Vísir - 26.05.1978, Qupperneq 8

Vísir - 26.05.1978, Qupperneq 8
8 Ullmann gengwr illa Ullmann og Peck Liv Ullman er nú á „síðasta séns" í Holly- wood. Síðustu fjórar myndir hennar hafa verið gersamlega mis- heppnaðar. Hún lék eitt aðalhlut- verkið í ,,Lost Horizon" fyrir Columbia félagið. Eftir þá mynd var helmingi stjórnenda fyrirtækisins sparkað. Félagið reyndi að rétta úr kútnum með „40 karöt" þar sem Liv lék aðalhlutverkið og eftir þá mynd var restinni af stjórnendunum sparkað. Liv fór þá yfir til Warner Brothers og lék annað aðalhlutverkið i „Brúður Zandys" og þarmeð fauk helm- ingurinn af stjórn þess 'fyrirtækis. Restin fór svo eftir aðra mynd Ullmann hjá fyrir- tækinu. Menn eru sammála um að ef enn ein mynda hennar misheppnist, þori enginn bandarískur framleiðandi að ráða hana til sin framar. Siðasta tækifæri hennar er i mynd um rússnesku skáldkonuna Olgu Ivanskaya og mót- leikari hennar verður Gregory Peck. o Gullskipið Flestar bækur Allist- ers McLean hafa verið kvikmyndaðar og ein sú nýjasta sem færð hefur verið á hvíta tjaldið er „Til móts við gull- skipið", með Richard Harris i aðalhlutverki. Miklu fé var varið til að gera myndina, en árangurinn varð ekki eftir þvi. Kvikmynda- gagnrýnendur og áhorf- endur voru sammála um að myndir-i væri svo ruglingsleg að þeir vissu ekkert hvað væri að gerast. Gagnrýnin var svo áköf að myndin var tekin til endurskoðunar. Framleiðendur gripu til þess ráðs að láta taka upp sex minútna formála sem kemur á undan titlunum. Þótti gagprýnendum að eftir það mætti nokkuð skilja hvað væri um að vera. o Börit Presleys Elvis Presley var vell- auðugur maður þegar hann lést Og hann var ekki orðinn kaldur i gröfinni þegar upp spratt mikill hópur manna sem gerði tilkall til hluta af þessum auðæfum, af ýmsum ástæðum. Meðal annars hafa einar ellef u konur komið fram á sjónarsviðið og haldið því fram að þær hafi eignast börn með söngvaranum. Vilja þær Gloria Lahrs (tll vinstrl) fcvehst hafa eignast Candy Jo FuHer (th.) meft Presley árift 1957. Ef þa& er rétt halda þær A déttursyni hans. nú f.á arf þessum börnum sínum til handa. Ein þeirra er Gloria Lahrs sem kveðst hafa fætt barn Presleys árið 1957. Það var stúlka sem nú er tuttug og eins árs og búin að eignast eigið barn, þannig að Presley var þá afi þegar hún lést, ef sagan er sönn. Stúlkan heitir Candy Jo Fullerog er söngkona að atvinnu. Hún segir að sér hafi oft verið strltt á þvi hvað hún sé lík Presley. Þær mæðgur gera engar kröfur i dánarbúið en vilja hins- vegar að Candy Jo f ái að nota Presley nafnið, henni til framdráttar á söngferlinum. Vernon Presley, faðir söngvarans, hafnaði þesu eftir að hafa átt vinsamlean fund með þeim mæðgum. Hann sagði þeim að ellefu aðrar konur segðust hafa börn Presleys og hann ætti von é f leirum. Engin börn yrðu viður- kennd fyrr en eftir mikla og nákvæma rannsókn. ÞaÖ er alveg rétt Til þess þarf ekki náöargáfu, heldur hæfileika og dugnaö. Hinsvegar þarf náöargáfu til aö stjórna vegamálum á Austurlandi '’&KVr /ííl allrar' ^7w'J / hamingju ^Y hiln efcki n/j^ N. stereo ri ^ y vs ööij r lÍÉE ♦

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.