Vísir - 12.05.1978, Side 15

Vísir - 12.05.1978, Side 15
Mfa' m- sunna ^unna pinna limna íunna Föstudagur 12. maí 1978. vism w vism Föstudagur 12. mai 1978. Umsjón: Gylfi Kristjánsson —Kjartan L. Pálsson Iprþttir „Viss um að komast í 8 liða úrslit'' Slagurinn um islands- meistaratitilinn i knattspyrnu 1978hefstá tveimur stöðum sam- timis á morgun. Kópavogsmenn fá nýliða KA i heimsókn og þeir mæta Breiðabliki á Kópavogs- velli kl. 15 og á sama tima ganga Argentína sigrar! „Argentina sigrarUngverja- land 2:0 i fyrsta leik liðanna i Ileimsmeistarakeppninni i knattspyrnu, segir tölva nokk- ur sem býr I Buenos Aircs i Agentlnu. Tölva þessi var mötuð á alls kyns upplýsingum um liðin sem leika i riðlinum, og hún var alveg viss um úrslit leikj- anna i 1. untferð eftir að hafa melt þær. Tölvan var alveg viss um það að Frakkland myndi vinna 1:0 sigur gegn itölum, en þessi fjögur lið leika i A-riðlinm. 'gk-. Vikingar til Ieiks gegn Eyja- mönnum i Eyjum. Sennilega verður að reikna með að Breiðablik sigri nýliða KA.þótt reyndar sé ekki hægt að segja neitt með vissu um það. Breiða- bliksliðið hefur sýntágæta takta i leikjum sinum í vor og engin ástæða er til að ætla annað en að liðið verði ofarlega i deildinni eins og í fyrra. KA-liðið er að öllum likindum mesta „spurningamerkið” af liðunum i 1. deildinni. en i liðinu eru margir góðir leikmenn. Til viðbótar þeim sem tryggðu KA rétt til setu í 1. deild i fyrra hefur svo Elmar Geirsson komið i liðið og er óhætt að segja að hann styrkir hvaða félagslið hérlendis sem er. Menn skyldu þvi fara varlega i það að afskrifa KA-menn. Leikurinn i Eyjum ætti að geta orðið hörkuleikur, enda eru bæði liðin skipuð leikmönnum sem aldrei gefast upp. Þar verður án efa hart barist um hin dýrmætu stig sem fást fyrir sigur i leikn- um. Islandsmeistarar Akraness hefja titilvörn sina á þriðjudags- kvöldið á Laugardálsvelli og mæta þá nýliðum Þróttar. Senni- lega veðja flestir á Skagamenn i þeirri viðureign en menn skyldu ekki vanmeta hið unga og eíni- lega lið Þróttar þar eru margir rnjög efnilegir leikmenn sem eiga eflaust eftir að gera það gott i sumar. A þriðjudagskvöldið leika einn- ig ÍBK og FH i Keflavik, og verður að telja heimamennsigur- stranglegri i þeim leik. Siðasti leikur 1. umferðarinnar verður siðan á miðvikudaginn og mætast þá Valur og Fram. Ekki eru nema nokkrir dagar siðan liðin skildu jöfn i Reykjavikur- mótinu 1:1 svo búast má við hörkuleik þar. Knattspyrnuvertiðin er þvi að fara á fulla ferð og verður mikið um að vera á knattspyrnuvöllum viða um land næstu mánuðina. gk-. KR-ingar eru byrjaðir stigasöfnun í 2. deild — Unnu Fylki 2:0 í fyrsta leik íslandsmótsins Hinir nýbökuðu Reykjavíkur- meistarar KR I knattspyrnu léku i fyrsta skipti i 2. deild tslandsmóts i gærkvöldi, og þá sigruðu þeir nýliða Fylkis, sem einnig voru að leika i fyrsta skipti i 2. deild, með tveimur mörkum gegn engu. KR-ingar eru þvi byrjaðir að hala inn stigin i 2. deildinni, og er að likum lætur á stigasafn þeirra eftir að verða stórt i sniðum þegar liða tekur á sumarið. KR-ingar léku undan hvassri norðanáttinni á Melavellinum i gærkvöldi, en þrátt fyrir að þeir ættu mún meira i leiknum tókst þeim ekki að skora mark. Var ekki laust við að það væri farið að fara um suma stuðningsmenn liðsins þegar siðari hálfleikurinn hófst og Fylkismenn höfðu vind- inn i bakið. En KR-ingarnir reyndust leika betur gegn vindinum, enda léku þeir skynsamlega,og reyndu að halda boltanum niðri við jörðina. Uppskeran varð tvö mörk sem færði KR tvö fyrstu stigin i 2. deildinni. Fyrra markið skoraði Sverrir Herbertsson, en Stefán örn Sigurðsson bætti öðru við. Næstu leikir i 2. deildinni eru á morgun. Þá leika Armann og Austri á Melavelli kl. 14 og á Sandgerðisvelli leika Reynir Sandgerði og Þór frá Akureyri sem lék i 1. deildinni i fyrra. gk—. Nú verður fjör í Eyjum! Það verður mikiðfjöri íþróttallfinu i Vest- mannaeyjum um helgina, og i mörg líorn að lita fyrir iþróttaáhugamenn. ÍBV leikur sinn fyrsta leik i 1. deild knatt- spyrnunnar gegn Vikingi kl. 15 á morgun, og væntanlega fjölmenna Eyjamenn á völlinn til að hvetja sina menn. Golfmenn verða fjölmennir i Eyjum með kylfur sinar og kúlur, enda fer þar fram opiö stigamót sem gefur landsliðsstig, Faxa- keppnin svokallaða. Þá verður einnig sveita- keppni á dagskrá, Aðmirálskeppnin, og taka sennilega 8 sveitir þátt i henni. Þá hefur heyrst um sjóstangaveiðimót I Eyjum og einnig að þar fari svo fram sund- mó me þátttöku alls besta sundfólks lands- ins. — „Sportidjótar” I Eyjum hafa þvi nóg að gera um helgina. gk-. „Ég er alveg viss um að við komumst i 8-liða úrslitin” sagði Lajos Baroti framkvæmdastjóri ungverska landsliðsins I knatt- spyrnu er hann tilkynnti lið það sem hann ætlar með til Argentlnu i HM-úrslitin þar i sumar. Baroti valdi aðeins 19 menn til fararinnar ekki 22 eins og hinar þjóðirnar gera og það kom mjög á óvartað hann valdi ekki Andreas Toth i liðið en flestir reiknuðu með honum sem einum af aðal- mönnum i liðið. Baroti sagði að Toth værigóður einstaklingur en passaði ekki inn i þær leikaðferðir sem liðið á að leika i Argentinu. „Það verður allt á fullu allan leiktimann á vallarmiðjunni og þetta hentar ekki leikmönnum eins og Toth. Ég hef marga frábæra leik- menn i liðinu menn sem eru til- búnir að berjasttil siðasta manns af alefli. Þekking þeirra oghæfni gerir þaðað verkum að við eigum að geta sigrað hvaða lið sem er. Við höfum á undanförnum árum leikið við flestar þær þjóðir sem leika til úrslita i Argentinu og unnið þær allar svo við ættum að geta gert stóra hluti i Argentfnu” sagði Baroti sem er greinilega bjartsýnn á gott gengi sinna manna á HM gk-. Wolverhampton Wánderers keypti i gær leikmanninn Peter Daniél frá HuII fyrir 150 þúsund pund. Daniel sem er bakvöröur og hefur leikið 7 landsleiki fyrir England — undir 21 árs — er keyptur til að reyna að endurbæta öftustu vörn Úlfanna sem var heldur lek á nýafstöðnu keppnis- timabili, en Úlfarnir björguðu sér þó frá falli á siðustu stundu. Veroa Danir að skella í lós ó útlendingana? Ekkert reiknað með að þeir flœddu inn í landið um leið og atvinnumennskan í knattspyrnu fór af stað Það fer ekki á milli mála að Danir hafa þegar lagt mikinn pening i atvinnu- mannaknattspyrnuna hjá sér. Ekki er samt enn útséð um hvort hún ætlar að bera sig, en þeir sem best þekkja til, segja að árangurinn komi ekki i ljós fyrr en eftir nokkur ár. Með atvinnumannaknattspyrnnni gerðu Danir sér vonir um að halda i sina bestu leikmenn, og að þeir missi þá ekki til erlendra félaga fyrir litinn sem engan peninga. Þeir reiknuðu aftur á móti ekkii með þvi, að erlendir leikmenn gætu komið inn i danska knattspyrnu um leið og fariö væri að greiða opinberlega fyrir æfingar og leiki. Nú blasir það vandamál við, og enginn veit hvernig á að snúa sér út úr þvi. Gamlir og góðir leikmenn frá Englandi, Vestur-Þýskalandi og viöa hafa sýnt áhuga á að leika i Danmörku. Má þar t.d. nefna Bobby Moore fyrrum fyrirliða West Ham og enska landsliðsins, sem leikur nú í Danmörku, og gerir það gott. Ungir og efnilegir ieikmenn frá Skot- landi hafa einnig sýnt Danmörku mik- inn áhuga — enda er þar meira að hafa upp úr knattspyrnunni heldur en i Skot- landi, þar sem aðeins tvö félög, Rang- ers og Celtic greiöa og geta greitt mann- sæmandi laun. Hjá 3. deiidarliðinu Svendborg eru nú t.d. þrir Skotar, sem setja mikinn svip á leik liðsins og gera þar góöa hluti. Það eru þeir Dereck Morrison frá Kilmarn- ock, John Fraser frá St. Johnstone og Neill Mooney frá Morton. Þess má geta að þjálfari Svendborg er Jack Johnson sem á sinum tima þjálfaði Akureyrar- liðið i knattspyrrnu, en hann var lengi atvinnumaður i Skotlandi og veit þvi hvernig ástandið er þar. A meðan að engar reglur um þátttöku útlendinganna hafa verið settar I Dan- mörku, er unnið að þvi bæði Ijóst og leynt af forráðamönnum liðanna að fá þá til að koma. Meðal annars hefur ver- ið auglýst eftir góöum knattspyrnu- mönnum i blöðum hér á tslandi. Við þessu vandamáli var ekki séð I tima, og þvi klóra menn sér nú i höfðinu og hugsa alla möguleika á að „kióra” sér út úr þvi... án þcss þó að skaða danska at- vinnumannaknattspyrnu eitthvað aö ráði. —klp— Atli Þór Héöinsson er einn þeirra erlendu knattspyrnu- manna sem leika I Danmörku. Hann safnar ekki myndum af pabba! Sá golfarisem einna mest hefur kom- ið á óvart i atvinnumannakeppnunum i golfi i Bandarikjunum nú I vor er án efa Suður-Afrikumaðurinn Gary Player. Það voru fáir sem reiknuðu með að hann léti að sér kveða á þessu ári — hans timi væri liðinn og hinir yngri myndu skjóta honum og ýmsum öðrum gömlum og frægum aftur fyrir sig i ár. En Gary Player sem nú er kominn á fiinmtugs aldurinn, var ekki á þvi. Hann sigraði i Masters-keppninni einni af mestu golfkeppnum heims á dögunum og siðan hefur hann sigrað i tveim öðrum stórmótum. Þar fyrir utan hefur hann krækt sér i 2. og 3. sætið í öðrum tveim mótum og við það hefur dollara- sjóður hans — sem var nú sæmilega stór fyrir — stækkað að mun. i einu af þessum mótum kom Player fram á sjónarsviðið með son sinn sem búsettur er i Suður Afríku, og fáir nema nánustu vinir og ættingjar hafa séð eða umgengist. Hefur Player alla tið forðast að eigin- konan og börn þeirra séu i sviðsljósinu og fái frið fyrir aðdáendum hans svo og fréttamönnum og ljósmyndurum. Hann á eftir að verða góður Astæðan fyrir þvi að hann „flaggaði” syni sinum á goifmóti i Bandaríkjunuin á dögunum var sú að pilturinn, sem heitir Wayne Player og er 15 ára gamall hafði skömmu áður náð þvi takmarki að fá forgjöf núll.en pabbi hans hafði lofað honum þvi á sinum tima að þegar hann næði þvi takmarki fengihann að fara og fylgjast með atvinnumannakeppnunum i Bandarikjunum. Golfsérfræðingar sem séð hafa unga Player slá golfbolta segja að hann eigi eftir að verða eins góður og sá gamli Player — og jafnvel betri. Gary Player er lika á sama máli og sagði m.a. við blaðamenn sem spurðu hann um stráksa: „Hann er þegar farinn að slá eins langt og þeir bestu og ég þarf að hafa þó nokkuð fyrir þvi að vinna hann — sérstaklega ef eitthvað er i húfi fyrir hann eins og t.d. að hann fái að kaupa sér einhvern hlut ef hann vinni mig I 18 holu keppni” Þegar Wayne var spurður að þvi hver væri uppáhalds golfleikarinn hans var hann fljótur að segja Jack Nicklaus. Pabbi hans sagði þá að í herbergi hans væru allir veggir þaktir myndum af Jack Nicklaus. Er Wayne var spurður að þvi hvort hann safnaði ekki eða ætti myndir af Gary Player, svaraði hann... „jú eina litla sem ég er alltaf með í veskinu minu. Hann er pabbi minn og ég þarf ekki að safna myndum af honum.”... —klp— Gary Player: „Égá oröiöi vandræðum með að sigra soninn” tslandsmeistarar Akraness I knattspyrnu. Þeir hefja titilvörn sina I Laugardalnum á þriðjudaginn er þeir mæta þar nýliöum Þróttar. Allt ó fulla ferð út um allt í knattspyrnunni! — Slagurinn um íslandsmeistaratitilinn hefst á morgun ..............................-............ ■ ......... Félog Loftleiðaflugmanna Áriðandi félagsfundur mánudaginn 15. mai kl. 20.30 stundvislega i Leifsbúð Hótel Loftleiðum. FUNDAREFNI: Samningarnir Heimild til verkfallsboðunar •• Onnur múl Stjórnin. ............——■■ n.-,i ............ KBB7.!f.Tga'.T-U..W.!.» Eftirtaldar notaðar Mazda bifreiðar eru til sölu í sýningarsal okkar 929 sjálfsk., 4 ra dyra árg. 78, ekinn 5 þús. km. 818 station árg. 77, ekinn 20 þús. km. 818 4ra dyra árg. 76, ekinn 13 þús km. 818 4ra dyra. 76, ekinn 30 þús. km. Öllum ofangreindum bifreidum fylgir 3-6 mánaða Mazda ábyrgð BÍLABORG HF. SMIÐSHÖFÐA 23 — SÍMI 81264 Athyglisöiuskattsgreiðenda skal vakin á þvi, að gjalddagi söluskatts fyrir aprflmánuð er 15. mai. Ber þá að skila skattinum til innheimtumanna rikissjóðs ásamt sölu- skattsskýrslu í þririti. FJARMALARAÐUNEYTIÐ DREGIÐ VERÐUR í HAPPDRÆTTINU 1. júní 1. júli n.k. og verðo neðantaldir vinningar fyrir hvern mónuð HflLLO CRflCCfiR! SÖLU- OG BLAÐBURÐáRHAPPDRÆTTI VÍSISl Þótttökurétt i happdrœttinu hafa sölu- og blaðburðorbörn Vísis um ollt land. /r- 1. vinningur: Danskt SCO-reiðhjól frá Reiðhjólaversluninni ÖRNINN að verðmæti um kr. 75.000 gaaattU gtttttttttt gggttttB tttttttt tttt 2. vinningur: Texas Instruments tölvuúr frá ÞÓR hf. að verðmæti kr. 8.000 3.-8. vinningar: Texas Instruments tölvur frá ÞÓR hf., hver að verðmæti kr. 6.000 VISIR

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.