um 3%.
Lúðvik sagði að áætlað væri,
að þessar tillögur gætu lækkað
vísitöluna um 10%.
Gerðar eru tillögur um,
hvernig rikissjóður eigi að afla
tekna I stað þeirra um 13 mill-
jarða, sem rikissjóður missir
við söluskattslækkunina. Þar er
m.a. gert ráð fyrir strangari
lsismynd: GVA.
innheimtu söluskatts, breyting-
um á skattalögum, veltugjaldi,
að meðaltali 1.2%, á aðstöðu-
gjaldsstofn i öllum rekstri, þó
ekki á fyrirtæki i sjávarútvegi,
fiskiðnaði, landbúnaöi og út-
flutningsiðnaði, og niðurskuröi
útgjalda rikisins.
Einnig er gert ráð fyrir frest-
un tollalækkana gagnvart
EFTA og EBE, og sem stöðug-
ustu gengi krónunnar.
Ný efnahagsstefna
í kaflanum um nýja efna-
hagsstefnu eru fjöldamargar
tillögur um hin margvfslegustu
málefni, s.s áætlunargerð og
fjárfestingarstjórn, gengis-
skráningu og sveifiujöfnun, nýtt
skattakerfi, niðurskurð á yfir-
byggingunni i Þjóðfélaginu —
s.s. i bankakerfinu, ýmis konar
milliliðastarfsemi, innflutn-
ingsverslun og rikisrekstrinum
— , og stjórn peningamála og
verðlagseftirlit.
í þessum tillögum er m.a.
lögð áhersla á samruna banka
og sparisjóða, fækkun trygging-
arfélaga, opinbert oliusölufélag,
sem annist allan innflutning og
sölu á oli'u og oliuvörum, og end-
urskoðun á rekstri skipafélaga
og Flugleiða, svo dæmi séu
nefnd.
Að þvi er rikisreksturinn
varðar er lagt til, að athuganir
og endurskipulagning á rekstri
ýmissa rikisfyrirtækja verði
teknar upp á ný, og verði athug-
unum fyrst beint aö stjórnsýslu-
kerfi rikisins, rekstri rikisspit-
alanna og annarra fyrirtækja i
heilbrigðisþjónustu, pósti og
sima og Rafmagnsveitum rikis-
ins og öðrum stofnunum á sviði
orkumála.
íslensk atvinnustefna
1 kaflanum um islensku at-
vinnustefnuna er fyrst fjallað
almennt um grundvallaratriði,
en siðan gerðar tillögur um að-
gerðir varðandi hvern atvinnu-
veg fyrir sig — sjávarútveg og
fiskvinnslu, iðnað og landbúnað,
og um nýtingu og varðveislu is-
lenskra auðlinda.
Markmið þessarar stefnu eru
m.a. sögð vera að skapa sem
viðtækasta samstöðu um, að at-
vinnulif á Islandi verði i hönd-
um innlendra aðila, en hafna er-
lendri stóriðju, og að efla fé-
lagslegan rekstur og stuðla að
forræði fólksins sjálfs ýfir fram-
leiðslutækjum og vinnuskipu-
lagi.
Viðræðugrundvöllur
eftir kosningarnar
Þeir Lúðvik og Ragnár sögðu,
að þessar tillögur hefðu lengi
verið i smiðum innan Alþýðu-
bandalagsins, og þær fæiu i sér
þá stefnu i efnahags- og at-
vinnumálum, sem flokkurinn
myndi berjast fyrir i komandi
kosningum.
Sömuleiðis sögðu þeir, að Al-
þýðubandalagið myndi leggja
framþessa stefnu —sem veröur
prentuð i heild og dreift inn á
hvert heimili i landinu — sem
viðræðugrundvöll við aðra
flokka eftir kosningar, ef ftokk-
urinn tæki þátt i stjórnarmynd-
unarviðræðum.
—ESJ.
GENGISSKRANING
Gengið no. 82
10. maí kl. 12
Kaup
Sala
Gengi nr. 83 —
11. mai 1978.
Kaup Sala
1 Sterlingspund....
1 Kanadadollar.....
100 Danskar krónur .
100 Norskar krónur .
100 Sænskar krónur .
lOOFinnsk mörk ....
lOOFranskir frankar
100 Belg. frankar....
100 Svissn. frankar ..
lOOGyllini.........
100 V-þýsk mörk ....
100 Lírur..........
100 Austurr. Sch ....
lOOEscudos.........
lOOPesetar.........
100 Yen............
257.40 258.00 257,40 258.00
466.75 467.95 469.60 470.80
229.50 230.10 233.60 234.20
■ 4530.30 4540.80 4541.50 4552.10
■ 4725.30 4736.30 4742.70 4753.80
• 5544.45 5557.35, 5552.80 5565.70
• 6065.00 6079.20 6069.30 6083.50
• 5552.80 5565.70 5547.40 5560.30
790.80 792.60 790.80 792.60
• 13056.70 13087.10 13.091.25 13.121.75
• 11496.20 11523.00 11.514.70 11.541.60
• 12309.90 12338.60 12.312.25 12.340.95
29.60 29.67 29.60 29.67
• 1709.75 1713.75 1712.00 1716.00
• * 568.35 569.65 569.80 571.00
317.40 318.10 317.40 318.10
114.29 -m 114.55 114.39 114.65
GARDENA
gerir garðinn frœgon
Nú er tími
garðrœktor og voranna
í GARÐHORNINU
hjá okkur kennir margra grasa
l,ií»|\tVX
Allskonar slöngutengi,
úðarar, slöngur,
slöngustatív,slönguvagnar
Margvisleg garðyrkju-
áhöld,
þar sem m.a. að einu
skafti felíur fjöldi áhalda
Kant- og limgerðisklippur.
Rafknúnar.
Handsláttuvélar
Husquarna-mótorsláttuvélar með
Briggs og Stratton mótor (3,5 hp)
Margar gerðir
SKOFLUR - GAFFLAR - HRIFUR
í GARÐHORNINU HJÁ OKKUR KENNIR
MARGRA GRASA ^Qunnai Sfó&eMbon Lf
LÍTIÐ INN
Akurvik h.f. Akureyri