Vísir - 12.05.1978, Page 13

Vísir - 12.05.1978, Page 13
vism Föstudagur 12. mal 1978. ŒSINS, SVARAR SPURNINGUM LíSENDA VÍSIS Stefna Alþýðufíokksins í meginatriðum hin sama og á Viðreisnartímanum „Eftir að stjórnarsam- starfi í Viðreisn lauk hefur Alþýðuflokkurinn verið í stjórnarandstöðu. Við höfum hlotið mjög slæman árangur í tvenn- um kosningum. Þetta hef ur orðið til þess að við höf um hafið endurskoðun á okkar stöðu og stefnu- skrá", sagði Benedikt er Gunnlaugur Björnsson spurði, hvort stefna flokksins hefði eitthvað breyst frá Viðreisnar- stjórnarárunum. Benedikt sagði, að Alþýðu- flokkurinn hedði gefið ilt nýja stefnuskrá fyrir um það bil ári siðin Sú steínuskrá væri þeirri fyrri óldk að þvi leyti, að Alþýðuflokkurinn hefði tekið upp meiri gagnrýni á galla þjóðfélagsins, einkum yngri mennirnir i flokknum. Hins veg- ar hefðu meginhugsjónir Alþýðufloksins og viðhorf hans til stærri mála ekki breyst mik- ið; þá benti Benedikt á að stefna Viðreisnarstjórnarinnar hefði byggst á málamiölun en ekki verið hrein stefna Alþýðu^ flokksins. Benedikt sagði að báðir flokk- ar i Viðreisnarstjifirninni hefðu þá haft á að skipa mjög mikil- hæfum mönnum og samstarfiö hefði gengiö ákaflega vel. ,Viítumeinaaðyið höfumekki jafn góða menn núna?’! sag i Gunn- laugur. ,,Ég vil ekki segja það”, sagði Benedikt, ,,en við verðum að gera okkur ljóst, að undan- farin ár hafa orðið feiknaleg mannaskipti, sem kalla má meiri háttar kynslóöaskipti. 6g er bjartsýnn á, að þaö komi maður i manns stað, en það gerist'ekki strax. —KS fAlþýðu- bjaðið verður ekki lagt niður" Erfiðleikar Alþýðu- blaðsins hafa komið glöggt i ljós að undan- förnu. Erling Garðar Jónasson spurði: ,,Er það ætlun forystu Alþýðuflokksins að blaðið verði lagt niður?” „Forysta Alþýðuflokksins mun ekki leggja Alþýðublaðið niður meðan hún getur mögu- lega hjá þvi komist. Ég get raunar sagt að blaðið verður aldrei lagt niður. Hinsvegar geturfariðsvo að við verðum að breyta útgáfu- forminu þannig að það verði annaðhvort mjög litið dag- blað, eða vikubiað. Þetta er núna i athugun. Við höfum ekki bolmagn til að bera tug- milljóna tjón af blaðinu, eins og verður á þó nokkrum blöð- um i dag.” ,,Við verðum að horfast i augu við það hvert vald peninganna er. En við munum gera það sem við getum til að halda blaðinu lifandi sem dag- bla ði. —ÓT. Benedikt Gröndal svarar spurningum lesenda VIsis. Blaöamenn VIsis fylgjast með. Visismynd: GVA „Er það prínsip að sverta Sólnes?" ,,Er það eitthvað „prinsip” mál hjá Alþýðuflokksmönnum að sverta Jón Sólnes?” spurði Ólafur Eliasson, á Akranesi. „Mér hefur ekki likað allt sem ég hef heyrt i Vilmundi.” ,,Það er það alveg áreiðan- lega ekki”, svaraði Benedikt. ,,Ég vil i þessu sambandi rifja upp þegar Vilmundur sat fyrir svörum I útvarpinu fyrir nokkrum vikum. Þá kom þetta til tals og Vilmundur gaf þá skýra yfirlýsingu um það að hann og Jón Sólnes væru hinir bestu kunningjar. Hann kvaðst alls ekki vera að halda uppi gagnrýni á persónuna eða al- þingismanninn Jón Sólnes, al- mennt.heldur bara fyrir tiltekin mál. Óg þeir heilsast og eru mestu mátar þegar þeir hitt- ast”. ,,En er það Alþýðuflokkurinn i heild sem vill gagnrýna Jón Sólnes á þennan hátt, eða er þetta bara rannsóknarblaða- mennska Vilmundar?” „Við höfum gagnrýnt Jón mjög harðlega sem formann Kröflunefndar, og fyrir það mál i heild. En ég verð nú að segja að við höfum ekki dregiö hann fram umfram aðra þar. Til dæmis hefur gagnrýnin á Al- þingi einkum beinst gegn orku- málaráðherra. —ÓT „SKIPTI MER EKKI AF PROF- KJÖRUM í ÖÐRUM KJÖRDÆMUM u ,,Þvi er ekki aö leyna að siðan prófkjörið i Reykjaneskjördæmi var haidiö hefur samstarfið á milli Jóns Armanns Héðinssonar og okkar hinna i þingflokki Al- þýðuflokksins ekki verið jafn gott og áður var, en við höfúm reynt að láta það sem mest fram hjá okkur fara”, sagði Benedikt Gröndai er Björn Helgason, Keykjavik, spurði um álit hans á Jóni Armanni. Benedikt sagði, að þeir hefðu starfað saman i Alþýðuflokknum um langt árabil, og hefði Jón Ár- mann reynst ágætur drengur og duglegur á mörgum sviðum. „Hvað finnst þér um að mönn- um sé sparkað á þennan hátt eftir langt starf fyrir flokkinn?”, spurði Björn. ,,Við tókum upp vfðtæk próf- kjör, og prófkjörið fór fram i þessu kjördæmi eins og öðrum, og niðurstaðan varð sú, sem við þekkjum. I pólitik verða menn alltaf að vera við þvi búnir, að þeir geti fengið spark”. „Stóðst þú öðrum fremur að þvi? ” ,,Ég hafði nógmeð prófkjörið i Reykjavik að gera, og skipti mér ekki af prófkjörum í öðrum kjör- dæmum”, sagði Benedikt. —ESJ Eitt af þess- um stóru málum....... „Þetta er eitt af þessum stóru málum, sem koma upp en svo er eins og þau hverfi i rikisbákninu. Við biðum eftir þvi að heyra, hvað islensk yfirvöld gera i sambandi við þetta mál eins og önnur gjaid- eyrismál”, sagði Benedikt, er hann svaraði spurningu Kristinar Gisladóttur um gjaldeyrisiagabrot við kaup á skipum hingað til iánds frá Noregi. —KS Kosningaget- raun til fjóröflunar Fjárhagur Alþýðuflokksins og Álþýðublaðsins hafa verið mikið til umræðu að undan- förnu. Karl Sveinsson spurði hvort einhverjar fjáröflunar- áætlanir væru til, sem Bene- dikt vildi skýra frá. „Jú, það eru fjáraflanir i gangi sem eru nátengdar kosningunum, þvi kosningar kosta mikið fé. Við héldum uppi serstakri söfnun 1977 til að losa okkur við gamiar skuldir, og þaö gekk mjög vel. Ég býst ekki við að við get- um endurtekið það nú, vegna kosninganna, það mundi ganga hvað yfir annað. Hins- vegar er hópur manna i Alþýðuflokknum sem hefur með sér föst samtöksem heita Gumi. „Gumi sótti til dómsmála- ráðuneytisins um leyfi til að efna til kosningagetraunar. Það var gert um svipað leyti og Kauði krossinn lagði fram sina beiðni. Þessar getraunir eru að visu ekki samskonar og það var ekki ætlunin að fara út i neina samkeppni við Kauða krossinn. Og ég veit ekki betur en að hún sé að fara I gang”. —ót. • Alþýðuflokkurinn styður áfengisvarnir „Alþýðuflokkurinn hefur frá stofnun verið hlynntur áfengisvörnum og ég get full- vissað þig um það að það hefur farið vaxandi i seinni tið”, sagði Benedikt Gröndal er hann svaráði spurningu Gunn- ars Haraldssonar, hvort Alþýðufiokkurinn hefði ekki i hyggju að styrkja AA-samtök- in á einhvern hátt. Benedikt sagði, að áfengis- vörnum hefði t.d.sérstaklega veriö sinnt i Alþýöublaöinu undir stjórn Arna Gunnars- sonar, enda væri áfengisbölið að verða eitt umfangsmesta og dýrasta þjóðfélagsmein sem við ættum við að striða. Benedikt sagði að AA-samtök- in væru ómetanleg en heföu að vísu starfað tiltölulega I kyrr- þey en hann væri sannfærður um aö ef þau leituöu til yfir- valda þá yrði þeim tekið með velvild, og það myndi ekki standa á aöstoð Alþýðuflokks- ins. —KS

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.