Vísir - 10.06.1978, Page 15

Vísir - 10.06.1978, Page 15
„EG ER SVO STERK, AF ÞVÍ AÐ ÉG BORÐA ALLTAF HAFRA- GRAUT Á MORGNANA" Segr Guðrún Eva Guðmundsdóttir, sem er pljfí- 5 ára ömmustelpa, en afí hennar, Ármann gjF Kr. Enarsson hefur skrifað um hana bók m vism Laugardagur 10. júni 1978 Mynd eftir Guftrúnu Evu. Kafli úr „Ömimistelpu" Ekki hafi Anna Rós svipast lengi um er hún kom auga á stærðar drullupoll rétt við götuna. Hún hraðaði sér að pollin- um og skildi hjólið eftir stutt frá. Nú vissi Anna Rós hvað hún vildi gera. Hún ætlaði að baka drullukökur. Anna Rós var svo hepp- in að hún fann spýtubrot/ sem hún gat notað fyrir sleif. Hún hrærði með henni í þessum gríðar- stóra potti og síðan jós hún upp brúnni leðjunni. Þegar komin var dálítil hrúga af þessu indæla/ mjúka efni/ byrjaði unga húsmóðirin að hnoða kökurnar. Bakaraofninn í þykjustunni var þarna rétt við pollinn og inn í hann raðaði Anna Rós súkkulaðikökunum sin- um. Þetta var ágætis of n/ því brátt fór að rjúka upp af kökunum. Þennan sólheita vormorgun lagði alls staðar Ijósan eim upp af gegnvotri jörðinni. Anna Rós sat lengi glöð og áhyggjulaus eins og fugl á kvisti við stóra súkkulagðipottinn og bakaði heimsins fínustu kökur. Skyndilega var kyrrðin rofin/ unga bök- unarkonan heyrði létt fótatak nálgast og leit upp. Það glaðnaði yfir önnu Rós. Þetta var óli, sem átti heima í næsta húsi. Hann var einu ári eldri en hún og þau höfðu oft leik- ið sér saman. Óli var yngstur systkina sinna. Þau voru öll í skóla. Mamma hans og pabbi unnu bæði úti og þess vegna varð óli að sjá um sig að mestu leyti sjálfur. Krakkarnir I Kvistaborg aö hlusta á sögu. Afi, Ármann Kr. Einarsson, skoöar bók meö ömmustelpu og nokkr- um skólasystkinum hennar. Bók Ármanns, ömmustelpa, var ný- lega valin besta barnabók ársins 1977. Ég hitti Guðrúnu Evu á leikskólanum hennar, en það er leikskólinn Kvistaborg. Þegar ég kom ætlaði fóstran að fara að lesa sögu fyrir krakkana á f imm ára deildinni. Krakkarnir sátu i hring og hlustuðu á söguna. Á eftir spurði ég Guðrúnu Evu: — Er gaman í leikskólanum? — Já, já, mest gaman i bingó og líka að vera úti. Það er gaman að róla og klifra. Annars er nú mest gaman að eiga litla systur. Ég á nefnilega litla systur. Hún er alveg nýfædd. Mamma er nýkomin með hana heim af fæðingar- deildinni. Litla systir mín er með alveg eins hár og ég. — Veistu nokkuð, hvað litla systir á að heita? — Nei, ég er ekki búin að ákveða það ennþá. Og auðvitað er hún svo lítil enn þá að hún getur ekkert nafn átt. Mamma spurði mig um daginn, hvort ég ætlaði ekki að passa litlu systur. Þá sagði ég: Hvernig á stelpa, sem er bara 5 ára að keyra voða stóran barnavagn? — Nú er mamma þín flugfreyja, Hefur þú nokk- urn tíma flogið? — Ég fór einu sinni til Neskaupstaðar í f lugvél til Ásdísar vinkonu hennar mömmu. Fyrst hélt ég að Einu sinni, þegar ég var I slag viö afa datt afi. við værum að fara til Ásdísar frænku minnar, sem býr í Ameríku. — Ferðu stundum upp í sveit? — Já og þá f er ég stundum á hestbak. Einu sinni fórum við upp í sveit á hestbak, og þá datt Stefán (frá Möðrudal) af baki og meiddi sig. Hann varð að fara upp á slysavarðstof u og það varð að sauma hann. Ég hef aldrei dottið af baki. Mér finnst stundum gaman að vera í slag við Ármann, f rænda minn, hann er sjö ára. Ég er líka stundum í slag við afa. Einu sinni, þegar ég var i slag við afa, datt af i. Ég er nef nilega svo sterk, af því að ég borða svo mikinn haf ragraut á morgnana. Það er bara besti maturinn, sem ég fæ. íslandsmótið 1. deild ó morgun, sunnudag kl; 20.00 VALUR - FH t Ath. SUNNUDAGUR kl. 20.00 LAUGARDALSVÖLLUR (EFRI) VALUR

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.