Vísir - 10.06.1978, Side 3
VISIB Laugardagur 10. júnl 1978
3
ENGINN ÁRANGUR
ENN f PORTÚGAL
„Síðasti fundur okkar
með saltfiskkaupendum í
Portúgal var því sem
næst árangurslaus" sagði
Tómas Þorvaldsson
formaður Sölusambands
íslenskra fiskframleið-
enda i viðtali við Visi í
gær.
Tómas er nýkominn frá
Portúgal ásamt sendinefnd frá
SIF. Sagöi Tómas suma ráöa-
menn þar ytra hafa veriö er-
lendis en væntanlega heim i
næstu viku og kynni þá einhver
hreyfing aö komast á málin. Aö
sögn Tómasar höföu fiskkaup-
endur i Portúgal lýst sig viljuga
til kaupa á 14-20 þúsund lestum
á sama veröi og i fyrra en ekki
fengið formlega heimild stjórn-
valda enn. Aö sögn Tómasar
blandaöist einnig inn I þessar
viðræður sU ósk PortUgala, að
Islendingar kaupi meira af
þeim i þvi skyni aö rétta vöru-
skiptahalla PortUgala gagnvart
Islandi. Mjög hefur dregið Ur
neyslu saltfisks i PortUgal
vegna stjórnunaraögerða og er
neyslan nU helmingi minni en
hún var fyrir tveimur árum.
Enn fremur sagöi Tómas
Þorvaldsson, aö Utflutnings-
bannið heföi gert SIF erfitt fyrir
þar eð landiö allt þyrfti aö vera
opiö til að SIF gæti náð upp i
samninga þá sem þegar hafa
verið gerðir. Ekki nægði aö
ákveðin svæöi væru opin þvi
iðulega þyrfti aö tina upp hinar
ýmsu fisktegundir viðsvegar
um landiö.
A aöalfundi StF, sem hófst i
gær var kosin þriggja manna
nefnd til að ganga á fund stjórn-
ar veröjöfnunarsjóös og sjávar-
Utvegsráöherra og reyna aö fá
leiöréttingu á ákvöröun viömiö-
unarverös, þannig aö þaö veröi
ákveöiö sérstaklega fyrir hvern
gæöaflokk.
Kópavogur:
Myndun meiri-
hiuta dregst
,,Það eru fjórir listar i
viðræðum um myndun
meirihluta þ.e. Alþýðu-
bandalag, Alþýðuflokk-
ur, Framsóknarflokkur
og þeir sem stóðu að
K-lista. Einhverjir þrír
geta myndað meirihluta
hvað fulltrúatölu snert-
ir” sagði Björn Ólafsson
bæjarfulltrúi Alþýðu-
bandalagsins er rætt var
við hann i morgun.
Hann sagði að viðræðurlægju
niðri, þar sem menn hefðu ákveð-
ið að taka sér smáhvild. Bæjar-
stjórnarfundur verður I dag og
siðan ekki fyrr en eftir tvær vik-
ur. Björn sagði að stefnt væri að
þvi að ganga frá myndun meiri-
hluta og ráðningu bæjarstjöra i
næstu viku. Ekki vildi hann gefa
neitt upp um þaö hver yrði hugs-
anlega bæjarstjóri, en Björgvin
Sæmundsáon var bæjarstjóri
sjálfstæðis og framsóknarmanna
siðasta kjörtimabil.
-BA-
Hestamenn með
mót í Eyjafirði
Hestamenn frá Akureyri og
Eyjafiröi halda mikiö mót á Mel-
geröismelum i dag og á morgun.
Þar hafa hestamannafélög komiö
sér upp myndarlegri mótsaö-
stööu, tjaldstæöi góö og fagurt
umhverfi.
Þarna eru á annað hundraö
hrossa og i morgun byrjaði mótiö
með kynbótasýningu og undan-
rásum kappreiða. A morgun,
sunnudag, fer fram fyrri hluti
gæðingadóma klukkan 11, siðan
er hópreið hestamanna, sýning
kynbótahrossa og dómum lýst. Að
þvi búnu er seinni hluti gæðinga-
dóma og úrslit i kappreiðunum.
Það eru hestamannafélögin
Léttir á Akureyri, Funi i Eyja-
firði og Þráinn á Grenivik sem
standa að mótinu. A þvi fer fram
forskoðun fyrir landsmót hesta-
manna sem fram fer i Skógarhól-
um I sumar. —SG
Ísland-Austur-Þýskaland:
ólafur Jóhannesson undirritaöi samninginn fyrir tslands hönd í fjarveru Einars Ágústssonar. Werner
Buschmann vararáöherra fyrir matvælaiönaöarmál o.fl. undirritaöi fyrir hönd Þýska Alþýöulýöveldis-
ins.
■
VÍSINDI- OG T/tKNISAMVINNA
Á SVIÐI SJÁVARÚTVCGS
tsland og Þýska Alþýöulýð-
veldiö hafa gert með sér samn-
ing um visinda- og tæknisam-
vinnu á sviði sjávarútvegs.
G^rt er ráð fyrir að samnings-
aðilar hafi samvinnu og samráð
og skiptist á upplýsingum um
visindaránnsóknir er snerta lif-
andi auðævi hafsins og einnig
um veiðiaðferðir, eiginleika
fiskiskipa og tæknistriði er
varða veiðarfæri og geymslu,
flutning og vinnslu sjávaraf-
urða.
Samstarfsnefnd verður stofn-
uð sem mun fjalla um fram-
kvæmd samningsins og gera
áætlanir um samvinnu. Tekið
er fram i samningnum að hann
skuli ekki hafa áhrif á aöstöðu
aðila i málum sem til meðferðar
eru á Hafréttarráðstefnu Sam-
einuðu þjóðanna.
Samningurinn tekur strax
gildi, en hvorum aðila um sig er
heimilt aðsegjahonum upp með
6 mánaða fyrirvara. —BA—
Nýr meirihluti á Siglufirði:
Gengur að sáttatilboði
Verkamannasambandsins
Nýr meirihluti hefur veriö mynd-
aöur á Siglufirði meö aðild
Alþýðubandalags, Alþýöuflokks
og Sjálfstæöisfiokks.
Þessi meirihluti var myndaður
á fyrsta fundi bæjarstjórnar
Siglufjarðar eftir kosningar sem
haldinn var s.l. fimmtudag.
Bjarni Þór Jónsson var endurráð-
inn bæjarstjóri. Jóhann Möller
var kosinn forseti bæjarstjórnar
en bæjarráð skipa Jóhann Möller
(A), Björn Jónasson (D) og
Gunnar Rafn Sigurbjörnsson.
Ákveðið hefur verið að meiri-
hlutinn geri með sér málefna-
samning en ekki er búið aö ganga
frá honum ennþá.
A þessum fyrsta fundi bæjar-
stjórnarinnar var samykkt til-
laga með atkvæðum Alþýðuflokks
og Alþýðubandalags um að Siglu-
fjarðarbær gangi til samninga við
Verkalýðsfélagið Vöku og starfs-
mannafélag Siglufjaröarkaup-
staðar á grundvelli sáttatilboðs
Verkamannasambandsins hjá
sáttasemjara 19. mai s.l. um full-
ar visitölubætur á laun upp að 130
þús, á mán miðað við 1. des. s.l.
Sjálfstæðismenn og framsóknar-
menn sátu hjá við afgreiðslu
þessarar tillögu.
—KS.
:
verslA^PMRI^!
LAUGAVEGI 26, SfMI 11244
V:'
■
H
Vantar
vitni
Siysarannsóknadeild lög-
rcglunnar hefur beöiö VIsi aö
auglýsa eftirvitnum að tveim
umferöaróhöppum.
Annaö átti sér staö á mánu-
daginn á gatnamótum
Ármúla, Háaleitisbrautar og
Safamýri um klukkan niu um
morguninn. Það voru Toyota
og Vauxhall sem þar rákust á.
Hitt var þegar ekiö var á
gamla konu á Miklubraut
móts viö Eskihliö. Konan var
að ganga norður yfir syðri ak-
brautina en varö fyrir bil á
leið austur Miklubraut.
Þeir sem einhverjar uppiýs-
ingar geta gefiö um þessi
óhöpp eru beðnir aö hafa sam-
band við lögregluna.