Vísir - 10.06.1978, Side 23
VISIR Laugardagur 10. júnl 1978
23
vi6 þá Gunnar Thoroddsen,
Jóhann Hafstein og Ingólf Jóns-
son frá Hellu.
Þa6 kom fyrir aö stjórnmála-
mennirnir striddu mér dálitið.
Ég man t.d. einu sinni eftir þvi
þegar við Ólafur Thors vorum á
ferðalagi fyrir vestan. Þar hélt
ég tölu um tsfirðinga á tsafirði.
Ég fór mörgum orðum um það
hversu duglegir og stórkostlegir
þeir væru. Svo þegar við kom-
um á Bolungarvik, þá notaöi ég
sömu töluna þar, en breytti
bara um og setti Bolvikingar
þar sem Isfirðingar haföi staöið
áður. Þá gellur i Ólafi úti i sal:
„Hvernig er þetta hjá þér
Haraldur, þú sagðir þetta sama
á tsafirði i gær”. Ég varö að
svara einhverju fyrir mig, þvi
þetta var ekki gott afspurnar og
sagði yfir salinn: „Hvers'vegna
mega Isfirðingar ekki einnig
vita þetta um Bolvikinga?”
Leiga á hreindýrum
— Þú ert mikill vinur Gilc-
hrist sem var sendiherra Breta
hér á landi I fyrsta þorskastriði?
„Þetta er alveg rétt. Það er
orðið langt siðan að steinninn
kom fyrst i vasa minn. Þegar
dóttir min var þriggja ára
gömul þá vorum við einu sinni
sem oftar uppi á Litlu Drageyri
i Skorradal, en þar bjó ég um
tima, þá gaf húm mér litinn
stein. Ég stakk honum i vasa
minn og siðan hef ég látiö það
vera mitt fyrsta verk er ég fer á
fætur á morgnana að láta stein-
inn i vasa minn. Þaö hafa marg-
ir vinir minir gert grin aö þessu,
en ég þykist vita minu viti.
— Hvað er langt siðan að
dóttir þin gaf þér steininn?
„Ég veit ekki hvort ég á að
segja þér það, kvenfólk vill helst
ekki láta nokkurn mann vita hve
gamalt það er. En samt skal ég
trúa þér fyrir þvi, vegna þess að
ég veit aö þú lætur það ekki fara
lengra. Það eru nú orðin 34 ár
siðan.”
— Býr þá steinninn yfir
einhverjum mætti?
„Það gerir hann svo sann-
arlega. En það er ekki
þessi eini steinn. Löngu seinna
gaf dótturdóttur min
mina. Helviti ertu i vondu skapi,
vinurinn, sagði ég. Hann spýtti
einhverju út úrsér, sem átti vist
aö vera: Er það nokkur furða.
Hefur eitthvað komið fyrir þig
spurði ég. Manni léttir ætið er
maður ræðir vandræði og
áhyggjur sinar viö góða vini,
bætti ég við. Það er nú svo kom-
ið sagði djöflsi að það er orðið
svo kalt heima, hjá mér aö
ibúarnir hóta allir að fara að
heiman. Þetta er allt þessum
Kröflumönnum að kenna, sagði
sá gamli og það sauð i honum
vonskan. Þvi trúi ég ekki sagði
ég. Ég hélt að pólitikusarnir
hefðu annað að gera en að angra
kölska nú rétt fyrir kosningar.
Þeir eru á eftir heitavatninu
minu, sagði Kölski. A hverjum
degi dæla þeir upp milljónum
tonna af sjóðandi vatni. Hvaðan
helduröu að þetta vatn komi. En
hvernig stendur á þvi aö þeir
hafa ekki angrað þig fyrr. Það
stendur svoleiðis á þvi að þeir
kunnu það ekki sagði Kölski. En
svo fengu þeir einhverja
kerlingu frá Ameriku til þess að
opna heitu lindirnar með
Haraldur Á. Sigurðsson á fallegt heimili að Dyngjuvegi 31 Reykjavik.
”Þetta er mjög alvarlegt leikrit
sagði Indriði Waage, og bauð
mér hlutverk.”
„Leikritið var Dansinn i Hruna,
eftir Indriða Einarsson, og ég
átti að leika Tristan Tristans-
son.”
„En bláu buxur konunnar áttu
eftir að gera mér mikinn
grikk.”
„Við erum ágætir kunningjar,
en hann hefur sagt sjálfur frá
þeim kunningsskap i bók sinni,
sem kom út fyrir nokkru. En ég
kynntist mörgum ágætum
Breta, sem kom hingað til lands
i viðskiptaerindum. Þetta voru
misjafnir menn, sumir nokkuð
drykkfelldir. Ég skal segja þér
sögu af einum slikum. Hann var
hér i viðskiptaerindum, á veg-
um fyrirtækis sem hann staríaöi
fyrir i London. Manninum
fannst gott að fá sér neðan i þvi
og gerði það óspart meðan hann
var hér á landi. Þegar hann
hafði dvalið hér nokkurn tima
og ætlaöi að fara heim, sá hann
að hann hafði eytt þó nokkru fé
og fannst endilega að hann ætti
nú að láta fyrirtækið borga
eitthvað af þvi sem fór i áfengis-
kaupin. Hann spurði mig ráða.
Ég ráðlagöi honum aö setja á
reikninginn fyrir kostnaðinum
við Islandsdvölina leigu á
hreindýrum! Þetta var þó
nokkur upphæð sem fór i
hreindýraleiguna hjá mannin-
um og það var allt samþykkt úti
i London af fyrirtækinu. Seinna
rakst ég á þennan sama mann i
London. Hann hafði þá misst
starfið hjá fyrirtækinu og var
farinn að afgreiða vin á bar ein-
um þar i borg.”
Ekki alveg
steinblankur
— Mér er sagt að þú gangir
alltaf með ákveðinn stein í
vasanum?
mér stein og siðar dóttur-syn-
ir minir sinn hvorn. Ég á þvi
orðið fimm steina, vegna
þess að vinur minn gaf
mér einn til viðbótar. Sá er svo
stór að ég kem honum ekki ofani
neinn vasa Þann stein hef ég
ætið viö rúmið mitt og ég held á
honum meðan ég les bænirnar
minar. Þann stóra tek ég einnig
með mér þegar ég fer til
útlanda. Þaö er varla hægt að
segja að ég sé steinblankur.”
— Ertu trúaður?
Ég trúi þvi að það sé lif eftir
þetta lif. Ég er alveg viss um að
vinir minir bjóöa mér rullu
þegar ég kem til þeirra. En
fyrst viö erum farin að tala um
eitthvað þarna hinum megin, þá
verð ég að segja þér draum,
sem mig dreymdi nýlega. Hann
var um þann sem býr i neðra.
Hann lék við
hvern sinn fingur
og báða hófa
Ég var aö labba i Austur-
stræti. Þetta var að næturlagi
en það var albjart. Fyrst sást
enginn mannvera á ferli. En allt
i einu sé ég einhvern koma á
móti mér. Er hann kom nær var
þetta enginn annar en sjálfur
myrkrahöfðinginn, Kölski.
Vegna þess aö við erum
nákunnugir, auk þess sem ég
hefi oft gert honum greiða, þá
kunni ég ekki við annað en að
taka hann tali. Ég sá strax að
hann var i djöfulvondu skapi, en
hann tók nú samt undir kveðju
galdrapriki og þá kom bullandi
gos eins og skot. En hvað þýðir
aö vera að kjafta þetta við þig.
Ég verð að taka þessu eins og
hverju öðru hundsbiti. Þaö er
ekki annaö að gera fyrir mig en
að fara i laugarnar til að fá
velgju, þvi annars krókna ég úr
kulda. Svo rauk myrkrahöfðing-
inn út i buskann. En þetta er
ekki allt búið, það er framhald
af draumnum. Ég var aftur
kominn niöur i Austurstræti og
rakst þá á þann gamla aftur. Nú
var hann i finasta skapi
og lék við hvern sinn
fingur og báða hófa. Kölski
brosti eins og litiö barn
og sagði að nú væri allt komiö i
lag þarna neðra hjá sér. Þar
væri nú sjóðandi heitt vatn nótt
og dag og mannskapurinn réði
sér ekki fyrir kæti. En hvernig
fórstu að redda þessu, spuröi
ég. Strákarnir þarna við Kröflu
misstu galdraprik karlingarinn-
ar ofani einu borholuna sem var
i gangi svo hún stiflaöist
og siöan hafa -þeir ekki
einu sinni séð rigningar-
dropa þarna fyrir noröan.
Ertu ekki með niður aö
heilsa upp á selskapið? Þú skalt
fá nóg að drekka og þarna hitt-
iröu fjöldann allan af fyrr-
verandi kunningjum, bæði
stráka og stelpur. En ég afþakk-
aöi þetta góða boð hans og sagði
að það væri sama og þegið. Þú
litur nú inn fyrr en varir, sagði
hann.Viö kvöddumst, en þaö fór
um mig hrollur við þessi siðustu
orð vinar mins, þar sem ég stóö
einn eftir á gangstéttinni.”
— KP.
Tilkynning frá
landskjörstjórn um
listabókstafi í
kjördœmunum
Samkvæmt tilkynningum yfirkjörstjórna
verða þessir listar i kjöri i öllum kjör-
dæmum landsins við alþingiskosningarn-
ar 25. júni n.k.:
A-listi Alþýðuflokksins.
B-listi Framsóknarflokksins.
D-listi Sjálfstœðisflokksins.
F-listi Samtaka frjálslyndra
og vinstri manna.
G-listi Alþýðubandalagsins.
í fjórum kjördæmum verða auk þess eftir-
farandi listar i kjöri:
í Reykjavíkurkjördœmi:
K-listi Kommúnistaflokks íslands.
R-listi Fylkingar byltingarsinnaðra
kommúnista.
S-listi Stjórnmálaflokksins.
í Reykjaneskjördœmi:
S-listi Stjórnmálaflokksins.
V-listi óháðra kjósenda.
I Suðurlandskjördœmi:
L-listi óháðra kjósenda.
í Vestfjarðarkjördœmi:
H-listi óháðra kjósenda.
LANDSKJÖRSTJÓRN
STARFSFOLK OSKAST
Við óskum eftir að ráða eftirtalið starfs-
fólk sem gæti hafið störf eigi slðar en 1.
ágúst n.k.
A. Ritara með góða vélritunar og ensku-
kunnáttu, einnig meðferð telex. Vinnu-
timi er eftir hádegi. Meðmæli æskileg.
B. Bókara með staðgóða kunnáttu i bók-
haldi og almennu reikningshaldi. Hér er
um heilsdags starf að ræða. Meðmæli
óskast.
C. Starf við kaffiveitingar. Vinnutimi er
til skiptis ákv. timi fyrir eða eftir há-
degi. Nauðsynlegt er að umsækjandi búi
sem næst Skeifunni.
Umsóknir sendist blaðinu fyrir 16. þ.m.
merkt: 00158 ES
FORD-umboðið
SVEINN EGILSSON HF
Kordhúsinu Skeifunm 17. sinu HÖIUU Keykjayik
Grafik eftir
Til sölu lit-grafikmyndir eftir ERRÓ
Áritaðar og númeraðar.
Takmarkað upplag.
Myndkynning
Simar: 82420 og 81019
IÞ