Vísir - 10.06.1978, Síða 22

Vísir - 10.06.1978, Síða 22
22 Laugardagur 10. júni 1978 VISIR stæBishúsinu. En Haraldur kom við á fleiri sviðum en þar. Við spyrjum hann hvort hann hafi ekki leikið i Þjóðleikhúsinu. „Guð almáttugur hjálpi þér vina min. Það var ég sem opn- aði Þjóðleikhúsið! Fyrsta leikritið sem leikið var i Þjóðleikhúsinu var Nýársnóttin eftir Indriða heitinn Einarsson. Er tjaldið var dregið frá á þessu merkiskvöldi sumardagsins fyrsta árið 1950 var ég á leiksviðinu ásamt þremur gull- fallegum álfameyjum og min fagra holgóma rödd hljómaði um salinn, þvi ég sagði fyrstu orðin, sem sögð voru i hinu „H e 1 g a m u s t e r i ” Þjóðleikhúsinu. — Hvaða hlutverk lékstu? „Ég lék Svart. Svartur var úr Alfheimum og eins svartur og nokkur getur verið.” — Var þetta skemmtilegt hlutverk? „Nei alveg djöfullegt. A hverju kvöldi varö ég að klina andlit mitt og háls með kolsvartri tjöru, sem var næst- um ómögulegt að ná framan eðlisfari þá tór ég strax eitir að tjaldið féll til Indriða og bað hann fyrirgefningar á þvi að ég skyldi hafa myrt hann. Hann sagði eitthvað á þessa leið: Þú átt eftir að drepa mig kvöld eftir kvöld á næstunni er ekki betra að þú biðir með fyrirgefninguna þar til siðar og þá fyrirgef ég þér öll drápin i einu lagi. Ég hef stundum verið að hugsa um það hvort ég sé ekki eini maðurinn i öllum heiminum sem hefur myrt mann og farið svo til hins látna og beðið hann fyrirgefn- ingar”. /,Þetta er mjög alvarlegt leikrit" „Vegna þess að ég var svo vit- laus að fara að rifja upp leikrit sem ég lék i hjá Þjóðleikhúsinu þá má ég til með að segja þér frá leikriti eftir Indriða Einars- son sem ég lék i hjá Leikfélagi Reykjavikur, en það var Dansinn i Hruna. Ég verð aldrei svo gamall að ég gleymi öllum ,/Við pabbi segjum þér ef þú hefur enga hæfileika" „Indriði hætti ekki þrátt fyrir fábjánalega brandara mina. Hann sagðist meira að segja hafa talað við föður sinn og beð- ið hann að koma á æfingar, þar sem við yrðum aðeins þrir og „ef pabbi getur ekki kennt þér að leika þá getur enginn gert það”, sagði Indriði. Ég sá að Indriði hafði á réttu að standa. Þarna var mér að berast tækifæri, sem ég myndi aldrei fá aftur, svo það fóru að renna á mig tvær grimur. Jens, faðir Indriða, var einn besti leikari sem Island hefur nokkurn tima átt. Tilboðið var þvi afskaplega ginnandi og slikt tækifæri til þess að verða góður leikari fengi ég aldrei aftur. Þrátt fyrir þetta allt var beigur i mér. Ég sagði við Indriða að ég væri svo hræddur um að verða mér til skammar. „Það er engin hætta á þvi, við pabbi segjum þér ef þú hefur enga hæfileika.” Þetta réði Engar sokkabuxur voru nógu stórar á mig. Fór ég þvi til konu sem ég þekkti vestur i bæ, sem var heldur stórskorin og lánaði hún mér bláar buxur af sér en ég var i venjulegum sokkum við buxur konunnar. En bláu buxurnar áttu eftir að gera mér mikinn grikk. Er ég hafði verið veginn i fyrsta þætti og lik mitt lá á gólfinu, komu fjórir burðar- karlar inn á leiksviðið til þess að fjarlægja minar jarðnesku leif- ar. En er þeir lyftu upp liki minu fór kuflinn upp og bláu buxurn- ar konunnar komu i ljós. Er áhorfendur sáu þetta fóru þeir að hlæja. Þeir veltust um af hlátri i sætum sinum. Ég ætla ekki að lýsa sálarástandi minu er þetta gerðist. Þetta endurtók sig þau sautján kvöld sem leikritið var leikið. Alexander Jóhannesson var mikill vinur Indriða Einarssonar höfundar verksins og skrifaði dóma um leikritið i Visi. Þeir voru það langir að þeir birtust i tveim Visisblöðum. Fengu flestir leikarar mjög góða dóma. En doktor Alexander endaði dóma bæði hér innanlands og utan. Gömlu leikararnir voru flestir amatörar, sem fengu smá borgun hjá leikfélögunum fyrir vinnu sina. Þeir þurftu að vinna ýmis önnur störf til að geta lif- að. Þeir komu oft útkeyrðir eftir langan vinnudag á æfingar, sem þá stóðu langt fram á nótt. Það er alltaf gott að eiga marga góða leikara, én við megum ekki mennta allt of marga. Ef við gerum það þá skapast at- vinnuleysi meðal þeirra. Það er eins með alla menntun, það hlýtur að vera óskemmtilegt að ganga um atvinnulaus i þvi fagi sem maður hefur menntað sig L^_______________________ Ferðalög um landiö með stjórnmálamönnum — Nú fórst þú margar ferðir út um land til að skemmta? „Við fórum með ýmis leikrit um landið t.d. Þorlák þreytta sem sýndur var i Iðnó. Einnig ferðaðist ég með stjórnmála- mönnum, en aðeins með sjálf- stæðismönnum. Þetta voru ferðir á héraðsmót, þar sem 1 stjórnarráðinu. Haraldur og Aróra Halldórsdóttir i hlutverkum sinum i Vertu bara kátur. Gullöldin okkar sem sýnd var árið 1957. Hér eru þau Haraldur A., Steinunn Bjarnadóttir og Sigriður Guðmundsdóttir I hlutverkum sinum. Emelia Jónasdóttir tók þátt I reviusýningum; hér er hún i revlunni Vertu bara kátur sem sýnd var árið 1947. Haraldur A. i reviunni Vertu bara kátur sem sýnd var árið 1947. Steinunn Bjarnadóttir, Haraldur A. og Lárus Ingólfsson f hlutverk- um sinum I Gullöldin okkar sem sýnd var árið 1957. úr sér. Er ég gekk um götur bæjarins dagana eftir að ég hafði leikið þennan surt, heyrði ég fólk segja sem ég gekk framhjá: Nú er þaö svart. Og það get ég sagt þér, svona okkar á milli, að ég hef ennþá svartan blett á hálsinum, sem ég hef ekki getað náö af mér. Menn sem hafa séð mig i sundiaugunum og þá auðvitað blettiun llka, hafa oft spurt mig hvers konar blettur þetta væri. Vegna þess að ég veit að enginn myndi trúa þvi að ég hefði ekki getað náð óþverr- anum af mér öll þessi ár, hef ég sagt að þetta væri fæðingar- blettur”. — Þú hefur haldið áfram þrátt fyrir alla tjöruna? „Auðvitað, ég haföi hugboð um það að fyrr en seinna fengi ég tækifæri til að hefna min á einn eða annan veg. Endalokin i Nýársnóttinni eru miklar erjur milli álfakóngsins og Svarts. Alfakóngurinn skipar Svarti að drepa konur sem voru á sviðinu i siöasta þættinum. Svarti fallast alveg hendur og getur með engu móti drepið konurnar, eins og gefur að skilja. Þarna er einnig á sviðinu Gvendur Snemmbæri. Hann hvetur Svart til að drepa álfakónginn i stað kvennanna. Ég ræðst þvi næst á álfakónginn og myrði hann með isköldu blóði. Ég vil taka það fram að mér þótti ákaflega leiðinlegt að stúta álfakóngin- um, þvi sá sem lék hann var einn af albestu vinum minum, Indriöi sálugi Waage. Vegna þess að ég er afar kurteis að þeim hörmungum sem yfir mig dundu i þvi blessaöa leikriti. Vinur minn Indriöi Waage var leikstjóri þessa leikrits. Hann kom eitt sinn til min og sagðist ætla að bjóöa mér hlutverk i leikriti er Leikfélag Reykjavik- ur ætlaði aö fara að sýna i Iðnó, er liða tók á veturinn. Ég spurði hann hvort þetta væri farsi eða gamanleikur. Hann sagði: Ég held nú ekki vinur minn. Það er nú öðru nær. Þetta er mjög alvarlegt leikrit. Ég þakk- aði honum hjartanlega fyrir gott boð, og afþakkaði. Indriði gafst ekki upp og sagði eitthvað á þessa leið: „Hugsaðu þig nú ofur litið um, áður en þú sleppir svona góðu tækifæri til aö sýna hvað i þér býr. Þaö er svei mér timi til kominn að þú reynir þig i alvar- legum leikritum, og hættir öll- um fiflalátum. Þú ert svei mér búinn að sprella nóg.” Ég ætlaði aö fara að brúka kjaft, en hætti við það og spurði Indriða hvaða leikrit þetta væri og hvers konar hlutverk mér væri ætlað. Indriði skýröi mér frá leikritinu og sagði að ég ætti að leika vik- ing. Ég held að þú sért kolbrjál- aður”, sagði ég ~viö Indriða, „hvað helduröu að þeir i KR segi ef ég fer að leika viking”. Þá varð Indriði reiður. „Reyndu einu sinni að vera eins og almennilegur maður og fyrir alla muni hættu þessum. fábjánalegu bröndurum þinum. Ertu svo vitlaus að sjá ekki að ég er að reyna að hjálpa þér til þess að fá tækifæri til að leika i, almennilegu leikriti.” úrslitum, ég gekk i gildruna. Jens Waage var orðinn banka- stjóri I tslandsbanka og hafði orðið að hætta við leiklistina vegna starfs sins i bankanum. Við Indriði komum heim til hans svo að segja daglega og þeir feðgar gerðu sitt besta til þess að hjálpa mér til að læra það sem ég átti að segja á leiksviöinu. Ekki var það svo mikið sem ég átti að segja, þvi til allrar hamingju var ég myrtur i fyrsta þætti. Nafn þessa dela sem ég átti að leika var Tristan Tristanson. Brátt kom að þvi að Indriði sagði mér að hann og pabbi hans hefðu orðið sammála um að ég gæti hæglega leikið Tristan.” Áhorfendur hlógu að mér allar sautján sýningarnar „Nú eftir að þaö var ákveðið að ég léki Tristan Tristanson þá byrjuðu æfingar af fullum krafti i Iðnó. Þar voru flestir bestu leikarar bæjarins saman komn- ir t.d. Agúst Kvaran, Arndis Björnsdóttir, Emelia Indriða- dóttir, Friðfinnur Guöjónsson, Brynjólfur Jóhannesson, Guðrún Indriðadóttir, Indriði Waage, Soffia Kvaran og Tómas Hallgrimsson. Æfingar voru oft langt fram á nótt. Þegar æft hafði verið i fáeiha daga var byrjað að safna saman búning- um þeim er leikarar áttu að nota. Vikingarnir áttu meðal annars að vera i kuflum sem náðu niður á hné, en nota sokkabuxur innan undir. En nú kom dálitið babb i bátinn. sina á þessa leiö. „Þá eru það tveir leikendur eftir. Þeir Einar Finnbogason sem lék Djáknann og Haraldur Á. Sigurðsson er lék Tristan Tristanson.” A okk- ur var ekki eyðandi orðum og gefur það dálitla hugmynd um það hversu góöir leikarar við vorum. Seinna kynntist ég doktor Alexander og urðum við góðir vinir. Eitt sinn minnti ég hann á dóma hans i Visi um Dansinn i Hruna og hvernig dómur hans um mig hafði verið. „Varstu sár út af leikdómi min- um?” spurði doktor Alexander. „Nei”, sagði ég. „Hversvegna ekki?” spuröi hann. „Ég vissi að enginn myndi taka mark á honum”. Alexander hló og vinátta okkar var jafn góð eftir sem áður. 1 framhaldi af spjalli Haraldar um leikhúsin þá spurðum við hann hvað honum findist um leiklistina i dag? „Það eru nú svo margir aðrir sem gætu svarað þessari spurn- ingu miklu betur en ég. Ég fer mjög sjaldan i leikhúsið nú orð- iö. Ég á svo erfitt með að sitja lengi i misjafnlega þægilegum sætum. En ég er ekki i vafa um að leiklistinni hefur farið fram á tslandi siðustu árin. Ég ætla ekki að lasta gömlu leikarana, þvi meðal þeirra voru margir frábærir leikarar. Þegar verið er að bera saman leikara þá og i dag verður að hafa I huga að margir leikarar sem starfa i dag eru mjög vel menntaðir, stjórnmálamennirnir héldu ræður, en á undan voru fluttir skemmtiþættir. Við vorum oftast tveir sem sáum um skemmtiþættina, t.d. Brynjólfur Jóhannesson og ég. Siðar bættist svo Ómar Ragnarsson í okkar hóp. Hann fór sina fyrstu ferð út á land til að skemmta með mér. Það var árið 1958. Hann var strax mjög góður, ég sá að hann átti eftir að spjara sig.” — Geturðu ekki sagt okkur einhverja sögu úr þessum ferö- um? „Ég veit ekki hvað ég á aö taka, ég er búinn að gleyma þeim flestum. En þó man ég einu sinni eftir þvi að ég var á ferðalag með Sigurði Eggerts. Ég var lengi að hugsa um það hvernig þessir stjórnmálamenn gætu rifist eins og hundar og kettir I ræðupúltinu, en væru svo mestu mátar þegar þvi var lok- ið. Ég spyr Sigurð hvernig á þessu stand. Hann svarar: „Heldur þú Haraldur minn að enginn geti leikið nema þú?” Þetta voru alveg stórkostlegir menn sem ég var með. Eitt sinn var ég með Bjarna heitnum Benediktssyni og viö vorum að spjalla saman áður en ég fór upp á sviðið. Þá sagði hann: „Blessaður taktu okkur eins mikið i gegn og þú getur, þá geturðu tekið hina ennþá meira i gegn”. Bjarni var alveg frábær ræðumaður og talaði alltaf blaðalaust. Það gerði einnig Magnús frá Mel, sem var fjármálaráðherrann okkar. Einnig kunni ég afskaplega vel „Fer aldrei í leikhúsið nú orðið"

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.