Vísir - 10.06.1978, Side 6

Vísir - 10.06.1978, Side 6
6 Fjölskyldan samankomin I stofunni. Fremst eru þau Edda og bóndi hennar, Helgi Sigurösson, og aftar eru Grétar og Siguröur meö Eddu Júliu, 8 ára, á milli sin og Helgi Hafsteinn, 9 ára, og Sigrún Gréta, 6 ára. Stóllinn, sem húsbóndinn situr I, er handsaumaöur og þaö eru reyndar fleiri húsgögn i stofunni. ,,Eg datt i saumaskapinn þegar ég gekk meö börnin,” sagöi Edda. Einn dagur í einu Við snérum nú talinu aö laga- náminu og var Edda spurö aö þvi hvort hún heföi alltaf ætlaö sér að verða lögfræðingur. „Miglangaði alltaf til aö fara út i lögfræöi. Mér fannst þaö spennandi grein. Það er mis- skilningur aö laganám sé þurt. Lögfræðin snertir öll sviö mann- legs lifs. Þess vegna ákvað ég eftir stúdentspróf aö láta innrita mig i lagadeild. En ég hugsaöi ekki lengra en fram aö fyrsta prófinu. Þaö borgar sig ekki aö vera aö brjóta heilann mikið um hlutina fyrirfram. Og fimm ára nám er erfitt tilhugsunar. Ég hef haft þaö eins og þeir hjá AA- samtökunum, tek bara einn dag fyrir i einu. — Hefur þú aldrei veriö aö þvi komin að gefast upp? „Jú, ég hef stundum veriö komin á fremsta hlunn með aö kasta bókunum frá mér. Kannski sérstaklega i vetur, þvi hann hefur verið erfiöastur. Ég setti mér strax þaö takmark aö ná 100% mætingui skólanum og þá má ekkert út af bera til aö allt fari úr skoröum. Þaö þýöir ekki annað en aö skipuleggja timann vel og með þvi móti hef ég náö nokkurra klukkutima lestri á dag. Ég hef lika orðið að lesa talsvert um helgar. Stundum fyllist ég von- leysi, þegar ég geri mér grein fyrir hvaö þarf aö eyöa miklum tima i lesturinn, en svo bit ég bara á jaxlinn og geri eins og ég get”. Of gömul? — Fannst þér þú ekkert vera orðin of gömul til aö byrja aftur aö læra? „Nei, þaö hvarflaöi aldrei aö mér. Ég var ekki nærri þvi aö vera elst i öldungadeildinni og þaö hefur sjálfsagt haft sin á- hrif. Hins vegar segir aldurinn til sin á annan hátt. Þegar maö- ur er kominn á þennan aldur vill maður alls ekki skriöa á próf- um. Ég veit aö ég verö aö setja mér takmark i samræmi viö þann tima sem ég get lagt i þetta, en ég hef alltaf miðað viö 1. einkunn. Þaö tókst mér I fyrstá hluta, en róöurinn þyng- ist stööugt. Maður kemur út ur þessu námi reynslunni rikari. Þaö getur veriö slæmt aö setja markiö of hátt. Það þarf gifur- legt átak til að slá met og til aö gera þaö hættir fólk aö lifa lif- inu. 1 þessu efni læröi ég góöa lexiu i Hamrahliöinni. Þar setti ég markið of hátt, eins og marg- ir aörir. 1 einu prófinu hélt ég aö mér heföi gengiö mjög vel og bjóst við aö fá A, en fékk svo aö- eins B. Ég ákvaö aö taka prófiö aftur, en þá vildi nú ekki betur til en svo að ég fékk C. Ég haföi gott af þessum skelli og þaö hef- ur orðiö mér aö leiöarljósi til aö vera ekki meö sjúklega metnaö- argirni”. Frímínútur í garðvinnu Þegar Helgarblaðiö heimsótti Eddu hafði hún nýlega lokið prófum, og þvi vakti þaö athygli okkar, að öll vorverk i garöinum voru frá og heimiliö leit út eins og þar væri nýbúiö aö gera hreint. En það var til skýring á þvi. „Þegar ég er i próflestri les ég aldrei lengur en 40—45 minútur i einu. Lengri timi nýtist mér illa” sagöi Edda. „Þá tek ég mér friminútur og nota þær til að þurrka af eða hreinsa eitt beð i garðinum. Mér finnst gaman aö fylgjast meö gróðrinum og þvi slapp ég best af i garðin um.” — Kemur námið ekkert i veg fyrir aö þú getir „lifaö lifinu”? „Nei, það held ég ekki. Ég setti mér að hafa ekkert af fjöl- skyldunni og ef Helga langar til að fara eitthvaö, eöa viö erum boöin út, þá förum viö þaö, þótt það kosti svo einhvern nætur- lestur. Og ég læt mig aldrei vanta á hálfsmánaðarlega fundi okkar kvennaskólastelpnanna. Viðförum mikiö I leikhúsmeð kunningjum okkar. Áeftirfáum viö okkur kaffibolla og ræöum leikritið. Ég held að fólk þurfi að gera meira af þvi. Maöur hugs- ar þá betur um inntak verksins og vikkar með þvi sjóndeildar- hringinn. Aöur en börnunum fjölgaöi og ég fór aö læra, feröuðumst viö og synir okkar þó nokkuö til út- landa, bæði suöur um höf og um Norðurlönd. Við höfum ekki verið sérlega spennt fyrir þvi siðan, en við feröumst mikið innanlandsmeöbörnin. A sumr- in förum viö alltaf ööru hverju i útilegur meö vinum okkar og þeim feröum vil ég alls ekki missa af.” Lagastörfin framundan — Aö lokum Edda, hver eru framtiöaráformin? „Ég byrja á lokaritgerðinni i sumar. Hún verður á refsirétt- arsviöinu, sem mér finnst mjög áhugavert. Svo vonast ég til að verða búin um áramótin, en hvað veröur eftir þaö er ekki á- kveðiö. Ég hef reynt mig viö lögfræöistörfin hjá bæjarfógeta- embættinu i Kópavogi og hlakka til aö vinna við þau i framtiö- inni. Mér finnst lögfræöin veröa þvi skemmtilegri sem hún verö- ur erfiöari. Aöur en ég fer að vinna, er ég þó ákveöin i aö taka mér hvlld. Ég viðurkenni aö þó ég sé aö eölisfari hraust, þá finn ég fyrir þvi aö námiö hefur tekiö á mig og þá sérstaklega álagiö i kring- um vorprófin. En svo vonast ég til aö fá vinnu i minu fagi og þá helst hluta úr degi til aö byrja meö.” —SJ ömmur barnanna aö gæta þeirra, þvi ég er á móti þvi aö ömmurnar séu notaöar. Mér finnst það miklu frekarokkar aö stjana við þær. Þær eru búnar að gera sitt. Ég hef notið frá þeim annars konar hlýlegheita. En meðal annarra orða, af hverju er búið að koma þvi inn hjá konum að heimilisstörf séu leiðinleg? Það eru mörg störf leiðinlegri. Ég held að margar konur láti þrýsta sér út á vinnu- markaöinn vegna þess aö fólk segir, að annars geti þær ekki talaö um neitt við manninn sinn. Af hverju allt þetta tal um stöönun þeirra kvenna sem heima eru? Þetta finnst mér sorglegt. Almenningsálitið get- ur veriö afskaplega hættulegt. Ég get ekki imyndað mér aö þaö sé gott að konur vinni úti allan daginn á meöan börnin eru litil. Þó ekki sé nema vegna þess aö þaö er of mikið að gera á heimil- inu á meðan.” Edda tók þátt i tiskusýningum i Reykjavik um 15 ára skeið. Þessi mynd birtist i einu dagblaöanna á árinu 1965. Auglýsingafyrirseta var hluti af starfinu. Þessi mynd var meö auglýsingu fyrir hárlakki. Laugardagur 10. júnf 1978 VISIR Takið eftir! Ný sending plakata SMOKIE o. fl. o. fl. Póstsendum samdœgursj Skrifið eða hringið eftir lista yfir hið fjölbreytta plakata-úrval okkar: PLÖTUPORTID Laugavegí 17 ©27667 Nauðungaruppboð sem auglýst var i 5., 7. og 10. tbl. Lögbirtingablaös 1978 á Grýtubakka 16, talin eign húsféiagsins fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavik á eigninni sjáifri þriöjudag 13. júni 1978 kl. 15.00 Borgarfógetaembættiö I Reykjavfk. VORURNAR HJALPA YÐUR FÁSTÍNÆSTA APÓTEKI KEMIKALIA HF, ER EITTHVAÐ AÐ FOTUM YÐAR? ggSp ■flÖEU andodcx/ ^■ÞS Mop ««!«*** v J odoof -4 Utankjörstaðakosning Utankjörstaðoskrifstofa Sjólfstœðisflokksins er í Valhöll, Háaleitisbraut 1 - Símar: 84302 og 84037 Sjálfstæðisfólk! Vinsamlega látið skrif- stofuna vita um alla kjósendur, sem verða ekki heima á kjördegi. Utankjörstaða- kosning fer fram i Miðbæjarskólanum alla virka daga kl. 10—12, 14—18 og 20—22. Sunnudaga kl. 14—18.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.