Vísir - 10.06.1978, Side 2

Vísir - 10.06.1978, Side 2
Laugardagur 10. júní 1978 VISIR 2 SKIPTAR SKOÐANIR SKIPTAR SKOOANIR SKIPTAR SKODANIR SKIPTAR SKOÐANIR Báknið burt þýðir ekki niðurskurður heilbrigðisþjónustu Segir Friðrik Sophusson SjálfstœXsmenn hvetja til niður skurðar í heil- brigðismálum Segir Svavo Jakobsdóttir Hvaö felst i hugtakinu „Báknið burt?” Er niður- skurður á útgjöldum til heilbrigðis- og trygg- ingarmála nauðsynlegur í þvi sambandi? „Báknið burt” er kjör- orð sem ungir sjálfstæðis- menn hafa notað i baráttu sinni gegn of miklum rikisumsvifum. Við viljun draga úr rflúsafskiptum til þess að koma í veg fyr- ir þá þróun að einstakl- ingarnir í þessu þjóð- félagi verði svo háðir stjórnmála og rikisvald- inu að frelsi og framtak verði i framtiðinni fram- andi hugtök. Við viljum i fyrsta lagi að stórlega verði dregið úr stjórn- málaafskiptum af láns- fjárkerfinu þannig að lánskjör taki jafnan mið af markaðaðstæðum og skipulag rikisbanka og sjóðskerfsins bjóöi ekki heim pólitiskri spillingu. Til að koma i veg fyrir verstu afleiðingar verð- bólgunnar þurfum við raunvaxtastefnu, jafna þarf lánskjör fjárfesting- arlánasjóða þannig að iðnaður verði samkeppn- isfær og skera þarf burt þá skafanka i fram- kvæmdastofnunni sem vinstri stjórnin skildi eftir sig i kommissarakerfinu. . Við viljum i öðru lagi nýta betur það fé sem úr rikissjóði streymir. Áætl- anir um fjármál rikisins verði gerðar til lengri tima en eins árs i senn.Si- fellt verði metin markmið opinberra útgjalda og nýj- ustu hagsýslu og stjórn- unaraðferðir notaðar i þeim efnum. t þriðja lagi viljum við hverfa frá þeirristefnu að veita einstaklingnum þjónustu undir kostn- aðarverði án tillits til fjárhags þeirra, nema i fáum afmörkuðum tilvik- um og þá verði neytend- um gerð grein fyrir kostnaðarverði. 1 fjórða lagi viljum við lækka niðurgreiðslurnar verulega og skapa for- sendur fyrir afnámi út- flutningsuppbóta. t fim mta lagi viljum við að ýmis rikisfyrirtæki sem nú eru starfandi verði seld einkaaðilum, eða þau lögð niður. Þeim rikisreknu framleiðslu- fyrirtækjum sem rikið á verði breytt i hlutafélaga- form og gerð að starfa á sama viðskiptagrundvelli og einkafyrirtæki. Þegar rætt er um heil- brigðis- og tryggingarmál verður að hafa i huga að þriðja hver útgjalda- króna rikisins fer til þess- ara málaflokka. t sam- bandi við heilbrigöismál- in má benda á að núver- andi kostnaöarskipting rikis ogsveitarfélaga lýt- ur oft undir ótimabæra fjárfestingu og þar af leiðandi óhagkvæman rekstur. Læknar eiga að sjálfsögðu að taka fag- legar ákvarðanir um þaö sem þeir starfa við hins- Friðrik vegar eiga dýrari og fjár- frekari ákvarðanir að takast af stjórnendum og stjórnvöldum, að fengn- um tillögum frá heil- brigðisstéttum, sem byggjast þá á heilsu- hagfræðilegu mati. Það þarf ennfremur að auka samstarf sjúkrahúsanna t.d. tækjabúnað og jafn- framt að auka samkeppni þeirra, með þvi að verð- launa góðan rekstur. Á ráðstefnu um heilsu- hagfræði sem haldin var fyrir skömmu komu fram margar góðar ábending- ar sem greinilega sýna að hagræða má ýmsu i sjúkrahúsarekstri og heilsugæslu. Það er útúr- snúningur og tóm þvæla þegar alþýöubandalags- menn halda þvi fram aö ungir sjálfstæöismenn ætli sér að draga úr heil- brigðisþjónustunni. Við teljum hins vegar vel koma til greina að bjarg- álnamenn taki sjálfir þátt i kostnaðinum i vissum afmörkuöUm tilvikum. — A frekar að beina spjótunum að þvi hvernig fyrirtækjum i al- menningseign er stjórn- aö, heldur en hvort leggja eigi þau niður? Með baráttunni gagn bákninu viljum við end- urmeta hlutverk rikis- reksturs rikisstofnana og spyrjum hvort uppruna- legum tilgangi hafi ekki þegar verið náð? Þvi miður eru alltof marg- ip kalkvistir i rikiskerfinu og þá viljum við skera burt. Ef einkareksturinn ræður verkefnum viljum viðeðlilega að honum séu fengin þau i hendur. Ég veit að mjög margir stjórnendur i opinbera geiranum vinna störf sin með prýði en það er ekki alltaf nóg að gera hlutina rétt. Við verðum lika að gera réttu hutina. — Flest stuðningur við hugmyndir um báknið burt i' áfangaskýrslu nefndar um minnkun rikisrekstrar? 1 áfangaskýrslunni frá nefndinni koma fram til- lögur sem eru i fullu sam- ræmi við tillögur okkar sjálfstæðismanna og þær tillögur sanna raunar að hægt er að breyta þessum málum i þeim anda sem við höfum lagt til. Minni einkaneysla þýðir að minu viti meiri rikis- afskipti. — Er skattheimta hins opinbera komin i þaö há- mark sem eðlilegter eða á að minnka einkaneysluna enn frekar? Myndi slikt hafa i för með sér aukn- ingu báknsins? Minni einkaneysla þýð- ir að minu viti meiri rikisafskipti. Ég tel skattheimtuna nú vera komna i hámark frekar ber að draga úr henni en hitt. —ÞJH. Hvað feist i hugtakinu báknið burt? Er niður- skurður á útgjöldum til heilbrigðis og tryggingar- mála nauðsynlegur i þvi sambandi? Sjálfstæðismenn hafa notað þetta hugtak til þess að hvetja til niður- skurðar á félagslegri þjónustu og greiðslum til sameiginlegra þarfa landsmanna svo sem til heilbrigðismála, trygg- ingamála og skólamála. Það bákn sem er að sliga þjóðina er hins vegar af allt öðrum toga. Það bákn felst i yfirbyggingu þjóð- félagsins sem skilar ótal milliliðum einkagróða og flest m.a. i margföldu oliudreifingarkerfi, rán- dýru bankakerfi og óskipulagðri og hömlu- lausri innflutningsversl- un. Það þarf mikinn gjaldeyri til þess að standa undir öUu heild- salabákninu og versl- unarhöllunum, og þegar gjaldeyrir er ekki til eru tekin erlend lán sem skrifast siðan á þjóðina alla. Og hvað skyldi fast- eignasölubáknið hirða mikinn skatt af hverri fjölskyldu sem er að koma sér upp þaki yfir höfuðið? Vitanlega á að gæta hagkvæmni I rekstri þeirra stofnana, sem veita félagslega þjónustu, en útgjöld til þessara stofnana eða þessara mála áað miða við mann- inn sjálfanogþarfir hans. 1 tið vinstri stjórnar voru hafnar athuganir á rekstri ýmissa rikisfyrir- tækja og stofnana en þær athuganir beindust að aukinni hagkvæmni en ekki að þvi að draga úr mannsæmandi þjónustu og þvi öryggi sem hver þjóðfélagsþegn árétt á. í þeim efnum eiga þarfir mannsins og jöfnuður milli manna að vera leiðarljósið. — Á frekar að beina spjótum að þvi hvernig fyrirtækjum i almenn- ingseign er stjórnað, heldur en hvort leggja eigi þau niður? Mikil yfirbygging og auk- in milliliðastarfsemi þýð- ir auðvitað aukið skrif- ræði. Þvi minni yfirbygg- ing þvi færra fólk þarf i ýmiss konar skrifstofu- störf og óarðbær þjón- ustustörf. Við þurfum fleira fólk i framleiðslu- greinar. Við þurfum að efla fullvinnslu islensks hraefnis og þangað þurf- um við að beina fólki i at- vinnu. Vitanlega þarf að auka lýðræði I fyrirtækj- um i almenningseign og þaö getum við ef vil vilj- um, þvi rikið, það erum við sjálf. Stjórnendur fyrirtækja i almennings- eign starfa i umboði okk- ar. Hinsvegar getur Svava verkamaður hjá fyrirtæki i einkaeign ekki krafist sömu lýðræðisréttinda af forstjóranum. Þetta gerir gæfumuninn. Það eru auðvitað margar leiðir til þess að auka atvinnulýð- ræði. Ein leið til þess að draga úr ofneysluvaldi yfirmanna er að t.d. koma á fót samstarfs- nefndum einsog gert var i Landssmiðjunni sam- kvæmt reglugerð. Svo er einnig sjálfsagt aö endurnýja valdastöður. — Felst stuðningur við báknið burt I áfanga- skýrslum nefndar um minnkun rikisrekstrar? 1 niðurstöðum þessarar nefndar felst stuðningur við hugmyndir þeirra sjálfstæðismanna um að einkaaðilar skuli hirða gróðann ef hann er til, en þjóðin taki á sig tapið. Nefndin leggur til dæmis til að Landssmiðjan verði lögð niður sem rikisfyrir- tæki enda þótt að fyrir- tækið skili hagnaði. Þetta er kannski skiljanlegt i ljósi þess að eitt megin- verkefni þessarar nefnd- ar var að kanna hvort að- ild rikisins að atvinnu- starfsemi i landinu I samkeppni viö einkaaðila væri æskileg. Meginhugs- unin er sem sagt sú að réttur einstaklinga sem fræða sé æðri hagsmun- um heildarinnar. Allt bendir til að núverandi rikisstjórn hafi sömu áform i huga varðandi önnur rikisfyrirtæki sem bera sig og má þar nefna Slippstöðina á Akureyri og Alafoss. — Er skattheimta hins opinbera komin i það há- mark seðeðlilegt er eða á að minnka einkaneysluna enn frekar. Myndi slikt hafa i för með sér aukn- ingu báknsins? Með þessari spurningu finnst mér gengið út frá þvi að samneyslan sé báknið. Það má með margvislegum hætti ná peningum til nauðsyn- legrar samneyslu, öðrum en þeim að seilast i vasa fólks, sem eru með lágar tekjur eða rétt meðaltekj- ur. Mörg hundruð fyrir- tæki i landinu eru svo til skattfrjáls vegna frá- leitra fyrningarreglna. Báknið er sem sagt skatt- frjálst. Eigum við ekki að skattleggja báknið? Það- þarf einnig að stórauka eftirlit með þvi að sölu- skatti sé skilað. Eitt sið- asta verk þessarar rikis- stjórnar var aö leiða I lög að arður af hlutabréfum væri skattfrjáls. Þarna á sem sagt að verðlauna fólkið, sem á peningana og láta það eiga skatt- frjálsan gróða. En meðan svo er ástatt er klipið af þessu litla fé sem elli- og örorkulifeyrirsþegar fá I sinn hlut af samneysl- unni. —ÓM áKIPTAR SKODANIR SKIPTAR SKODANIR SKIPTAR SKODANIR SKIPTAR SKOD4NIR

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.